Showing posts with label Michael Jordan. Show all posts
Showing posts with label Michael Jordan. Show all posts
Saturday, April 2, 2016
Átakanlegur endasprettur
Einhver vinnustaðagrínarinn var að leika sér í Photoshop og kom upp með þessa léttu skrítlu hér fyrir ofan. Hér er verið að vísa í það að lokaárið hans Kobe Bryant sé að minna okkur dálítið á það þegar fertugur Michael Jordan tók skó sína fram á ný og lék með Washington Wizards um aldamótin.
Þetta er niðug hugmynd, en hún gengur ekki upp, vegna þess að Michael Jordan spilaði betur með Wizards en Kobe er að gera með Lakers núna.
Við skrifuðum eitthvað um erfiðleika Kobe Bryant og Lakers-liðsins fyrr í vetur og það er svo sem ekki miklu við það að bæta, en það hefur ekki orðið neitt léttara að horfa upp á þetta eftir því sem liðið hefur á veturinn.
Kveðjupartíið hans Kobe Bryant er búið að vera súrrealískt í allan vetur en er nú sem betur fer að taka enda. Við höfum aldrei séð neitt þessu líkt áður og eigum vonandi ekki eftir að upplifa það aftur. Flestir eru á því að þetta bull verði ekki til þess að skemma arfleifð Kobe Bryant sem leikmanns í söguannálum deildarinnar, en við erum ekki sammála því.
Líklega hefur það aldrei áður gerst í sögunni að jafn góður leikmaður og Kobe Bryant hafi spilað jafn hræðilega í jafn langan tíma og hann er búinn að gera undanfarna mánuði. Svo hjálpar það náttúrulega ekki að Lakers er nú með versta lið í sögu félagsins og lang lélegasta þjálfarann í sögu félagsins líka.
Þvílík disfúnksjón, þvílíkur skrípaleikur.
Við gerum þetta upp í sumar þegar komið er betra perspektíf á þetta, en í okkar huga er orðið ljóst að menn og konur eiga eftir að fá kjánahroll þegar þau rifja upp endasprettinn hans Kobe Bryant í NBA deildinni. Og það er ekki stórspilurum sæmandi.
Meira um þetta síðar.
Efnisflokkar:
Drullan upp á herðar
,
Elli Kelling
,
Faðir Tími
,
Kobe Bryant
,
Lakers
,
Michael Jordan
,
Skórnir á hilluna
Wednesday, January 13, 2016
NBA Ísland skoðar einstaka körfuboltamenn
Nú voru þeir Darwin og Durkheim ekki svo heppnir að geta fylgst með NBA körfuboltanum, en okkur verður stundum hugsað til þeirra þegar við fylgjumst með Leiknum í dag. Það er nefnilega eins með körfuboltamenn og annað fólk - það má finna skrímsli í þeirra röðum og það má alltaf koma auga á einhverja þróun í bæði leiknum og mönnunum sem spila hann.
Þeir sem lesa NBA Ísland reglulega muna eflaust eftir því að við höfum átt það til að skrifa um sérstaka tegund leikmanna sem við köllum fyrirbæri. Sumum finnst þetta kannski ljótt orð til að lýsa körfuboltamönnum, en trúið okkur, við meinum ekkert illt með því - þvert á móti. Við köllum nefnilega ekki hvern sem er fyrirbæri. Ó, nei.
(Mynd: Lakers miðherjarnir Kareem Abdul-Jabbar, Shaquille O´Neal og George Mikan)
Ástæðan fyrir því að við erum að hugsa um fyrirbæri núna er sú að þegar við vorum að hugsa um eitt þeirra um daginn, flaug okkur í hug að líklega væru fleiri fyrirbæri í NBA deildinni í dag en nokkru sinni fyrr. Og til að færa rök fyrir því, er upplagt að útskýra fyrir ykkur hvað við meinum með orðinu fyrirbæri, greina frá sögu þess og segja ykkur loks frá fyrirbærum dagsins í dag.
Fyrirbæri er í stuttu máli sá körfuboltamaður sem skarar fram úr keppinautum sínum með líkamlegum yfirburðum sínum og/eða hreinum hæfileikum. Flest fyrirbærin hljóta þá nafngift hjá okkur af því þau eru stærri, sterkari, fljótari, fjölhæfari eða hæfileikaríkari en flestir ef ekki allir mótherjar þeirra á körfuboltavellinum.
Eins og þið getið ímyndað ykkur, er enginn á ritstjórn NBA Ísland sem fór á NBA leiki fyrstu áratugina sem deildin var í gangi og því verðum við að styðjast við ritaðar heimildir í leit að fyrirbærum eins og öllu öðru sem átti sér stað um og eftir miðja síðustu öld.
Líklega eru flestir sammála um að fyrsta fyrirbærið í sögu NBA deildarinnar hafi verið George Mikan. Miðherjinn Mikan teldist sannarlega ekki mikið fyrirbæri í NBA deild dagsins í dag, enda ekki nema 208 sentimetrar á hæð - hvítur og luralegur náungi með gleraugu.
Á fimmta og sjötta áratug síðustu aldar var Mikan hinsvegar hinn eini sanni risi deildarinnar og var margfaldur stigakóngur og meistari með forvera Los Angeles Lakers í Minneapolis. Mikan var kallaður Herra Körfubolti og sjá má styttu af honum fyrir utan heimahöll Minnesota Timberwolves.
Við gætum haldið langan fyrirlestur um Mikan og þau áhrif sem hann hafði innan og utan vallar, en það sem skiptir mestu máli hvað fyrirbærafræðina varðar var að Mikan var það áhrifamikill í teignum að gerðar voru reglubreytingar út af honum.
Það eru góðar líkur á því að þú sért fyrirbæri ef þarf að breyta reglunum út af þér og það er engin tilviljun að miðherjarnir sem komu á eftir Mikan og höfðu þessi áhrif á reglurnar, fá líka á sig fyrirbærastimpilinn hjá okkur.
Næsta fyrirbæri á blaði hjá okkur kom ekki inn í NBA deildina fyrr en nokkrum árum eftir að Mikan hætti, en það var Wilt Chamberlain - mögulega fyrirbæri allra fyrirbæra.
