Showing posts with label Jinx. Show all posts
Showing posts with label Jinx. Show all posts
Saturday, March 14, 2015
Wiggins er á leið í meiðsli
Sjónvarpsmenn Fox sem sjá um að sýna frá leikjum Minnesota Timberwolves eru ekki hjátrúarfullir. Það sýndi sig í nótt þegar þeir vörpuðu þessu skilti á skjáinn.
Þeir eru sem sagt búnir að gefa sér það að nýliðinn magnaði Andrew Wiggins muni spila alla leikina með liðinu í vetur þennan mánuð sem eftir er af tímabilinu. Þeir hafa sumsé engar áhyggjur af því að jinxa stjörnunýliða klúbbs sem hefur varla náð að koma saman liði kvöld eftir kvöld vegna meiðsla í mörg ár.
Þið lásuð það hér að Andrew Wiggins er á leið í meiðsli. Vonandi ekki alvarleg. Þetta er efnilegur strákur. En það er ekki fræðilegur möguleiki að hann spili alla 82 leikina fyrir liðið eftir þetta hrokafulla og heimskulega útspil sjónvarpsmanna Fox í nótt. Þvílík sauðnaut.
Efnisflokkar:
Andrew Wiggins
,
Jinx
,
Meiðsli
,
Nýliðar
,
Óskalög sjúklinga
,
Úlfavaktin
Monday, June 17, 2013
Þetta gat aðeins farið á einn veg
Auðvitað var pistillinn sem við skrifuðum í gær ekkert annað en vandlega staðsettur þráður í vef örlaganna. San Antonio átti ekki möguleika í fimmta leiknum nema við tækjum okkur til og reverse-jinxuðum x-faktórinn í einvíginu til andskotans.

Við urðum að gæta þess að tilætlanir okkar væru ekki of augljósar og því varð pistillinn að vera sannfærandi. Við urðum að keyra Manu Ginobili í kaf til að gefa örlögunum start og það tókst - með látum.
Við meintum hvert orð sem við sögðum í pistlinum í gær og stöndum við það. Ginobili er ekki sami maður og hann var.
Góður lesandi orðaði það best þegar hann sagði að Manu gæti í besta falli haft áhrif á einstaka leik, en ekki heilu einvígin eins og hann gat áður.
Einhver varð að kasta grjóti í örlögin og við tókum þetta á okkur til að fá sem flesta leiki í einvígið. San Antonio þurfti á hjálp að halda - og þá sérstaklega argentínski vinur okkar.
Það var ekkert, Manu. Nú verður þú hinsvegar að sjá um restina af þessu, við höfum séð um okkar part.Rödd Charles Barkley ómar í höfðinu á okkur:
"GINOBILIIIIIIIIIII!!!"
Þið megið hlæja að okkur alveg fram á næsta tímabil. Okkur er sama. Þetta dásamlega úrslitaeinvígi verður langt og skemmtilegt og Manu lifir - í versta falli í nokkra daga í viðbót.
Við höfum aldrei gefið okkur úr fyrir að hafa vit á körfubolta, en við getum jinxað hitabylgju yfir Norðurpólinn ef við vöndum okkur.
Og vakið körfuboltamenn upp frá dauðum, greinilega.
En Manu okkar á ekki allan heiðurinn.

Þrátt fyrir að San Antonio hafi á köflum leikið frábæran bolta í fimmta leiknum í nótt, var með ólíkindum hvað Miami var fljótt að keyra inn í leikinn aftur með snörpum áhlaupum sem komu oftast algjörlega upp úr þurru.
Leikmenn Spurs gerðu sig hvað eftir annað seka um einbeitingarleysi og klaufamistök og það er bara dauðasök á móti sterku liði eins og Miami.
Þú tekur tvö illa ígrunduð skot og missir tvo bolta - og allt í einu er Miami búið að taka 11-0 sprett á þig á rúmri mínútu. Það er með ólíkindum.
Þegar þetta er ritað er eflaust verið að lyfjaprófa Danny Green hjá San Antonio. Það nær ekki nokkurri átt hvað drengurinn er að hitta vel.
Green er búinn að skora 90 stig í lokaúrslitunum og skora 25 þrista, en það er meira en hann gerði
í deildakeppninni samanlagt bæði 2010 og 2011.
