Showing posts with label Hatorade. Show all posts
Showing posts with label Hatorade. Show all posts
Tuesday, June 21, 2016
Eftir á að hyggja
Efnisflokkar:
Bókmenntagagnrýni
,
Cavaliers
,
Frussandi gremja
,
Gildi og ákvarðanataka
,
Hatorade
,
Kiljan
,
LeBron James
,
Þetta verður vont á morgun
Saturday, May 16, 2015
Washington er komið í sumarfrí
Paul Pierce fer rosalega mikið í taugarnar á okkur og hefur alltaf gert og við höfum aldrei reynt að leyna því. Þess vegna fellu engin tár hér á ritstjórninni í kvöld þegar lokaskotið hans var flautað af í sjötta leik Washington og Atlanta. Okkur finnst það ekki einu sinni leiðinlegt. Þetta var nú einu sinni hárréttur dómur.
Pierce var að vanda dramatískur í leikslok og sagðist alls ekki viss um að hann ætlaði að halda áfram að spila körfubolta á næsta ári. Það er svo sem ekki mikið að marka hvað menn segja þegar þeir eru nýdottnir út úr úrslitakeppninni með þessum hætti, en Pierce er náttúrulega búinn að vera atvinnumaður í körfubolta alveg síðan 1998 og því er eðlilegt að hann fari að horfa í kring um sig eftir dvalarheimilum.
Nei, við vorkennum Pierce ekki neitt, bæði af því við þolum hann ekki og af því hann kallaði þetta yfir sig með hrokanum sem hann sýndi í síðustu tveimur leikjum, þegar hann nánast gerði sig að fífli með innistæðulausum yfirlýsingum.
En Paul Pierce er sannarlega ekki upphafið og endirinn að öllu hjá þessu Washington-liði, jafnvel þó hann virðist hafa verið eini maðurinn þar á bæ sem hafði kjark í að taka stóru skotin.
Framtíð Wizards er í höndum John Wall og Bradley Beal og ef þetta lið nær lengra en þetta næstu ár, verður það af því þeir leiða það þangað. Lið sem er með svona ungt og efnilegt bakvarðapar ætti að vera í ágætismálum, en þetta er ekki alveg svo einfalt.
Eins og áður sagði er óvíst hvort slúttari liðsins heldur áfram að spila með því á næstu leiktíð, en það er svo sem allt í lagi, því það er kominn tími til að þeir Wall og helst Beal fari sjálfir að axla þá ábyrgð.
Marcin Gortat er ágætismiðherji en það er spurning hvort hann hentar í nútíma NBA, þar sem allt gengur út á að stórir menn geti bæði sent og skotið. og Nene er bara farþegi sem þiggur laun hjá félaginu. Hann var afleitur í úrslitakeppninni og það er kominn tími til að fara að kalla hann réttu nafni - hann er bara lúser og hefur aldrei verið neitt annað. Hann hvarf eins og venjulega þegar liðið hans þurfti á honum að halda og var til að mynda áttundi stigahæsti maður Wizards í úrslitakeppninni.
Þeir Gortat og Nene eru fyrirferðamiklir í teignum en þeir náðu ekki að vera neitt meira en það á móti Atlanta, því ekki náðu þeir að nýta sér sentimetra og kílóamuninn sem var á þeim og framlínu Atlanta, sem er ein sú líkamlega nettasta í deildinni.
Eins og við sögðum ykkur um daginn, koma veikleikar allra liða í ljós í úrslitakeppninni og sú varð raunin með Washington. Alveg nákvæmlega. Það sem við vitum núna er að Nene er rusl, liðið vantar nýjan slúttara og breiddin í þessu liði er minni en talið var (nánar tiltekið, nánast engin).
Það hefur verið í tísku í að minnsta kosti tvö ár að segja brandara um það hvað Randy Wittman þjálfari Washington sé ekki starfi sínu vaxinn. Við höfum ekki hundsvit á því, en þetta lið náði nokkurn veginn eins langt í úrslitakeppninni og reiknað var með. Það er ekki útilokað að klókari þjálfari hefði fundið leiðir til að færa sér veikleika Atlanta betur í nyt, en það skiptir engu máli núna.
Washington hefði líka alveg verið til í að sleppa við það að John Wall mölvaði á sér hendina svo hann gæti nú spilað á fullu gasi í úrslitakeppninni, en það þýðir ekkert að velta sér upp úr því heldur, það eru allir meiddir í þessari úrslitakeppni - alltaf.
Það verður sumsé áhugavert að fylgjast með þessu Washington-liði næstu ár, en það verður þá nánast eingöngu vegna þeirra Wall og Beal. Annað er ekki að frétta af höfuðborgarklúbbnum að þessu sinni.
