Showing posts with label Elli Kelling. Show all posts
Showing posts with label Elli Kelling. Show all posts

Monday, March 6, 2017

Ölkær og 86

































Þessi hressa heiðurskona var úthrópuð (shout-out) á leik Sacramento Kings og Utah Jazz í gærkvöldi. Við náðum ekki nafninu hennar eða af hverju hún kom í mynd í hálfleik nema þó kannski bara af því hún var að drekka Bud Light, en vallarþulurinn fór gjörsamlega á límingunum og öskraði það yfir allan salinn þegar hann sá hvað gjémlöh-gjémlöh var að drekka.

Nei, við náðum ekki nafninu, en daman ku vera 86 ára gömul og grjóthörð stuðningskona Kings. Ætli liggi þá ekki beinast við að spyrja hvort sú gamla var að skála af því hún er laus við Boogie.

Það var amk allt annað að sjá andann í Sacramento-liðinu í nótt en við höfum séð undanfarið. Þetta lið vinnur náttúrulega ekki fjandi marga leiki, enda eru mjög litlir hæfileikar í leikmannahópnum, sem samanstendur af sexhundruð senterum og skrilljón skotbakvörðum.

Sacramento og Leicester eru svo sem ekki einu liðin sem fundið hafa nýtt líf í vikunni. New York-liðið greip einhvern anda í leik sínum við Golden State í gærkvöldi og náði með honum að hanga inni í leiknum allt til loka. Það er svartmálmur að horfa á Knicks, en hæfileikar og pótensjallinn í Kristaps Porzingis tryggja það að öllum getur stokkið bros yfir tilþrifum hans annað slagið, ef þeir pína sig í gegn um leik með sorglegasta stórliði íþróttaheimsins.

Þeir sögðu að Knicks-leikurinn kæmi á hárréttum tíma fyrir Stephen Curry og Klay Thompson; að enginn væri svo kaldur að hann næði sér ekki á strik í leik á móti New York Knicks - hvað þá á fjölum Madison Square Garden.

Jæja, þeir Curry og Thompson hafa oft skotið betur, en þeir hafa líka báðir átt verri leiki og við skulum segja að gárungarnir hafi haft rétt fyrir sér enn eina ferðina. Það er alltaf gott að mæta New York - líka í þessi fáu skipti sem leikmenn Knicks nenna að leggja sig fram.

Leikur New York og Golden State í gærkvöldi var sýndur beint á Stöð 2 Sport 2 og það er gaman að geta þess að NBA-boltinn verður aftur á dagskrá strax á föstudaginn þegar Golden State-liðið verður aftur á ferðinni. Þá sækja Curry og félagar ungt og sprækt lið Minnesota Timberwolves heim, sem ætti að verða afar hressandi leikur. Þar gefst áhorfendum Sportsins tækifæri á að sjá ungstirnið Karl-Anthony Towns leika listir sínar, en þessi ungi miðherji Minnesota er gjörsamlega búinn að fara hamförum að undanförnu. Leikurinn á föstudagskvöldið hefst klukkan eitt eftir miðnætti.

Gute stunde.

































Towns fleygar körfuna hjá Dílaskörfunum...

Saturday, April 2, 2016

Átakanlegur endasprettur


Einhver vinnustaðagrínarinn var að leika sér í Photoshop og kom upp með þessa léttu skrítlu hér fyrir ofan. Hér er verið að vísa í það að lokaárið hans Kobe Bryant sé að minna okkur dálítið á það þegar fertugur Michael Jordan tók skó sína fram á ný og lék með Washington Wizards um aldamótin.

Þetta er niðug hugmynd, en hún gengur ekki upp, vegna þess að Michael Jordan spilaði betur með Wizards en Kobe er að gera með Lakers núna.