Við höfum skrifað um Wilt áður og minnum ykkur á að þessum pistli er ekki ætlað að vera ævisaga mannanna sem fjallað er um, en Wilt er á þessum lista - og mögulega á toppnum - af því hann var fullkomlega óstöðvandi körfuboltamaður, líkamlegt og íþróttafræðilegt undur sem NBA deildin var hreinlega ekki tilbúin að taka á móti þegar hann kom til sögunnar í upphafi sjöunda áratugarins.
Wilt er eini maðurinn sem hefur skorað 100 stig í einum leik í NBA deildinni og hann er eini maðurinn sem hefur skorað 50 stig að meðaltali í leik í NBA deildinni.
Hann á flest met NBA deildarinnar í stigaskorun og fráköstum, en hann leiddi deildina líka einu sinni í stoðsendingum bara af því hann langaði að prófa það. Wilt var magnaður alhliða íþróttamaður og var frambærilegur bæði í blaki og frjálsum íþróttum á sínum tíma.
Svo skemmir það ekki fyrir goðsögninni Chamberlain að hann var sagður hafa átt bólfélaga sem skiptu þúsundum, hann spilaði einu sinni meira en 48 mínútur að meðaltali í leik yfir heila leiktíð, hann tróð einu sinni bolta með mann hangandi í honum og á að hafa fótbrotið annan mann af því hann tróð boltanum svo fast ofan á aðra löppina á honum.
Wilt Chamberlain gjörsamlega dómíneraði NBA deildinni allan sjöunda áratuginn og fram á þann áttunda og enginn leikmaður fyrr eða síðar hefur gert eins miskunnarlausar árásir á tölfræðiskýrslur í sögu körfuboltans.
Já, góðir hálsar. Wilt Chamberlain var fyrirbæri. Kannski fyrirbæriÐ.
Næstu tvö fyrirbæri á blað hjá okkur verða einfaldlega að fara þangað af því þau voru svo fáránlega góð í körfubolta, en það vill reyndar svo skemmtilega til að þau voru einu sinni saman í liði. Þetta eru Lew Alcindor, síðar Kareem Abdul-Jabbar og félagi hans Oscar Robertson.
Kareem er að mörgum talinn besti miðherji allra tíma í NBA deildinni og var sexfaldur meistari, sexfaldur leikmaður ársins og er stigahæsti leikmaður deildarinnar frá upphafi með 38.387 stig.
Punkturinn yfir i-ið hjá Kareem var svo einkennismerkið hans, sveifluskotið, sem gerði hann að óstöðvandi sóknarmanni. Hann upplifði það líka að reglunum í leiknum var breytt út af yfirburðum hans á vellinum.Liðsfélagi Jabbars (um hríð hjá Milwaukee Bucks), Oscar Robertson, var annars konar fyrirbæri, en hann er fyrsti maðurinn á lista okkar sem var ekki miðherji.
Robertson var bakvörður sem er frægastur fyrir fjölhæfni sína á vellinum, enda er hann eini maðurinn sem hefur verið með þrefalda tvennu að meðaltali í leik yfir heilt tímabil í NBA deildinni.
Robertson var framúrskarandi körfuboltamaður á öllum sviðum. Hann hafði alla kosti sem góðir bakverðir þurfa að hafa, en var ofan á það sterkur eins og ljón og frákastaði eins og stór maður.
Efnisflokkar:
Anthony Davis
,
Dirk Nowitzki
,
Fyrirbæri
,
George Mikan
,
Kareem Abdul-Jabbar
,
Kevin Durant
,
Magic Johnson
,
Michael Jordan
,
Oscar Robertson
,
Russell Westbrook
,
Shaquille O´Neal
,
Stephen Curry
,
Wilt Chamberlain
Saturday, January 2, 2016
Varist eftirlíkingar
Þegar Larry (Bird) og Magic (Johnson) ríktu í NBA deildinni snerist allt um að gera meðspilara sína betri og þó báðir hafi verið mjög fjölhæfir og Bird til að mynda mikill skorari, snerist þetta á endanum allt um að vinna fyrir liðið. Þetta er mikil einföldun, en svona var þetta nokkurn veginn á níunda áratugnum.
Svo kemur Michael Jordan og lagði nýjar línur. Jordan var margfaldur stigakóngur og sá jafnan sjálfur um að gera hlutina hjá Chicago liðinu sínu. Þetta breyttist þegar kom fram á tíunda áratuginn, þegar Jordan fór að treysta félögum sínum betur og liðið í kring um hann fór um leið að verða sterkara. Jordan náði tökum á "leyndarmálinu" - að finna milliveginn, hvenær á að treysta meðspilurunum og hvenær á gera hlutina sjálfur.
En eins og þið munið, kaus Jordan mun oftar að gera hlutina sjálfur en að láta félögum sínum það eftir. Jú, jú, þeir áttu sín augnablik - menn eins og John Paxon og Steve Kerr settu niður eftirminnileg skot sem voru brauðmolar sem féllu af veisluborði Jordans.
En í tíð Michael Jordan gekk það að vera ofurstjarna út á það að skapa hlutina sjálfur, þrjóskast og hnoðast til sigurs á keppnisskapinu, hæfileikunum og sigurviljanum.Þetta gerði Jordan og komst oftast upp með það, en í leiðinni bjó hann til hefð sem ekki er hægt að segja að hafi gert leiknum gott.
Það hefur örugglega ekki verið meiningin hjá Jordan að ala upp kynslóð manna sem spiluðu eins og hann, en ofurmannlegir hæfileikar hans, sigurhefð og heimsfrægð gerðu það að verkum að "allir vildu vera eins og Mike."
Það gefur augaleið að þó milljónir manna hafi viljað vera eins og Mike, gekk það einfaldlega ekki upp.Þú hleypur ekkert bara inn á körfuboltavöll og spilar eins og besti körfuboltamaður í heimi, sama hvað þú æfir þig.
Því varð enginn eins og Mike, þó einn hafi komist dálítið nálægt því og það af yfirveguðu ráði.