Efnisflokkar:
Benidorm
,
Bradley Beal
,
Faðir Tími
,
Hatorade
,
Hroki og hleypidómar
,
John Wall
,
Marcin Gortat
,
Nene
,
Paul Pierce
,
Úrslitakeppni 2015
,
Wizards
,
Þett´ er búið!
Tuesday, December 23, 2014
Það er aðeins eitt í stöðunni hjá Knicks
Öll eigum við það til að leika sófaforseta knattspyrnu- og körfuboltafélaga. Sófaforseti er gjarnan stuðningsmaður sem hefur mjög ákveðnar skoðanir á því hvað félaginu sem hann heldur með er fyrir bestu. Stundum eru þessar skoðanir harðlínulegar og trúar bókstafnum.
Það er alveg rosalega auðvelt að sitja heima í sófa og rífa kjaft og besservissa yfir því hvaða leikmenn þetta og hitt lið eigi að láta fara, hvaða leikmenn það ætti að semja við, hvaða leikaðferð það ætti að spila og hvort þjálfarinn hentar eða ekki. Þið kannist við þessar pælingar og við að sjálfssögðu líka, þetta vefsvæði gengur auðvitað mikið til út á svona fabúleringar.
Sófaforsetinn er ekki mjög þolinmóður einstaklingur og því þarf oft ekki mikinn mótbyr til að hann fari að ókyrrast og heimta hausa, en eins og þið vitið er það nú ekki algengt að félögin í NBA geri mjög stórar og róttækar breytingar þó þau skipti stundum ört um þjálfara.Þú getur heldur ekki rekið allt liðið þitt þó þú tapir nokkrum leikjum í röð. Þig langar kannski til þess, en ef þú setur þig raunverulega í spor forráðamanna félagsins, sérðu augljóslega að það væru ekki fagmannleg vinnubrögð.
Stundum þarf hinsvegar að gera undantekningar og stóra undantekningin frá þessu er ruslahaugurinn New York Knicks.
Það er búið að reyna og reyna og reyna, en allt kemur fyrir ekki. Því meiri "metnað" sem forráðamenn Knicks setja í rekstur félagsins, því dýpra grafa þeir sig ofan í rotþró getuleysis, viðvaningsháttar og vanhæfni.
Friday, June 6, 2014
Floppandi fífl
Efnisflokkar:
Drullan upp á herðar
,
Hægðaheilar
,
Hatorade
,
Leikaraskapur
,
Tiago Splitter
,
Undirmálsmenn
,
Úrslitakeppni 2014
Wednesday, May 14, 2014
Margt hangir á spýtunni í einvígi OKC og Clippers
Auðvitað gera menn oft klaufamistök þegar svona mikið er í húfi. Barkley gerði klaufamistök eins og aðrir, líka Kenny Smith. Við gerum flest einhverja bölvaða vitleysu annað slagið, ekki síst undir pressu.
Því kemur ekki til greina að fara að setja út á þennan sportbíl sem þetta einvígi er, bara af því hann er ekki með alveg nógu góðar bremsur. Fokk itt - þá krassar hann bara - það má hafa gaman af því.Við opnum á þessu tali um mistökin af því við viljum vera heiðarleg þegar við tölum um deildina okkar fögru. Við förum ekki að sópa því undir teppið að atriðin sem réðu úrslitum hafi sum ekki verið glæsileg. Það að einblína á það, væri samt rakinn hálfvitagangur.
Við sögðum ykkur allt frá því önnur umferðin byrjaði, en einvígi Oklahoma og Clippers ætti eftir að verða það besta í umferðinni. Og við höfum staðið við það. Þetta er langskemmtilegasta einvígið, þó aulagangur hafi vissulega sett svip sinn á síðustu tvo leiki - sérstaklega leikinn í nótt.
Clippers á að vera 3-2 yfir í einvíginu á leiðinni á heimavöllinn sinn til að loka þessu, en í stað þess að klára unninn leik, ákvað liðið að skíta á völlinn nákvæmlega eins og Oklahoma gerði í fjórða leiknum í Los Angeles. Það er því Oklahoma sem er yfir 3-2 og fær nú tvo sénsa til að loka þessu.
Það var ákveðið afrek hjá Oklahoma að klúðra leiknum á sunnudagskvöldið, en Clippers toppaði það í kvöld, á hreint út sagt glórulausum lokamínútum.
