Stuðningsmenn Utah Jazz bauluðu þegar félagið þeirra ákvað að taka Butler-drenginn Gordon Hayward með níunda valréttinum í nýliðavalinu árið 2010. Það er sumpart skiljanlegt þegar haft er í huga að maðurinn sem tekinn var á eftir Hayward fór til Indiana og heitir Paul George. Margir æla enn aðeins i munninn sinn þegar þeir rifja það upp.
Kannski þótti stuðningsmönnum Jazz ólíklegt að ræfilslegur og barnalegur gutti eins og Hayward gæti hjálpað liðinu þeirra á nokkurn hátt. Það er líka skiljanlegt hugarfar, því árið 2010 leit Hayward út fyrir að vera tólf ára gamall og 27 kíló með blautt hár og skólatösku. Hann leit reyndar líka út fyrir að heita Ásmundur og hefur því borið það viðurnefni hjá okkur allar götur síðan, en engar tilraunir verða gerðar til að útskýra það hér.
"Gefið honum nokkur ár áður en þið dæmið hann," sagði Kevin O´Connor yfirmaður leikmannamála hjá Jazz eftir nýliðavalið.Hann var viss í sinni sök, enda eru engar tilviljanir í starfslýsingunni hjá honum. Hann vissi að Hayward væri vel upp alinn og duglegur með smá hæfileika og það væri blandan sem til þyrfti til að búa til góðan körfuboltamann.
Þeir sem hafa verið neikvæðir í garð Hayward voru líka fljótir að benda á það í fyrra að hann væri ekki leikmaður sem gæti borið lið á herðum sér og komið því t.d. í úrslitakeppnina.
Það er líka rétt hjá þeim, Gordon Hayward er enginn LeBron James og ekki er hann Kevin Durant heldur. Því fór það fyrir brjóstið á ansi mörgum þegar Utah ákvað að jafna samningstilboðið sem Charlotte gerði honum síðasta sumar og greiða honum því um 63 milljónir dollara fyrir störf sín næstu fjögur árin. Maðurinn sem gat ekki borið lið á herðum sér var allt í einu orðinn "max" spilari - kominn á himinhá laun sem hann þurfti að standa undir.








