Showing posts with label Hársbreidd frá því að meika´ða. Show all posts
Showing posts with label Hársbreidd frá því að meika´ða. Show all posts

Monday, March 6, 2017

Litli-Curry sækir á


Stephen Curry náði að hrista af sér slenið í nótt þegar hann fór fyrir Warriors-liðinu sínu í nokkuð öruggum útisigri á New York Knicks 112-105. Curry skoraði 31 stig í leiknum og þó hann hafi oft hitt betur, reif hann sig sannarlega upp úr lægðinni sem hann var í í leikjunum þremur þar á undan, þar sme hann hitti aðeins úr 4 af 31 3ja stiga skoti sínu (til gamans má geta þess að hann var 16 af 31 í þristum í leikjunum þremur þar á undan).

En á meðan Stephen Curry (28 ára) týndi skotinu sínu í nokkra daga, hefur yngri bróðir hans Seth (26 ára) farið á kostum með liði Dallas Mavericks, þar sem hann er merkilegt nokk kominn langleiðina með að sanna að hann sé sannkallaður NBA leikmaður.

Seth fær þannig að spila 29 mínútur, skorar 13 stig, hirðir 3 fráköst og gefur 3 stoðsendingar. Meira að segja kominn með 30 stört og allt. Eitthvað af þessum aukna spilatíma kemur til vegna tánks og meiðsla hjá Mafs, en það kemur málinu ekkert við - hann er að spila ljómandi vel strákurinn.

Það eru ekki lítil tíðindi, því Seth litli hefur strögglað við það að finna sér lið sem vill eitthvað með hann hafa í nokkur ár. Segja má að hann hafi fengið fyrsta þokkalega sénsinn sinn til að spila með Sacramento á síðustu leiktíð, en Kings-menn hefðu auðvitað ekki verið samkvæmir sjálfum sér nema þeir hefðu látið hann fara fyrir að sýna þennan pótensjal allt í einu.

Snillingurinn Rick Carlisle var fljótastur að bregðast við þegar ljóst varð að óæðri Curry-inn væri skyndilega á lausu.

Það hefur alltaf verið vitað að strákurinn gæti skotið þokkalega, enda hefur það komið á daginn að fólki með Curry-genamengið virðist allt að því ófært um að hitta körfuboltum illa ofan í körfur.

Já, hann Seth virðist ekki aðeins hafa náð að sanna sig hjá Dallas, heldur er hann bara að spila eins og engill þessa dagana. Svo vel hefur hann verið að spila, að það er meira að segja hægt að þræta fyrir það að hann sé á einhverjum sviðum að skáka bróður sínum! Það hefði þótt saga til næsta bæjar fyrir tveimur árum síðan. Nú, eða tveimur mánuðum. Þú ræður.

Nú vitum við öll að Stephen Curry er þetta trúaða og brosmilda ofurkrútt sem krúttar allt í drasl, bregst vel við mótlæti og forgangsraðar rétt; liðið kemur alltaf fyrst.

En ætli það sé þannig í matarboðum í Curry fjölskyldunni í dag? Ætli Seth sé þannig ekki bara minna krútt heldur en Steph, heldur kannski bara algjör fáviti? Þið vitið, svona ógeðslega stríðinn, en svona nastí stríðinn gaur. Gaur sem gengur alltaf lengra en æskilegt er og þig langar reglulega að berja í andlitið með kúbeini.

Með öðrum orðum: Ætli Seth Curry sé alltaf að senda bróður sínum snapp þessa dagana, þar sem hann öskrar í símann sinn eitthvað á þessa leið: ÞÚ ERT BARA FOKKÍNG AUMINGI OG ÉG HEF ALLTAF SAGT AÐ ÉG VÆRI BETRI EN ÞÚ OG KONAN ÞÍN ER FEIT OG RILEY ER EKKERT KRÚTTLEG - HÚN ER BARA FREK OG LEIÐINLEG OG ÞAÐ ER EKKI NOKKUR EINASTI AGI Á ÞESSU BARNI YKKAR! OG MUNDU SVO AÐ ÉG ER BETRI EN ÞÚ, DRUSLAN ÞÍN! NANA-NANA-BÚÚÚ-BÚÚÚ!

Við skulum sannarlega vona ekki.

Steph vegna.


Wednesday, April 16, 2014

Lillard móðgar


Damian Lillard er margt til lista lagt en leiklistin virðist ekki vera eitt af því sem hann gerir vel. Í þessari sniðugu auglýsingu sjáum við Lillard móðga þá Chris Webber og Karl Malone.

Sunday, September 1, 2013

Þú segir nokkuð, Patrekur


Margir velta því fyrir sér af hverju Patrick Ewing hefur enn ekki fengið tækifæri sem aðalþjálfari í NBA deildinni. Það sem stendur hérna fyrir neðan gæti hjálpað til við að útskýra það.

Before the (Tracy McGrady) trade, (Jeff) Van Gundy asked assistant coach (Patrick) Ewing for his opinion of T-Mac. Ewing assured him that McGrady had the character and leadership skills to build around, insight the future Hall of Famer gained while playing alongside McGrady in 2001-02.
- Eric Palmer, ESPN 2010

Einmitt.