Clippers var yfir meira og minna allan leikinn og var með einvígið í hendi sér eins og frá byrjun fjórða leikhlutans í fjórða leiknum. Liðið var yfir 101-88 þegar 4 mínútur og 13 sekúndur voru eftir. Hey, þú ert með Chris Paul í leikstjórnandanum - hvað getur klikkað?

Allt.
Dómararnir flautuðu allt fyrir Oklahoma á lokamínútunum, þar sem Kevin Durant (3 af 18.879 á þeim tímapunkti) fór loksins að hitta og maður leiksins Russell Westbrook kláraði dæmið. Russ var stórkostlegur í þessum leik, en ef hann fær ekki flautið á Paul þarna í restina (sjá mynd) - er ekki talað um neitt annað fram að næsta leik en þetta glórulausa skot sem hann fór upp í á þessum tímapunkti.
Það er stundum ekki nema hársbreidd á milli þess hvort Russ er engill eða djöfull og í nótt var hann engillinn, sem var íííískaldur á vítalínunni og tryggði Oklahoma sigurinn með þremur vítum. Að hugsa sér hvað er stutt á milli Óskars og Ófeigs í þessu.
Á hinum endanum hefði einhver haldið að Chris Paul næði ágætis skoti á þeim sekúndum sem eftir voru af leiknum, en hann lét Reggie Jackson lemja sig svo fast í hendina að hann missti boltann og rann á rassgatið.
Leikur.
Eins og sönnum Twitter-notendum sæmir, höfum við að sjálfssögðu leitað logandi ljósi að einhverjum til að kenna um ófarir Clippers - bæði í þessum leik og hvar sem brugðið hefur út af leið í einvíginu. Sú leit hefur ekki borið mikinn árangur, en þó má hafa eftirfarandi í huga:
Russell Westbrook fer hamförum í þessu einvígi, fólk þarf að átta sig á því. Eins og hann er villtur og stundum bara æpandi geðveikur, ætti Oklahoma ekki séns í helvíti í þessa seríu ef hugrekki hans og krafta nyti ekki við.Og Russ er ekki bara búinn að drita skotum út um allt - hann er líka búinn að hitta þokkalega. Pilturinn er að skila 30 stigum, 7 fráköstum, 8 stoðsendingum, 2 stolnum, 53% skotnýtingu, 41% í þristum og 87% í vítum. Ekki slæm tölfræði frá næstbesta manninum í liðinu, ha?
Efnisflokkar:
Chris Paul
,
Clippers
,
Deron Williams
,
Drullan upp á herðar
,
Hatorade
,
Jamal Crawford
,
Leikstjórnendur
,
Russell Westbrook
,
Thunder
,
Úrslitakeppni 2014
Monday, March 10, 2014
´Melo dagsins
Efnisflokkar:
Carmelo Anthony
,
Hatorade
,
Knicks
,
Skotgleði
,
Skrítlur
,
Stolið efni
Friday, July 12, 2013
Afgreitt mál
Efnisflokkar:
Ákvörðunin
,
Dagblöð og tímarit
,
Forsíður
,
Hatorade
,
Heat
,
LeBron James
,
Sólstrandargæjarnir
Wednesday, July 3, 2013
Ristill: Dwight Howard heldur að okkur sé ekki
Við höfum aldrei farið leynt með þá einlægu skoðun okkar á meintum miðherja Los Angeles Lakers. Þó það kosti okkur óbragð í munninum í alla nótt, verðum við segja skoðun okkar á stærsta fréttamáli NBA deildarinnar þessa dagana, sem er fegurðarsamkeppnin hans Dwight Howard.
Þetta er ekkert flókið, þó fjölmiðlar reyni að gera það. Aðeins tvö félög koma til greina fyrir barnið vöðvastælta - L.A. Lakers og Houston Rockets.
Fjölmiðlar vestan hafs reyna hvað þeir geta að búa til storm úr þessari golu, en það hlýtur að segja sig sjálft að félög eins og Atlanta Hawks, Dallas Mavericks og Golden State Warriors hafa ekkert í þennan slag að gera.
Ekki misskilja, Dwight Howard er alveg nógu mikið ólíkindatól til að semja við eitt þessara félaga, en það væri þá kannski í takt við annað hjá þeim ágæta manni.Þegar við skoðum það hinsvegar frá rökrænu sjónarmiði, hefur hann engan áhuga á að spila á heimaslóðum sínum í Atlanta, Warriors þarf að stúta liðinu sínu til að fá hann og Dallas hefur bara ekki upp á nógu mikið að bjóða.
Dallas hefur jú flottan eiganda, klassa þjálfara, lága skatta og gullið loforð frá Dirk Nowitzki um að hann ætli að lækka við sig launin þegar núverandi samningur hans rennur út - en fyrir utan þetta er ósköp fátæklegt um að litast í Stóra D.
