"Troðkeppnin er komin aftur!" tístu menn eins og Dominique Wilkins eftir að hafa horft á troðkónginn Zach LaVine frá Minnesota verja titil sinn í troðkeppninni í NBA í gærkvöldi eftir rosalegt einvígi við Aaron Gordon frá Orlando.
Þetta eru orð að sönnu. Við erum ekki frá því að þetta hafi verið flottasta úrslitarimma í sögu keppninnar. Aaron Gordon var maður fólksins og Twitter var ósammála dómurunum að gefa LaVine sigurinn. Það skiptir þó í rauninni engu máli, því það sem stendur upp úr er að við fengum sögulega skemmtilega troðkeppni í Toronto í gær.
Gordon kom heldur betur á óvart og lét LaVine, sem fyrirfram var talið að færi létt með þetta eins og í fyrra, vinna fyrir kaupinu sínu fram í síðustu troðslu. Það sem okkur finnst flottast við prógrammið hjá Gordon var að hann klikkaði ekki á einni einustu troðslu í allri keppninni, sem er lygilegt þegar haft er í huga hvað drengurinn var að framkvæma flókna hluti þarna uppi.
Þetta var hreint út sagt frábær keppni og það gleður okkur óendanlega að sjá að troðkeppnin lifi góðu lífi, eftir að hafa nánast dáið út um árabil. Svona háloftafuglar eins og LaVine og Gordon eiga heiður skilinn fyrir þessa hágæðaskemmtun í nótt. Við vorum svo hrifin af þessu að við ákváðum að henda hérna inn bæði myndbandi og myndum handa ykkur sem misstuð af stemmaranum, eða viljið upplifa hann á ný.
Stephen Curry spilaði alveg einstaklega Stephen Curry-legan leik í nótt þegar Golden State vann eitthvað í kring um 800. leikinn sinn á tímabilinu með því að skella Indiana á heimavelli 122-110.
Curry bauð upp á 39/10/12 dúllugang (sjöundu þrennuna á ferlinum) og átta þrista, en það var ekki nóg. Hann ákvað líka að skjóta einu sinni á körfuna frá sínum vallarhelmingi, en féll því miður á tíma við það svo karfan var ekki góð.
Þá er ekki annað en henda í aðra. Við hefðum sagt "reyna" að henda í aðra, en Steph Curry er ekki í "reyna"-bransanum frekar en Liverpool. Hann hittir bara alltaf, enda er það miklu betra þegar á heildina er litið.
Einu sinni þótti það stórmerkilegur hlutur ef leikmaður í NBA deildinni skoraði átta þriggja stiga körfur í einum og sama leiknum, en stórskotahríð Curry í vetur hefur gert það að verkum að nú þykir það álíka merkilegt og táknmálsfréttatími. Þetta var í NÍUNDA skipti í vetur sem Curry skorar átta þrista eða meira í leik, sem er NBA met og auðvitað mjög eðlilegt.
Þú veist væntanlega að tímabilið er jú hálfnað! Drengurinn ætlar í 400 þrista í vetur. Þessi geimvera.
Hann setti NBA met með 286 þristum á síðustu leiktíð en er kominn í 204 þrista í aðeins 42 leikjum á þessari leiktíð.
Ef hann heldur áfram á sama skriði út veturinn, verða tuttugu leikir eftir af tímabilinu þegar hann slær metið sitt. Sem er svoooo eðlilegt.
NBA metið yfir flestar þriggja stiga körfur í leik er í eigu Donyell Marshall (Toronto 2005) og Kobe Bryant (Lakers 2003), en þeir skoruðu tólf þrista í einum og sama leiknum (Marshall var með nítján tilraunir, Kobe átján).
Curry á best ellefu þrista í leik (eins og félagi hans Klay Thompson og nokkrir aðrir) sem hann setti niður í aðeins þrettán tilraunum þegar hann skaut New York til andskotans í febrúar árið 2013. Þar setti hann stigametið sitt með 54 stigum.
Eins og góður maður hafði orð á á Twitter í nótt, er það eiginlega með ólíkindum að Stephen Curry skuli ekki eiga NBA metið yfir flesta þrista í leik í ljósi þess að hann er gjörsamlega trylltur í langskotunum í vetur (ellefu tilraunir í leik) - og ekki bara það - heldur hittir hann vel líka (5 þristum í leik).
Það kæmi engum á óvart þó Curry færi að slá þetta met og við tippum á að þegar hann gerir það á annað borð, eigi hann eftir að setja fimmtán þrista en ekki þessa þrettán sem þarf til að slá metið.
Það eina sem mælir á móti því að Curry nái þessum áfanga er erfðaefnið í honum, því þó hann sé magnaðasta skytta í sögu NBA deildarinnar, skortir hann samviskuleysi manna eins og Kobe Bryant til að eltast við met.
Það er náttúrulega dálítið sérstakt þegar menn er farið að skorta leysi, en þið ættuð að vera farin að læra það núna að það er ekkert eðlilegt þegar Stephen Curry er annars vegar.
Stephen Curry heldur bara áfram að gera hluti sem enginn getur gert nema hann. Og sumir af þessum hlutum eiga ekki að vera hægt. Drengurinn er svo heitur um þessar mundir. Er á allra vörum. Sá virðist einbeittur og ákveðinn í að fá afhenta styttu í vor. Svona styttu eins og hann fékk síðasta vor.
Hvað um það, hér eru tvær klippur með Stephen Curry að ganga á vatni í auðveldum 100-84 sigri Golden State (9-0) á Memphis (3-6) í nótt. Þett´er svo mikið rugl. Hann hættir ekki.
