Við höfum örugglega sagt ykkur þessa sögu tíu sinnum, en það er af því að hún er sönnust allra sagna í NBA deildinni: Memphis vantar skyttur og/eða vængmann sem getur skorað stig hjálparlaust (neyðarkarl). Þetta er búið að vera vandamál Memphis í mörg ár en félagið neitar að leysa það.
Nýjasta ráðstöfun Memphis í þessum efnum var að semja við sextugan Vince Carter og einum óstöðugasta körfuboltamann í heimi, Jeff Green. Og í nótt sáum við niðurstöðurnar: Memphis er komið í sumarfrí eftir 108-95 tap fyrir meistaraefnunum í Golden State.
Við ætlum að reyna að hafa þessa hugleiðingu ekki mjög langa af því við erum orðin dauðþreytt á að berja þennan sama dauða hund með þessum sama ryðgaða felgulykli. Eini munurinn á þessari færslu og þeirri sem við skrifum árlega við þetta sama tilefni, er að núna ætlum við að setja einhverjar kúl töflur eða gröf inn í hana svo hún lúkki betur og líti út fyrir að vera vísindalegur sannleikur.
Fyrstu viðbrögð okkar eftir tap Memphis í nótt voru pirringur.Af hverju gat Memphis ekki útvegað sér betri skyttur? Af hverju Jeff Green? Af hverju geta Marc Gasol og Zach Randolph ekki druslast til að dómínera undir körfunni? Af hverju fær framsóknar-flokkurinn fleiri en ekkert atkvæði í kosningum? Eru Íslendingar heimskasta þjóð í heimi?
Þið sjáið að þetta eru sömu spurningarnar og venjulega, það er bara önnur dagsetning á þeim. Við vitum alveg svarið við flestum þessum spurningum, en þeim er vitanlega beint inn á skrifstofuna hjá Grizzlies. Það er nefnilega fólkið á kontórnum sem þarf að svara fyrir þetta. Leikmennirnir gera sitt besta, en vita innst inni að þeir hafa ekki það sem til þarf, því miður.
Margir halda upp á Memphis af því það spilar körfubolta af gamla skólanum, grit and grind (ísl. hamagangur og hakk) og er í alla staði lið hins vinnandi verkamanns.
Þetta er allt gott og vel, en það er alveg sama hvað þetta lið reynir oft, það fer ekki alla leið á meðan eru svona stórar eyður í planinu hjá því.
Einn uppáhalds frasinn hans Charles Barkley er að segja að hin og þessi lið í NBA deildinni séu bara "stökkskotalið" sem geti ekki náð alvöru árangri.
Þar á hann við lið sem byggja mikið á lengri skotum en síður á t.d. hnoði í teignum. Þessi skoðun hans hefur vitanlega farið öfugt ofan í hvern einasta mann og konu sem aðhyllist tölfræði fyrir lengra komna.
En það er önnur hlið á málinu, því þó þú verðir ekki meistari með eintómum stökkskotum, verður þú það ekki heldur ef þú getur ekki tekið stökkskot. Fyrir svo utan það að Dallas 2011 og San Antonio 2014 voru skólabókadæmi um stökkskotalið og þeim vegnaði ágætlega eins og þið munið.