Við skrifuðum eitthvað um erfiðleika Kobe Bryant og Lakers-liðsins fyrr í vetur og það er svo sem ekki miklu við það að bæta, en það hefur ekki orðið neitt léttara að horfa upp á þetta eftir því sem liðið hefur á veturinn.

Kveðjupartíið hans Kobe Bryant er búið að vera súrrealískt í allan vetur en er nú sem betur fer að taka enda. Við höfum aldrei séð neitt þessu líkt áður og eigum vonandi ekki eftir að upplifa það aftur. Flestir eru á því að þetta bull verði ekki til þess að skemma arfleifð Kobe Bryant sem leikmanns í söguannálum deildarinnar, en við erum ekki sammála því.

Líklega hefur það aldrei áður gerst í sögunni að jafn góður leikmaður og Kobe Bryant hafi spilað jafn hræðilega í jafn langan tíma og hann er búinn að gera undanfarna mánuði. Svo hjálpar það náttúrulega ekki að Lakers er nú með versta lið í sögu félagsins og lang lélegasta þjálfarann í sögu félagsins líka.

Þvílík disfúnksjón, þvílíkur skrípaleikur.

Við gerum þetta upp í sumar þegar komið er betra perspektíf á þetta, en í okkar huga er orðið ljóst að menn og konur eiga eftir að fá kjánahroll þegar þau rifja upp endasprettinn hans Kobe Bryant í NBA deildinni. Og það er ekki stórspilurum sæmandi.

Meira um þetta síðar.


Thursday, November 5, 2015

Goðsögn í vanda


Lesendur NBA Ísland í gegn um árin vita að ritstjórnin á í nokkuð flóknu sambandi við skotbakvörðinn og goðsögnina Kobe Bryant hjá Los Angeles Lakers. Við berum virðingu fyrir Kobe út af því sem hann hefur afrekað á löngum og glæstum ferli sínum, en síðari ár höfum við átt það til að stríða honum dálítið vegna hugarfars hans og leikstíls.

Það var allt í lagi að gera stundum grín að Kobe Bryant, því hann hefur alltaf staðið undir því og meira til. Hann var kannski á of háum launum og skaut kannski aðeins of mikið en það var allt í lagi, því Lakersliðið undanfarin ár er svo lélegt að það skiptir engu máli hvort Kobe tekur 3 eða 30 skot. Því ekki að halda bara áfram að bomba og reyna að slá met áður en skórnir fara á hilluna?

En svo byrjuðu bölvuð meiðslin að setja strik í reikninginn og eins og þið vitið hafa þau allt nema eyðilagt fyrir honum tvö keppnistímabil í röð. Þegar öll þessi meiðsli eru svo lögð ofan á skrokk sem búið að níðast á í tuttugu ár, er útkoman einhver elsti 37 ára gamli íþróttamaður veraldar.

Það var byrjað að bera á því áður en öll þessi meiðsli komu til. Kobe var byrjaður að dala verulega sem leikmaður, því skrokkurinn á honum var hættur að gera það sem honum var sagt.

Þetta kemur fyrir okkur öll á endanum og flest okkar sætta sig við það og aka eftir aðstæðum.

Ekki Kobe Bryant - varla hefur þú reiknað með því.

Við munum eftir viðtali sem Amad Rashad tók við Bryant fyrir nokkru þar sem hann sýndi áður óþekkta auðmýkt og viðurkenndi að meiðslavesenið hefði fengið á hann.

Var þetta ávísun á að þessi samviskulausi skorari væri farinn að þroskast og ætlaði að taka hugarfar sitt og leikstíl til endurskoðunar?

Ekki svo mikið.

Varast ber að stökkva á of miklar alhæfingar á 82 leikja keppnistímabili þegar búið að spila 5% af því, en nú er ljóst að allir eru farnir að hafa áhyggjur af Kobe Bryant. Bæði við og þið - og meira að segja hann sjálfur. Bryant kallaði sjálfan sig 200. besta leikmann deildarinnar í viðtali á dögunum, þar sem hann fór ófögrum orðum um sjálfan sig - sagðist frekast sjúga.


