Showing posts with label Inside the NBA. Show all posts
Showing posts with label Inside the NBA. Show all posts
Wednesday, February 11, 2015
Barkley stríðir tölfræðinjörðunum
Það er gaman að sjá hvað Charles Barkley á enn auðvelt með að gera allt vitlaust með kjaftinum á sér. Tölfræðinördar heimsins eru froðufellandi af reiði eftir að Barkley lét ristilinn mása yfir Houston Rockets og tölfræðiþenkjandi framkvæmdastjóra félagsins.
Við héldum að fólk kæmi auga á það að þetta eru bara kyndingar hjá Barkley, en það er eins með þetta eins og annað - það má enginn segja neitt orðið án þess að vera krossfestur fyrir það.
Við erum reyndar nokkuð viss um að bæði Barkley og Shaquille O´Neal hafa ósköp litla trú á tölfræði fyrir lengra komna og auðvitað er það satt sem þeir segja, að þegar öllu er á botninn hvolft, eru það liðin með mestu hæfileikana sem vinna.
Barkley var vissulega nokkuð harðorður í garð Rockets, en það er erfitt að vera ekki sammála honum. Eða haldið þið kannski að Houston eigi eftir að komast upp úr fyrstu umferð í úrslitakeppninni í vor - hvað þá lengra?
Efnisflokkar:
Charles Barkley
,
Inside the NBA
,
Tölfræði
Monday, May 12, 2014
Shaq stríðir Barkley
Efnisflokkar:
Charles Barkley
,
Inside the NBA
,
Shaquille O´Neal
,
Skrítlur
,
TNT
Friday, April 26, 2013
Friday, November 9, 2012
Shaquille O´Neal er að eyðileggja Inside the NBA
Inside the NBA er margverðlaunaður þáttur á TNT sjónvarpsstöðinni í umsjón Ernie Johnson. Þeir Charles Barkley og Kenny Smith hafa verið meðreiðarsveinar Johnson í nokkuð mörg ár og svo hafa hinir og þessir gestir dottið í heimsókn.
Fyrir síðustu leiktíð var Shaquille O´Neal bætt í settið og héldu þá flestir að langbesti körfuboltaþátturinn í sjónvarpi yrði enn betri. Sú varð hreint ekki raunin. O´Neal hefur valdið gríðarlegum vonbrigðum. Hann hefur lítið að segja og það sem hann segir er oft tóm vitleysa og svo misnotar hann aðstöðu sína til að drulla yfir leikmenn sem hann var að keppa við nokkrum mánuðum áður. Svo hjálpar það honum ekki að það skilur enginn hvað hann er að segja þegar hann muldrar ofan í bringuna á sér.
Gott dæmi um bullið í O´Neal var í nótt þegar Clippers var að drulla yfir Portland í síðari leiknum á TNT. Þar fékk Shaquille O´Neal þá snilldar hugmynd að kalla DeAndre Jordan besta miðherjann í Vesturdeildinni af því hann æfði sig í sumar.
"I’m going on the record. Best center in the West right now is DeAndre Jordan. You heard it here first."
Það er rétt að Jordan hefur bætt sig og það nokkuð mikið. Það var raunar gaman að sjá þessar hreyfingar frá honum. En að kalla hann besta miðherjann í Vesturdeildinni - þar sem til dæmis Dwight Howard og Marc Gasol spila - er algjörlega út í hött.
Við skiljum alveg að O´Neal þoli ekki Dwight Howard, en þetta er bara asnalegt. Ófagmannlegt og asnalegt. Það er með ólíkindum að maðurinn skuli halda vinnunni þegar hann er að bjóða upp á svona skít. Þetta er ekkert annað en skítur.
Höfuðið á Shaquille O´Neal var fullt af ranghugmyndum síðustu árin sem hann spilaði í NBA. Hefur kannski verið það alla tíð, en það var áberandi á síðustu árunum hans. Stundum kom hann fyrir eins og óþroskaður, bitur og frekur krakkavitleysingur. Hann heldur þessum stælum áfram í Inside the NBA og fær að komast upp með það. Þetta er fyrir neðan allar hellur, ef þig langar að vita hvað okkur finnst um þetta.Eina leiðin til að koma í veg fyrir að Shaq dragi besta körfuboltaþátt í heimi ofan í svaðið er að reka hann á staðnum og ráða Chris Webber inn í staðinn. Webber hefur oft droppað inn í Inside og hefur allt sem til þarf. Góðan talanda, hressleika, þekkingu og reynslu úr sjónvarpi.
Út með Shaq - Inn með Webber - Málið dautt!
Efnisflokkar:
Chris Webber
,
Dreptu okkur ekki
,
Frussandi gremja
,
Inside the NBA
,
Shaquille O´Neal
,
Viðvaningsháttur
Subscribe to:
Posts (Atom)

