Showing posts with label Tony Parker. Show all posts
Showing posts with label Tony Parker. Show all posts
Friday, March 18, 2016
Liðið í skugganum er líka að slá met - mörg met
Það fór ekki mikið fyrir sigri San Antonio á Portland í NBA deildinni okkar fallegu í gærkvöldi, en hann var svo sannarlega merkilegur. Sigur Spurs þýddi nefnilega að nú er San Antonio komið með "jákvætt" vinningshlutfall - yfir 50% - gegn ÖLLUM liðunum í NBA deildinni í sögulegu samhengi.
San Antonio varð hluti af NBA deildinni árið 1976 eftir að hafa heitið öllum illum nöfnum í ABA-deildinni sálugu, þar sem það hafði líka aðsetur hér og þar í Texas frá stofnun klúbbsins árið 1967. Það er dálítið skondið að félagið hafi verið stofnað árið 1976, því það er einmitt fæðingarár sigursælasta og besta leikmanns í sögu þess - Tim Duncan.
Duncan þessi verður fertugur í næsta mánuði og er búinn að bera liðið á herðum sér lengst af síðan San Antonio tók hann í nýliðavalinu árið 1997.
Það er auðvitað með ólíkindum að lítið félag eins og San Antonio - en ekki klúbbar eins og Lakers eða Celtics - skuli afreka það að vera með 50+ prósent vinningshlutfall gegn öllum hinum liðunum í deildinni.
Þetta ber fyrst og fremst vott um ótrúlega sigurhefð Gregg Popovich þjálfara, Tim Duncan og aukaleikara hans í gegn um árin, þar sem menn eins og Tony Parker og Manu Ginobili eru vitanlega efstir á blaði.
San Antonio er búið að fara hamförum í deildarkeppninni í vetur og er með 58 sigra og aðeins tíu töp, sem er árangur sem aðeins fimm lið í sögunni hafa státað af eftir 68 leiki.
Þessi frábæri árangur fellur gjörsamlega í skuggann af sögulegu gengi Golden State (61-6) í vetur, enda er Oakland-liðið að hóta því að slá met Chicago Bulls frá árinu 1996 yfir bestu deildarkeppni allra tíma, þegar Jordan og félagar unnu 72 leiki og töpuðu aðeins tíu.
Þetta eru ekki einu rósirnar í hnappagati Texas-klúbbsins. Liðið hefur þannig komist í úrslitakeppnina 19 ár í röð og er búið að vinna 50+ leiki 17 ár í röð, en svo er það líka taplaust á heimavelli í vetur - eins og Golden State.
Það er því hætt við því að eitthvað verði undan að láta á næstu vikum, því Spurs og Warriors eiga eftir að mætast þrisvar sinnum í viðbót áður en yfir lýkur.
Fyrsta viðureignin af þessum þremur fer fram í San Antonio núna á laugardagskvöldið (19. mars) og þar eiga Spursarar harma að hefna, því Warriors-liðið valtaði yfir það í fyrstu viðureign liðanna á árinu.
Það sem er svo allra sérstakast við rimmu Spurs og Warriors á laugardagskvöldið er að sjálfir meistararnir í Golden State hafa ekki unnið deildarleik í San Antonio síðan árið 1997 - ÁÐUR EN Tim Duncan gekk í raðir Spurs það ár. Sigur Warriors þetta ár kom þann 14. febrúar, þegar Stephen Curry var átta ára gamall. Þetta, er náttúrulega alveg eðlilegt.
San Antonio er búið að vinna 43 leiki í röð á heimavelli, sem er þriðja lengsta rispa síns eðlis í sögunni á eftir 44 leikjum Chicago leiktíðina 1995-96 og svo Golden State núna, sem er búið að vinna 50 heimaleiki í röð.
Chicago á metið yfir flesta heimasigra í röð í upphafi leiktíðar, en það var 37 í röð á áðurnefndu tímabili, en San Antonio er komið með 34 í röð í vetur og Golden State hefur unnið 32 fyrstu heimaleikina sína á leiktíðinni.
Engu liði hefur tekist að fara taplaust á heimavelli í gegn um heila leiktíð, þó Boston hafi verið nálægt því um miðjan níunda áratuginn, þegar það tapaði aðeins einu sinni á heimavelli eitt árið.
Þó langt sé í land og þessi ógnarsterku lið eigi mjög erfiða leiki eftir, þyrfti það sannarlega ekki að koma á óvart þó að minnsta kosti eitthvað af áðurnefndum metum ættu eftir að falla. Þessi vetur sem við erum að fá að fylgjast með núna, er einfaldlega það sérstakur.
Það þarf enga sérfræðinga í körfubolta til að sjá að þeir Tim Duncan, Manu Ginobili og Tony Parker eru allir farnir að hægja verulega á sér, enda komnir með ansi margar mílur á lappirnar á sér eftir að hafa spilað 100+ leiki með félagsliði sínu ár eftir ár - svo áratugum skiptir á ferlinum.
Svona óguðlegt álag bæði telur og tekur á skrokkinn. Spyrjið bara menn eins og Kobe Bryant.
En alltaf skulu þeir malla áfram þessir menn. Spurs-arar hafa fengið ljómandi fína hjálp í yngri stjörnuleikmönnum eins og Kawhi Leonard og LaMarcus Aldridge í vetur, en í okkar huga kemst liðið ekki nema ákveðið langt á þessum tveimur nýgræðingum í Spurs-vélinni.