Það bætir svo ekki úr skák að Lakers skuli vera með eitt lélegasta lið í sögu félagsins um þessar mundir. Það er án sigurs í fjórum leikjum og er með lélegustu vörnina í NBA (fær á sig 113 stig á hverjar 100 sóknir andstæðinga sinna) og það ekki í fyrsta skipti. Og varnarleikurinn er meira að segja áberandi verri þegar Kobe Bryant er inni á vellinum (nærri 117 stig per 100 sóknir), sem er ákveðið afrek.

Við máttum bara til með að skrifa nokkur orð um þetta sérstaka vandamál sem komið er upp í gula hluta Los Angeles í dag, af því við höfum aldrei séð neitt þessu líkt áður. Ein af goðsögnum leiksins - einn besti skotbakvörður í sögu körfuboltans - stendur skyndilega frammi fyrir þeirri staðreynd að hann er ekki skugginn af sjálfum sér. Sjáðu t.d. þessa átakanlegu loftbolta:


Svartsýnustu menn spáðu því að öll þessi meiðsli gætu átt eftir að gera út af við Kobe og raunar þurfti enga svartsýni til. Skrokkur á þessum aldri með allt þetta slit, hefur einfaldlega ekki efni á að meiðast jafn illa og raun bar vitni hjá Kobe Bryant og höggið núna er enn þyngra af því hann er búinn að vera svo lengi frá. Svo poppar hann allt í einu inn í liðið á ný og í ljós kemur að það er allt í einum rjúkandi mínus.

En þarna er ekki öll sagan sögð. Þetta væri kannski ekki svo grábölvað ef Kobe Bryant hefði andlega burði til að takast á við allt mótlætið og setti alla sína orku og einbeitingu í aðlögunarferlið.

Málið er bara að það er ekki stíllinn hans Kobe Bryant. Kobe hefur aldrei farið eftir annari pólitík en sinni eigin - aldrei dansað eftir lögum annara. Hann er búinn að vera maðurinn í fimmtán ár og er búinn að gleyma því hvernig rulluspilarar hjálpa liðum sínum að vinna. Það eina sem kemst að hjá Kobe er að drepa, klára leiki, hleypa alfa-menninu lausu - Svörtu Mömbunni.

Gallinn er bara að lemstraðir fertugir karlar eru engar andskotans Mömbur, sama hve heitt þeir þrá það. Banvæn Svarta Mamban er horfin og í staðinn er kominn drukkinn órangútan með vélbyssu, sem er alveg jafn líklegur til að skjóta sjálfan sig í tætlur og einhvern annan.

Thursday, October 16, 2014

Er Kobe Bryant búinn?


Eitt heitasta umræðuefnið í NBA deildinni þessa dagana er merkilegt nokk hvorki LeBron James né Cleveland Cavaliers. Nei, við erum að tala um klassískara umræðuefni en það. Við erum að tala um Kobe Bryant.

Það er kannski eins gott að menn séu að smjatta mikið um Kobe vin okkar þessa dagana, því það er ekki víst að hann verði mikið lengur milli tannanna á fólki, þessi sögulega góði leikmaður. Aðalumræðuefnið á ESPN í dag, er sú staðreynd að sérfræðingateymi íþróttarisans metur sem svo að Bryant sé aðeins 40. besti leikmaðurinn í NBA deildinni.

Fyrir ári síðan var líka deilt um hvar Kobe Bryant var settur á þessum árlega lista, en hafi mönnum þótt hann vanmetinn þá, hefur hann hrunið helmingi neðar á listann núna. Þessi listi, þetta flokkunarkerfi þeirra ESPN-manna, er að sjálfssögðu bara gert til gamans.