Kobe Bryant vildi sannarlega vera eins og Mike og hann tók því svo alvarlega að hann hermdi allt eftir goðinu sínu - meira að segja tunguleikfimina. Kannski dálítið hallærislegt, en ef til vill skiljanlegt.Ef þú getur hermt sæmilega vel eftir manni sem vann sex meistaratitla og var útnefndur besti körfuboltamaður heims, hlýtur það að skila einhverju.
Og sú varð raunin. Kobe fékk mikla og góða hjálp, en hann vann fimm meistaratitla með því að vera eins og Mike. Hann hjálpaði mismikið til með því að spila eins og Mike. Stundum var hann lykilmaður á bak við sigrana, en stundum færði hann sér einfaldlega allt of mikið í fang og hreinlega skemmdi fyrir liði sínu.
Dæmi Kobe Bryant sýnir okkur svo ekki verður um villst að það er ekki hlaupið að því að vera eins og Mike. Raunar er það varla hægt. Aðeins afburðaleikmenn eins og Kobe geta komist nálægt því, en eins vel og Kobe reyndi, varð hann aldrei annað en Pepsi við hliðina á kókinu hans Jordans.
En svo heldur hringrásin auðvitað áfram, og þó enn séu til menn sem vilja vera eins og Mike, eru líklega fleiri í dag sem vilja vera eins og Kobe. Þá er dæmið farið að flækjast verulega. Þá eru menn farnir að vilja vera eins og Kobe sem vildi vera eins og Mike. Það gefur augaleið að þetta er erfitt plan og tæplega vænlegt til árangurs.
Það er til nafn yfir leikaðferð Kobe og Mike - hún er kölluð hetjubolti.
Hetjubolti er hugtak sem hefur neikvæða merkingu. Menn sem spila hetjubolta ætla nefnilega að taka leikinn í sínar hendur og vinna hann upp á sitt einsdæmi, hjálparlaust, eins og Mike. Mike tókst það stundum, Kobe tókst það líka stundum, en venjulegir menn ráða ekki við þetta. Þúsundir hafa reynt, þúsundum hefur mistekist. Hetjubolti er andstæðan við liðsbolta Magic og Larry frá níunda áratugnum og er því þyrnir í augum bókstafstrúarmanna á liðsboltasviðinu.
Hetjuboltinn er dúkkar upp kollinum við og við í NBA deildinni í dag og átakanlegasta dæmið um hann er einmitt hjá sjálfum Kobe Bryant. Kobe er í kveðjutúrnum sínum, þar sem hann spilar með gjörsamlega handónýtu liði sem getur ekki neitt og á ekki að geta neitt. Kobe fær bara að spila hetjuboltann sinn, spila eins og hann hefur alltaf spilað, skjóta samviskulítið eða laust á körfuna, oft með litlu tilliti til meðspilara sinna.
Nú er svo komið að við gætum verið að fylgjast með alveg nýrri bylgju og þeirri sem við lýstum hér að ofan. Það er ekki komið í ljós enn, en það er ekki útilokað að nú færi að bera á nýrri kynslóð leikmanna - manna sem vilja vera eins og Steph.
Stephen Curry spilaði betur en nokkur körfuboltamaður í heiminum á síðustu leiktíð, þegar hann var kjörinn leikmaður ársins í NBA og bætti um betur með því að fara fyrir liði sínu alla leið að titlinum.
En eins ótrúlegt og það kann að hljóma, hefur Curry ekki aðeins verið betri í vetur en á síðustu leiktíð. Hann er búinn að vera MIKLU betri.
Og eins og við höfum skrifað 500 sinnum eða svo á þetta vefsvæði, er Curry að gera hluti sem við höfum aldrei séð áður. Algjörlega einstaka hluti. Hluti sem fyrir tuttugu árum hefðu þótt hrein og klár geðveiki. Hluti eins og að taka tíu þriggja stiga skot á hlaupum í hraðaupphlaupum, þremur metrum aftan við þriggja stiga línuna.
Rétt eins og enginn gat fyllilega verið eins og Mike, eigum við mjög bágt með að sjá að nokkur maður geti verið eins og Curry.
En látið ykkur ekki bregða þó margir eigi eftir að reyna það. Og mistakast illa.
Efnisflokkar:
Eins og Mike
,
Goðsagnir
,
Kobe Bryant
,
Larry Bird
,
Magic Johnson
,
Michael Jordan
,
Stephen Curry
,
Úrvalsleikmenn
Monday, June 15, 2015
Einhver varð að leysa Jordan af hólmi
Flest ykkar hafið fylgst nógu lengi með NBA til að vita að áður en Steve Kerr fór í jakkaföt og byrjaði að jafna allt við jörðu sem þjálfari, var hann varabakvörður í sögufrægu liði Chicago Bulls.
Kerr var engin stjarna, en hann átti stóran þátt í meistaratitlum liðsins frá 1996-98 og skoraði frægustu körfuna sína á ögurstundu eftir sendingu frá Michael Jordan. Þú sérð hana frá nokkrum sjónarhornum á samsettu myndinni hér fyrir ofan.
Þessi karfa hans var kannski merkileg, en lýsingar hans á tilurð hennar eftir að titillinn var í höfn voru miklu betri. Það verður ekki sagt að Warriors-þjálfarinn knái sé húmorslaus, enda höfum við fengið að njóta þess á fjölmiðlafundum í úrslitaeinvíginu sem nú stendur yfir.
Efnisflokkar:
Á ögurstundu
,
Bulls
,
Fret úr fortíðinni
,
Lokaúrslit
,
Michael Jordan
,
Sögubækur
,
Steve Kerr
Thursday, December 18, 2014
Hvaða þýðingu hefur nýjasti áfangi Kobe Bryant?
Þegar við vorum búin að byrja sautján sinnum upp á nýtt og henda um það bil 2000 orðum af einhverju rugli sem átti að heita pistill, rann það upp fyrir okkur að það skiptir nákvæmlega engu máli að Kobe Bryant sé búinn að skora fleiri stig en Michael Jordan í NBA deildinni.
Við héldum að þetta skipti máli og gerðum okkar besta til að skrifa þetta, en reyndir pennar finna það strax ef efniviðurinn er drasl. Þá er hann til dæmis enn meira drasl en það sem þó ratar inn á þessa síðu. Og það er sannarlega drasl.