Ef San Antonio á að komast í úrslitaeinvígið enn eitt árið, þarf það að hafa alla sína menn 100% heila og líklega að fá framlag frá mönnum sem eiga einfaldlega að vera orðnir of gamlir og lúnir til að veita það.
En við skulum gæta þess að afskrifa þessa snillinga, sem mynda eitt sigursælasta lið í sögu deildarkeppni NBA deildarinnar. Það gæti leynst eitthvað smá spúnk í þeim gömlu enn. Kannski einn sprettur enn (með Tim Duncan standandi í lappirnar).
Og eins og við segjum í hvert sinn sem þetta lið ber á góma: Ekki myndum við gráta það þó þetta lið tæki eina dollu til. Virðing okkar fyrir þessum klúbbi er nær takmarkalaus.
Hérna fyrir neðan getur þú svo skoðað þetta sem við sögðum ykkur frá í upphafi pistilsins: samantekt tölfræðideildar NBA punktur komm yfir árangur San Antonio gegn öllum hinum liðunum í NBA deildinni frá upphafi. Þetta er ekkert til að henda í ruslið, svo mikið er víst.
Efnisflokkar:
Black Death
,
Gregg Popovich
,
Kawhi Leonard
,
LaMarcus Aldridge
,
Manu Ginobili
,
Metabækurnar
,
Spurs
,
Tim Duncan
,
Tony Parker
Thursday, November 12, 2015
Dásamlega hræðilegar auglýsingar með SA Spurs
Efnisflokkar:
Auglýsingar
,
Dauðinn á skriðbeltunum
,
Leikrænir tilburðir
,
LOL
,
MAFS
,
Manu Ginobili
,
Spurs
,
Svartmálmur
,
Tim Duncan
,
Tony Parker
Friday, May 1, 2015
Oddaleikur í Englaborg um helgina
Þetta einvígi heldur bara áfram að gefa...
San Antonio og LA Clippers buðu upp á enn einn naglbítinn í nótt og aftur var boðið upp á skemmtilegt tvist, sem fáir áttu kannski von á að sjá. Clippers náði að vinna í San Antonio 102-96 og jafna metin í seríunni í 3-3. Við erum því að fara í oddaleik á miðnætti á laugardagskvöldið, sem verður talsvert stærri viðburður en Bardaginn sem hefði átt að fara fram fyrir sjö árum.
Eins og þessi sería hefur verið frábær, á það eftir að koma okkur þráðbeint í þunglyndi þegar annað þessara liða fellur úr keppni á laugardaginn. Það er af því við vitum upp á hár hvaða stefnu umræðan tekur varðandi tapliðið.

Ef San Antonio tapar, öskra menn ÞEEEEETT´ERBÚIÐ! - og byrja að skrifa minningargreinar um San Antonio í fjögurhundruðasta skipti, til þess eins að fá þær í andlitið árið 2021 þegar liðið vinnur næsta titil með 45 ára gamlan Tim Duncan í miðjunni.
Þessi skrif verða óhjákvæmilega blanda af nostalgíu og þunglyndi. Var þetta síðasti dansinn hjá Spurs? Hætta Duncan og Manu (og Pop)? Þið vitið, eintóm leiðindi, þannig séð.
Á meðan San Antonio gæti svo sem alveg riðið inn í sólarlagið með alla sína titla og lokið keppni með sæld, er ekkert slíkt uppi á teningnum hjá Clippers.
Þar á bæ verður engin rómantík, bara aftökur og frussu-drull í allar áttir frá öllum mögulegum pennum, hvort sem þeir skrifa um körfubolta, hestaíþróttir eða hokkí. Eins vel og þeir eru búnir að spila, verða Chris Paul og Blake Griffin teknir af lífi til skiptis. Þeir verða svona eins og vankaða sæljónið sem háhyrningarnir nota sem tennisbolta í tíu mínútur áður en þeir éta það lifandi.
Það verður ekki vottur af sanngirni í því frekar en öðru á Twitter-öldinni, þar sem ekkert kemst að nema skyndiaftökur, alhæfingar og gífuryrði - þú ert annað hvort Michael Jordan eða mesti aumingi í heimi.Sko...
Það getur vel verið að Clippers hafi einhvern tímann átt skilið smá drull, við gagnrýndum liðið t.d. nokkuð harðlega í fyrra ef við munum rétt. En fari svo að liðið tapi á laugardaginn (fyrir meisturunum), er ekki sanngjart að ætla að taka fram sveðjuna og byrja að höggva leikmennina niður.
Jú, jú, það getur vel verið að Clippers sé með versta bekk síðan... ever... og það getur vel verið að menn eins og Jamal Crawford séu mestmegnis búnir að drulla á sig í seríunni og vissulega getur verið að DeAndre Jordan sé með skarð á stærð við Þistilfjörð í leik sínum þegar hann getur ekki drullast til að hitta úr öðru hverju vítaskoti sem hann tekur.
En munurinn á Clippers núna og undanfarin ár hjá okkur, er að liðið var miklu þéttara í ár en fyrri ár. Það er betra varnarlega og stjörnurnar hafa verið að spila af sér anusana.
