Showing posts with label Excel. Show all posts
Showing posts with label Excel. Show all posts
Sunday, February 8, 2015
Samanburður
Efnisflokkar:
Excel
,
LeBron James
,
MVP
,
Russell Westbrook
,
Töflur og gröf
,
Tölfræði
Friday, January 16, 2015
Myndir frá KR-ÍR
KR og ÍR buðu okkur formlega gleðilegt ár með tvíframlengdri bombu í DHL-höllinni í gærkvöldi. ÍR-ingar virtust vera búnir að gleyma því að þeir gætu ekkert í körfubolta og áttu í fullu tré við meistarana. Neyðarlegar tilraunir þeirra til að verja forskotið sitt á lokamínútunum í venjulegum leiktíma mistókust algjörlega og KR nýtti sér það. Lokatölur 113-110 fyrir KR.
Það er freistandi að lýsa því yfir að ÍR hafi sýnt okkur að það sé miklu sterkara en staða þess í deildinni segir til um, en það er leikrit sem við höfum öll séð oft áður. Tölfræði-hundarnir fengu sannarlega nóg fyrir peninginn í þessum leik.
Pavel bauð upp á 24 stig, 18 fráköst og 14 stoðsendingar hjá KR - eins og það sé bara alveg eðlilegt - og Matthías Sigurðarson leikstjórnandi Breiðhyltinga hlóð í 29/12/9. Við þökkum strákunum kærlega fyrir þennan nýársglaðning þeirra í tölfræðisafnið og fögnum því að karfan sé aftur farin á fullt á nýju ári.
Það voru teknar einar sjötíu myndir af þessu eins og þið sjáið hérna fyrir neðan. Gjörið svo vel og skoðið þær eins og þið viljið, við vitum að þið farið ekkert illa með þær þó þær séu ómerktar.
Efnisflokkar:
Excel
,
Heimabrugg
,
ÍR
,
KR
,
Matthías Sigurðarson
,
Myndir
,
Pavel Ermolinski
,
Sóðaskapur
,
Tölfræði
,
Þrennur
Wednesday, November 26, 2014
NBA deildin í Excel(.is)
Vinir okkar á excel.is eru alveg jafn hrifnir af körfubolta og við. Þeir hafa líka gaman að tölfræði, en á meðan skilningur okkar á tölfræði jafngildir þekkingu átta ára barna, eru fagmennirnir á excel.is vísindamenn þegar kemur að þessari dásamlegu hliðargrein körfuboltans.
Forsvarsmenn excel.is eru ekki aðeins fagmenn, heldur eru þeir til í að deila þekkingu sinni með okkur hinum, leikmönnunum. Að þessu sinni tóku þeir sig til og vippuðu öllum leikmönnum í NBA deildinni og allri þeirra tölfræði inn í excel, svo þú getir nú leikið þér að reikna út nánast hvað sem þér dettur í hug að biðja forritið um að finna. Apparatið uppfærir sig svo sjálft.
Við gætum haldið áfram að dásama þessa uppfinningu, en þá færum við mjög fljótlega að fabúlera um eitthvað sem við höfum minna en ekkert vit á. Það er miklu betra að leyfa sérfræðingunum sjálfum að útskýra hvernig þetta virkar.
Efnisflokkar:
Excel
,
Fagmennska
,
Tæknimál
,
Tölfræði
Saturday, September 27, 2014
Smá tölfræðipælingar
Gaman fyrir okkur hin að það hafi ekki verið mikið að gera hjá honum Jeremias Engelmann vini okkar undanfarið. Annars hefði hann sennilega ekki haft tíma til að taka þetta saman. Um er að ræða plús/mínus útreikninga síðustu fjórtán ára, sem hann er búinn að henda í töflu.
Því betri sem menn eru í varnarleiknum, því lengra eru þeir til hægri á lárétta ásnum. Því ofar sem menn eru á töflunni, því betri/skilvirkari eru þeir í sóknarleiknum. Vitum ekkert hvort er eitthvað að marka þetta - seljum það ekki dýrara frekar en annað - en það er alltaf gaman að skoða svona. Góða skemmtun, tölfræðinördar.
Efnisflokkar:
Excel
,
Stolið efni
,
Töflur og gröf
,
Tölfræði
Monday, September 30, 2013
Tvö skotkort frá síðustu leiktíð
Nú er aðeins mánuður í opnunarkvöldið í NBA deildinni. Þangað til, skulum við til gamans rifja upp skotkort þeirra Kobe Bryant og LeBron James á síðustu leiktíð. Hver hefur ekki gaman af að spá í svona? Rautt þýðir að hittnin er undir meðaltali í deildinni frá viðkomandi stað - grænt þýðir skotprósenta yfir meðaltalinu. Ljósi liturinn er c.a. á pari.