En það er fullt af fólki þarna úti sem tekur þessu alls ekki þannig. Bryant sjálfur notaði listann til hvatningar á síðustu leiktíð, þó hún hafi reyndar orðið ansi stutt hjá honum blessuðum.

Þroskað körfuboltaáhugafólk eins og við (og þið) gætum þess að taka svona listum ekki alvarlega, en það er þó fínasta tæki til að vekja fólk til umhugsunar um hvað er að gerast í deildinni. Hvernig landslagið breytist ár frá ári.

Tuesday, October 14, 2014

Rólegur, Steph!


Við fréttum að Steph Curry hefði verið alveg pollrólegur á fyrstu mínútunum þegar Warriors-liðið hans rótburstaði Lakers í fyrrakvöld. Við ákváðum því að kíkja aðeins á leiklýsinguna - og jú - það kom heim og saman. Curry var alveg rólegur þarna eins og þið sjáið á myndinni hérna fyrir neðan (smelltu til að stækka).

Lokatölur í leiknum á sunnudagskvöldið voru 116-75 fyrir Golden State. Þetta er bara æfingaleikur og allt það, en það er ekki bara geðveikin í Steph Curry sem stendur upp úr í leiklýsingunni.
Bæði Steve Nash og Kobe Bryant láta verja frá sér skot á fyrstu þremur mínútum leiksins.
Illa farið með virðulega eldri borgara.


Viðurkenndu það bara...


... þú ert búin(n) að vera hugsa um hækkandi hárlínu LeBron James í allt sumar og þig dauðlangar að sjá hver staðan á henni er í dag. Örvæntið ekki. Íslandið reddar þessu fyrir ykkur. Það er að verða orðin spurning fyrir LeBron að byrja að spila með doo-rag. Ennisbandið veldur þessu ekki.




Friday, October 3, 2014

Monday, March 10, 2014

Maður sem er eldri en Úranus vill meina að sjálfur Wilt Chamberlain hafi nú ekkert verið að hata sig


Þessi gamli skarfur varð 92 ára gamall um helgina. Það er merkilegt fyrir þær sakir að hann hefur unnið fyrir NBA deildina frá því hún var stofnuð árið 1946 og er enn að! Þetta er tölfræðigúrúinn Harvey Pollack.* Vart þarf að taka fram að hann er eini maðurinn sem starfað hefur tengt deildinni frá upphafi

Hver í fjandanum er það nú, gæti einhver spurt Jæja, ætli hann sé ekki í rauninni þekktastur fyrir að vera maðurinn sem hélt utan um tölfræðina þegar Wilt Chamberlain varð fyrsti og eini maðurinn til að skora 100 stig í leik í NBA deildinni. Hann skrifaði líka "100" á þetta ljómandi fallega blað sem Wilt hélt á í myndatökunni eftir leikinn. Leggenderí stöff, mar!

Fullyrðir líka að Wilt hafi einu sinni hitt úr 35 skotum í röð frá einum leik yfir í annan.

Hvað um allt þetta. Við ákváðum að skrifa smá pung um gamla manninn til gamans, en þegar við vorum að leita af myndum af honum, rákumst við á stórkostlegt efni.

Hér er á ferðinni grein sem Pollack skrifar á nba.com um vin sinn Wilt Chamberlain í tilefni af sjötugsafmæli miðherjans (sem lést reyndar rétt rúmlega sextugur árið 1999).

Sá gamli hefur pistilinn á því að lýsa því yfir að Wilt sé besti leikmaður sögunnar og segir í framhaldi nokkrar sögur af honum eins og venja er þegar Chamberlain er annars vegar.

En það er bara til að hita upp. Svo fer hann að tala um hvað Wilt hafi verið mikill vinur sinn - svo mikill vinur sinn að hann hafi bara eiginlega verið kominn með leið á honum. Takið svo sérstaklega eftir því hvað maðurinn hefur skemmtilega hófstilltar hugmyndir um eigið ágæti:



Þetta er náttúrulega snillingur.