Chris Paul hefur oftast leikið mjög vel í úrslitakeppninni en það er alltaf eitthvað sem kemur í veg fyrir að hann fari áfram í keppninni.Í fyrra átti hann sjálfur þátt í skitu Clippers, en að þessu sinni er ekkert svoleiðis í boði. Gaurinn er búinn að vera í lás í allt vor og klórar úr þér augun og hoppar ofan á þeim í takkaskóm ef þú ætlar að standa í vegi fyrir honum.
Helsta ástæðan fyrir auknum styrk Clippers er svo ungstirnið Blake Griffin, sem hefur farið hamförum á móti Spurs.
Hann bauð upp á smá prump í 4. leikhluta í fimmta leiknum, en þið megið ekki gleyma því að hann er kraftframherji en ekki bakvörður.
Hann getur ekki bara tekið boltann og gert hvað sem hann vill við hann, þó hann geri það stundum í hraðaupphlaupum. Það hefði einhver mátt reyna að segja okkur að Griffin ætti eftir að bjóða upp á 24 stig, 13 fráköst, 7 stoðsendingar, 2 stolna bolta og 2 varin skot að meðaltali í leik í fyrstu sex leikjunum við Spurs. Og gaurinn er með flensu...
Við vitum að mörg ykkar þola manninn ekki og hafið eflaust góðar og gildar ástæður fyrir því, en mikið fjandi er hann orðinn góður í körfubolta. Því er ekki hægt að neita.
Stóra fréttin við leik sex hjá Spurs var að gömlu góðu stjörnurnar hjá liðinu voru bara farþegar í þessum leik. Þeir gerðu nánast ekki neitt og létu þess í stað menn eins og Marco Belinelli og Boris Diaw bara sjá um þetta fyrir sig. Og það var næstum því nóg. En samt ekki.
Við vitum alveg að Parker og Splitter eru ekki heilir, en hversu góða möguleika haldið þið að Spurs eigi í sjöunda leiknum ef Tim Duncan, Manu Ginobili og Tony Parker skora ekki meira en 23 stig á milli sín. Nú eða að Duncan, Ginobili, Parker og Leonard (3 af 15 fg) verði ekki með nema 35 stig samtals. Það er mjög góð breidd í liði Spurs, en ef fernan þeirra frækna spilar ekki betur en þetta, er einvígið búið.
Okkur gæti faktískt ekki verið meira sama um hvernig þetta einvígi fer, við viljum bara fá áframhaldandi gæði í einn leik í viðbót.
Sigurvegarans bíður svo deit við Houston, sem hefur verið að spila ofar væntingum má segja, en sú sería byrjar strax á mánudaginn.
Það verður ekki létt dæmi fyrir eldgamla Spurs-ara eða Clippers með enga breidd (ekki eykst hún í fjarveru Tröllabarnsins sem fékk meiddi í kvöld eins og allir hinir).
Við segjum bara hallalúja yfir þessu einvígi. Þetta er botnlaust festival og flottheit og sama hvernig serían fer, eiga bæði lið skilið tröllakúdós fyrir frábæra rimmu. Sjáumst á laugardagskvöldið!
Efnisflokkar:
Blake Griffin
,
Boris Diaw
,
Chris Paul
,
Clippers
,
Kawhi Leonard
,
Manu Ginobili
,
Marco Belinelli
,
Oddaleikur
,
Patty Mills
,
Spurs
,
Tim Duncan
,
Tony Parker
,
Úrslitakeppni 2015
Sunday, November 23, 2014
Klassíker: Leyndarmál Longoríu
Efnisflokkar:
Fræga fólkið
,
Fret úr fortíðinni
,
KOK
,
Sjoppan
,
Spurs
,
Tony Parker
Saturday, October 11, 2014
Já, nei!
Efnisflokkar:
Doppelgangers
,
Manu Ginobili
,
Sjoppan
,
Spurs
,
Stolið efni
,
Tim Duncan
,
Tony Parker
Sunday, June 15, 2014
NBA Ísland reynir að útskýra velgengni Spurs
San Antonio er hársbreidd frá því að lengja afrekaskrá sína enn frekar. Það er ekki of djúpt í árina tekið þó við segjum að nánast allt við þessa leiktíð hjá félaginu er með hreinum ólíkindum.
Ef Spurs tekst að vinna fimmta titilinn í sögu félagsins á næstu dögum, skrifast nýr kafli í velgengniannála félags sem er búið að gleyma því hvernig tilfinning það er að komast ekki í úrslitakeppni - kann varla að tapa.
Það eina sem okkur dettur í hug til að bera saman við þetta velmegunartímabil hjá Spurs er sigurganga Sir Alex Ferguson hjá Manchester United og svo mulningsvél Boston Celtics á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar.
Efnisflokkar:
Gregg Popovich
,
Lokaúrslit
,
Manu Ginobili
,
Metabækurnar
,
Sigurgöngur
,
Sögubækur
,
Spurs
,
Svartidauði
,
Tim Duncan
,
Titlar
,
Tony Parker
,
Úrslitakeppni 2014
,
Velgengni
Thursday, May 22, 2014
Enn eitt metið hjá San Antonio
Tim Duncan, Tony Parker og Manu Ginobili urðu í nótt sigursælasta tríó í sögu úrslitakeppninnar þegar þeir unnu sinn 111. sigur saman á því sviði. Þetta eru engir pappakassar sem þeir voru að setja á bak við sig - Lakers goðsagnirnar Magic, Kareem og Cooper. Langt er síðan þeir slógu Celtics-þrennunni Bird, Parish og McHale við.