Hann nýtir 66% þrista sinna í lokaúrslitunum og er búinn að slá met Ray Allen yfir flesta skoraða þrista á stóra sviðinu.
Tony Parker gerði líka sitt þó hann væri augljóslega ekki á fullu gasi. Segir sína sögu um það hvað hann er góður og hvað við leggjum mikið á herðar hans að hann skuli skila 24 stigum (10-14 í skotum) á felgunni vegna meiðsla í læri.
Það getur vel verið að Miami hafi tapað þessum leik og hvað eftir annað lent um 20 stigum undir í þessum leik, en við höfðum það á tilfinningunni að liðið væri aldrei mjög langt undan.Við fengum samt ekki þessa ofurframmistöðu frá Sólstrandargæjunum og við fengum í leik fjögur.
Okkur grunaði það svo sem, en það var ekki mikið út á frammistöðu þeirra að setja. Stjörnurnar voru að hver um sig að skila ágætisleikjum heilt yfir.
Enn eina ferðina hefur orðið viðsnúningur í þessu einvígi. Enn og aftur er San Antonio komið yfir eftir að hafa verið komið langt undir á stigum og útlitið verið farið að dökkna.
Það lítur ekkert illa út fyrir svona rútínerað lið eins og San Antonio að þurfa bara að vinna einn af næstu tveimur leikjum sínum til að landa titlinum enn eina ferðina - jafnvel þó það þurfi að gerast á útivelli.

En Miami á að sjálfsögðu eftir að líða betur á heimavelli sínum og þið vitið hvað gerist alltaf þegar Miami tapar - það kemur öskrandi í næsta leik.
Ef næsti leikur verður þannig eitthvað í takt við annað í þessu einvígi, vinnur Miami auðveldan stórsigur í næsta leik og við fáum hreinan úrslitaleik á fimmtudaginn.
Það yrði nú ekki leiðinlegt.
Við skulum samt ekki fara fram úr okkur. Draumar okkar allra sem erum hlutlaus í þessu rættust með sigri Manu og félaga í nótt. Fjörið heldur áfram og við eigum dásamlega leiki í vændum, jafnvel þó hlegið verði að sumum okkar - gangandi um með ullarsokka í kjaftinum.
Það er ekki nema ánægjulegur fórnkostnaður fyrir svona veislu. Amen.
Efnisflokkar:
Andlitsmeðferð
,
Digranes
,
Dramatík
,
Heat
,
Jinx
,
Lokaúrslit
,
Manu Ginobili
,
Nostradamus
,
Örlög
,
Spurs
,
Úrslitakeppni 2013
Sunday, June 16, 2013
Einn dáðasti drengur NBA Ísland á í erfiðleikum
Við höfum andúð á sjálfum okkur fyrir að skrifa svona lagað, en getum ekki að því gert. Þið vitið að það er ekkert við því að gera þegar opnast fyrir flóðgáttirnar á NBA Ísland. Þeir sem fylgst hafa með gangi mála hér á síðunni vita að Manu Ginobili er einn af okkar uppáhaldsleikmönnum og hefur alltaf verið.
Þess vegna fengum við ælubragð í munninn og umsvifalausa andúð á sjálfum okkur þegar okkur datt í hug að skrifa pistil um það hvort Manu Ginobili ætti ef til vill að hætta að leika körfuknattleik.
Hvað eftir annað skrifuðum við fyrstu línurnar, en hentum þeim í ruslið jafnóðum. Fengum okkur ekki til að skrifa svona drullu.En alltaf leituðum við beint á lyklaborðið aftur. Svona geta hugmyndir farið illa með skapara sína.
Það er helvítis hroki og ekkert annað að fara fram á að fólk úti í bæ hætti í vinnunni sinni og finni sér eitthvað annað að gera. Ekki síst ef viðkomandi er kannski snillingur í sínu fagi eins og Manu Ginobili.
Það er ekki eins og við höfum efni á að tala. Við værum eflaust búin að vinna til margra eftirsóttra verðlauna ef við hefðum staðið okkur eins vel í okkar starfi og argentínska undrið í sínu.
Það er bara svo erfitt að horfa á Manu spila orðið. Hann er engan veginn sami maður og hann var. Jú, jú, hann fær okkur vissulega til að súpa hveljur með færni sinni reglulega, en þessum atvikum er farið að fækka verulega.