Auðvitað skiptir það samt pínu máli að aðeins tveir menn hafi nú skorað fleiri stig í NBA deildinni en Kobe Bryant.
Það ber fyrst og fremst vott um fjóra hluti: heppni með meiðsli (lengst af), járnvilja, samviskuleysi og óhemju hæfileika.
Við höfum ekki hitt neinn sem heldur að þessi áfangi hjá Bryant þýði að nú geti hann talist betri leikmaður en Jordan.
Við hvetjum fólk til að fara nú ekki að hugsa þannig, það væru svokallaðar ranghugmyndir. Kobe verður aldrei betri en Jordan, en hann er samt einn allra besti körfuboltamaður sögunnar.
Efnisflokkar:
Áfangar
,
Goðsagnir
,
Kobe Bryant
,
Lakers
,
Michael Jordan
,
Skorarar
,
Svarta Mamban
,
Töflur og gröf
,
Tölfræði
Thursday, June 19, 2014
Það var fyrir 30 árum
Í dag eru 30 ár síðan nýliðavalið árið 1984 var haldið, en flestir eru sammála um að þar hafi verið á ferðinni besti flokkur nýliða sem nokkru sinni hafi komið inn í NBA deildina.
Nægir þar að nefna Heiðurshallarmeðlimi eins og Michael Jordan, (H)akeem Olajuwon, Charles Barkley og John Stockton. Nú er búið að gera heimildamynd um uppátækið sem frumsýnd var fyrir nokkrum dögum en ef þú hagar þér skikkanlega, máttu svo sem horfa á hana hérna fyrir neðan.
Efnisflokkar:
Charles Barkley
,
Goðsagnir
,
Hakeem Olajuwon
,
Heiðurshöllin
,
John Stockton
,
Michael Jordan
,
Nýliðavalið
,
Sögubækur
Thursday, June 5, 2014
Á þessum degi fyriri 23 árum
Því ekki að minnast sögufrægrar körfu Michael Jordan gegn Los Angeles Lakers í lokaúrslitunum árið 1991 á 23 ára afmælisdegi hennar? Hvort sem þessi tilþrif eldast vel eður ei, muna eflaust allir vel eftir þeim. Við munum að minnsta kosti alveg eins vel eftir þessum tilþrifum og þristinum sem Ray Allen setti á San Antonio í lokaúrslitunum fyrir ári. Svona er körfuboltinn dásamlegur.
Efnisflokkar:
Fret úr fortíðinni
,
Michael Jordan
,
NBA 101
,
Sögubækur
Wednesday, February 12, 2014
Léttur samaburður á framlagstölfræði
Án þess að reka hér sérstakan áróður fyrir einu eða öðru, datt okkur í hug að bera saman framlagstölur þeirra Michael Jordan, Kobe Bryant og LeBron James, sem eru sannarlega þrír af betri körfuboltamönnum síðari ára.
Eins og með annað er Michael Jordan að sjálfssögðu atkvæðamestur, en hann var með 27,9 framlagsstig að meðaltali á ferlinum, sem er nánast ómannlegt.
LeBron James er reyndar ekki nema hársbreidd frá Jordan eins og þið sjáið á myndinni hér fyrir ofan og er með 27,7 framlagsstig að meðaltali á ferlinum. Kobe Bryant er svo með talsvert lægri stuðul, eða 23,4.

Við erum alltaf að komast frekar á þá skoðun að það sé tilgangslaust að bera leikmenn saman sem mættust aldrei á vellinum og voru ekki í deildinni á sama tíma - eins og til dæmis Jordan og James - enda spila þeir ekki einu sinni sömu leikstöðu.
Það sem vegur þyngst í þessari pólitík okkar er sú staðreynd að það hafa orðið svo miklar breytingar á leiknum hvað varðar reglur og stíl að það er erfitt að færa rök fyrr því að "leikmaður A hefði verið betri en leikmaður B."
Hvað sem því líður, er nú alltaf gaman að skoða smá tölfræði og það var ekki nema dæmigert að Michael Jordan skuli hafa skákað bæði LeBron James og Kobe Bryant þegar kemur að framlagsstigum, en tölurnar á myndinni efst segja samt ekki alla söguna, sjáið þið til.
Það fyrsta sem þarf að reikna með er sú augljósa staðreynd að þeir James og Bryant eru enn að spila. Það þýðir að það séu 99% líkur á því að þeir eigi báðir eftir að lækka eitthvað í framlagi.
James er á hátindi ferilsins og leiða má líkur að því að hann fari nú að lækka sig eitthvað á næstu árum, enda er maðurinn búinn að vera tíu ár í deildinni.

Sömu sögu er að segja um Kobe Bryant, sem er augljóslega að byrja endasprettinn um 35 ára aldurinn.
Jordan og James hafa báðir náð 30+ framlagsstigum fjórum sinnum á ferlinum, en Kobe Bryant hefur þrisvar náð yfir 26 stigin. Best á hann 28 framlagsstig árið 2006, en það er í eina skiptið sem hann komst yfir meðaltal þeirra Jordan og James.
Merkilegasta atriðið í þessum létta samanburði er samt að skoða tölfræðina hjá Michael Jordan ef hann hefði sleppt Washington-ruglinu á sínum tíma.
Á árunum sínum tveimur hjá hræinu í höfuðborginni (Wizards) var hann "aðeins" með 19,9 framlagsstig að meðaltali, sem lækkar hann sem fyrr segir niður í 27,9 stig á ferlinum.
Á árunum sínum þrettán með Chicago Bulls var Jordan hinsvegar með 29,1 í framlag, sem er ekkert annað en rugl.
Þrátt fyrir að Washington-ruglið sé tekið með, er Jordan samt með hæsta framlag í sögu deildarinnar.
Við erum aftur á móti ekki nógu vel að okkur í þessari tölfræði allri til að geta útskýrt af hverju menn eins og Wilt Chamberlain eru ekki með nema 26 framlagsstig á ferlinum þrátt fyrir að hafa verið með 50/26 meðaltal þegar best lét.