Það getur vel verið að þú viljir ekki heyra það, en það eru bara ekki mörg lið í sögu NBA deildarinnar sem slá þessu Spurs-liði við.
Þett´er náttúrulega bara rugl.
Tríóið okkar - og raunar liðið allt - er hvað eftir annað að slá met í velgengni bæði í deildakeppni og úrslitakeppni. San Antonio-liðið hans Tim Duncan er sannarlega einstakt lið.
Eitt allra besta körfuboltalið allra tíma.
Öllum er að vísu skítsama, en þetta er staðreynd engu að síður.
Vittu til, þú átt eftir að finna léttan straum af fortíðarþrá leika um þig þegar þú montar þig af því við barnabörnin að þú hafir fylgst ítarlega með Spurs allar götur frá því Tim Duncan kom til sögunnar og þangað til hann og félagar hans Parker og Ginobili lögðu skó sína á hilluna árið 2087.
Við viðurkennum það að þetta lið hefur oft farið í taugarnar á okkur. Svona eins og gamall, strangur og afturhaldssamur kennari með allt á hornum sér. Stundum finnst þér hann fyrirsjáanlegur og stundum fer hann í allar þínar fínustu.
En þegar þú hugsar til hans eftir 25 ár, áttu eflaust eftir að minnast hans með hlýju.
Hann kunni þetta nú allt saman, helvískur!
Efnisflokkar:
Manu Ginobili
,
Metabækurnar
,
Sigurgöngur
,
Sigurvegarar
,
Spurs
,
Tim Duncan
,
Tony Parker
Friday, June 7, 2013
Ótrúleg sigurkarfa Tony Parker í nótt
Efnisflokkar:
Á flautunni
,
Á ögurstundu
,
Lokaúrslit
,
Spurs
,
Tony Parker
Draumabyrjun á lokaúrslitaeinvíginu
Vonandi snýst umræðan eftir leikinn um eitthvað annað en að LeBron James hafi ekki skorað yfir 30 stig. Hann var reyndar búinn að skora yfir 20 stig í tólf leikjum í röð áður en hann skilaði "bara" átján stigum gegn Spurs í nótt (og átján fráköstum og tíu stoðsendingum), en hann var líka ekki að spila á móti liðum þjálfuðum af Gregg Popovich.Nei, umræðan ætti að snúast um það hvað þessi sigur er rosalega mikilvægur fyrir San Antonio eftir alla þessa hvíld - og hvað Tony Parker er búinn að líma nafn sitt í sögubækurnar, hafi hann ekki þegar verið búinn að því.
Við værum að gera lítið úr leik hans ef við gerðum ekki annað en að hrósa honum fyrir sigurkörfuna, sem auðvitað hafði eitthvað með heppni að gera.
Snúningskarfan sem hann skoraði rétt á undan, leikstjórn hans og sú staðreynd að hann tapaði ekki einum einasta bolta í leiknum, segja meira um frammistöðu hans. Þetta er bara snillingur.Það var ekkert annað en upplifun að horfa á þessi lið kljást og það má ekki ein einasta amma eða antísportisti missa af restinni af þessu einvígi.
Áhugavert að sjá Dwyane Wade spila miklu, miklu betur en hann gerði í helmingnum af leikjunum gegn Indiana. Virkaði ekki mikið að honum í þessum leik. Chris Bosh? Bleh.
Chris Bosh er Chris Bosh. Við setjum spurningamerki við öll þessi langskot hans, en það er engin tilviljun að hann sé að taka þau. San Antonio vill að hann taki þau - og Spoelstra þjálfari hans treystir honum til að taka þau. Annars væri hann ekki að taka þau hvað eftir annað, hvað sem þér finnst svo um það.
Við værum auðvitað ekki að tala um þetta ef hann hefði sett eitthvað af þeim niður, sérstaklega það síðasta.Það hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir Miami hvað San Antonio bjó til mikið af opnum þriggja stiga skotum og ef þau hefðu verið að detta betur hjá Spurs, hefði þessi leikur kannski ekki verið spennandi.
Risakúdós verður auðvitað að renna til Tim Duncan sem skilaði 20/14/4/3 leik. Hinn 37 ára gamli öðlingur, er næstelsti leikmaður í sögunni til að skila 20/14 leik í lokaúrslitum (Kareem). Snillingur. Algjör snillingur.
Og það er alveg mannlegt að halda með honum í síðasta dansinum, þó hann hafi verið í ljótri skyrtu á blaðamannafundinum.
Við erum örugglega að gleyma einhverju, en einvígið er rétt að byrja og nægur tími til að snúa við hverjum steini næstu daga (og lauma jafnvel inn nokkrum mínútum af svefni jafnvel - #Immit)

Bæði lið eiga eftir að gera einhverjar breytingar milli leikja og eitthvað segir okkur að skákin sé bara rétt að byrja.
Þessi snilldarleikur í nótt var stórkostleg byrjun á þessu einvígi og lofar gríðarlega góðu fyrir framhaldið.
Það má vel vera að yfir 70% liða sem vinna leik eitt í lokaúrslitum landi titlinum, en það dugði Oklahoma nú skammt í fyrra.
