Showing posts with label Hólmurinn heillar. Show all posts
Showing posts with label Hólmurinn heillar. Show all posts
Wednesday, June 26, 2013
Doc Rivers er búinn að skrifa undir hjá Clippers
Efnisflokkar:
Celtics
,
Clippers
,
Digranes
,
Doc Rivers
,
Englaborg
,
Hólmurinn heillar
,
Rýtingur
,
Víða komið við
,
Þjálfaramál
Saturday, October 29, 2011
Hann heillaði, Hólmurinn
Þá er tveggja vikna útlegð okkar í Hólminum lokið. Það hefði verið betra að fá fleiri leiki meðan á dvölinni stóð, því það er ekki margt annað að gera þarna fyrir vestan.
Þetta var þó mjög uppbyggilegur túr og heimamenn tóku vel á móti okkur. Það verður ekki tekið af þeim, þetta er eitt fallegasta pláss á landinu hvort sem hægt er að fá bernaise-sósu þar eður ei. Ritstjórnin er á betri stað en hún var þegar í Hólminn var haldið og er nú kominn aftur á skrifstofuna.
Það er veisla fram undan og hún hefst á morgun þegar KR tekur á móti Þórsurum úr Þorlákshöfn. Það ætti að verða okkur auðveldara að sinna ritstörfunum nú þegar við erum komin aftur í borgina og búin að ræsa Photoshop aftur.
Þökkum Hólmurum kærlega fyrir okkur. Það var gaman að sækja þá heim. Við verðum eitthvað meira á ferðinni utan höfuðborgarsvæðisins á næstunni. Landsbyggðin alla leið.
Efnisflokkar:
Hólmurinn heillar
,
Landsbyggðin
Wednesday, October 26, 2011
NBA Ísland fór á körfuboltaæfingu
Kíktum á æfingu hjá Snæfelli áðan. Það var bara ekki annað í boði eftir allt þetta körfuboltaleysi undanfarið - að ógleymdri þeirri staðreynd að við komumst ekki á Star-KR annað kvöld.Hvað um það. Það var létt yfir Hólmurum eins og venjulega og þeir buðu fulltrúa NBA Ísland velkominn í þetta innlit. Kannski séð aumur á ræflinum þar sem hann stóð hokinn með myndavélina.
Glöggir taka eftir þvi að það var leynigestur á æfingu hjá Snæfelli. Var þarna á sinni annari æfingu. Pilturinn heitir Marquis Hall og ku vera nokkuð vel að sér í körfuboltafræðunum.
Hann leit amk mjög vel út í augum okkar viðvaninganna og ekki var annað að heyra á Hólmurum að þeir væru sammála, enda stefna þeir hátt eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan.
Efnisflokkar:
Heimabrugg
,
Hólmurinn heillar
,
Landsbyggðin
,
Snæfell
Wednesday, October 19, 2011
Digranes í Hólminum: Veitingahúsagagnrýni
Þeir segja að ekkert jafnist á við Bernaise-borgarann á Narfeyrarstofu. Það var því ekki annað að gera en að smakka kvikindið. Við vitum af þremur viðskiptavinum í gegn um árin sem fengið hafa pakka-bernaise í stað alvöru. Það var áhættunnar virði að prófa. Ekkert annað til að éta.
Spennan var því gríðarleg síðustu skrefin að þessu fallega húsi. Það var kalt í veðri og okkur var farið að hlakka til að komast inn í hlýjuna og takast á við Bernaise-bombuna - hvort sem hún kæmi úr pakka eða ekki.
Þessi skemmtilega saga verður ekki mikið lengri. Við komum að læstum dyrum. Opnunartími bæði á húsinu og á heimasíðu staðarins segir allt annað eins og þið sjáið á efri myndinni. Neðri myndin sýnir svo glöggt hvað það er helvíti mikið opið þarna.
Vel gert, Narfeyrarstofa.
Núll stjörnur af fimm.
Efnisflokkar:
Bernaise
,
Digranes
,
Hólmurinn heillar
,
Landsbyggðin
,
Veitingahúsagagnrýni
Tuesday, October 18, 2011
Sígild æskulist
Listformið sem þú sérð hérna á myndinni á líklega eftir að standa lengi í mann- og fornleifafræðingum framtíðarinnar.
Þetta táknmál endurspeglar vinsælt tjáningarform ungmenna í plássunum umhverfis Ísland frá árinu 1980.
Þetta eru klassísk rokkhljómsveitarnöfn, skorin og krössuð ofan í borð úr skólastofu úti á landi.
Það vekur upp svo mikla nostalgíu að sjá þetta.