Við látum öðrum það eftir að útskýra það, en vonum að þú hafir haft gaman af þessum litla samanburði á þremenningunum knáu.
Efnisflokkar:
Goðsagnir
,
Kobe Bryant
,
LeBron James
,
Michael Jordan
,
Ógnarstyrkur
,
Tölfræði
Friday, December 6, 2013
Flöskudagsklassík
Efnisflokkar:
Flöskudagsklassík
,
Klassík
,
Magic Johnson
,
Michael Jordan
,
NBA 101
Thursday, November 7, 2013
Kofi til sölu
Hreysið hans Michael Jordan í Chicago er til sölu. Kofinn er eitthvað í kring um 5200 fm2 og stendur á 28 km2 landareign. Þú getur keypt þennan kofa á rétt rúma þrjá og hálfan milljarð ef þú kærir þig um að búa á svona kamri.
Efnisflokkar:
Auglýsingar
,
Fasteignir
,
Markaðsmál
,
Michael Jordan
Thursday, August 8, 2013
Eins og Mike
Alla langaði að vera eins og Mike og langar eflaust enn. Engan meira en Kobe Bryant eins og þetta myndband sýnir.
Nú er einstaklingurinn sem hafði of mikinn frítíma meira að segja búinn að gera framhald af þessu. Það er stundum pííínu lítið kjánalegt hvað Kobe Bryant apar mikið eftir Michael Jordan. Allt í lagi að apa eftir hreyfingar sem virka, en þetta með tunguna líka? Kommon.
Fólk á eftir að bera þessa tvo saman í áratugi í viðbót og eins og þessi myndbrot sýna, er það engin tilviljun. Þið gerið það eflaust líka. Gætið þess bara að halda því ekki fram að þeir séu jafngóðir. Það eru/voru þeir ekki.
Efnisflokkar:
Kobe Bryant
,
Michael Jordan
Friday, August 2, 2013
Ólæti hjá Ehlo
Það hefur aldrei verið auðvelt að vera Greg Ehlo. Það vita þeir sem fylgdust með körfubolta á níunda áratugnum. Það var eins og það væri uppáhaldsáhugamál Michael Jordan að niðurlægja hann. Og nú fréttist af heimiliserjum hjá Ehlo-fólkinu. Okkur datt í hug þetta lag þegar við lásum þetta.

Efnisflokkar:
Craig Ehlo
,
Dólgslæti
,
Michael Jordan
,
Raunir hvíta mannsins
Thursday, July 11, 2013
Friday, June 14, 2013
Monday, March 4, 2013
Sunday, February 17, 2013
Þessi piltur er fimmtugur í dag
Hér má segja að þetta hafi byrjað. Fyrsta stóra skotið hans Michael Jordan með Chicago Bulls í úrslitakeppninni gegn Cleveland Cavaliers. Þetta hefur alltaf verið eitt frægasta skotið hans.
Hér fyrir neðan er skemmtileg upptaka sem var að poppa upp sem sýnir lokasekúndurnar í þessum fræga leik og svo er hljóðnemanum troðið í andlitið á Jordan nánast áður en hann sleppir boltanum.
Efnisflokkar:
Á ögurstundu
,
Afmæli
,
Michael Jordan
Friday, December 14, 2012
Jordan hataði ekki Vampíruvaktina
Efnisflokkar:
Draumaliðið
,
Hreyfimyndir
,
Klassík
,
Magic Johnson
,
Michael Jordan
,
Vampíruvaktin
Wednesday, October 17, 2012
Dásamlegir brestir Bryants
Við vitum að það er ekki mikið að marka hluti sem gerast á undirbúningstímabilinu, en hægt er að koma auga á eitt og annað skemmtilegt ef vel er að gáð. Tendensa, strauma og stefnur.
Eins og í nótt þegar Lakers tók á móti Jazz í Anaheim. Dwight Howard og Pau Gasol voru ekki með Lakers og Kobe Bryant virkaði áhugalaus í fyrri hálfleik. Það var eins og hann nennti ekki að spila leikinn, enda lítið í húfi.
Í þriðja leikhluta rann hinsvegar á hann æði. Bryant skoraði þá 23 stig, meðan restin af liðinu skoraði jú... eitt stig. Og mótherjinn? 36 stig.
Lakersliðið var 30+ stigum undir allan tímann meðan Bryant hamaðist og hamaðist. Tók hvert slæma skotið á fætur öðru. Mörg þeirra fóru ofan í og náðu að kveikja aðeins í áhorfendum, sem virtust jafn áhugalausir og Bryant í fyrri hálfleiknum en skemmtu sér nú konunglega.
Þegar þriðja leikhlutanum lauk var staðan orðin 88-51 fyrir Jazz.
Það er ekkert að marka þessar tölur, þær segja ekki neitt, enda vantaði mikið í Lakersliðið sem leyfði mörgum vindlum að spila.
Við vorum heldur ekkert að spá í það.
Við vorum að horfa á Kobe Bryant. Þessa gangandi mannfræðirannsókn, þessa ráðgátu.
Ætlaði hann í raun og veru að skjóta Lakers inn í leikinn aftur - eða var hann bara að leika sér í æfingaleik? Fannst honum á einhverjum tímapunkti dálítið kjánalegt að enginn nema hann skoraði körfu í leikhlutanum?
Og það sem meira er.
Mun þessi maður kaupa það sem þjálfarateymið leggur fyrir hann og leika við hina krakkana í vetur? Og mun það bera árangur?Ef þú sættir þig við styttri útgáfuna af svarinu, er það nei.
En okkur er alveg sama um það líka. Það sem okkur finnst áhugaverðast er að fylgjast með Kobe Bryant sjálfum. Þessu ólíkindatóli sem gengur svo illa að þekkja sín takmörk.
Það gæti orðið dálítið átakanlegt að horfa á Kobe Bryant á lokasprettinum sínum í deildinni.
Hann sættir sig ekki við það að hafa ekki alveg sömu burði og áður. Hann langar að vinna þig og liðið þitt upp á sitt einsdæmi, en hann getur það ekki lengur. Tölfræðin er öll á hægri niðurleið ár frá ári.