Kannski voru Miami-menn dálítið lúnir í fjórða leikhlutanum í nótt eftir Maraþonviðureignina við Indiana, en það er þá þeim sjálfum að kenna.
Gerðu okkur þann greiða að missa ekki af leik tvö. Það er ekki bjóðandi.
Þvílík gargandi snilld sem þessi íþrótt getur verið.
P.s. - Kíktu á Hlaðvarpssíðuna, þar er komin smá upphitun fyrir úrslitaeinvígið (13. þáttur).
Efnisflokkar:
Chris Bosh
,
Dramatík
,
Dwyane Wade
,
Erik Spoelstra
,
Gregg Popovich
,
Heat
,
LeBron James
,
Lokaúrslit
,
Sögubækur
,
Spurs
,
Tim Duncan
,
Tony Parker
,
Úrslitakeppni 2013
,
Úrvalsleikmenn
Tuesday, May 28, 2013
San Antonio er komið í lokaúrslit
San Antonio er komið í lokaúrslit NBA deildarinnar í fimmta skipti eftir nokkuð öruggan 93-86 sigur á Memphis í fjórða leik liðanna í nótt. San Antonio sópaði Memphis út í úrslitum Vesturdeildarinnar. Gefðu þér tíma til að melta þetta í smá stund. Engum hefði dottið í hug að spá þessu. Nákvæmlega engum.
En hingað eru þeir komnir, gömlu hundarnir í San Antonio. Svo fór að lokum að þeir töpuðu aðeins tveimur leikjum á leið sinni í úrslitin. Auðvitað spáðir þú því að eina liðið sem myndi ná að vinna Spurs á leið í úrslitaeinvígið væri Spútnikliðið hans Mark Jackson. Einmitt.
Tim Duncan er nú að fara með San Antonio liðið sitt í lokaúrslit þriðja áratuginn í röð. Hugsið ykkur. Þetta hljómar dálítið klikkað, en svona er þetta.San Antonio vann fyrsta titilinn í sögu félagsins þegar Duncan var gutti árið 1999. Svo fylgdu þrír í viðbót eftir að þeir Parker og Ginobili mættu til sögunnar - árið 2003, 2005 og 2007.
Síðast þegar Spurs fór í úrslit, var mótherjinn LeBron James og Cleveland-lið hans. James dró þá Cavs-lið sem var ekkert sérstaklega gott alla leið í úrslit. Þegar þangað var komið, var hinn meira en efnilegi James kominn á leiðarenda. Gregg Popovich setti hann og fyrrum lærling sinn Mike Brown í hakkavélina og sópaði þeim 4-0.
Nú er ekki ólíklegt að LeBron James fái tækifæri til að hefna sín á Popovich, Duncan og félögum, en í þetta skiptið með alvöru lið á bak við sig. Það verður einhver skákin. Vá. Það er gjörsamlega ómögulegt að spá því hvað gerist ef þessi lið mætast.
Tölum aðeins um Húnana í Memphis. Það er erfitt að segja það eftir aðra eins útreið og Griz fékk hjá Spurs, en strákarnir í Memphis stóðu sig bara nokkuð vel í vetur.Við gefum þeim reyndar D- mínus fyrir einvígið gegn Spurs, en það er mikið til af því Spurs sýndi spilamennsku upp á A. Húnarnir börðust af öllum mætti í fyrstu þremur leikjunum en okkur fannst þeir allt of daufir í leik fjögur.
Það má vel vera að mannskapurinn hafi verið búinn að missa trú á að vinna einvígið eftir að hafa lent 3-0 undir, en fjandakornið að menn hafi ekki stolt í að reyna að minnsta kosti að láta ekki sópa sér út á eigin heimavelli. Það þykir okkur bara lélegt. Sorry. Memphis á að vera betra lið en þetta.
En, eins og við sögðum, má Memphis vel við una eftir dramatískan vetur. Enn er hægt að bæta við og gera þetta lið sterkara en framtíð þess í þjálfaramálum er alveg upp í loft. Það er samt engin ástæða til að ætla annað en að Memphis verði með samkeppnishæft lið á allra næstu árum.Nú fórum við allt í einu að hugsa um San Antonio aftur. Hugsaðu þér, San Antonio sópaði Memphis í úrslitum Vesturdeildarinnar! Þvílík frammistaða.
Það var engin tilviljun að Zach Randolph blessaður gat EKKERT í einvíginu. Hann var tekinn úr umferð og Memphis fékk ekki að gera neitt sem það vildi gera í sókninni.
Húnunum líður alltaf betur í varnarleiknum en sóknarleiknum, en þeim tókst ekki heldur að finna svör við sóknarleik San Antonio - þar sem Tony Parker reif þá í sig sókn eftir sókn.
Tony flippin Parker.
Menn tala ALDREI um Tony Parker þegar rætt er um bestu leikstjórnendur heimsins, en alltaf skal hann vera síðasti leikstjórnandinn á lífi - spila lengst inn í sumarið af öllum þessum hetjum. Nú ætlum við ekki að halda því fram hér að Parker sé sá besti, en við hvetjum fólk til að staldra aðeins við og pæla í því hvað drengurinn er góður leikmaður.Hann bar sóknarleik San Antonio uppi í einvíginu við Memphis.
