Sunday, April 4, 2010

Á ferð um landið með Kobe Bryant


Farðu í bankann og taktu út helvítis helling af peningum - í fimmþúsundköllum.

Dundaðu þér við að raða þeim á jörðina á lengdina. Einn á eftir öðrum.

Raðaðu þeim sem leið liggur út úr íbúðinni, út úr götunni þinni, hverfinu, póstnúmerinu.


Gefum okkur að þú búir í Reykjavík. Því ekki að halda út á land - raðandi seðlunum á götuna í leiðinni?

Við höldum út á land. Austur fyrir fjall á þjóðvegi eitt. Auðnin á suðurleiðinni er svo falleg. Svo droppar maður við í kaffi á Hornafirði og heldur áfram austur, þræðir firðina einn af öðrum. Kíkir á héraðið og áir kannski í Atlavík ef veðrið er gott. Áfram höldum við norður úr og nemum ekki staðar fyrr en á Akureyri.

Allan þennan tíma höfum við verið að raða bölvuðum fimmþúsundköllunum á götuna. Gefum okkur að hafi verið logn og að enginn sé enn farinn að freistast til að pikka þá upp af götunni hinu megin á landinu. Bakið er orðið ansi slappt eftir allt þetta puð. Þetta er líka enginn smá fjöldi af fimmþúsundköllum sem búið er að raða á þjóðveginn.

Gróft reiknað, er þetta ævintýri ein útfærslan á því hvað hægt væri að gera við núvirði launanna sem Kobe Bryant verður búinn að vinna sér inn sem leikmaður LA Lakers þegar nýjasti samningurinn hans rennur út árið 2014.

Svo er bara að taka auglýsingasamningana hans með í reikninginn og klára hringinn í kring um landið.