Auðvitað er ekkert að því að eldast. Ekki ætlum við að skamma Bryant fyrir það. Allir leikmenn eldast fyrir rest. Við höfum bara dálitlar áhyggjur af því hvernig hann aðlagast hækkandi aldri andlega.
Bryant er ekki orðinn neitt gamalmenni, en hann er að verða búinn að spila óhemjufjölda mínútna í deildinni og hefur litla sem enga hvíld fengið síðustu ár. Hann hefur verið heppinn með meiðsli en allt þetta púl fer líka smátt og smátt að naga í lappir hans og liði.Við höfum oft sagt þetta áður, en við skulum öll fylgjast vel með Kobe Bryant á síðustu árum hans í deildinni. Ekki bara af því hann er einstakur leikmaður og einn af þeim bestu, heldur af því það gæti orðið sápuópera út af fyrir sig hvernig honum tekst að eiga við sjálfan sig, þegar skrokkurinn hættir að geta framkvæmt það sem tryllt keppnisskapið skipar honum.
Fjölda fólks er í nöp við Kobe Bryant og hann fer oft í taugarnar á okkur, en hann er leikmaður sem þvingar þig til að bera virðingu fyrir sér af því hann er alltaf þarna. Eins og íslenskt slagveður - vindurinn er alltaf í andlitið á þér.
Kobe Bryant er alltaf fyrstur á æfingar og síðastur út. Er brjálaður keppnismaður í Ólsen-Ólsen, á æfingum og í leikjum, alveg sama hvort það er á undirbúningstímabilinu, úti í porti eða í leik sjö í úrslitum. Hann er alltaf í árásarham, alltaf tilbúinn að drepa eins og skriðdýrið sem hann líkti sér við. Hann vill alltaf vinna, skora meira en þú, vera betri en þú. Hljómar kunnuglega, en svona eru ekki allir.
Það er ekki hægt annað en að hrífast af þessu, þó þetta snúist stundum í höndunum á honum. Eitt það besta við NBA körfuboltann er að verða vitni að því þegar þessar ofurstjörnur verða mannlegar. Skoðaðu efstu myndina í þessari færslu, en hún er frá Free Darko piltunum og lýsir skapgerðarbrestum Bryant skemmtilega.
Kobe Bryant var bara strákpeð þegar hann kom fyrst inn í deildina og var engin stjarna þó hann væri efnilegur.
Hann þurfti að vinna fyrir öllu sem hann fékk. Það er eitt af því skemmtilega við feril Bryant.
Hann er ekkert silfurskeiðarbarn á körfuboltasviðinu, þó hann sé uppalinn hjá Lakers og sonur pabba síns. Hann vann jú þrjá titla snemma, en menn verða ekki heimsklassa körfuboltamenn bara af því að spila með Shaquille O´Neal.
Kobe fór á bókasafnið og tók bókina "NBA 101" þegar hann var ungur maður. Hann las bókina spjaldanna á milli og kynnti sér hvernig forverar hans höfðu farið að því að vinna titla.
Nærtækasta dæmið fyrir hann var að herma eftir Michael Jordan, enda eru þeir svipaðir íþróttamenn, svipaðir á hæð og spila sömu stöðu.
Svo var bara að gera eins og strákurinn í Sprite auglýsingunni með Grant Hill gerði forðum: Æfa sig.
Kobe Bryant verður aldrei Michael Jordan, en það mun aldrei koma fram leikmaður sem hermir betur eftir honum. Hann gæti þurft að sætta sig við að hafa "aðeins" unnið fimm meistaratitla. Einum fleiri en þú veist og einum færri en þú veist. Ekki alslæmt.
Það verður risavaxið, skarðið sem Kobe Bryant skilur eftir sig þegar hann hættir að spila. Það er því best að njóta þess og fylgjast náið með honum á lokasprettinum. Eitthvað segir okkur að hann muni finna leiðir til að halda okkur við efnið.
Efnisflokkar:
Elli Kelling
,
Faðir Tími
,
Kobe Bryant
,
Lakers
,
Michael Jordan
,
Skoðanir
Tuesday, July 17, 2012
Það sem þú þarft að vita um landslið Bandaríkjanna:
Um þessar mundir eru tuttugu ár síðan hið svokallaða Draumalið Bandaríkjanna í körfubolta vann gullverðlaun á Ólympíuleikunum í Barcelona. Margir hallast að því að þetta hafi verið besta boltaíþróttalið allra tíma og það er ekki langt frá lagi, enda nokkrir af bestu leikmönnum í sögu leiksins í bandaríska liðinu.
Á tímamótum sem þessum er við hæfi að staldra við og líta til baka og það hafa bandarískir fjölmiðlar svo sannarlega gert. Undanfarnar vikur höfum við séð ótal viðtöl og greinar við leikmenn og aðra spekinga þar sem menn velta fyrir sér hvernig Ólympíuförum Bandaríkjanna í dag tækist til ef þeir hefðu mætt liðinu frá 1992.
Deron Williams, leikstjórnandi Nets og liðs Bandaríkjanna í dag, var fullur virðingar og sagði að Draumaliðið væri einfaldlega besta lið sem sett hefði verið saman og því hefði það líklega unnið 2012 útgáfuna sem er á leið á leikana í London.
Kobe Bryant var ekki eins hógvær og auðvitað sagði hann að 2012 strákarnir hefðu í fullu tré við forvera sína frá Barcelona.Þið getið rétt svo ímyndað ykkur hvaða skoðun við höfum á þessu.
Bandaríska liðið í dag ætti aldrei, aldrei möguleika gegn ´92 liðinu. Okkur er nákvæmlega sama hvað þú heldur um það. Nægir að nefna þá fádæma yfirburði sem ´92 liðið hefði í teignum með þá Robinson, Ewing, Malone og Barkley.
Það er meira að segja algjör óþarfi að tefla fram Jordan-trompinu, sem að sjálfssögðu bindur enda á allar þrætur um hvort liðið væri betra.
Stærsti munurinn á þessum liðum hefur þó ekkert með teiginn eða Jordan að gera. Ástæðan fyrir því að liðið í dag ætti aldrei möguleika gegn gömlu mönnunum er einfaldlega sú að ´92 liðið var miklu betur skólað en liðið í dag.
