Friday, February 14, 2014

Grindavík sótti stigin í Ásgarðinn


Íslandsmeistarar Grindavíkur sóttu Stjörnuna heim í úrvalsdeildinni í gærkvöldi og höfðu nokkuð sannfærandi sigur 94-90.  Stjarnan var sem fyrr án Júníors Hairston sem tekur út leikbann og munar um minna. Það var nú samt gaman að horfa á Garðbæingana berjast fyrir sínu svona Kanalausa. Þeir voru alveg í séns, en þetta var bara ekki að detta fyrir þá.

Nú er lið Stjörnunnar annars loksins að skríða saman eftir mikil meiðsli framan af vetri og því forvitnilegt að sjá hvernig það flýtur inn í vorið. Íslandsmeistararnir eru bara að chilla í kring um þriðja sætið og hafa engar stórar áhyggjur af þessu öllu saman. Hérna eru nokkrar myndir


























Pele tapar aftur


Þeir voru óskaplega kasjúal á því, Pele og Beckenbauer, þegar þeir sturtuðu sig í búningsherbergi New York Cosmos árið 1977. Glöggir taka eftir því að á myndina vantar besta knattspyrnumann sögunnar, Diego Maradona. Diego var ekki aðeins betri knattspyrnumaður en Pele, heldur hafði hann einnig bæði stærri og skilvirkari æxlunarfæri. Hann notaði líka miklu betra sjampó en Pele.

Thursday, February 13, 2014

LeBron James er alveg sama


LeBron James skoraði fyrstu flautukörfuna sína á ferlinum gegn Golden State Warriors í Oakland fyrir nokkrum árum, þá sem leikmaður Cleveland. Hann endurtók þetta í nótt þegar hann sallaði 36/13/9 leik og sigurkörfu í andlitið á Steph Curry og félögum í Warriors. Þetta var sjöunda flautukarfan hans LeBron James á ferlinum.

Það er engu líkara en James sé aftur að minna á sig í MVP-umræðunni, sem hefur eingöngu snúist um Kevin Durant síðustu vikur. Þetta er svo fallegur leikur. Bújakasja!

Bill Russell áttræður


Goðsögnin Bill Russell er hvorki meira né minna en áttræður í dag (reyndar 12. febrúar, en það er víst aldrei þessu vant komið fram yfir miðnætti þegar þetta er skrifað). Eins og flest ykkar vita, er Russell eini leikmaðurinn í sögu NBA sem er ekki með nógu marga fingur til að koma meistarahringunum sínum fyrir. Aðeins Phil Jackson er á svipuðu plani hvað varðar þessa sérstöku skartgripasöfnun.

Russell varð ellefu sinnum meistari með Boston Celtics sem leikmaður og síðar spilandi þjálfari, þar af tók hann átta titla í röð frá 1959 til 1966. Fimm sinnum var hann kjörinn verðmætasti leikmaður deildarinnar og fjórum sinnum varð hann frákastakóngur svo eitthvað sé nefnt.

Það er mynd af Bill Russell fyrir aftan orðið "sigurvegari" í öllum betri orðabókum eins og þú sérð hérna fyrir ofan. Enda heita verðlaunin sem veitt eru besta* leikmanni lokaúrslitanna í NBA eftir honum. Heppilegra nafn er ekki hægt að finna á gripinn, nema kannski ef hann héti Guðmundur.

Kannski er það til marks um það hvað við erum öll að verða gömul að við skulum alltaf vera að velta okkur upp úr svona afmælum - ekki síst svona háaldraðra manna.

Kallaðu þetta fortíðarblæti ef þú vilt, en við verðum öll að læra að meta og virða söguna. Virða menn eins og Russell.

Það á ekki eftir að koma fram maður sem vinnur ellefu meistaratitla í NBA deildinni fyrr en í fyrsta lagi eftir að þú ert dauð(ur).

Fáir menn hafa skrifað nafn sitt eins oft í söguannála deildarinnar okkar en Bill Russell.

Til hamingju, gamli. Lifðu vel og lengi.

* - Verðmætasta

P.s. - Bill Russell vann eitthvað á meðan þú varst að lesa þessa stuttu hugleiðingu. Sennilega ekki körfuboltaleik, en þá kannski kotru eða kasínu. Nema hann spili Tveir Ká Fjórtán, sem er ólíklegt.

Wednesday, February 12, 2014

Léttur samaburður á framlagstölfræði


Framlagsstig eru skemmtilegur mælikvarði á alhliða frammistöðu körfuboltamanna. Þetta er stærðfræðiformúla sem tekur mið af tölfræðiframlagi og hagkvæmni aðgerða leikmannsins. Meðalframlag leikmanna í NBA deildinni er um það bil 15 stig í leik.