Mike Conley, leikstjórnandi Memphis, náði að halda eins vel aftur af Chris Paul í fyrstu umferðinni og hægt er.
Hann og Tony Allen (sem er almennt álitinn einn besti - ef ekki besti - varnarmaður úti á velli í NBA) reyndu allt sem þeir gátu, en hraði og útsjónarsemi Parker og heimsklassa hindranir Splitter og Duncan gerðu það að verkum að Memphis fann aldrei svar við honum.
Og svo þakkar hann bara liðsfélögum sínum þegar verið er að hrósa honum. Alvöru maður.
Nú fær San Antonio líklega yfir viku hvíld þangað til ræðst hver mótherji þess verður í lokaúrslitunum.
Það er óhemju mikilvægur þáttur fyrir þessar gömlu lappir og meiddu skanka í liðinu.
Einhver lið myndu hafa áhyggjur af því að ryðga á viku, en Spurs fagna hvíldinni, enda hefur þreyta verið óvinur liðsins númer eitt í úrslitakeppninni. Það var sérstaklega áberandi í einvíginu gegn Golden State.
Eins og staðan er núna verður að teljast líklegt að það verði meistarar Miami sem mæta San Antonio í úrslitunum (jinx). Það verður ekkert minna en skákeinvígi með flugeldasýningu eftir hvern leik. Réttast væri að rukka þrefalt inn á þetta.
Og við sem vorum búin að skrifa San Antonio út sem meistarakandídat og halda jarðarför því tengt. Það var ekki annað hægt, eftir að liðið drullaði á sig í úrslitakeppninni ár eftir ár eftir ár.
Nei, svo dúkka þessir herramenn upp, SEX árum eftir síðasta titil og ætla bara alla leið!
Það sem fólk leggur ekki á sig til að láta okkur líta illa út!
Efnisflokkar:
Gregg Popovich
,
Grizzlies
,
Sigurgöngur
,
Sigurvegarar
,
Spurs
,
Tony Parker
,
Úrslitakeppni 2013
Saturday, April 20, 2013
Sögulegt San Antonio
Gregg Popovich hjá San Antonio er almennt álitinn besti þjálfarinn í NBA deildinni. Þegar honum er hrósað fyrir að vera góður þjálfari, er hann alltaf fljótur að vísa því á bug og segja að velgengni Spurs sé leikmönnunum að þakka en ekki honum - hann sé fyrst og fremst heppinn að hafa fengið leikmenn eins og Tim Duncan upp í hendurnar.
Pop þarf ekkert að vera með þessa stæla, hann er frábær þjálfari og hann veit það, en hitt er rétt að það skiptir engu máli hvað þú ert góður þjálfari - þú nærð litlum árangri ef þú ert ekki með góða leikmenn.Þá komum við að kveikjunni að þessari hugleiðingu:
Gerið þið ykkur einhverja grein fyrir því hvað San Antonio er búið að vera sögulega frábært lið síðan Tim Duncan kom inn í NBA deildina um miðjan tíunda áratuginn?
Enn eitt árið var San Antonio að ljúka deildakeppninni með tæplega 60 sigra (58) og er það hvorki meira né minna en fjórtánda árið í röð sem liðið vinnur 50 leiki eða meira. Þetta er NBA met.
Þegar betur er að gáð, er Spurs reyndar tæknilega búið að vinna 50+ leiki sextán ár í röð, því í verkbanninu um aldamótin voru auðvitað bara spilaðir 50 leikir.
Það ár var San Antonio með einn besta árangurinn í sögu félagsins (74% vinningshlutfall), svo það er enginn glæpur að áætla að Spurs hefði klárað 50 sigra með vinstri það árið.
Árið áður en Tim Duncan kom inn í deildina var San Antonio ömurlegt og tankaði duglega meðan stórstjarnan David Robinson var í meiðslum alla leiktíðina. Þetta er eina ljóta tímabilið í sögu félagsins allt aftur til níunda áratugarins.Það er því þannig að ef við uppreiknum verkbannsárið um aldamótin, hefur San Antonio unnið 50+ leiki nítján sinnum á síðustu tuttugu árum, sem er með algjörum ólíkindum.
Auðvitað á Gregg Popovich sinn þátt í þessari velgengni San Antonio. Það var ekki lítið umdeild og kjarkmikil ákvörðun hjá honum á sínum tíma að láta það verða sitt síðasta verk í skrifstofudjobbinu sínu hjá Spurs að reka þjálfarann (sem var búinn að ná flottum árangri í deildakeppninni) og ráða sjálfan sig í staðinn.
Þá kom Tim Duncan til skjalanna og síðan hefur San Antonio ekki gert annað en vinna 50+ sigra á tímabili og safna meistaratitlum.
Eins og við höfum getið um annað slagið í vetur, er Tim Duncan að eiga sögulegt ár hjá Spurs. Flestir voru búnir að afskrifa gamla manninn eftir að tölfræðin hans fór að dala hressilega ár eftir ár, en í ár er engu líkara en hann hafi sest að sumbli í æskubrunninum með Eddie Murphy.
Það er alveg sama hvað meiðsli leika Spurs grátt og alveg sama hvað Popovich sparar mínútur og hvílir stjörnurnar sínar - alltaf skal sýstemið ganga upp og Spurs vinna fullt af leikjum.Pop er sennilega besti þjálfarinn í NBA og menn eins og Tony Parker og Manu Ginobili eru engir skussar, en San Antonio væri ekki búið að vera stórveldi í tvo áratugi ef Tim Duncan hefði ekki notið við.