Efnisflokkar:
Excel
,
Kobe Bryant
,
LeBron James
,
Skotkort
,
Tölfræði
Wednesday, July 10, 2013
Stigaskor á myndrænan hátt
Rákumst á nokkrar skemmtilegar töflur sem sýna leikmennina sem hafa verið atkvæðamestir í stigaskorun hjá þremur af sigursælustu félögum NBA deildarinnar síðustu áratugi (Bulls, Celtics, Lakers). Myndrænt og skemmtilegt - smelltu á gröfin til að stækka þau.
Efnisflokkar:
Excel
,
Töflur og gröf
,
Tölfræði
Monday, May 27, 2013
Þróun skotvals LeBron James
LeBron James er búinn að taka nákvæmlega 200 skot í úrslitakeppninni. 102 þeirra hafa komið undir körfunni. Slökustu stærðfræðingar átta sig á því að það er um það bil helmingur skota hans (smelltu á myndirnar til að stækka þær).
Það er allt annað en var uppi á teningnum hjá honum þegar hann var hjá Cleveland, þegar hann var að skjóta miklu meira utan af velli. Tökum sem dæmi árið sem hann fór í lokaúrslitin með Cleveland gegn San Antonio. Þá tók hann 399 skot í úrslitakeppninni og eins og þið sjáið á skotkortinu hér fyrir neðan tók hann aðeins 164 þeirra undir körfunni. Það eru um 41% skota hans.
Grantland fór líka ofan í saumana á skotþróun LeBron James frá Cleveland til Miami með myndrænum og skemmtilegum hætti. Fyrst sjáum við hvernig James var að skjóta hjá Cleveland á síðasta árinu sínu í deildakeppninni.
Og hér sjáum við hvernig hann var að skjóta í deildakeppninni í vetur.
Því meira sem James spilar nær körfunni, því hættulegri er hann og því betri árangri hefur lið hans náð.
Efnisflokkar:
Excel
,
LeBron James
,
Tölfræði
Saturday, March 30, 2013
Nokkrir punktar um þróun sóknarleiksins í NBA:
Körfubolti gengur út á það sama hvort sem hann er spilaður í Detroit, Darfur eða á Dalvík. Forráðamenn NBA deildarinnar hafa samt verið nokkuð duglegir að jazza í reglunum og fyrir vikið höfum við séð nokkuð miklar sveiflur í spilamennsku og stíl.
Stærsta breytingin á síðari tímum var auðvitað tilkoma þriggja stiga línunnar, en það kemur eflaust einhverjum á óvart að hún varð ekki partur af NBA fyrr en árið 1979 - nýliðaárið þeirra Larry Bird og Magic Johnson. Segja má að þarna verði þáttaskil í sögu deildarinnar. Byssurnar hjá Knicks hérna fyrir ofan eru ýkt dæmi um þróun langskota í NBA að undanförnu.
NBA deildin hefur átt margar frábærar þriggja stiga skyttur síðan á dögum Larry og Magic, en það er ekki fyrr en núna á seinni árum sem menn fara almennilega að átta sig á gildi langskota í tölfræðinni.Það er nefnilega þannig þó að séu meiri líkur á að þú hittir úr 2ja stiga skoti en 3ja stiga skoti, eru verðlaunin fyrir þristinn auðvitað hærri og geta því haft gríðarleg áhrif á útkomuna.
Til að einfalda þetta getum við ímyndað okkur að lið A og B taki 100 skot hvort á körfuna. Lið A tekur bara tveggja stiga skot og er með 50% nýtingu. Það skorar því 100 stig.
Lið B tekur hinsvegar bara þriggja stiga skot og er því með töluvert lakari skotnýtingu en lið A, eða 40%. Það þýðir að liðið setti aðeins 40 skot niður, en af því þau voru þristar, skila þau 120 stigum í hús.
Þetta er kjánalega einföld stærðfræði, en hún hefur bara ekki verið uppi á borði í NBA deildinni fyrr en á allra síðustu árum með innrás tölfræðinördanna.
Gott dæmi um þetta er Daryl Morey, framkvæmdastjóri Houston Rockets, en hann er tölfræði- og tölvumenntaður njörður sem notar menntun sína með beinum hætti í vinnunni.
Áhrif framkvæmdastjórans endurspeglast svo í spilamennsku Rockets, því lið Houston hefur nánast útrýmt Versta Skotinu. Versta skotið - eða raunar óhagkvæmasta skotið í boltanum - er tveggja stiga skot rétt innan við þriggja stiga línu.