Ef við horfum bara blákalt á það, er Manu Ginobili búinn að vera skítlélegur undanfarið.Lélegur, ef við miðum við það sem hann hefur sýnt okkur síðasta áratuginn. Lélegur, þannig að fólk sé farið að hrópa á það að "Popovich geti bara ekki réttlætt það að hafa hann inni á vellinum lengur."
Við grettum okkur við það eitt að hugsa svona, en þetta er því miður satt.
Og við elskum Manu svo hrikalega að við getum ekki horft upp á hann spila í lokaúrslitum NBA deildarinnar og eiga erfitt uppdráttar nánast hverja einustu mínútu.
Það er ekkert að honum. Aldrei þessu vant, er Manu Ginobili bara nokkuð heill heilsu, en sama hvað hann reynir - nær hann bara ekki að vera Manu. Og það er ömurlegt að horfa upp á það.
Að sama skapi hefur verið erfitt að horfa á Dwyane Wade undanfarið, en Wade er meiddur. Þessi meiðsli hans eru stundum æði dularfull, en hann er meiddur. Ginobili er ekki meiddur. Hann er bara ekki með þetta lengur.Manu hefur í versta falli alltaf verið x-faktór San Antonio Spurs og í besta falli hefur hann verið besti leikmaður liðsins leik eftir leik. Sú tíð er liðin, löngu liðin - og það er að kosta San Antonio í einvíginu við Miami - enginn getur mótmælt því.
Ginobili gegnir ákveðnu hlutverki í sóknarleik San Antonio. Hann er jóker sem sprengir upp varnir andstæðinganna og leysir Tony Parker af sem aðalleikstjórnandi þegar sá franski hvílir sig á bekknum - jafnvel þó San Antonio sé með helling af eiginlegum leikstjórnendum á bekknum.
Það myndi setja gríðarlega mikla pressu á sterkan varnarleik Miami ef Ginobili væri ferskari. Ef hann væri að skila því sem við áttum von á að sjá frá honum, fengi vörn Miami ekki frið í 48 mínútur stanslaust.
Við þurfum ekki að velta okkur upp úr tölum til að rökstyðja mál okkar en ætlum nú samt að gera það.Snillingar eins og Manu Ginobili eiga ekki að vera að skila 10 stigum, 35% skotnýtingu og innan við 20% nýtingu í þristum í lokaúrslitum. Það er... ekki gott.
Þegar San Antonio varð meistari árið 2005, var Manu með 21 stig, 6 fráköst og 4 stoðsendingar að meðaltali í leik í úrslitakeppninni og margir vildu meina að hann hefði verið besti maður liðsins á leið þess að titlinum.
Við þurfum ekki að fara svo langt aftur. 2010 skilaði hann 19/4/6 í úrslitakeppninni og árið eftir 21/4/4. Það var fyrir aðeins tveimur árum síðan, nota bene.
Manu hefur alveg átt leik og leik í úrslitakeppninni í vor eins og við sögðum ykkur. Hann skilaði t.a.m. tveimur ellefu stoðsendinga leikjum í seríunni gegn Golden State og var nálægt þrennunni í einum þeirra (16/7/11) en það eru aðeins plastperlur í fjóshaugnum sem þessi úrslitakeppni hefur verið hjá honum.
Fyrirgefðu, Manu, en svona er þetta bara.
Kannski erum við bara að skrifa þetta til að jinxa hann inn á epíska frammistöðu í restinni af einvíginu við Miami - ekkert myndi gleðja okkur meira - en því miður er útlit fyrir að þessi stórkostlegi leikmaður sé búinn að sjá sína bestu daga.Þetta er síðasti séns hjá San Antonio. Við höfum sagt þetta í sex ár, en núna er þetta allra, allra, allra síðasti séns hjá þeim svartklæddu.
Líka hjá Manu.
Þetta er búinn að vera sögulegur sprettur hjá honum. Fáir körfuboltamenn hafa náð eins stórkostlegum árangri og nær óslitinni sigurgöngu í íþróttinni og hann. Gildir þá einu hvort við tölum um með landsliðinu, í Evrópuboltanum eða með San Antonio Spurs.
Við erum ekkert að segja að langbesti körfuboltamaður í sögu Suður-Ameríku sé bara búinn, dauður og ónýtur. Hann er það bara ef við berum hann saman við eftirminnilegustu goðsagnir leiksins.