Án þess að reka hér sérstakan áróður fyrir einu eða öðru, datt okkur í hug að bera saman framlagstölur þeirra Michael Jordan, Kobe Bryant og LeBron James, sem eru sannarlega þrír af betri körfuboltamönnum síðari ára.

Eins og með annað er Michael Jordan að sjálfssögðu atkvæðamestur, en hann var með 27,9 framlagsstig að meðaltali á ferlinum, sem er nánast ómannlegt.

LeBron James er reyndar ekki nema hársbreidd frá Jordan eins og þið sjáið á myndinni hér fyrir ofan og er með 27,7 framlagsstig að meðaltali á ferlinum. Kobe Bryant er svo með talsvert lægri stuðul, eða 23,4.

Við erum alltaf að komast frekar á þá skoðun að það sé tilgangslaust að bera leikmenn saman sem mættust aldrei á vellinum og voru ekki í deildinni á sama tíma - eins og til dæmis Jordan og James - enda spila þeir ekki einu sinni sömu leikstöðu.

Það sem vegur þyngst í þessari pólitík okkar er sú staðreynd að það hafa orðið svo miklar breytingar á leiknum hvað varðar reglur og stíl að það er erfitt að færa rök fyrr því að "leikmaður A hefði verið betri en leikmaður B."

Hvað sem því líður, er nú alltaf gaman að skoða smá tölfræði og það var ekki nema dæmigert að Michael Jordan skuli hafa skákað bæði LeBron James og Kobe Bryant þegar kemur að framlagsstigum, en tölurnar á myndinni efst segja samt ekki alla söguna, sjáið þið til.

Það fyrsta sem þarf að reikna með er sú augljósa staðreynd að þeir James og Bryant eru enn að spila. Það þýðir að það séu 99% líkur á því að þeir eigi báðir eftir að lækka eitthvað í framlagi.

James er á hátindi ferilsins og leiða má líkur að því að hann fari nú að lækka sig eitthvað á næstu árum, enda er maðurinn búinn að vera tíu ár í deildinni.

Sömu sögu er að segja um Kobe Bryant, sem er augljóslega að byrja endasprettinn um 35 ára aldurinn.

Jordan og James hafa báðir náð 30+ framlagsstigum fjórum sinnum á ferlinum, en Kobe Bryant hefur þrisvar náð yfir 26 stigin. Best á hann 28 framlagsstig árið 2006, en það er í eina skiptið sem hann komst yfir meðaltal þeirra Jordan og James.

Merkilegasta atriðið í þessum létta samanburði er samt að skoða tölfræðina hjá Michael Jordan ef hann hefði sleppt Washington-ruglinu á sínum tíma.

Á árunum sínum tveimur hjá hræinu í höfuðborginni (Wizards) var hann "aðeins" með 19,9 framlagsstig að meðaltali, sem lækkar hann sem fyrr segir niður í 27,9 stig á ferlinum.

Á árunum sínum þrettán með Chicago Bulls var Jordan hinsvegar með 29,1 í framlag, sem er ekkert annað en rugl.

Þrátt fyrir að Washington-ruglið sé tekið með, er Jordan samt með hæsta framlag í sögu deildarinnar.

Við erum aftur á móti ekki nógu vel að okkur í þessari tölfræði allri til að geta útskýrt af hverju menn eins og Wilt Chamberlain eru ekki með nema 26 framlagsstig á ferlinum þrátt fyrir að hafa verið með 50/26 meðaltal þegar best lét.

Við látum öðrum það eftir að útskýra það, en vonum að þú hafir haft gaman af þessum litla samanburði á þremenningunum knáu.

Tuesday, February 11, 2014

Bull og vitleysa?


Þeir sem fylgjast með á NBA Ísland vita vel að okkur gæti ekki verið meira sama um hvað er að gerast í háskólaboltanum. 

Okkur finnst háskólaboltinn lélegur og hundleiðinlegur og okkur er því miður drullu sama hvað leikmenn eru að gera þar - þeir hafa nægan tíma til að sanna sig þegar og ef þeir komast í NBA deildina.

Eins og þið vitið flest, hefur því verið spáð lengi að nýliðaárgangurinn í sumar verði sá sterkasti í mörg ár - mögulega síðan 2003 árgangurinn þeirra LeBron James og félaga. 

Þessar spár vöktu smá forvitni hjá okkur, enda var okkur farið að lengja mjög eftir almennilegum nýliðaárgangi. Á síðasta ári eða svo, náði svo skrumið í kring um 2014 árganginn hámarki. 

