Showing posts with label Raunir hvíta mannsins. Show all posts
Showing posts with label Raunir hvíta mannsins. Show all posts
Saturday, November 21, 2015
Meira af raunum hvíta mannsins
Goðsögnin um "Hvíta Líkið" (ens. White Stiff) lifir enn góðu lífi í NBA deildinni. Hvíta líkið er hvítur miðherji sem dettur í jörðina ef hann reynir að tyggja tyggjó meðan hann er að ganga.
Og ekki líta þeir betur út þessi hræ, þegar hinir þeldökku starfsbræður þeirra byrja að hlaupa hringi í kring um þá og hoppa yfir þá. Það eru alveg til svartir skussar líka, en þeir virka færri. Svarti maðurinn er einfaldlega með betri grunntæki en sá hvíti, sem við bíðum alltaf eftir að verði útdauður í NBA deildinni. Svona erum við full af fordómum og kankvís á kynþættina.
En á öllu má finna undantekningar eins og þið sjáið á myndinni hérna fyrir ofan. Við tökum enga ábyrgð á að þessar tölur séu réttar, þær eru vonandi innan skekkjumarka, okkur fannst bara áhugavert að láta reyna á gömlu tugguna um stökkraunir hvíta mannsins á körfuboltavellinum.
Thursday, December 25, 2014
Leiðindaspá NBA Ísland gekk eftir
Eins og það er gaman að hafa rétt fyrir sér, vakti það enga gleði hjá okkur þegar spá okkar um afdrif miðherjans Anderson Varejao hjá Cleveland gekk eftir.
Í dag var tilkynnt að Brasilíumaðurinn hárprúði væri með slitna hásin og því úr leik með liðinu í vetur.
Nú þarf auðvitað engan Nostradamus til að spá því að Varejao eigi eftir að meiðast og það er að vissu leyti smáborgaralegt að vera að hreykja sér af því að hafa séð svona lagað fyrir. Það er ekki merkilegra fólk en þetta á ritstjórn NBA Ísland.
Það eina sem kemur á óvart við þetta er að hann hafi spilað 26 leiki í vetur en ekki 25 eins og hefð hefur verið fyrir hjá honum undanfarin ár.
Það er með hreinum ólíkindum hvað þessi drengur er búinn að vera endalaust óheppinn með meiðsli á ferlinum, ekki síst nú á síðari árum Hérna fyrir neðan sjáið þið að við höfðum aldrei neinar vonir um að Varejao ætti eftir að spila allt tímabilið með Cleveland. Hér er brot úr vörutalningu okkar þann 12. desember síðastliðinn.
Efnisflokkar:
Anderson Varejao
,
Cavaliers
,
Meiðsli
,
Nostradamus
,
Óskalög sjúklinga
,
Raunir hvíta mannsins
Wednesday, April 16, 2014
Meiðsli Bogut gætu eyðilagt áform Warriors
Þú ferð út á lífið og hittir föngulega dömu. Ferð með henni heim og leikar taka að æsast. Þið látið vel að hvort öðru og ákveðið að færa aksjónið inn í svefnherbergi. Svo þegar þú klæðir hana úr buxunum... kemur í ljós að hún er með bleyju. Þú nuddar augun og athugar hvort þig er að dreyma, en hjá þessu verður ekki komist. Hún er með bleyju, hvort sem þér líkar betur eða verr.
Svona líður stuðningsmönnum Golden State Warriors eftir að þeir fréttu að Andrew Bogut væri rifbeinsbrotinn og ætti því eftir að missa af úrslitakeppninni.
Eftir langan og strangan vetur var fjörið loksins að byrja. Loksins gátu strákarnir hans Mark Jackson farið að sýna okkur að ágætur árangur þeirra í úrslitakeppninni í fyrra* hafi ekki verið nein tilviljun.En þá gerist þetta.