Menn eins og hann sjálfan.
Efnisflokkar:
Goðsagnir
,
Jinx
,
Lokaúrslit
,
Manu Ginobili
,
Sigurvegarar
,
Skórnir á hilluna
,
Spurs
,
Úrslitakeppni 2013
Monday, January 28, 2013
Fara stórveldin snemma í sumarfrí?
Sum okkar hafa svo gaman af því að láta söguna tala fyrir sig.
Ef spár svartsýnustu manna í vetur verða að veruleika, sitja bæði gömlu stórveldin Lakers og Celtics eftir með sárt ennið og komast ekki í úrslitakeppnina.
Í ljósi þess hvernig spilamennsku þau hafa boðið upp á að undanförnu er þessi möguleiki sannarlega til staðar.
Hugsið ykkur, ef svo færi, yrði það aðeins í annað sinn frá því NBA deildin var sett á laggirnar árið 1946 sem bæði þessi lið færu snemma í sumarfrí.
Það segir sína sögu um óhemju velgengni Lakers og Celtics að þetta hafi aðeins gerst einu sinni, en liðin tvö hafa auðvitað unnið um helming allra meistaratitla frá stofnun deildarinnar. Það var leiktíðina 1993-94 sem þessi sérstaki atburður átti sér stað, en þá voru bæði félögin að ganga í gegn um miklar breytingar.
Það tók Lakers ekki langan tíma að koma sér á toppinn aftur og aðeins sex árum síðar var liðið orðið NBA meistari. Það tók Celtics að vísu lengri tíma, en liðinu tókst á endanum að ná sér í titil árið 2008 eins og þið munið. Lakers hefur svo bara bætt í og unnið fimm titla síðan um aldamótin.
Með þessari pælingu erum við alls ekki að segja að Celtics og Lakers missi af úrslitakeppninni, enda yrði hún klárlega fátæklegri án stórveldanna. Við skulum bara segja að við séum að reyna að bakk-jinxa liðin inn í úrslitakeppnina.
Við létum fylgja með tvær skemmtilegar myndir. Önnur er liðsmyndin af Lakers frá umræddu ´93-´94 tímabilinu og hin sýnir nokkur andlit úr liði Celtics, reyndar frá leiktíðinni á eftir, 1994-´95.Eins og þið sjáið eru þetta nú ekki beint gullaldarárin hjá risunum tveimur, þó vissulega megi skemmtilega leikmenn inn á milli í hóp beggja liða (eins og til dæmis leikmann í treyju númer níu hjá Lakers - lengst til vinstri í fremri röð).
Efnisflokkar:
Celtics
,
Farin að fiska
,
Jinx
,
Lakers
,
Nostradamus
,
Úrslitakeppni 2013
Friday, November 16, 2012
Skál fyrir ykkur, Knicks-menn
New York Knicks byrjar leiktíðina 6-0 og hefur ekki byrjað betur síðan það byrjaði 7-0 keppnistímabilið 1993-94. Ef þú ert með sagnfræðina á hreinu manstu að þá fór liðið alla leið í lokaúrslitin þar sem það tapaði fyrir Houston Rockets í oddaleik.
Eins og lesendur NBA Ísland vita, höfum við verið að þamba Hatorade á Knicks og verið með leiðindi út í liðið mjög lengi. Megnið af þessum barnaskap er í nefinu á okkur en við ætlum ekki að taka hann alla leið og halda því fram að það sé ekki vel af sér vikið að vinna lið eins og Miami og San Antonio líkt og Knicks hefur verið að gera.
Það er með ólíkindum að sjá hvað kúltúrinn í liði Knicks hefur breyst mikið.
Það er freistandi að skrifa eitthvað á þessu á sigurvegarann Jason Kidd og það hlýtur að spila sinn þátt í velgengni Knicks að liðið skuli nú vera komið með tvo ágæta menn til að handleika knöttinn, þá Kidd og svo svar Bandaríkjanna við Ágústu Johnson, hann Raymond Felton.
New York er að passa mjög vel upp á boltann það sem af er, og það er einn af þáttunum í velgengni liðsins.
