Showing posts with label Heiðurshöll NBA Ísland. Show all posts
Showing posts with label Heiðurshöll NBA Ísland. Show all posts
Friday, January 17, 2014
Fulltrúi NBA Ísland á Úlfavaktinni í Heiðurshöllina
Lesendur NBA Ísland eru alltaf á ferð og flugi og það er dásamlegt hvað þeir eru duglegir við að fara á NBA leiki sem fulltrúar NBA Ísland klæddir í bolinn góða.
Nýjasta myndin frá þessu tilefni er sannarlega með þeim dýrari sem borist hafa, en þar fer enginn annar en séra Guðni Már Harðarson úr Lindasókn í Kópavogi. Séra Guðni er mikill áhugamaður um íþróttir og er einn harðasti stuðningsmaður Minnesota Úlfanna hér á landi.
Guðni var svo heppinn að fá að stunda nám í Minnesota og gat því laumað sér á leiki með Úlfunum af og til. Úlfavaktin góða er orðin alþekkt fyrirbæri hjá NBA-hneigðum Twitternotendum sem eiga það til að vaka fram eftir nóttu.
Ritstjórn NBA Ísland er óhemju montin af því að geta kallað séra Guðna fýsískan fulltrúa síðunnar á Úlfavaktinni.
Við ætlum því að nota þetta tækifæri til að tilkynna ykkur að séra Guðni Már hefur hér með verið innvígður í Heiðurshöll NBA Ísland fyrir að standa Úlfavaktina af drengskap fyrir hönd síðunnar og hreinlega fyrir að vera toppmaður í alla staði. Hann lengi lifi - húrra, húrra, húrra!
Efnisflokkar:
Bolurinn
,
Heiðurshöll NBA Ísland
,
NBA Ísland
,
Timberwolves
,
Úlfavaktin
,
Varningur
,
Vel Gert
Monday, November 26, 2012
NBA Ísland í Oracle Arena
Dyggur lesandi NBA Ísland, Gunnar Stefánsson, skellti sér á leik Golden State Warriors og Minnesota Timberwolves um helgina. Hann gætti þess auðvitað að vera vel til fara eins og þið sjáið á myndinni. Gunnar er með þessu kominn í Heiðurshöll NBA Ísland - þó það nú væri.
Efnisflokkar:
Bolurinn
,
Heiðurshöll NBA Ísland
,
Warriors
Tuesday, October 30, 2012
NBA Ísland á Úlfavaktinni með Derrick Williams
Stórvinur ritstjórnarinnar, séra Guðni Már Harðarson, stundar nú nám í Minnesota í Bandaríkjunum. Guðni er ekki aðeins gull af manni heldur mikill áhugamaður um íþróttir og verður sérstakur heiðursfulltrúi NBA Ísland á #Úlfavaktinni í vetur.
Guðni og sonur hans Nói voru svo heppnir að ramba inn á skyndibitastað þarna ytra þar sem þeir Derrick Williams og Greg Stiemsma hjá Minnesota voru að flippa borgurum til góðs og auðvitað var myndavélin með í för.Þá var ekki annað að gera en að bola sig í gang og William var ekki lengi að meðtaka þegar presturinn bað hann um mynd með bolinn góða á lofti.
Tvímenningarnir voru hinir hressustu eins og sjá má á myndinni hér til hliðar.
Við tilkynnum hér með af miklu stolti að Derrick Williams er fyrsti NBA leikmaðurinn sem við ætlum að taka inn í Heiðurshöll NBA Ísland vegna þessa.
Williams náði sér ekki á strik á nýliðaárinu sínu með Úlfunum, en fær kjörið tækifæri til að sanna sig í fjarveru Kevin Love í byrjun þessarar leiktíðar. Við munum að sjálfssögðu hvetja hann og senda honum alla okkar bestu strauma eftirleiðis.
Efnisflokkar:
Bolurinn
,
Derrick Williams
,
Greg Stiemsma
,
Heiðurshöll NBA Ísland
,
Úlfavaktin
Subscribe to:
Posts (Atom)