Svona er þetta alltaf hjá Golden State og svona hefur þetta raunar alltaf verið hjá Andrew Bogut, hvers heilsufar hefur verið kraftaverk síðustu mánuði miðað við vesenið á honum undanfarin ár.
Í fyrra var það David Lee sem meiddist í úrslitakeppninni og gat lítið beitt sér eftir það. Stephen Curry var líka meiddur þá og er eiginlega alltaf meiddur, því ökklarnir á honum eru ónýtir.
Curry var þó búinn að halda sæmilegri heilsu í vetur eins og Bogut, en nú er sú heilsa úr sögunni eins og hún verður fljótlega hjá keppendunum í þættinum Feitasti einstaklingurinn sem missir fáránlega mikla þyngd á skömmum tíma í sjónvarpi, en dettur svo strax aftur í það og verður feitur aftur af því að fólk sem er svona feitt á oftast við andlegan sjúkdóm að stríða sem kemur grænmeti og hlaupabrettum óskaplega lítið við - sem verið hefur á dagskrá í íslensku sjónvarpi undanfarið.
Þetta er í alla staði ömurlegt dæmi. Og þá erum við að tala um meiðslin, ekki þáttinn (Immit).Það er kannski of mikil bölsýni að ætla að dæma Warriors úr leik í úrslitakeppninni bara af því það missir einn mann í meiðsli, en staðreyndin er bara sú að þessi maður er mikilvægasti leikmaður liðsins í varnarleiknum, með fullri virðingu fyrir frábærum varnarmanni eins og Andre Iguodala.
Það sem gerir þetta enn verra, er að maðurinn sem ætti með öllu að koma inn í stað Bogut og var meira að segja í byrjunarliði Warriors í helmingi leikja liðsins á síðustu leiktíð, Festus Ezeli, er líka meiddur. Hann er reyndar byrjaður að æfa eftir að hafa verið úr leik í allan vetur, en hann á ekki eftir að gera mikið í úrslitakeppninni ef hann kemur þá yfir höfuð við sögu.
Við erum því að tala um að Golden State sé að fara inn í úrslitakeppnina með Jermaine O´Neal sem eina miðherjann sem Mark Jackson treystir þokkalega. Það væru ágætar fréttir af við værum stödd á árinu 2004, en eins og þið vitið er 2014 núna og það boðar ekki gott þegar haft er í huga að O´Neal var búinn á því strax árið 2009, þegar hann gerði sig bókstaflega að fífli í úrslitakeppninni fyrir framan augun á okkur.
Það stefnir í að mótherji Golden State í úrslitakeppninni verði LA Clippers og ljóst að miðherjalaust Warriors-liðið getur ekki nýtt sér einn af veikleikum Clippers-liðsins sem er skortur á sentimetrum og kjöti í teignum.
Meiðsli Bogut þýða að það verður ekkert annað í boði hjá Warriors en að spila minnibolta. Allir vita að það fer liðinu langbest að tefla fram snaggaralegum leikmönnum undir tvo metra á hæð og hlaupa svo og skjóta eins og andskotinn væri á hælunum á þeim. Bogut hefur reyndar alltaf verið með í myndinni í þessari fantasíu. David Lee hefur verið málaður út úr henni, sérstaklega eftir úrslitakeppnina í fyrra, en Bogut er alltaf inni.
En nú er hann ekkert inni.
Við gætum kannski trúað því upp á LA Clippers að drulla á sig ef Vinnie del Negro væri enn að þjálfa liðið, en hann er blessunarlega farinn og Doc Rivers er tekinn við af honum.

Undir stjórn Rivers hefur Clippers-liðið bætt sig talsvert þrátt fyrir meiðslavesen og því hefði eflaust verið lítil ástæða til að tippa á Warriors í einvígi liðanna, jafnvel þó Bogut hefði verið inni í myndinni.