Borið hefur á því að menn eins og Carmelo Anthony og JR Smith séu að gefa boltann og spila leikinn eins og á að spila hann. Þetta eru stórtíðindi í okkar eyru. Svo kemur Rasheed Wallace bara inn af bekknum og byrjar allt í einu að setja niður þriggja stiga skot ofan á allt saman.
Við nennum ekki að spá sérstaklega í það hvað gerist þegar Amare Stoudemire kemur loksins aftur, en þessi velgengni liðsins án hans er því miður að segja óþægilega margt um virði hans sem leikmanns í dag.
Það er ekki vegur í helvíti að New York haldi áfram að spila svona fram á vorið. Við vitum öll hvað langar leiktíðir taka sinn toll á alla leikmenn, hvað þá að svona öldungadeild eins og Knicks er með núna.
Það er hinsvegar mjög jákvætt að sjá hvað liðinu vegnar vel í byrjun og auðvitað er gaman að skuli vera komið ósvikið "buzz" í þessa miklu körfuboltaborg.
Við skulum ekkert fara í grafgötur með það. Það fer pínulítið í taugarnar á okkur að New York skuli allt í einu vera farið að vinna körfuboltaleiki, en aumingja stuðningsmennirnir eiga það alveg skilið.
Gremja okkar í garð félagsins hefur frekar beinst að stjórn liðsins undanfarin ár og einum og einum leikmanni, en stuðningsmönnunum. Þeir eiga allt gott skilið eins og við höfum margoft sagt.
Megi gleðin endast ykkur sem lengst, Knicks-menn og gangi ykkur vel gegn Húnunum í Elvisbæ í kvöld.
Tuesday, October 23, 2012
Jazzað aðeins til
Utah Jazz átti mjög dæmigert sumar. Bætti við sig nokkrum leikmönnum og losaði sig við nokkra. Engin af þessum leikmannaskiptum vöktu athygli frekar en venjulega þegar þetta félag er annars vegar, en þau gætu átt eftir að skila sér. Það eru góðar líkur á því að þú nennir ekki að lesa lengra og það er allt í lagi.
Mo Williams er tekinn aftur við leikstjórnandastöðunni hjá félaginu sem tók hann í nýliðavalinu árið 2003. Williams var tekinn í annari umferð og kom lítið við sögu á nýliðaárinu þó John Stockton hafi lagt skó sína á hilluna vorið áður.Framkvæmdastjóri Utah hefur æ síðan séð eftir því að leyfa honum að fara til Milwaukee þar sem hann sprakk út og var orðinn 17 stiga maður á sínu þriðja ári með Bucks. Flestir muna síðar eftir honum sem meðreiðarsveini LeBron James hjá Cleveland.
Marvin Williams er líka kominn til Utah frá Atlanta. Hann er blautur draumur þjálfarateymisins, gerir allt sem honum er sagt og gerir það vel. Hann á vafalítið eftir að skila bestu tölum á ferlinum í vetur og þvi er skothelt að ná í hann í fantasy. Án gríns.
Randy Foye kom líka frá Clippers. Sæmileg skytta og harður af sér. Varð líka að vera harður til að komast til manns eftir að hafa misst föður sinn og móður með skömmu millibili í barnæsku.
Þetta eru ekki mannabreytingar sem kalla á aukavakt á ESPN og ÍNN en við tippum á að þær muni skila liðinu talsverðum framförum. Jazz náði nokkuð óvænt inn í úrslitakeppnina í vor, en ætti að fara örugglega inn í hana næsta vor.
Af hverju, spyrðu? Af því Randy Foye, Marvin og Mo Williams, skoruðu fleiri þriggja stiga körfur en allt Utah-liðið á síðustu leiktíð. Langstærsti veikleiki Utah í sóknarleiknum var langskotin og það mál hefur nú verið lagað. Nú verður ekki lengur hægt að pakka teiginn á móti Jazz.
Framtíð þeirra Derrick Favors og Enes Kanter er nokkuð björt. Fá lið sem eiga annan eins efnivið í stórum mönnum.Og við vorum næstum því búin að gleyma Gordon Hayward - Gísla Marteini - sem er að verða flottur körfuboltamaður. Manu diet-light, má nota það.