Saturday, January 12, 2013

Fail City


Strákarnir í Lob City, þeir Chris Paul, DeAndre Jordan og Blake Griffin, láta þetta líta út fyrir að vera svo rosalega auðvelt. Það er samt alls ekki á allra færi að spila sirkuskörfubolta. Sjáðu bara hvernig fór hjá Jerryd Bayless hjá Grizzlies þegar hann ætlaði að vera svaka töffari gegn Spurs.




Friday, July 20, 2012

Adam er enn að reyna að fá inni í Paradís


Hversu margir ætli hafi leitt hugann að því í kvöld hvernig Adam Morrison hefur það í augnablikinu?

Líklega ekki margir.

Menn eins og hann eru ástæða þess að við fílum ekki háskólaboltann.

 Eitt má Morrison þó eiga, hann var orðinn helvíti flottur með allt þetta síða hár og hefði auðveldlega geta falið sig baksviðs á Pantera-tónleikum.

Efri myndin sýnir hann aðeins snyrtari og huggulegri eins og hann ku líta út í dag.

Morrison hefur verið að spila í Evrópu en hefur á undanförnum dögum reynt fyrir sér með sumarliðum Clippers og Nets. Ætli við verðum ekki að óska þessum vælukjóa góðs gengis. Guð má vita af hverju. Við erum bara svona góðhjörtuð og gefandi.


Saturday, March 10, 2012

Kwame Brown á afmæli í dag


Ólíkindatólið Kwame Brown á stórafmæli í dag. Hann er nefnilega þrítugur. Hammó með ammó, Kwame.

Kwame Brown var valinn númer eitt í nýliðavalinu árið 2001 og öruggt er að hans verður minnst sem eins lélegasta leikmanns sem tekinn hefur verið fyrstur í valinu.

Það var enginn annar en Michael Jordan sem tók hann þegar þeir voru hjá Washington á sínum tíma. Jordan hefur ekki riðið feitum hesti á skrifstofunni síðan hann hætti að spila en Brown er í úrvalsliði axarskafta hans, á því leikur enginn vafi.

Mörgum leikmönnum sem teknir hafa verið númer eitt í nýliðavali NBA hefur mistekist að standa undir pressunni sem fylgir í kjölfarið og sumir þeirra eru hreinlega ekki góðir í körfubolta. Hann Kwame ræfillinn er einn þeirra.

Hann hefur einu sinni skoraði meira en 10 stig að meðaltali í leik á þessum áratug sínum í deildinni. Einu sinni hirt meira en sjö fráköst og einu sinni spilað meira en 30 mínútur. Hann er rulluspilari með takmarkaða getu.

Við myndum gefa Kwame aksjón-fígúru af honum sjálfum ef við gæfum honum afmælisgjöf. Hún lítur út fyrir að vera með betri hendur en fyrirmyndin og ætti ekki að kosta mjög mikið.

Monday, March 5, 2012

Darrell brotnar niður, kallaður Lakers-maður


Þú hefur heyrt um dramað hans Clipper-Darrell, sem er ofur-aðdáandi sem hefur staðið með Clippers í gegn um mestmegnis súrt og nú síðast sætt.

Hann hefur verið duglegur við að nota nafn liðsins til að ná sér í einhverja spons-díla og nú þegar liðið er farið að verða meira áberandi en nokkru sinni fyrr, tjáðu forráðamenn Clippers honum Darell að hann ætti að hætta að nota nafn liðsins og klæðast merkjum þess - eitthvað á þá leið.

Þetta er saga sem er dálítið dæmigerð fyrir kommörsjalismann sem tröllríður öllu í dag.

Án þess að ætla út í smáatriði á þessu asnalega máli, megum við til með að sýna ykkur grátbroslegan hluta úr tilfinningaþrungnu sjónvarpsviðtali við Darrell, þar sem hann ekki aðeins missir það, heldur er kallaður Lakers-ársmiðahafi af sjónvarpsmanninum. Stórkostlegt.

Friday, January 20, 2012

Guten ´Tag


Greg Ostertag hefur ákveðið að hætta að leika körfuknattleik í annað sinn á ferlinum eftir stutta endurkomutilraun..

Að þessu sinni eru skórnir væntanlega komnir varanlega upp á hillu hjá þessum 38 ára gamla trúð.

Hann treysti sér ekki til að halda áfram að spila af því hann var farið að verkja svo mikið í hnén.

Ostertag hafði gælt við það að reyna að finna sér vinnu í NBA en kunnugir segja að hann hafi staðið sig þokkalega í þeim leikjum sem hann spilaði í D-deildinni.

Það er nefnilega þannig að stórir rulluspilarar geta oft alveg eins spilað í NBA eins og í neðri deildum. Sérstaklega ef þeir hafa reynslu og eru þokkalega að sér í undirstöðuatriðum leiksins.

Þannig var það með Ostertag. Hann tók pláss í teignum, setti hindranir, hirti fráköst og varði eitt og eitt skot.

Nú er hinsvegar ljóst að hann mun ekki gera það í NBA aftur, enda var hann búinn að valda nægum skaða þar á sínum tíma.

Nú er ekkert víst að ´Tag hefði fengið vinnu í NBA ef hann hefði getað haldið áfram í D-deildinni, en það er ekkert útilokað. Það segir okkur ýmislegt um stöðuna á miðherjastöðunni á þessum síðustu og verstu. Ostertag nálægt kommbakki og í nótt stefnir í að Eddy Curry fái smá bruna hjá Miami í fyrsta skipti í guð má vita hvað langan tíma. Ah, að vera hávaxinn.

Wednesday, April 13, 2011