Því miður fyrir Warriors, sjáum við því fyrir okkur að öfugt við í fyrra, þegar liðið var heppið með andstæðing og sló Denver út í fyrstu umferð, verði enginn Öskubuskuandi svífandi yfir vötnum í Oakland þetta árið.
Mark Jackson á eftir að predika mikið og við eigum alveg bókað eftir að fá heimsklassadrama í leikjum Golden State í úrslitakeppninni.
Það er hinsvegar spurning hvort Jackson gæti þurft að leita annað með predikanir sínar á næsta tímabili ef illa fer hjá Warriors. Það væri líklega ósanngjarnt í ljósi mótlætisins, en í NBA deildinni snýst þetta um að éta eða verða étinn, hvort sem menn eru andlegir á því eður ei.
* - Við mælum sérstaklega með viðtalinu við George Karl í samantektinni um fyrstu umferðina í úrslitakeppnina í fyrra sem er að finna þegar smellt er á tengilinn. Það er auðvitað eðlilegt.
Efnisflokkar:
99 vandamál
,
Andrew Bogut
,
Clippers
,
Mark Jackson
,
Meiðsli
,
Örlög
,
Raunir hvíta mannsins
,
Warriors
Monday, February 24, 2014
Wednesday, January 8, 2014
Lítið ástarbréf, merkt X, til Nick Collison
Það hefur sennilega ekki farið framhjá ykkur hvað við erum hrifin af svari NBA deildarinnar við Darra Hilmarssyni - honum Nick Collison hjá Oklahoma City. Hann hefur verið hjá félaginu síðan það var í Seattle forðum líkt og Kevin Durant.

Collison treður ekki út tölfræðiskýrslur og ekki er hann að safna glansmyndum eða youtube-klippum.
Hann er bara reynslubolti, rulluspilari, varnarmaður, frákastari og hindranasetningamaður.
Veit hvar hann á að vera hverju sinni og skilar undantekningarlítið góðu verki.
Við höfum ekki tölu á leikjunum sem við höfum séð þar sem sóknarfráköst eða stolnir boltar frá Collison hafa ráðið miklu í úrslitum leikja, sem venjulega falla Oklahoma í hag.
Allir þjálfarar í heiminum vilja hafa mann eins og Collison í hópnum hjá sér. Það ber oft ekki mikið á honum, en hann er óhemju mikilvægur hlekkur í liðinu.
En hann er ekki bara mikilvægur á huglægan hátt. Tölfræðimolarnir segja okkur líka hvað hann gerir góða hluti.
Oklahoma skorar 113 stig í hverjum 100 sóknum þegar hann er inni á vellinum, en aðeins 104 þegar hann er utan vallar.
Þá fær liðið aðeins á sig 96 stig per 100 sóknir þegar hann er inná en 99 stig þegar hann situr á bekknum. Nokkuð afgerandi tölfræði.
Hérna fyrir neðan eru nokkur af verkefnunum sem fallið hafa í hendur Nick Collison á undanförnum árum. Þvílíkur munaður að vera með svona fagmenn í liðinu sínu. Nick Collison kann körfubolta og á skilið að fá Thule.
Nick Collison er okkar maður.
Efnisflokkar:
Bifreiðar og landbúnaðarvélar
,
Fagmennska
,
Fánýtur fróðleikur
,
Klay Thompson
,
Nick Collison
,
Raunir hvíta mannsins
,
Sigurvegarar
,
Sönn seigla
,
Thunder
Wednesday, September 4, 2013
Friday, August 2, 2013
Ólæti hjá Ehlo
Það hefur aldrei verið auðvelt að vera Greg Ehlo. Það vita þeir sem fylgdust með körfubolta á níunda áratugnum. Það var eins og það væri uppáhaldsáhugamál Michael Jordan að niðurlægja hann. Og nú fréttist af heimiliserjum hjá Ehlo-fólkinu. Okkur datt í hug þetta lag þegar við lásum þetta.