Við ætlum því að tippa á að Utah eigi fínan vetur og jinxa þar með liðið okkar í tætlur. Það er svo bara spurning hvort það verður Mo Williams eða Al Jefferson sem meiðist út leiktíðina eftir þennan pistil #jinx
Bónus:
Troðkóngurinn Jeremy Evans gæti mögulega lækkað í mínútum annað árið í röð. Hann hefur ekki bætt sig mikið og var aðeins með 63% skotnýtingu á síðustu leiktíð. Af hverju er 63% nýting léleg, spyrðu?
Af því 25 af 27 körfum sem drengurinn skoraði á síðustu leiktíð voru troðslur.
Hann setti því niður tveimur fleiri stökkskot en Halldór Ásgrímsson í NBA deildinni.
Efnisflokkar:
Derrick Favors
,
Enes Kanter
,
Jazz
,
Jinx
,
Mo Williams
,
Nostradamus
,
Randy Foye
Saturday, May 7, 2011
Sögulegir hlutir að gerast í úrslitakeppninni:
Ef eitthvað lið getur klúðrað 3-0 forystu, er það líklega Dallas Mavericks. Ef eitthvað lið getur komist í sögubækur með því að vinna seríu eftir að hafa lent undir 3-0, er það klárlega þetta Lakers-lið.
Dallas er nýbúið að sýna okkur (leikur 4 í Portland) að það hefur alla burði til að láta hlutina snúast í höndunum á sér. Lakers-liðið er með Kobe Bryant og Phil Jackson í sínum röðum, svo einhverjir séu nefndir. Menn sem hafa gert þetta allt saman áður.
Hvað ef Lakers-menn næðu nú að vinna leik fjögur í Dallas og færu svo á heimavöllinn burstuðu Mavs hressilega í leik fimm? Væri það ekki nóg til að rifja upp gamlar og slæmar minningar hjá Mavericks? Nóg til að láta þá kúka undir og missa seríuna frá sér?
Ofangreindar hugleiðingar eiga allar rétt á sér. Ekki tækjum við áhættu á því að veðja á móti Lakers. Þessi sería getur enn orðið spennandi - af hverju ekki?
En það er ekki málið.
Málið er, að Lakers-liðið er ekki með sjálfu sér. Það er eitthvað að. Aldur leikmanna hjálpar ekki, en það er eitthvað meira að. Þeir töpuðu tveimur leikjum gegn Hornets í fyrstu umferð en það hefur gerst áður. Það kom á daginn að það var ekkert til að hafa áhyggjur af. En að lenda undir 3-0 á móti Dallas eftir að hafa nánast gefið frá sér tvo vinnanlega leiki? Óhugsandi.
Memphis hefur verið spútniklið úrslitakeppninnar 2011, ekki spurning. Fáir reiknuðu með því að þeir tækju Spurs létt og næðu splitti í fyrstu tveimur leikjunum í Oklahoma í annari umferð. Algjört Öskubuskuævintýri. En það er samt miklu ótrúlegra að Dallas skuli vera í 3-0 á móti Lakers. Óhugsandi.
Þetta er síðasta árið hans Phil Jackson. Hann á í versta falli aðeins einn leik eftir á lygilegum þjálfaraferlinum. Kobe Bryant er hættur að geta gert hvað sem honum sýnist á vellinum. Andrew Bynum er ekki hægt að treysta vegna meiðsla og Pau Gasol virkar einfaldlega uppgefinn.
Fyrir stuttu síðan virtist enginn í Vesturdeildinni eiga eftir að koma nálægt Lakers á næstu misserum. Ekki lengur. Framvegis verður Lakers-liðið ekki með frípassa í finals. Ekki með þennan mannskap. Þú sérð það á þeim. Það er bara ekki innistæða fyrir þessu. Verða ekki sterkari næsta vetur nema stokka upp og fá til sín fleiri stórspilara.
Það er furðulegt að þetta hafi gerst svona eins og hendi hafi verið veifað, en það fer ekkert á milli mála. Lakara lið er að slá Lakers út úr úrslitakeppninni. Nákvæmlega ekkert eðlilegt við það.
Þetta Lakers-stórveldi eins og við þekkjum það hefur lokið keppni.
Og erkifjendurnir á austurströndinni gætu verið á sömu leið.
Efnisflokkar:
Jinx
,
Kobe Bryant
,
Lakers
,
Mavericks
,
Nostradamus
,
Phil Jackson
,
Úrslitakeppni 2011
Subscribe to:
Posts (Atom)