Hér er bara lítið dæmi frá því í nótt sem rökstyður af hverju Russell Westbrook er klikkaðasti körfuboltamaður heims í dag. Klikkaður, eins og í óútreiknanlegur, hvatvís, ör, óhræddur og alveg ógeðslega góður.
Russell Westbrook er dýnamískasti körfuboltamaður í heimi, það er staðreynd. Hann er því alltaf að eignast fleiri og fleiri aðdáendur, sem er hið besta mál, hann á það skilið.
NBA deildin á marga frábæra skemmtikrafta. Undanfarin misseri hafa menn eins og LeBron James og Kevin Durant ekki aðeins látið okkur fá gæsahúð með tilþrifum sínum, heldur hafa þeir aukinheldur barist um titilinn Verðmætasti leikmaður ársins.
Þeir félagar eru hinsvegar ekki efst á listanum að þessu sinni af mismunandi ástæðum og útlit fyrir að nýtt nafn verði ritað á MVP-styttuna góðu í vor. Tveir menn eru þar oftast nefndir til sögunnar, þeir Stephen Curry og James Harden. Það er réttmætt að okkar mati. Þeir eru tveir af þeim leikmönnum sem hafa skarað hvað mest fram úr í toppliðunum í Vesturdeildinni.
Kevin Durant fellur næstum sjálfkrafa út úr þessari umræðu af því hann er búinn að missa úr nokkuð marga leiki og í raun og veru má segja það sama um hann Westbrook vin okkar.
Strangt til tekið, ætti Westbrook samt að vera með í þessari umræðu, því hann hefur farið hamförum að undanförnu.
Við eigum eftir að sjá til í vor hvað Oklahoma tekst að vinna marga leiki, hvort þeir Russ og KD verða heilir það sem eftir er - og hvort þeir halda áfram að spila svona vel.
Russell Westbrook er búinn að spila sig inn í hjörtu ansi margra körfuboltaáhugamanna og kvenna og skemmst er að minnast yfirlýsingar Kjartans Atla Kjartanssonar í hlaðvarpinu hjá okkur, þegar hann sagði Westbrook að sínu mati besta leikstjórnanda heimsins í dag.
Það má sannarlega rífast um það í margar vikur, en að okkar mati segir það sína sögu um spilamennsku Westbrook að hann skuli vera kominn inn í þessa umræðu. Þar hefði hann ekki verið fyrir tveimur árum síðan.
Hann er gríðarlega umdeildur leikmaður og þeim sem er illa við hann, rækta það hugarfar oft sérstaklega. Þetta er bara öfund og lélegur mórall - ekkert annað.
Við vonum að Westbrook og aðdáendur hans verði ekki sárir þegar við segjum þetta, en hann á því miður aldrei eftir að verða kjörinn MVP í NBA deildinni.
Það er alveg sama hvað Oklahoma vinnur marga leiki og hvað hann setur upp sóðalegar tölur, umdeildur leikstíll hans mun aldrei hljóta náð fyrir augum allra kjósenda.
En það er einmitt leikstíllinn sem gerir Russ að Russ. Hann er allt í senn hamhleypa, atmenni og berserkur sem ræðst linnulaust á andstæðinga sína og sýnir enga miskunn. Það er eins og hann verði aldrei þreyttur og sé bara með einn gír; allt í botni - alltaf!
Það er alveg ógeðslega skemmtilegt að horfa á Golden State Warriors spila körfubolta. Ekki bara af því bakvarðaparið þeirra er eitt það skotvissasta í sögunni, heldur af því stóru mennirnir í liðinu eru líka afburðasendingamenn.
Hvað sem því líður, er óvíst að þeir Steph Curry og Andrew Bogut hafi ætlað að framkvæma þetta sirkusatriði sem þeir buðu upp á í Washington í nótt, en við fengum gæsahúð þegar við sáum það - ekki síst af því á þessum kafla var Golden State gjörsamlega að valta yfir Washington og klára leikinn. Þetta eru skemmtikraftar og snillingar.
Sagt er að gamli dísellyftarinn Andre Miller hjá Denver sé besti sirkussendingamaður í NBA deildinni og engin ástæða til að mótmæla þeirri kenningu af miklum krafti, hann er klárlega með þeim bestu. Sjáðu bara þetta rugl:
Ekki aðeins er sendingin frábær yfir næstum allan völlinn, heldur er móttakan hjá geimvísindamanninum JaVale McGee af dýrari gerðinni. Við höfum amk aldrei áður séð mann taka viðstöðulausa handboltatroðslu. Þetta er á fárra færi, krakkar, ykkur er óhætt að trúa því. Mögnuð tilþrif.
Talandi um handbolta. Hvaða þvættingur væri það nú að sjá hinn 213 sentimetra háa McGee spila skyttu í handbolta? Spurning um að fá gaurinn í HK þegar hægist á hjá honum í NBA. Ætti að geta skotið yfir íslenska hávörn þegar haft er í huga að hann er með rúmlega 80 sentimetra í stökkkraft og skanka sem ná yfir Fossvoginn.
Stjörnu-geggjaður sjónvarpslýsandi Denver Nuggets vildi þegar mest lét meina að þetta væri karfa aldarinnar hjá Danilo Gallinari. Það er auðvitað algjört kjaftæði, en það leynir sér ekki að Ítalinn skemmtilegi hefur verið duglegur að fara með bænirnar sínar undanfarið.
Ætli leikmenn Denver hafi ekki allir verið duglegir að biðja. Liðið hefur unnið sjö leiki í röð og þrettán af fimmtán. Megnið af þessum leikjum eru á erfiðum heimavelli þeirra í þunna loftinu, enda var kominn tími á að þetta blessaða lið fengi nokkra heimaleiki eftir sífelld ferðalög í upphafi leiktíðar.