Þetta er svokallaður langur tvistur. Þar eru minni líkur á að þú setjir hann niður en úr skot af styttra færi og minni verðlaun en fyrir að setja þrist. Bættu svo við þetta þeirri staðreynd að þorri leikmanna í NBA deildinni er bara ekkert góður að skjóta af þessu millifæri og út að þriggja stiga línu, og við erum komin með versta skotið í körfuboltanum.
Eins og þið sjáið á töflunni hér til hliðar tekur Houston aðeins 8,8% skota sinna af millifærinu alræmda, meðan helmingur liðanna í deildinni tekur þaðan 20% skota sinna eða meira.En ætli sé einhver fótur fyrir þessum kenningum í tölfræði?
Við skulum bara segja eins og er að NBA Ísland er ekki rétti staðurinn til að fara ítarlega ofan í tölfræði, en við höfum samt gaman af því að glugga aðeins í hana. Mjög gaman, reyndar.
Við sögðum ykkur að 15 lið í NBA tækju 20% eða meira af skotum sínum af millifærinu og út að þriggja stiga línu. Árangurinn? Aðeins fimm þessara liða færu í úrslitakeppnina ef hún byrjaði í dag.
Það er orðin staðreynd að bestu sóknarliðin - og reyndar bestu liðin yfir höfuð - nota þriggja stiga skotið sífellt meira í sínum aðgerðum. New York Knicks og Houston Rockets eru þarna í nokkrum sérflokki og taka 35% af skotum sínum fyrir utan. Þú getur séð skotglöðustu liðin fyrir utan í rauða dálknum í töflunni (sjá mynd).
Ekki eru allir sammála um áreiðanleika og skemmtanagildi þessarar auknu áherslu á langskotin í NBA, en það er ljóst að þessi skothefð er orðin miklu meira en bara blautur draumur hjá tölfræðinördum.
Líklegt má telja að þessi þróun sé komin til að vera í NBA miðað við þær reglur sem eru í gildi og mannskapinn sem þarf að fara eftir þeim. Við verðum líka að hafa það í huga þegar við skoðum þróunina sem orðið hefur í NBA á síðustu tveimur áratugum að miðherjastaðan er allt nema dauð í NBA.
Á þessum tíma fyrir sléttum tuttugu árum, vorið 1993, var Michael Jordan að gíra sig upp í að vinna þriðja titilinn í röð með Chicago Bulls áður en hann fór í hafnaboltaruglið.Eftir það má segja að tími stóru mannanna hafi runnið aftur upp í NBA.
Auðvitað kom Jordan aftur og vann titilinn ´96-´98 en þar fyrir utan skiptust titlarnir sem í boði voru nánast eingöngu á þá Hakeem Olajuwon, Tim Duncan og Shaquille O´Neal.
Þú tekur eftir því að þetta eru allt stórir menn, tveir miðherjar og einn kraftframherji sem spilar eins og miðherji (Duncan).
Liðnir eru þeir tímar sem við vorum með menn eins og O´Neal, Ewing, Robinson og Olajuwon í deildinni - sanna stóra menn. Í dag eru ofurstjörnur NBA deildarinnar oftar en ekki innan við tveir metrar á hæð og úrval miðherja nánast ekkert.
Staðan er bara næstum því dauð.
Allt þetta miðherjaleysi breytir auðvitað gangi mála og spilamennsku í deildinni - þó það nú væri - og í staðinn fyrir miðjuhnoð og iðnaðartroð koma þrifalegir þristar. Þú ræður hvað þér finnst um það, en boltinn á eftir að finna sér leið í gegn um þetta allt saman.
Efnisflokkar:
Excel
,
Reglubreytingar
,
Töflur og gröf
,
Tölfræði
,
Þristar
Thursday, January 31, 2013
Verður Memphis miklu betra án Rudy Gay?
Hér fyrir neðan má sjá áhugaverða tölfræðisamantekt sem við rákumst á og lætur forráðamenn Memphis líta út eins og snillinga. Þarna er verið að deila sóknarframlagi Rudy Gay niður á mannskapinn sem eftir er hjá liðinu. Niðurstaðan er mjög áhugaverð.
Efnisflokkar:
Excel
,
Grizzlies
,
Leikmannamál
,
Rudy Gay
,
Tölfræði
Smá tölfræði
Leikurinn er búinn að breytast gríðarlega undanfarin ár og ólíklegt að bakvörður hefði verið hagkvæmasti post up leikmaðurinn í deildinni fyrir 20 árum síðan. Við rákumst á þessa töflu í kring um helgina og deilum henni með ykkur hérna til gamans.
Efnisflokkar:
Excel
,
Töflur og gröf
,
Tölfræði
Friday, January 4, 2013
Smá tölfræði handa ykkur
Hér fyrir neðan er skemmtilegt graf sem sýnir frammistöðu liðanna í NBA í varnar- og sóknarleiknum það sem af er í vetur.