* => Maðurinn heitir reyndar Herbert Harvey Pollack.

Herbert, já.


Saturday, February 8, 2014

Til hamingju með daginn, Steve


Steve Nash varð fertugur í kvöld. Hélt upp á það með því að eiga sinn besta leik á tímabilinu í sigri Lakers á Philadelphia 76ers. Aðeins Bob Cousy, John Stockton og Jason Kidd hafa spilað leikstjórnandastöðuna í NBA eftir fertugasta afmælisdaginn.

Þetta er búið að vera óttalegt bras á honum Nash blessuðum síðan hann skipti í gult. Bara ef hann næði nú að koma sér í þokkalegt stand í nokkra mánuði svo hann geti hætt með sæmd, þessi litli snillingur.




Saturday, March 23, 2013

Afmælisbörn dagsins - Kidd fertugur


Þessir fjórir heiðursmenn eiga það sameiginlegt að eiga afmæli í dag, 23. mars. Merkilegasti áfanginn er hjá honum Jason Kidd hjá New York sem er orðinn hvorki meira né minna en fertugur. Það hefði verið hægt að búa til all suddalegt lið úr þessum mannskap.

Þetta eru Gordon "Ásmundur" Hayward (uppi til vinstri), Moses Malone (uppi til hægri), Jason Kidd (niðri til vinstri) og Cleveland pilturinn Kyrie Irving. Getur þú stillt upp sterkara liði úr einum afmælisdegi? Sendu þína tillögu á nbaisland@gmail.com


Tuesday, December 11, 2012

Getraunin góða


Undirtektirnar sem við fengum vegna síðustu getraunar voru vægast sagt hræðilegar.

Þó náði einn snjall piltur að koma með helminginn af svarinu. Við vorum að leita eftir amk tveimur hlutum sem tengdu þá Jeff Malone, Tyrone Corbin og Kevin Willis.

Það vildi svo skemmtilega til að þessir gömlu refir léku allir eitthvað með Miami Heat leiktíðina 1995-96 og voru þess vegna liðsfélagar Kurt Thomas sem enn er að spila í deildinni.

Thomas leikur með ellismellunum í New York Knicks í dag, en hann var á nýliðaárinu sínu með Miami árið 1995.

Friday, October 26, 2012

Þetta eru Lakers


Öll vorum við einu sinni ung. Það voru þeir líka, piltarnir sem draga munu vagninn hjá Lakers í vetur. Sjáðu þessa snáða. Ekki grunaði þá þarna að árið 2012 ættu þeir eftir að mynda ofurlið hjá Los Angeles Lakers. Reyndar gæti Kobe Bryant hafa grunað það þó hann hafi verið með þessa húfu á höfðinu.

Hvað ætli Magic Johnson hefði sagt ef þú hefðir farið til hans árið 1988 og sagt honum að meistaravonir liðsins sem hann var að stjórna, ættu eftir 25 ár eftir að liggja á herðum lítils, horaðs Kanadamanns sem kynni ekki að greiða sér og héldi með Tottenham.

"Totten-hvað? Blámaður, vinsamlegast!"


Wednesday, October 17, 2012

Dásamlegir brestir Bryants

































Við vitum að það er ekki mikið að marka hluti sem gerast á undirbúningstímabilinu, en hægt er að koma auga á eitt og annað skemmtilegt ef vel er að gáð. Tendensa, strauma og stefnur.

Eins og í nótt þegar Lakers tók á móti Jazz í Anaheim. Dwight Howard og Pau Gasol voru ekki með Lakers og Kobe Bryant virkaði áhugalaus í fyrri hálfleik. Það var eins og hann nennti ekki að spila leikinn, enda lítið í húfi.

Í þriðja leikhluta rann hinsvegar á hann æði. Bryant skoraði þá 23 stig, meðan restin af liðinu skoraði jú... eitt stig. Og mótherjinn? 36 stig.