Svona var þetta gert í okkar sveit í gamla daga, svona vitum við að þetta var gert fyrir norðan - og nú höfum við skjalfest það á þessu litla ferðalagi okkar í Stykkishólm að svona gera menn þetta líka á vesturlandinu. Listaverkið hér á myndinni var skrifað á borð sem staðsett var í óhefðbundinni blaðamannastúku Snæfellsliðsins.
Kannski er unga fólkið okkar ekki vonlaust eftir allt. Ekki nema hann Leifur, sem var einn þeirra sem settu nafnið sitt við þetta tiltekna verkefni, hafi verið ungur maður fyrir löngu síðan. Það kæmi svo sem ekki á óvart.
Efnisflokkar:
Hólmurinn heillar
,
Landsbyggðin
Skóþáttur Nonna Mæju
Það er gaman að fylgjast með Nonna Mæju spila körfubolta. Hann spilar leikinn á dálítið öðru plani en þeir sem í kring um hann eru. Átti ekki sinn besta leik þegar Snæfell burstaði KR í gær, en það kom ekki að sök.
Hann lenti í óvenjulegu atviki í miðjum leik þegar hann bókstaflega gekk af sér skóinn. Hann bara rifnaði í tvennt.
David Tairu hjá KR var með leikfésið á sér allan tímann og var auðvitað önugur yfir gangi mála eins og allir KR-ingar, en hann gat ekki annað en brosað þegar hann sá Jón Ólaf koma gangandi af velli í öðrum skónum og með hinn dinglandi í tveimur pörtum í hendinni.Þessi uppákoma vakti mikla kátínu í stúkunni og þegar Jón Ólafur kom aftur inn á völlinn, nú klæddur í hvíta skó, sungu dömurnar í stúkunni:
"Nú er Nonn´á nýju skónum, nú er´að koma jól!"
Mjög skemmtilegt móment.
Við erum ekki sérlega mannglöggir, en gott ef það er ekki sjálf Mæja sem situr þarna hjá dömunum syngjandi í stúkunni. Þið leiðréttið okkur með það ef okkur skjátlast það.Mikið var gaman að koma í hólminn þó um haustleik væri að ræða.

Efnisflokkar:
Heimabrugg
,
Hólmurinn heillar
,
KR
,
Nonni Mæju
,
Snæfell
Óþægileg endurkoma Emils í Hólminn
"Af hverju ertu í KR? Hvað ertu að gera í KR? Þú átt ekkert að vera í KR!"
Eitthvað á þessa leið sagði ungur gutti þegar Emil Þór Jóhannsson gekk inn í Íþróttamiðstöðina í Stykkishólmi með félögum sínum í vesturbæjarliðinu í gærkvöldi.
Emil gat ekki annað en brosað, eins og fullorðna fólkið sem heyrði til. "Svona gerir maður ekki," sagði einn úr miðasölunni hjá Snæfelli þegar guttinn áttaði sig á því að fólki fannst það sem hann sagði fyndið - og byrjaði að kýla Emil í magann.
Svo héldu fyrrum félagar Emils í Snæfells-liðinu áfram að lemja hann þegar inn á völlinn var komið.
Kannski hefði hann átt að hugsa sig um tvisvar áður en hann yfirgaf Snæfell og fór í KR. En kannski vildi hann bara prófa að leika með báðum liðum eins og maðurinn sem er með honum á myndinni.
Efnisflokkar:
Emil Þór Jóhannsson
,
Heimabrugg
,
Hólmurinn heillar
,
KR
,
Snæfell
Hólmurinn heillar
Ritstjórnin heldur til í Stykkishólmi þessa dagana og er það vel á dögum sem þessum, þegar KR er í heimsókn. Hitastigið hefur ekki farið upp fyrir -18 gráður ef vindkæling er tekin með. Ef við værum ekki utan af landi, værum við búin að stimpla Hólminn skítapleis bara af því veðrið hefur ekki leikið við okkur. Hlökkum samt til að upplifa almennilegt veður hérna einn daginn.
Það er skömm frá því að segja að þetta er aðeins í annað sinn sem við heimsækjum þetta fallega bæjarfélag. Það er ekkert nema fáránlegt að þetta pláss, sem er á stærð við Eskifjörð, skuli hafa landað Íslands- og bikarmeistaratitli i körfubolta. Það verður bara ekki of oft sagt.
Það var ekki mikil spenna í leik KR og Snæfells. Heimamenn sáu til þess og unnu öruggan sigur. Það hefði verið gaman að setja inn myndir úr leiknum, en nettengingin sem er í boði hérna virðist ekki ráða við að setja þær hérna inn. Blessunarlega veldur það okkur engri sérstakri gremju eða neitt svoleiðis. Reynum aftur á morgun.
Efnisflokkar:
Heimabrugg
,
Hólmurinn heillar
,
KR
,
Snæfell
Subscribe to:
Posts (Atom)