Jú, hann Duncan er ekki sexí, hann á auðvelt með að fara í taugarnar á fólki, hann gefur ekki litrík viðtöl og er sannarlega enginn skrautfugl á vellinum heldur.
Hann veitir afar sjaldan persónuleg viðtöl og í rauninni hefur enginn hugmynd um hvaða mann hann hefur að geyma - fólk veit bara að hann er góður drengur, stórkostlegur körfuboltamaður og agaður leiðtogi eins besta liðs allra tíma.
Þannig að...

Ef þú hefur ekki gefið þér tíma til að staldra við og gefa því gaum að Tim Duncan er einn besti körfuboltamaður allra tíma, er heldur betur kominn tími á það.
Og ekkert væl um að San Antonio sé leiðinlegt lið. Þú hefur ekki hundsvit á körfubolta ef þú heldur slíku fram.
San Antonio kann að hafa verið dálítið leiðinlegt lið þegar það var að vinna titlana forðum, en á allra síðustu árum hefur Popovich gjörbylt spilamennsku liðsins og breytt því úr Land Rover í Lamborghini.
Allt í einu varð San Antonio eitt besta sóknarlið deildarinnar.
Þessi leikaðferð dugar alltaf í 50+ sigra í deildakeppninni, en undanfarin ár hefur vantað herslumuninn í úrslitakeppninni.
Liðið var mjög nálægt því að gera góða hluti í fyrra þegar það vann fyrstu 10 leikina sína í röð í úrslitakeppninni áður en það steinlá einhvern veginn fyrir Oklahoma (eftir að hafa komist 2-0 yfir).Vonir Spursara í vor eru hátt spenntar, því liðið hefur verið miklu betra í varnarleiknum í vetur en það var í fyrra og eflaust má skrifa hluta af því á endurholdgun Tim Duncan.
Heilsufar lykilmanna er þó alltaf stóra spurningamerkið og sumir ganga svo langt að ætla Lakers að slá San Antonio út í fyrstu umferð út af meiðslavandræðum Tony Parker, Manu Ginobilli og Boris Diaw svo einhverjir séu nefndir.
Við ætlum nú ekki að ganga svo langt, en við verðum að veðja á móti Spurs í úrslitakeppninni af því við afskrifuðum liðið sem meistarakandídat fyrir svo löngu síðan. Þýðir ekkert að ætla að taka einhvern Reykhás á það.
Það fer samt enginn gráta á skrifstofu NBA Ísland ef San Antonio gerir góða hluti í úrslitakeppninni. Við berum óhemju virðingu fyrir þessum snillingum og þú ættir að gera það líka.
Efnisflokkar:
Gregg Popovich
,
Manu Ginobili
,
Ógnarstyrkur
,
Sigurgöngur
,
Spurs
,
Tim Duncan
,
Tony Parker
,
Velgengni
Friday, February 22, 2013
Enn hristum við höfuðið yfir San Antonio
San Antonio gjörsamlega valtaði yfir L.A. Clippers í Los Angeles í nótt og styrkti þar með stöðu sína á toppi deildarinnar. Spurs er því með fjögurra leikja forystu á Oklahoma og Miami, sem er ágætis púði á lokasprettinum.
Sigur Spurs á Clippers í nótt var sjöundi leikurinn af níu af hinu árlega Ródeóferðalagi liðsins og eins og þeir sem fylgjast vel með NBA vita, hefur liðið oftar en ekki notað þennan part af tímabilinu til að trekkja sig almennilega í gang ef svo má segja.
Á þessu ætlar ekki að verða nein untantekning í vetur. Spurs byrjar 6-1 á ferðalaginu og hefur aðeins tapað fyrir Detroit, sem reyndar er dálítið klaufalegt, en lýsandi dæmi um hvað allt getur gerst í álaginu í NBA deildinni.
Fá okkar reiknuðu með því að San Antonio myndi verða í efsta sæti NBA deildarinnar um Stjörnuhelgina, en þarna eru þeir gömlu refirnir enn eina ferðina.Það er einmitt á svona tímum þar sem liðið stendur undir gamla viðurnefninu sínu;
Black Death.
Við höfum sagt ykkur frá því hvernig San Antonio breyttist úr því að vera ógnarsterkt varnarlið yfir í að vera besta sóknarlið deildarinnar, en nú vill svo skemmtilega til að liðið er aftur komið nálægt toppnum í vörninni líka. Það eru slæm tíðindi fyrir andstæðinga liðsins.
Það er ómögulegt að segja hvað verður með Spurs í vor. Fyrirfram myndu fáir tippa á að liðið næði að leggja Oklahoma eftir rassskellinn sem það fékk í úrslitakeppninni í fyrra. En hvað vitum við svo sem...
Það eina sem við vitum, er að San Antonio hefur unnið 16 af síðustu 17 leikjum sínum í deildinni þrátt fyrir talsverð meiðslavandræði á lykilmönnum liðsins.
Liðið er 64-25 á Ródeókeppnisferðalaginu síðan árið 2003. Það er um 72% vinningshlutfall - allt útileikir. Ertu að fatta það?