Efnisflokkar:
Craig Ehlo
,
Dólgslæti
,
Michael Jordan
,
Raunir hvíta mannsins
Wednesday, June 26, 2013
Hvað varð um raunir hvíta mannsins?
Það voru vinir okkar á Fúsíjama TV sem vöktu athygli okkar á þessari fáránlegu troðslu í kvöld.
Þetta er bara algjört kjaftæði. Hvaðan er þessi drengur að koma? Hvað er að frétta?
Efnisflokkar:
Andlitsmeðferð
,
Hamarinn
,
Raunir hvíta mannsins
,
Tilþrif
,
Veðrið þarna uppi
Friday, May 24, 2013
Þú gætir verið Kelly Tripucka

Af hverju erum við með Kelly Tripucka á heilanum núna? Það er nákvæmlega ekkert eðlilegt við það að vera með Tripucka á heilanum. Dálítið eins og að vera með Fossa í Prúðuleikurunum á heilanum. Kannski verra. Við fundum ekkert um þetta á doktor.is.
Góð spurning. Hann datt bara allt í einu inn í hausinn á okkur eftir að einhverjir netverjar voru að birta myndir af honum þar sem hann var að frumsýna fyrstu keppnistreyjuna í sögu Charlotte Hornets árið 1988.
Tripucka hóf ferilinn hjá Detroit árið 1981 og afrekaði þar að skora næstum 27 stig að meðaltali í leik og leiða deildina í spiluðum mínútum á öðru árinu sínu.
Kappinn var í fimm ár hjá Detroit, tvö hjá Utah (þar sem hann lenti upp á kant við þjálfarann) og var að lokum sendur til nýliða Charlotte Hornets, sem venju samkvæmt mátti velja sér leikmenn úr hinum liðunum í deildinni með samþykki (Expansion draft). Liðin höfðu sem sagt eitthvað með það að gera hvaða leikmenn þau ákváðu að senda frá sér til nýliðanna og Jazzarar voru ekki lengi að hugsa sig um og sjoppuðu okkar manni út.Tripucka er á margan hátt goðsögn af því hann bauð upp á bæði mottu og möllett. Það var auðvitað enginn maður með mönnum á níunda áratugnum nema hann skartaði öðru eða báðum atriðum - í bland við hrikalega þröngar stuttbuxur auðvitað.
Stockton-þröngar - þú ert ekkert að fara að fjölga þér á næstunni-þröngar.
En það var meira í hann Tripucka spunnið. Hann var mikill skorari eins og við sögðum ykkur áðan og átti sín bestu ár þegar hann var hjá Detroit.
Þar afrekaði hann að vera tvisvar valinn í stjörnuliðið (´82 og ´84) og það voru hvorki meira né minna en þrír Pistons-menn í Stjörnuleiknum árið 1984 eins og þú sérð á myndinni hér fyrir ofan.
Tripucka er vinstra megin á myndinni, Bill Laimbeer hægra megin og fyrir aftan þá stendur leikstjórnandinn Isiah Thomas, en til gamans má geta að hann var kjörinn verðmætasti leikmaðurinn í umræddum Stjörnuleik.Thomas skilaði 21 stigi, 15 stoðsendingum og fjórum stolnum boltum í leiknum og hreppti verðlaunin af Julius Erving sem átti engu síðri leik - 34 stig (14-21= 64%), 8 fráköst, 5 stoðsendingar, tvö varin og tvo stolna.
Það var austurliðið sem hafði betur í leiknum 154-145 og rétt er að minnast á að Bill Laimbeer kom reyndar inn í Stjörnuliðið sem varamaður fyrir Moses Malone sem var meiddur. Það var Moses sem hlaut flest atkvæði allra í byrjunarliðið - tæp 928 þúsund tikk.
Gríðarlega eðlilegt að fara allt í einu að skrifa pistil um Kelly Tripucka í miðri úrslitakeppni.