Svo bjartsýnir voru menn með þessa ungu leikmenn, að meira að segja við létum blekkjast og fórum meira að segja að gæla við það að horfa á leik í háskólaboltanum.

Núna er hinsvegar komið allt annað hljóð í strokkinn og menn sem hafa atvinnu af því að fylgjast með háskólaboltanum eru allt í einu farnir að draga í land með alla þessa snillinga sem þeir voru að lofa okkur í sumar.

Við skömmumst okkar hrikalega fyrir að hafa látið skrumið hafa áhrif á okkur. Nú ætlum við ekki að segja að nýliðavalið næsta sumar verði drasl, en ef marka má fregnir að vestan, verður það aldrei þessi gullnáma sem búið var að spá. 

Menn voru búnir að lýsa því yfir að liðin sem ættu fyrstu 7-8 valréttina myndu jafnvel öll ná sér í fínasta NBA leikmann og að 2-3 þeirra yrðu jafnvel stórstjörnur í framtíðinni.

Einmitt.

Auðvitað vonum við að þetta standist allt og að 2014 árgangurinn verði í alla staði stórkostlegur, en mikið óskaplega óttumst við að allt þetta tal um framtíðarstjörnurnar í nýliðavalinu í sumar reynist argasta kjaftæði. Einst og staðan er núna, er það líklegra en hitt.

Hvað sem kemur út úr þessu, verður þetta vonandi í síðasta skipti sem við látum plata okkur út í að verða spennt yfir hóp krakka í háskólaboltanum. Það er bara ekki fyrirhafnarinnar virði.

Lance



Sunday, February 9, 2014

Saturday, February 8, 2014

Getraun dagsins


Hvað eiga þessir þorparar sameiginlegt? Ef þú ert með þetta, máttu senda svarið á @nbaisland á Twitter, eða gert þetta á gamla mátann og sent póst á nbaisland@gmail.com. Ekki eins og þetta sé erfitt - hmm, ha?


Til hamingju með daginn, Steve


Steve Nash varð fertugur í kvöld. Hélt upp á það með því að eiga sinn besta leik á tímabilinu í sigri Lakers á Philadelphia 76ers. Aðeins Bob Cousy, John Stockton og Jason Kidd hafa spilað leikstjórnandastöðuna í NBA eftir fertugasta afmælisdaginn.

Þetta er búið að vera óttalegt bras á honum Nash blessuðum síðan hann skipti í gult. Bara ef hann næði nú að koma sér í þokkalegt stand í nokkra mánuði svo hann geti hætt með sæmd, þessi litli snillingur.




Þegar Damian Lillard ákvað að vera rólegur bara


Damian Lillard bauð upp á 38 stig og 11 stoðsendingar í nótt þegar Portland-liðið hans þurfti að þola súrt tap í Indiana 118-113 eftir framlengdan háspennuleik.  Portland er búið að tapa fjórum af síðustu sex leikjum sínum og er aðeins að hiksta.

Það munaði reyndar ekki miklu að Lillard næði að skjóta Blazers til sigurs í Indiana í nótt, eins og hann er búinn að gera glettilega oft í vetur. Þetta minnti okkur á leikinn hans í Sacramento fyrir mánuði síðan, þegar hann skoraði 26 stig í 4. leikhluta í tapi fyrir Kings.

Portland skeit aðeins í rúmið í þessum leik og segja má að hann hafi tapast í þriðja leikhluta, þegar liðið skoraði aðeins 13 stig gegn 25 stigum heimamanna. Í raun og veru gefa lokatölurnar ekki rétta mynd af leiknum, því Sacramento var með örugga forystu lengst af í siðari hálfleiknum. Það kom þó ekki í veg fyrir að Lillard gæfi heimamönnum nett hjartaáfall í blálokin, þegar hann ákvað bókstaflega að kasta handsprengju inn á völlinn.

Lillard skoraði 14 stig á 49 sekúndum og var rétt búinn að stela þessu, en ef það hefði tekist, hefðu leikmenn Sacramento bara getað pakkað þessu tímabili ofan í tösku og farið til Benidorm bara. Hér fyrir neðan sérðu hvernig þetta gerðist skref fyrir skref (smelltu á myndina ef þú þarft að stækka hana, álfurinn þinn!):



Reyndar væri þetta Sacramento-lið auðvitað alltaf betur geymt á Benidorm en í NBA deildinni, af því það getur EKKERT. Vissulega átti Sacramento smá þátt í því að gera ofangreindan leik áhugaverðan í lokin, en við megum samt ekki taka neitt af Damian Lillard, sem er alltaf að sýna betur og betur að hann er alvöru körfuboltamaður.