Flestir leikmenn ´92 liðsins áttu að baki farsælan feril í háskólaboltanum og voru betur að sér í grunnatriðum leiksins.
Liðsandinn var frábær og hver einasti leikmaður Draumaliðsins var tilbúinn að láta lífið fyrir land og þjóð.
Forsprakkar ´92 liðsins vildu frekar deyja en tapa, voru sumir hverjir hálf geðsjúkir keppnismenn og áttu að baki fjölda meistaratitla.
Þá er ótalin sú staðreynd að þrír þekktustu leikmenn Draumaliðsins gerðu sér lítið fyrir og lyftu íþróttinni á hærra plan með frammistöðu sinni. Magic Johnson og Larry Bird voru fánaberar NBA deildarinnar í upphafi níunda áratugarins þegar einvígi þeirra tveggja og auknar sjónvarpsútsendingar ýttu af stað byltingu sem Michael Jordan kórónaði svo á áratugnum sem á eftir kom.
Já, það var engin tilviljun að mótherjar Draumaliðsins létu taka myndir af sér með Bandaríkjamönnunum og gerðu það meira að segja fyrir leiki en ekki eftir þá eins og eðlilegra hefði talist.Það er ekki hægt að setja saman eitt stykki Draumalið án þess að einhver fari í fýlu og þannig fór árið 1992 að það var Isiah Thomas hjá Detroit Pistons sem móðgaðist þegar hann var ekki valinn í þetta sögufræga lið.
Sagan segir alltaf að Thomas hafi ekki fengið að fljóta með vegna illdeilna hans við Michael Jordan, en staðreyndin var nú reyndar sú að Thomas var búinn að brenna nokkrar brýr að baki sér og flestir leikmanna Draumaliðsins voru ósköp fegnir að vera lausir við hann. Isiah átti ef til vill skilið að vera valinn í þetta lið, en hann var of mikið fífl til að fá það í gegn.
Aðrir leikmenn hefðu ef til vill mátt fara í meiri fýlu en Isiah Thomas yfir því að fá ekki að fara til Barcelona og þar nægir að nefna liðsfélaga hans hjá Detroit, Joe Dumars, sem reyndar eins og flestir sem fengu ekki að vera með ´92, fékk síðar tækifæri til að spila fyrir þjóð sína.
Ólympíuleikarnir árið 1992 voru auðvitað sérstakir fyrir þær sakir að þá fengu atvinnumenn Bandaríkjanna loksins að vera með, en fram að því hafði bandaríska liðið samanstaðið af guttum úr háskólaboltanum sem þó gerði jafnan fína hluti.
Þegar svo fékkst í gegn að tefla fram atvinnumönnunum árið 1992, dugði ekkert minna en að fá þá frægustu og bestu - gera þetta með stæl.
Eitt af fyrstu verkum Ólympíunefndarinnar var að sjálfssögðu að hringja í Michael Jordan, sem þá þegar var orðinn konungur NBA deildarinnar og líklega þekktasti og vinsælasti íþróttamaður jarðar á þeim tíma.
Með Jordan voru teknir nokkrir yfirburðamenn í deildinni sem augljóslega áttu heima í liðinu, en þar að auki fékk Magic Johnson að fljóta með þrátt fyrir að vera nýbúinn að greinast með HIV.
Vinur Johnson og erkifjandi á vellinum, Larry Bird, samþykkti svo að skottast með til Barcelona þrátt fyrir að vera orðinn gjörsamlega ónýtur í skrokknum, en hann lagði skóna á hilluna eftir leikana.
Hinn skemmtilega óþolandi Christian Laettner fékk einhverra hluta vegna sæti í Draumaliðinu, en hann var þá við það að koma inn í NBA deildina eftir einn besta háskólaferil sem sögur fara af. Hann var þó fjarri því besti nýliðinn í deildinni þetta árið og auðvitað hefði Shaquille O´Neal miklu frekar átt að fá sæti í liðinu en Laettner, sem var með skipt í miðju og klæddist rúllukragabolum.
Þeir leikmenn sem helst var rifist um að hefðu átt að spila fyrir hönd Bandaríkjanna á kostnað manna eins og Laettner voru Shaquille O´Neal sem þá var á leið til Orlando Magic, Joe Dumars hjá Detroit, Dominique Wilkins hjá Atlanta, James Worthy hjá LA Lakers. Tveir leikstjórnendur áttu svo til að mynda betri leiktímabil en Isiah Thomas þetta árið og það voru Mark Price og Tim Hardaway.
Já, það var sannarlega feykinóg af mannskap í NBA deildinni á þessum árum.
Af því við hérna á ristjórn NBA Ísland erum alltaf að leika Guð, ákváðum við að leika okkur aðeins með bæði Draumaliðið og landslið Bandaríkjanna í dag.
Við ákváðum að skipta út mönnum sem í raun voru ekki í nógu góðu standi eða hreinlega ekki nógu góðir - og búa til sterkasta Draumalið sem mögulegt var á þessum tíma.Þá lékum við okkur að því að athuga hvaða leikmenn úr 2012 liði Bandaríkjanna hefðu mögulega átt eitthvað erindi í Draumaliðið eða getað gert það sterkara. Það var reyndar ekki tímafrek aðgerð.
Eins og áður sagði átti Christian Laettner ekkert erindi í liðið og ef við hefðum þurft að taka háskólagutta inn í liðið hefði Shaquille O´Neal að sjálfssögðu orðið fyrir valinu. Larry Bird blessaður var auðvitað á felgunni og í sannleika sagt hefði Dominique Wilkins líklega hjálpað bandaríska liðinu meira en Bird og mjög örugglega skemmt áhorfendum betur.
Magic Johnson stóð sig með ágætum með Draumunum þrátt fyrir allt sem á gekk hjá honum og líklega hefðum við leyft honum að sigla með hópnum, en þó má deila um hvort hefði ekki verið heppilegra að senda annað hvort Mark Price eða Joe Dumars með í hans stað.