San Antonio er 155-49 (76%) síðan í upphafi leiktíðarinnar 2010-11, það er þrettán leikjum betri árangur en næsta lið sem er Oklahoma City. Næst kemur LA Lakers - þrjátíu leikjum á eftir Spurs.
Sautján af síðustu 24 leikjum San Antonio í deildinni í vetur eru á heimavelli. Eigum við ekki að segja að Spurs eigi ágætis möguleika á að halda toppsætinu og heimavallarrétti út alla úrslitakeppni.
P.s. => Tony Parker er búinn að vera besti maður Spurs í vetur og er að skila 21 stigi, 7,7 stoðsendingum og tæplega 54% skotnýtingu. Hann er slá eigin met í nokkrum tölfræðiflokkum og hefur bókstaflega aldrei verið betri.Það er skondið að sjá hvað Parker er nákvæmlega ekkert inni í umræðunni þegar kemur að valinu á verðmætasta leikmanni ársins. Strangt til tekið - ef farið væri eftir sömu stöðlum og verið hefur undanfarin ár - ætti Parker að verða fyrir valinu einfaldlega af því hann er besti maðurinn i besta liðinu í vetur.
Auðvitað er Tony Parker ekki betri leikmaður en LeBron James og Kevin Durant, en það verður erfiðara fyrir fjölmiðlamenn að horfa framhjá Parker með hverjum leiknum sem San Antonio vinnur.
Við getum hinsvegar sagt ykkur það hér og nú að það verður LeBron James sem verður fyrir valinu í ár og verður þar með aðeins fjórði leikmaðurinn í sögu NBA til að vera kjörinn Verðmætasti leikmaður deildarinnar fjórum sinnum á ferlinum.Og hann er aðeins 28 ára gamall.
Wilt fékk styttuna fjórum sinnum. Jordan og Russell fimm sinnum hvor.
Hér gæti eitthvað þurft að láta undan á komandi árum.
Efnisflokkar:
MVP
,
Sigurgöngur
,
Spurs
,
Tony Parker
,
Velgengni
Friday, May 18, 2012
Afmælisbörn dagsins, já!
Tony Parker er þrítugur í dag og langar örugglega að halda upp á það með því að leiða lið sitt San Antonio til sigurs á LA Clippers í nótt.
Clippers á erfitt verk fyrir höndum ef Spurs kemst í 2-0 og raunar hvernig sem leikurinn í kvöld fer.
Tony Parker var kjörinn verðmætasti leikmaður lokaúrslitanna árið 2007 þegar Spurs varð síðast meistari.
Þá spilaði hann vel, enda hefði nefndin ekki farið að velja Frakka sem mvp nema hann stæði sig vel.
Parker hefur verið besti maður San Antonio í allan vetur og var alveg með í mvp umræðunni.
Það er ótrúlegt til þess að hugsa að þessi snaggaralegi bakvörður sé loksins að skríða yfir þrítugt. Hann var því ekki gamall þegar hann byrjaði að vinna titla með San Antonio. Frábær leikmaður.
Þeir eiga líka afmæli í dag, stórhöfðingjarnir Jon Koncak og Danny Manning. Við vorum svo góð við ykkur að splæsa saman mynd af þeim, af einhverjum óskiljanlegum ástæðum.
Efnisflokkar:
Afmæli
,
Tony Parker
Monday, March 5, 2012
Sögulegt kvöld hjá frábærum leikstjórnendum
Leikstjórnandastaðan hefur sjaldan eða aldrei verið sterkari en hún er í NBA í dag. Þessir ungu piltar eru alltaf að bæta sig og það er eins og annað hvort lið í NBA búi svo vel að eiga ás sem er á stjörnuliðskalíberi.
Tölfræðin sem leikstjórnendurnir voru að bjóða upp á í nótt fer í sögubækur, það er ekkert öðruvísi. Deron Williams skoraði 57 stig í sigri New Jersey Nets á ömurlegu Bobcats-liði. Þetta er einn mesti stigaleikur sem hreinræktaður leikstjórnandi hefur boðið upp á í sögu deildarinnar og þá er ekkert slor að hitta úr 21 af 21 skoti á vítalínunni.
Ef þú spyrð okkur er 18/17/20 leikur Bostonmannsins Rajon Rondo öflugri en skotsýning Deron Williams. Aðeins Wilt Chamberlain og Oscar Robertson hafa sett upp aðrar eins tölur í sögu deildarinnar en það að 185 cm og 84 kílóa maður skuli bjóða upp á þennan sóðaskap í nútíma NBA er ekkert annað en fáránlegt.
Það segir sína sögu um flugeldasýningu kvöldsins að frábærir leikir fjögurra annara miðjubakvarða skuli falla algjörlega í skuggann. Þeir Chris Paul og Derrick Rose fóru þó báðir fyrir sínum liðum í góðum sigrum og skiluðu frammistöðu vel yfir meðaltali. Þá var einvígi þeirra Tony Parker og Ty Lawson ekki mikið síðra. Það er dásamlegt að fylgjast með leikstjórnendum nútímans leika listir sínar í NBA.
Efnisflokkar:
Chris Paul
,
Deron Williams
,
Derrick Rose
,
Rajon Rondo
,
Sögubækur
,
Tölfræði
,
Tony Parker
,
Ty Lawson
Subscribe to:
Posts (Atom)






















