Þessi pistill er búinn að vera nokkuð lengi á leiðinni, en
nú kominn tími á hann, jafnvel þó innihaldið sé niðurdrepandi. Það er ekki nema við hæfi á föstudaginn langa að skrifa óguðlega langan og neikvæðan pistil. Við þurfum nefnilega að
horfast í augu við ákveðnar staðreyndir varðandi NBA deildina okkar núna og úr
því við forðumst hræsni eins og við getum, er ekki annað en að hjóla í þetta.
Það er eins með NBA deildina og aðra hluti í lífinu - þú
ræður því hvort þú tekur á þeim með glasið hálffullt eða hálftómt. Þið sem
lesið NBA Ísland að staðaldri vitið að það er stundum helvíti lítið í glasinu
hjá okkur, en í það er afsakanlegt í þessu tilviki. Stundum verður fólk bara að
fá að hafa allt á hornum sér í smá tíma og það erum við að gera núna. Og ef
glasið er hálftómt eins og við þessar aðstæður, er ekki hægt að orða þetta öðru
vísi en svona:
Leiktíðin í NBA er faktískt séð dálítið ónýt.
Fólkið með hálffullu glösin hlær að svona bölsýni, en neitar
um leið að horfast í augu við raunveruleikann. O.k. tímabilið er auðvitað ekki
algjörlega ónýtt, en atburðarás síðustu vikna tryggir að það verður ekki nærri
eins gott og vonir stóðu til um. Við vorum búin að tala um það í allan vetur
hvað Vesturdeildin væri rosaleg og hvað úrslitakeppnin þeim megin ætti eftir að
verða sögulega góð með sögulega góðum liðum, en eins og staðan er núna, verður
hún það hreint ekki.
Ekki misskilja, úrslitakeppnin verður góð - úrslitakeppni
NBA er ALLTAF góð (pizza er pizza), hún bara verður ekki eins epísk og við
vorum öll að vona.
Og ástæðan er meiðsli og aftur meiðsli.
Við höfum nokkrum sinnum lýst yfir áhyggjum okkar yfir því
að alvarleg meiðsli séu að verða æ algengari í NBA deildinni. Það sem byrjaði
sem kenning lögð fram í gríni, er nær því að vera staðreynd í dag og þið sem
fylgist á annað borð með NBA deildinni hafið sannarlega ekki misst af því.
Þetta er gjörsamlega óþolandi þróun.
Meiðsli eru og hafa alltaf verið þáttur af leiknum og þó þau
séu kannski hvorki algeng né alvarleg á tilteknu tímabili, geta þau engu að
síður haft mikil áhrif á gang mála í úrslitakeppninni. Hafið hugfast að NBA lið
vinna einfaldlega ekki titilinn ef þau eru ekki heil, það er bara þannig. Þú
ert ekkert að fara að ná þér í hring ef einn af bestu mönnunum þínum er í
jakkafötunum í júní. Þú þarft því alltaf að hafa smá heppni í farteskinu ef þú
ætlar að vinna titla, því oftast er það öðru fremur heppni sem ræður því hvort
lið komast sæmilega heil í gegn um verkefni vetrarins eða ekki.
Þessi heppni hefur hreint ekki verið á bandi með sterkari
liðunum í NBA deildinni undanfarin ár og ef þú ætlar að finna lið sem hafa
sloppið sæmilega við meiðsli, skoðar þú einfaldlega hvaða lið léku til úrslita
ár frá ári. Liðin sem komast í úrslit og vinna titla gera það ekki bara út á
hæfileikana - þau eru undantekningarlaust með sína bestu menn heila.
Dæmi um lið sem hefur haft heppnina með sér með ofangreindum
hætti er Miami Heat, sem fyrir vikið fór í úrslit fjögur ár í röð og vann tvo
titla (2012-13).
Án þess að taka neitt af liði Miami, sem var auðvitað frábært,
þá munið þið kannski hvað heilladísirnar sveimuðu yfir því í tíð LeBron James.
Það var svo áberandi að við skrifuðum um það á sínum tíma.
Miami var svo heppið hvað eftir annað að við vorum hætt að
trúa því. Við ætlum ekki að fara að rifja það upp núna, en lítið dæmi um þetta
var þegar Derrick Rose meiddist og kippti þannig aðalkeppinauti Miami í
Austurdeildinni úr leik.


