Showing posts with label Ævintýri. Show all posts
Showing posts with label Ævintýri. Show all posts

Saturday, February 9, 2013

Það gæti komið fyrir þig


Skemmtilegt atvik átti sér stað í leik Miami og LA Clippers í nótt þegar LeBron James ákvað allt í einu að fara að kasta á milli með einum áhorfandanum.



Þessi heiðursmaður reyndist vera frá Hondúras og var staddur í Bandaríkjunum í sannkallaðri íþróttareisu, þar sem hann fór meðal annars á Ofurskálarleikinn á dögunum. Lisa vinkona okkar Salters hjá ESPN var ekki lengi að finna okkar mann og fá hann í viðtal, þar sem fleiri skemmtilegar tilviljanir poppuðu upp.



Skemmtileg uppákoma, sem þessi glaðlegi náungi á aldrei eftir að gleyma.

Friday, July 20, 2012

Rodman eldri greiðir 700.000 í meðlag



Allir þekkja Dennis Rodman, sem á gamalsaldri hefur loksins náð að hitta föður sinn, Philander Rodman. Sá gamli er kominn yfir sjötugt, heldur til á Filippseyjum og er sagður eiga hvorki meira né minna en 29 börn með 16 konum!

Auðvitað eru öll þessi börn einhver komin yfir 18 ára aldurinn, en ef við gefum okkur til gamans að þau væru öll yngri, væri sá gamli ekki að greiða nema 700 þúsund krónur í meðlag á mánuði og tæpar átta og hálfa milljón á ári ef hann væri svo óheppinn að búa á Íslandi.

Þetta er allt saman alveg þræleðlilegt eins og flest í kring um Dennis blessaðan. Ef við setjum þetta í samhengi við körfuboltaferil Dennis Rodman má leiða líkum að því að móðir hans Dennis hafi verið rebound-gella fyrir þann gamla inn á milli barneigna.

Það gat ekki annað verið en að maður sem skilur eftir sig annað eins genahryðjuverk og Dennis Rodman væri nokkuð... tjah, léttur á því.



Wednesday, February 29, 2012

Úlfagleði


Þú tapar ekki mörgum leikjum þegar varaframherjarnir þínir spila eins og Derrick Williams og Michael Beasley gerðu í nótt. Úlfarnir þeirra gerðu sér þá lítið fyrir og völtuðu yfir Clippers á útivelli 109-97.

Það fer Úlfunum ágætlega að vera yfir 50% og vonandi halda þeir sér áfram á sigurbraut.

Ricky Rubio hefur sannarlega reynst liðinu happafengur og hefur pilturinn staðið undir öllu skruminu. Það má samt ekki gleyma þætti Rick Adelman þjálfara í velgengni liðsins. Hann setti sér að laga tvö stærstu vandamál liðsins þegar hann tók við taumunum - tapaða bolta og varnarleikinn.

Það hefur hann gert og Úlfarnir eru allt í einu komnir með fantalið og fullt af strákum sem eru ágætir í körfubolta. Sannarlega skemmtilegir hlutir að gerast í Minnesota.