Lakersliðið var 30+ stigum undir allan tímann meðan Bryant hamaðist og hamaðist. Tók hvert slæma skotið á fætur öðru. Mörg þeirra fóru ofan í og náðu að kveikja aðeins í áhorfendum, sem virtust jafn áhugalausir og Bryant í fyrri hálfleiknum en skemmtu sér nú konunglega.

Þegar þriðja leikhlutanum lauk var staðan orðin 88-51 fyrir Jazz.

Það er ekkert að marka þessar tölur, þær segja ekki neitt, enda vantaði mikið í Lakersliðið sem leyfði mörgum vindlum að spila.
Við vorum heldur ekkert að spá í það.

Við vorum að horfa á Kobe Bryant. Þessa gangandi mannfræðirannsókn, þessa ráðgátu.

Ætlaði hann í raun og veru að skjóta Lakers inn í leikinn aftur - eða var hann bara að leika sér í æfingaleik? Fannst honum á einhverjum tímapunkti dálítið kjánalegt að enginn nema hann skoraði körfu í leikhlutanum?

Og það sem meira er.

Mun þessi maður kaupa það sem þjálfarateymið leggur fyrir hann og leika við hina krakkana í vetur? Og mun það bera árangur?

Ef þú sættir þig við styttri útgáfuna af svarinu, er það nei.

En okkur er alveg sama um það líka. Það sem okkur finnst áhugaverðast er að fylgjast með Kobe Bryant sjálfum. Þessu ólíkindatóli sem gengur svo illa að þekkja sín takmörk.

Það gæti orðið dálítið átakanlegt að horfa á Kobe Bryant á lokasprettinum sínum í deildinni.

Hann sættir sig ekki við það að hafa ekki alveg sömu burði og áður. Hann langar að vinna þig og liðið þitt upp á sitt einsdæmi, en hann getur það ekki lengur. Tölfræðin er öll á hægri niðurleið ár frá ári.

Auðvitað er ekkert að því að eldast. Ekki ætlum við að skamma Bryant fyrir það. Allir leikmenn eldast fyrir rest. Við höfum bara dálitlar áhyggjur af því hvernig hann aðlagast hækkandi aldri andlega.

Bryant er ekki orðinn neitt gamalmenni, en hann er að verða búinn að spila óhemjufjölda mínútna í deildinni og hefur litla sem enga hvíld fengið síðustu ár. Hann hefur verið heppinn með meiðsli en allt þetta púl fer líka smátt og smátt að naga í lappir hans og liði.

Við höfum oft sagt þetta áður, en við skulum öll fylgjast vel með Kobe Bryant á síðustu árum hans í deildinni. Ekki bara af því hann er einstakur leikmaður og einn af þeim bestu, heldur af því það gæti orðið sápuópera út af fyrir sig hvernig honum tekst að eiga við sjálfan sig, þegar skrokkurinn hættir að geta framkvæmt það sem tryllt keppnisskapið skipar honum.

Fjölda fólks er í nöp við Kobe Bryant og hann fer oft í taugarnar á okkur, en hann er leikmaður sem þvingar þig til að bera virðingu fyrir sér af því hann er alltaf þarna. Eins og íslenskt slagveður - vindurinn er alltaf í andlitið á þér.

Kobe Bryant er alltaf fyrstur á æfingar og síðastur út. Er brjálaður keppnismaður í Ólsen-Ólsen, á æfingum og í leikjum, alveg sama hvort það er á undirbúningstímabilinu, úti í porti eða í leik sjö í úrslitum. Hann er alltaf í árásarham, alltaf tilbúinn að drepa eins og skriðdýrið sem hann líkti sér við. Hann vill alltaf vinna, skora meira en þú, vera betri en þú. Hljómar kunnuglega, en svona eru ekki allir.