Kannski erum við öll Kelly Tripucka.
Hrikalega var þetta fáránlegur pistill, en við skemmtum okkur konunglega. Þið vonandi líka.
Efnisflokkar:
Allir að halda sér
,
Fret úr fortíðinni
,
Hornets
,
Kelly Tripucka
,
NBA 101
,
Nostalgía
,
Pistons
,
Raunir hvíta mannsins
Saturday, December 8, 2012
Í alvöru, Rip?
Efnisflokkar:
Dreptu okkur ekki
,
Eðlilegt
,
Friður sé með yður
,
Justin Bieber
,
Pedo
,
Raunir hvíta mannsins
,
Rip Hamilton
,
Rólegur
,
Sælar stelpur
,
Stilltu þig gæðingur
,
Var ekki til stærri húfa?
Monday, November 5, 2012
6-6-6 fyrir Zaza
Georgíumaðurinn geðþekki Zaza Pachulia býr yfir sjaldgæfum hæfileika sem getur komið sér vel fyrir atvinnumann í körfubolta. Hann á auðvelt með að æsa fólk upp á móti sér.
Zaza er búinn að vera hjá Atlanta Hawks í nokkur ár og nær alltaf að koma á minnst einum áflogum í hverri seríu í úrslitakeppninni. Á meðal annars að baki rimmur við Kevin Garnett og Jason Richardson, sem eru reyndar ósköp saklausar og eðlilegur partur af úrslitakeppninni þó aganefndir einræðisherrans David Stern telji þær eflaust dauðasök.
Getur ekki hver sem er borið nafnið Zaza og Pachulia gerir það bara fjandi vel. Urðum bara að minnast á þetta af því hann var með 6-6-6 leik í nótt. Sex stig, sex fráköst og sex stoðsendingar.
Mjög metal hjá Georgíumanninum með tyrkneska vegabréfið.
Efnisflokkar:
Áður en Þjóðverjarnir koma
,
Dólgslæti
,
Raunir hvíta mannsins
,
Rólegur
,
Stilltu þig gæðingur
,
Zaza Pachulia
Thursday, October 11, 2012
Tuesday, June 12, 2012
Auðmýkt
Það var verið að steggja tvo kappa úr sitthvoru bæjarfélaginu á laugardaginn. Þessar myndir náðust af þessari mjög svo eðlilegu athöfn, þar sem mikið var sprellað. Leyfum myndunum bara að tala. Lykilorðið hér er auðmýkt.
Efnisflokkar:
Auðmýkt
,
Digranes
,
Dólgslæti
,
Eðlilegt
,
Efni ætlað fullorðnum
,
Holdafar
,
Netbrennur
,
Ólafur Ólafsson
,
Pavel Ermolinski
,
Raunir hvíta mannsins
,
Þorleifur Ólafsson
Wednesday, June 6, 2012
Friday, May 11, 2012
Scal í eðlilegri auglýsingu
Efnisflokkar:
Auglýsingar
,
Brian Scalabrine
,
Eðlilegt
,
Hvíta Mamban
,
Raunir hvíta mannsins
Thursday, March 29, 2012
Thursday, March 8, 2012
Thursday, January 26, 2012
Thursday, January 5, 2012
Hvíti maðurinn gerir sig gildandi
Nýliðinn Chandler Parsons hjá Houston Rockets er bjartsýnn og fjörugur strákur. Með því að hagræða sannleikanum örlítið má segja að hann geri sér lítið fyrir og troði hér yfir sjálfan Blake Griffin. Lét ekki þar við sitja, heldur lét stjörnutroðarann vita af því og hló svo að öllu saman. Það er oft gaman í lífinu.
Efnisflokkar:
Chandler Parsons
,
Raunir hvíta mannsins
,
Veðrið þarna uppi
Wednesday, January 4, 2012
Subscribe to:
Posts (Atom)




