Nú ætlum við ekki að dæma um það hversu áreiðanleg þessi tölfræði er, en þetta lítur ekki ósennilega út. Okkur finnst líka alltaf gaman að skoða svona. Sjáðu til dæmis grafið hjá Indiana Pacers. Það er mjög fyndið (smelltu til að stækka).
Þið getið skoðað Twitterinn hjá honum @EdKupfer og athugað hvort eitthvað er að marka þetta ef þið viljið vera vísindaleg.
Efnisflokkar:
Excel
,
Töflur og gröf
,
Tölfræði
Þetta graf ætti að útskýra sig sjálft
Efnisflokkar:
Auglýsingar
,
Dreptu okkur ekki
,
Excel
,
Töflur og gröf
,
Tölfræði
,
Þunglyndi
Tuesday, December 11, 2012
Friday, August 24, 2012
Saturday, April 14, 2012
Iceland Express deildin í Excel
Finnur Torfi Gunnarsson, forsprakki excel.is, er ekkert annað en snillingur og er sérlegur aðstoðarmaður ritstjórnar í tæknimálum þegar kemur að Hlaðvarpinu. Finnur er nú búinn að rúlla nýafstaðinni leiktíð í Iceland Express deild karla inn í Excel. Hvetjum alla til að kíkja á þessa snilld hér
Efnisflokkar:
Excel
,
Heimabrugg
,
Tölfræði
Friday, April 6, 2012
Leikmenn Knicks gætu átt yfir höfði sér fangelsisvist
Fyrirsögnin er kannski dálítið ýkt, en samt ekki. Hér er á ferðinni grafalvarlegt mál.
New York tekur hvorki meira né minna en 22,6 þriggja stiga skot að meðaltali í leik. Aðeins tvö lið reyna fleiri langskot en Knicks að meðaltali í leik. Orlando leiðir deildina með 27 tilraunir eins og flestir vita og New Jersey er svo með næstflestar tilraunir, rétt rúmar 23 í leik.
Orlando getur að einhverju leyti réttlætt fyrir sér skotgleðina, því liðið er með þriðju bestu þriggja stiga nýtinguna í deildinni (38%) á eftir San Antonio og Golden State.
New York hinsvegar, úff. Liðið er aðeins með 31,7% nýtingu fyrir utan. Þegar skoðað er hvaða menn það eru sem eru skotglaðastir hjá New York, má sjá að þeir eru flestir með hreint út sagt hræðilega nýtingu.
Aðeins 3ja stiga sérfræðingurinn Steve Novak er að hitta vel fyrir utan, en hann er reyndar að hitta svo vel að hann er með bestu nýtingu allra leikmanna í deildinni - 47,8% sem er frábært.
Á hinum endanum er vissara að Knicks-aðdáendur taki inn róandi lyf áður en farið er í upptalninguna. Þannig eru Carmelo Anthony og meinta skyttan JR Smith aðeins með 29% nýtingu úr djúpinu og þeir Baron Davis og Mike Bibby slá þeim við með 28% og 26%.
Meira að segja kraftaverkið Jeremy Lin er langt fyrir neðan það sem talist gæti ásættanlegt með 32%.
Grófastur af þeim öllum er svo Toney Douglas, sem einhverra hluta vegna hefur ekki verið handtekinn fyrir að taka 3,5 þriggja stiga skottilraunir í leik og nýta aðeins 23% þeirra.
Tuttugu og þrjú prósent!
"Ma, ma, ma, ma, ma bara skilur´ettekki!" - Ragnar Reykhás*
*- Gefum sjálfum okkur strax kúdós fyrir að kvóta Ragnar Reykhás hér á síðunni.
Gríðarlega ferskur karakter sem á nóg inni eins og allir vita.
Efnisflokkar:
Excel
,
Kemur
,
Knicks
,
Múrsteinahleðsla
,
Steve Novak
,
Tölfræði
Monday, March 26, 2012
Staðan í NBA frá Stjörnuleik
Okkur barst þetta skemmtilega skjal sem sýnir hve misjafnlega liðum hefur gengið frá því um Stjörnuhelgina. Þarna má sjá að lið eins og Phoenix, Boston og Utah hafa verið á fínu róli á þessum tíma, meðan lið eins og Portland, LA Clippers og Dallas hafa verið í erfiðleikum. Smelltu á myndina til að stækka hana.
Monday, March 5, 2012
Thursday, January 19, 2012
Sunday, July 17, 2011
Subscribe to:
Posts (Atom)




