Raunir Luol Deng í Cleveland




Sveiflan stöðvaðist í Grafarvogi


Fjölnismenn unnu í kvöld magnaðan sigur á Tindastól frá Sauðárkróki 95-78 í 1. deildinni. Stólarnir voru taplausir (12-0) fyrir leikinn og því engin furða að heimamenn fögnuðu vel eftir sigurinn.

Skagfirðingarnir eru enn á toppi 1. deildar en Fjölnismenn í 3.-4. sæti með Héraðsbúunum í Hetti.  Töff sigur hjá Grafarvogspiltum, með þá Emil Þór og Pál Fannar í fararbroddi.

Davíð Ingi Bustion er líklega eini leikmaðurinn í 1. deildinni sem getur komið inn af bekknum í 12 mínútur og náð bæði að hirða 10 fráköst og gera allt vitlaust á vellinum með báráttu sinni.

Okkur leiddist ekki að horfa á Darrell Flakes spila fyrir Stólana. Kappinn lék fyrst hér á Íslandi sem atvinnumaður rétt áður en ljósaperan var fundin upp. Algjör meistari.

Af hverju er ekki til blogg á Íslandi sem heitir Skallabletturinn á Darrell Flake?

Við hentum hér inn nokkrum gulum myndum úr Dalhúsunum í kvöld.

























Tuesday, February 4, 2014

Megamánuður Kevins Durants


Hérna er smá upprifjun á ruglinu sem Kevin Durant var að bjóða upp á í síðasta mánuði. Hann var með 36 stig, 6 fráköst, 6 stoðsendingar og 55% skotnýtingu! Þetta er algjör þvættingur!

Nýtt hlaðvarp (svona næstum því)












Fulltrúi NBA Ísland, Baldur Beck, fór í smá NBA-spjall í Sportþættinum á Suðurland FM í gærkvöldi. Við erum það óforskömmuð að við ákváðum að búa til hlaðvarp úr því og kalla það 19. þátt. Við kunnum ekki að skammast okkar.  Smelltu hér til að ná í þáttinn

Monday, February 3, 2014

Grindavík og ÍR í Höllina


"Allt er þá ellefu er..." eða eitthvað þannig hugsa Grindvíkingar þegar þeir fara í Laugardalshöllina enn einu sinni til að spila úrslitaleik í bikarnum. 

Það var gaman að sjá þá Ómar Sævars og Sigurð Þorsteinsson rífa Þórsarana í sig í teignum. Það var eiginlega með ólíkindum hvað Þórsliðið spilaði lélega vörn og lét útfrákasta sig í drasl. Þú ferð ekkert í höllina með því að spila svona á útivelli. 

Og sérstaklega ekki ef Nemanja Sovic er varla þátttakandi í leiknum. Lið eins og Þór má ekki við því að 20 stiga maður eins og Sovic eigi afleitan dag í svona leik. 

Í 95% tilvika skilar hann þér flottum sóknarleik og fullt af frákösum, en hann var bara ekki með í kvöld. Shit happens, við eigum öll okkar off daga. Ekki eins og við drullum ekki á okkur tvisvar í viku.

Það verður gaman að sjá ÍR eiga við Grindavík í úrslitaleiknum, hvenær sem hann verður nú. Við vitum að Breiðhyltingar hafa víst verið að stríða Grindvíkingum eitthvað undanfarið, en það verður allt annað uppi á teningnum í úrslitaleik bikarsins.

Grindavík verður bikarmeistari ef liðið nær að spila almennilega vörn og skítur ekki á sig í sóknarleiknum. Það kemur alveg fyrir að Grindvíkingar drulli á sig í sóknarleiknum og það hefur gjarnan verið að gerast í bikarúrslitaleikjum, svo við skulum ekkert halda niðri  í okkur andanum. 

Óháð öllu, væri sannarlega gaman ef ÍR-ingum tækist að ná í bikar. Ekki eins og það gerist á hverjum degi, þó það séu nú reyndar engir áratugir síðan liðið varð síðast bikarmeistari.

Sunday, February 2, 2014

Troðslur mánaðarins


Hérna eru nokkrar af flottustu troðslum janúarmánaðar í NBA deildinni - nokkrar þeirra sannkallaðar andlitsmeðferðir. Þarna sjáið þið m.a. handboltatroðslu frá Blake Griffin yfir Kris Humphries og troðkeppnitroðsluna hans Paul George.

Biðjum ykkur að afsaka léleg myndgæði, en þið vitið að þið getið fundið stök eintök af hverri troðslu fyrir sig í betri gæðum á youtube.

Eineggja gleði


Veistu af hverju Morris-tvíburarnir eru svona glaðir?



Af því þeir voru að sjá að febrúardagskráin á NBATV er komin inn á NBA Ísland.