Það er ekki hægt annað en að hrífast af þessu, þó þetta snúist stundum í höndunum á honum. Eitt það besta við NBA körfuboltann er að verða vitni að því þegar þessar ofurstjörnur verða mannlegar. Skoðaðu efstu myndina í þessari færslu, en hún er frá Free Darko piltunum og lýsir skapgerðarbrestum Bryant skemmtilega.

Kobe Bryant var bara strákpeð þegar hann kom fyrst inn í deildina og var engin stjarna þó hann væri efnilegur.

Hann þurfti að vinna fyrir öllu sem hann fékk. Það er eitt af því skemmtilega við feril Bryant.

Hann er ekkert silfurskeiðarbarn á körfuboltasviðinu, þó hann sé uppalinn hjá Lakers og sonur pabba síns. Hann vann jú þrjá titla snemma, en menn verða ekki heimsklassa körfuboltamenn bara af því að spila með Shaquille O´Neal.

Kobe fór á bókasafnið og tók bókina "NBA 101" þegar hann var ungur maður. Hann las bókina spjaldanna á milli og kynnti sér hvernig forverar hans höfðu farið að því að vinna titla.

Nærtækasta dæmið fyrir hann var að herma eftir Michael Jordan, enda eru þeir svipaðir íþróttamenn, svipaðir á hæð og spila sömu stöðu.

Svo var bara að gera eins og strákurinn í Sprite auglýsingunni með Grant Hill gerði forðum: Æfa sig.

Kobe Bryant verður aldrei Michael Jordan, en það mun aldrei koma fram leikmaður sem hermir betur eftir honum. Hann gæti þurft að sætta sig við að hafa "aðeins" unnið fimm meistaratitla. Einum fleiri en þú veist og einum færri en þú veist. Ekki alslæmt.

Það verður risavaxið, skarðið sem Kobe Bryant skilur eftir sig þegar hann hættir að spila. Það er því best að njóta þess og fylgjast náið með honum á lokasprettinum. Eitthvað segir okkur að hann muni finna leiðir til að halda okkur við efnið.

Saturday, October 13, 2012

Til lukku með daginn, strákar



Paul Pierce (35) og Doc Rivers (51) eiga afmæli í dag.

Á síðustu leiktíð voru þeir þrír hjá Boston sem áttu afmæli þennan dag, en Celtics er blessunarlega búið að losa sig við hræið af Jermaine O´Neal.

Það verður gaman að sjá hvað Celtics á eftir í vetur. Það hangir mjög mikið á Pierce, þó hann hafi nú fengið nauðsynlega hjálp í formi Jason Terry. Allt í einu er komin smá breidd.

Ætla má að Celtics verði hættulegt næsta vor, þó það vinni kannski ekki fegurðarsamkeppnir í vetur.

Thursday, October 4, 2012

Fjölmiðladagurinn: Knicks


Fjölmiðladagurinn árlegi í NBA deildinni fór fram mánudaginn 1. október. 
NBA Ísland kíkti í heimsókn til nokkurra liða í deildinni og lagði fram nokkrar athugasemdir, hvort sem það var viðeigandi eða ekki. Þetta tekur nokkrar færslur og í þeirri síðustu tökum við saman skemmtilegustu myndir fjölmiðladagsins 2012.  

Við gátum ekki annað en hlegið þegar við gerðum okkur grein fyrir því hve margir gamlir karlar eru komnir til New York Knicks. Hvað ætla þessir menn að gera í vetur?

Þeir eru komnir með leikstjórnanda sem er með bumbu og HELLING af mjög gömlum mönnum.

Ef við værum ekki að drepast í bakinu - og ef okkur væri ekki svona leiðinlega skítsama um Knicks (sem er reyndar lygi sem við viljum að þið trúið) - hefðum við farið á kostum í að Photoshoppa myndirnar hérna fyrir neðan.

Enginn tími í það núna. Það eru fleiri lið í deildinni.