Í haust reiknuðum við með því að úrslitakeppnin yrði svo jöfn að hún ætti eftir að koma okkur í gröfina. Annað hefur að sjálfssögðu komið á daginn og það er mjög langt síðan fyrsta umferðin hefur verið eins "ójöfn" og raun ber vitni. Það er mjög sérstakt að sex af átta rimmum þar hafi byrjað 3-0, raunar munum við ekki eftir svona löguðu. Það gerðist síðast fyrir tólf árum að fimm einvígi byrjuðu 3-0.

Liðin þrjú í austrinu sem komust í 3-0 gerðu það af því mótherjinn getur ekki neitt. Golden State lokaði New Orleans 4-0, ekki af því að Brúnar og þeir væru lélegir, heldur af því Golden State er svo sterkt lið.
Svo eru Memphis og Houston komin í 3-0 af margvíslegum ástæðum, einna helst meiðslum.
Það er augljóst að fyrsta umferðin í ár er áberandi slappari en hún hefur verið á síðustu árum. Það er rauntal. En það er samt ósanngjarnt að bera hana saman við fyrstu umferðina í fyrra, sem var ein sú besta sem við höfum séð - ef ekki sú besta.
Það er svo fáránlegt hvað er stutt síðan við spáðum því að úrslitakeppnin í vestrinu í vor yrði ein sú besta (sterkasta) í sögunni, en eins og þið hafið séð fer lítið fyrir því. Það er ekki nema ein dúndur sería í gangi og það er sorglegt.
En nú skulum við hætta þessum helvítis barlómi og henda niður á blað því helsta sem er að frétta úr stríðinu:
Eins og við sögðum ykkur fyrir skömmu, er viðureign LA Clippers og San Antonio að bjarga þessari úrslitakeppni. Fyrstu tveir leikirnir í LA voru rafmagnaðir en San Antonio tók sig reyndar til og slátraði Clippers í þriðja leiknum.
Það er því enginn vafi á því að allur meðbyr í einvíginu er í seglum San Antonio þessa stundina, en slæmu fréttirnar fyrir LA Clippers í því sambandi eru að Texasliðið á helling inni í sóknarleiknum.Munar þar mestu um Tony Parker, sem vegna margvíslegra meiðsla hefur ekki gert annað en skemma fyrir liðinu með framlagi eins og 25% skotnýtingu.
Lélegur leikur Parker og takmarkað leikform Tiago Splitter hefur hinsvegar ekki komið að sök enn sem komið er í einvíginu og það er nýjustu stórstjörnu NBA deildarinnar að þakka. Kawhi Leonard er gjörsamlega búinn að fara hamförum hjá Spurs og tekur á sig stærra hlutverk með hverjum leiknum sem líður. Hann er í alvöru að verða skerí-góður eins og það er kallað. Aumingja Clippers að þurfa að díla við þetta apparat.
Clippers syngur sama lag og áður. Byrjunarliðið hjá þeim er frábært og hangir oftast í Spurs, en um leið og þeir þurfa að hvíla, fer allt til andskotans í hvelli. Þeim þjálfara-Doc Rivers og framkvæmdastjóra-Doc kemur alveg örugglega illa saman.











































