Við vissum að þetta væri að koma, en okkur grunaði ekki að skellurinn yrði svona þungur. Við vissum að það kæmi kafli í úrslitakeppninni þar sem við fengjum öll að sjá sannleikann um Austureildina. Það var Atlanta sem tók það á sig að sýna okkur þennan sannleika svart á hvítu og niðurstaðan var hreint út sagt ógeðsleg.
Leikmenn Atlanta Hawks gerðu sig að algjörum fíflum í 94-82 tapi fyrir Cleveland í nótt. Þetta lið sem átti fjóra leikmenn í Stjörnuliðinu í febrúar, lagðist á völlinn á heimavelli sínum í kvöld og drullaði á sig.Atlanta vann 60 leiki í vetur en er núna að láta lið sem skipað er LeBron James og nokkrum rulluspilurum gjörsamlega hrauna yfir sig.
Það er enginn Kevin Love í liði Cleveland. Enginn Kyrie Irving heldur. Bara LeBron og einhverjir gaurar sem New York gat ekki notað, gegn Stjörnuliðsmönnunum fjórum í Atlanta.
Þið sjáið augljóslega að þetta dæmi gengur ekki upp og það er af því við erum að tala um Austurdeildina. Gæðin eru ekki meiri en það þarna austan megin að það var bara tímaspursmál hvenær við fengjum að sjá neyðarlega hluti þaðan.
En það er ekki Austurdeildinni að kenna að Atlanta sé drasl. Já, við sögðum það. Þetta Atlanta lið er drasl - amk þegar komið er fram í úrslitakeppni. Svo mikið drasl að það hefur orðið Photoshop-listamönnum internetsins innblástur.
Atlanta-menn eru voða krúttlegir í deildarkeppninni þegar enginn nennir að spila vörn en það verður bara að segjast eins og er að þeir eru búnir að spila eins og aumingjar lengst af í úrslitakeppninni. Þeir lentu í vandræðum á móti Brooklyn, sem er últramegacrap og hefðu með smá heppni látið vængbrotið Washington-lið henda sér úr keppni.
Þeir toppuðu sig hinsvegar endanlega í kvöld þegar þeir létu vængbrotið Cleveland-lið sópa sér upp og henda sér í klósettið - og það á heimavelli.
Við gerum okkur grein fyrir því hvað við erum föst á þermistigi Freuds þegar kemur að því að lýsa óförum Atlanta Hawks, en það er blanda af vanþroska okkar og raunverulegri vanhæfni körfuboltaliðsins.
Hvað eru menn að meina þegar enginn byrjunarliðsmaður skorar meira en 12 stig í leiknum og stigahæsti maðurinn þeirra á myndinni hér fyrir ofan skorar heil 13 stig.

