Mark Price var á hátindi ferils síns á þessum árum, góður leikstjórnandi og alveg baneitruð skytta sem hefði reynst liðinu vel - og átti eftir að gera það síðar. Þá var Dumars þeim kostum gæddur að vera úrvals varnarmaður og gat líka spilað báðar bakvarðarstöðurnar, sem gefur honum aukið vægi. Reyndar voru Bandaríkjamennirnir ekki mikið að hafa áhyggjur af leikstöðum og létu Scottie Pippen oft spila stöðu leikstjórnanda, enda leysti hann það með sóma og naut sýn vel í henni á opnum velli þegar svo bar undir.
En hvaða leikmenn í dag gætu hjálpað Draumaliðinu eins og það var uppsett 1992?
Tvær mjög nauðsynlegar tegundir körfuboltamanna eru að verða útdauðar í NBA deildinni í dag, en það eru alvöru miðherjar annars vegar og góðar skyttur hinsvegar. Þessi skortur gerir það að verkum að fáir af leikmönnum Bandaríkjanna í dag kæmust í Draumaliðið.
Við ætlum þó að vera góðhjörtuð og teljum að nokkrar hrókeringar með mönnum úr NBA í dag gætu styrkt Draumaliðið.
Sem fyrr en Laettnerinn fyrsti maður út og inn fyrir hann kemur Kevin Durant. Við tökum Durant með af því hann á sér engan líkan, getur skorað hvaðan sem er af vellinum og er gjörsamlega ódekkanlegur.
Þá liggur beinast við að gefa Larry Bird frí og leyfa honum að hvíla bakið. Í stað hans kemur maður sem er álíka fjölhæfur og spilar sömu stöðu - besti körfuboltamaður heims í dag - LeBron James.
Þá er bara spurning hvort við eigum að leyfa Magic karlinum að hanga á því. Ef ekki, tækjum við Deron Williams til að sjá um leikstjórn Draumaliðsins ásamt John Stockton, Einhver tæki líklega Chris Paul, við kjósum heldur að taka stærri og sterkari ás sem veldur léttari mótherjum endalausum höfuðverk á báðum endum vallarsins.
Kobe Bryant, spyrðu? Hann er kominn með full margar mílur á hjólbarðana og af hverju að pakka Pepsi ef þú ert þegar með Kók (Jordan)?
Það er búið að vera gaman að leika sér svona með Draumaliðið, en okkur þykir nauðsynlegt að taka fram að ef þeir Magic og Bird hefðu verið eitthvað nær miðjum ferli, hefðu þeir að sjálfssögðu verið með fyrstu nöfnunum á listann.
Þegar talað er um lið sem hefðu getað velgt Draumaliðinu undir uggum er nærtækast að taka liðin sem komu á eftir, en þar voru flestir af leikmönnunum sem við töldum upp hér fyrir ofan en komust ekki í Draumaliðið.
Síðar áttu svo eftir að koma inn í lið Bandaríkjanna menn eins og Hakeem Olajuwon og hann einn - og nokkrar góðar skyttur - hefðu klárlega getað hrist upp í Draumaliðspiltum.
Þetta eru okkar spekúlasjónir þegar kemur að bandaríska landsliðinu í körfubolta. Líklega eru flestir ósammála þessu en þegar kemur að öðrum eins snillingum og taldir hafa verið upp hér að ofan, er varla hægt að velja ranga menn - þeir eru allir frábærir.
En látum nú þessari pælingu lokið.
Efnisflokkar:
Draumaliðið
,
Gamli skólinn
,
Heiðurshöllin
,
Klassík
,
Larry Bird
,
Magic Johnson
,
Michael Jordan
,
NBA 101
,
Nostradamus
,
Ólympíuleikar
Tuesday, June 12, 2012
Maður gegn manni
Úrslitaeinvígið sem framundan er í NBA deildinni verður stórkostleg skemmtun. Það er óhætt að segja það og lofa því fyrirfram. Fullt af stjörnum sem kunna að skemmta áhorfendum, jafnvel þó þær séu að reyna að drepa hver aðra á vellinum.
Stærsta einvígið í þessari rimmu er auðvitað milli Kevin Durant og LeBron James, af því þeir eru skærustu stjörnur liðanna og spila sömu stöðu á vellinum. Við gætum því fengið smá mano-a-mano stöff í lokaúrslitunum og það gerist ekki á hverjum degi.
Þeir Durant og James spila ekki bara sömu leikstöðu og hafa unnið þrjá af síðustu fjórum stigakóngstitlum í NBA (Wade þann fjórða). Þeir eru líka fyrstu mennirnir síðan 1998 sem mætast í úrslitum eftir að hafa hafnað í 1. og 2. sæti í kjörinu á verðmætasta leikmanni deildarinnar.
LeBron James var kjörinn verðmætasti leikmaður ársins 2012 og var það vel, en eins og síðast þegar 1. og 2. MVP börðust í lokaúrslitum, vilja menn auðvitað sanna inni á vellinum hver er hinn raunverulegi MVP í baráttu þeirra bestu.Það voru Michael Jordan og Karl Malone sem voru númer 1 og 2 í MVP rallinu árið 1998. Árið áður líka, en þá hlaut Malone nafnbótina.
Þetta var umdeilt val á sínum tíma og margir voru á þvi að Jordan hefði átt að fá verðlaunin ´97 og Malone ´98 ef eitthvað var.
En auðvitað átti Michael Jordan skilið að fá þessi verðlaun flest árin sín í deildinni. Þetta er langt frá því að vera gallalaust kjör.
Við þurfum líklega að fara alla leið aftur til ársins 1992 til að finna dæmi um menn sem spiluðu sömu stöðu mættust í lokaúrslitum eftir að hafa orðið númer 1 og 2 í MVP kjörinu.
Það voru Michael Jordan og Clyde Drexler hjá Portland. Það var afskaplega skemmtileg sería og sú sem hefst í kvöld verður ekkert síðri. Það er bókað mál.
Efnisflokkar:
Finals 2012
,
Hágæðaskemmtun
,
Karl Malone
,
Kevin Durant
,
Klassík
,
LeBron James
,
Michael Jordan
,
MVP
,
NBA 101
,
Úrslitakeppni 2012
Subscribe to:
Posts (Atom)

