Þú vinnur enga titla með Dwight Howard og gömlum Dirk Nowitzki. Það er bara ekki nóg og það sjá allir - meira að segja Dwight Howard. Fyrir örfáum mánuðum leit út fyrir að Dallas yrði stórspilari á leikmannamarkaðnum og hver stórstjarnan á fætur annari var orðuð við félagið. Ekkert varð þó úr því og við verðum að segja að það hefur komið okkur nokkuð á óvart.
En að félögunum sem eru í stöðu til að landa vandræðaunglingnum - Lakers og Rockets.Það hefði einhver mátt segja okkur það fyrir 18 mánuðum að Houston yrði komið í þessa stöðu sem það er í í dag - að vera hársbreidd frá því að verða áskorandi í Vesturdeildinni.
Það er samt staðreynd og gera má ráð fyrir því að púlsinn hjá forráðamönnum félagsins verði hár fram að helginni.
Houston var eitt af Spútnikliðunum á síðustu leiktíð, en ef það landar Dwight Howard og við gefum okkur að hann hangi heill næstu árin, er Rockets strax orðið eitt af sterkari liðum vestursins.
Það má vel vera að Howard fari óstjórnlega í taugarnar á okkur, en hann er samt fínn leikmaður á sinn hátt og miðherjastaðan er svo svínslega léleg í NBA í dag að ef þú landar einum af þessum fimm þokkalegu slánum í deildinni ertu strax kominn í fjandi góð mál.
Howard var nú ekki lengi að láta það berast út að það væri ekki nóg fyrir hann að fara til Rockets - félagið yrði að gjöra svo vel og semja við aðra stórstjörnu til viðbótar ef hann ætti að fara þangað - fyrr gæti það ekki keppt um titla.
Þetta er reyndar átakanlega rétt hjá Dwight Howard.
James Harden er eina stjarnan í liði Houston og hefur aðeins eins árs reynslu af því að vera aðaltappinn í sínu liði eftir að hafa sprungið svona hressilega út á síðustu leiktíð. Harden hefur að okkar mati allt sem til þarf til að vera aðalspaði í toppliði, en hann, Howard og nokkrir rulluspilarar er ekki nóg til að vinna titil. Það yrði hinsvegar óhemju sterk byrjun og þar erum við komin að rúsínunni í afturendanum, eins og Smári Tarfur orðar það svo skemmtilega.

Houston er í rauninni eina félagið sem "meikar sens" fyrir Howard á þessum tímapunkti.
Ok, það er kannski ekki meistaraefniviður þarna akkúrat núna, en ef Morey og félagar héldu rétt á spilunum næstu eitt til tvö árin, er ekkert sem segir að Houston geti ekki verið komið með sterkasta liðið í Vesturdeildinni áður en langt um líður.
Hjá Houston gæti Dwight Howard fengið að vera "maðurinn í miðjunni" í friði (hann þarf alltaf að fá pínu að vera maðurinn, barnið), þjálfaður af einum besta leikmanni sögunnar í að spila í kring um körfuna (McHale), þar væri hann með aðra stjörnu með sér sem tæki meiri ábyrgð en hann (eftir því sem hentaði), pressan væri miklu minni frá stuðningsmönnum og fjölmiðlum, markaðurinn fínn og skattarnir lágir. Þar að auki er félagið með klára menn á skrifstofunni og góðan sveigjanleika í fjármálunum.
Hvar er vandamálið?
Æ, já, Lakers.
Jú, Lakers er í aðstöðu til að borga Howard aðeins meira af peningum en Houston, þó skattamál og óguðlega hár lifistandard í Englaborginni séu reyndar fljót að jafna það út.
Málið er bara að það er svo mikið helvítis vesen að vera Lakers-maður þessi dægrin. Dwight Howard hefur sannarlega ekki gert það auðveldara með dramatíkinni í sér, en það er ekki bara honum að kenna.Meiðslakrísan sem reið yfir gula helminginn af LA á síðustu leiktíð var í rauninni ágætis yfirvarp, því vandamál Lakers ná miklu lengra og dýpra en það.
Lakers er nefnilega farið að minna meira á New York Knicks en á Lakers og ef við eigum að missa okkur alveg í svartsýnina, er eins og hluti af félaginu hafi dáið með Jerry gamla Buss.
Einu sinni var þetta ekkert mál. Bestu leikmenn í heimi fóru til Lakers ef því Lakers var einfaldlega skíturinn. Þar var flottast að vera, flottast að spila. Hanga með fræga fólkinu og rokkurunum og vinna meistaratitla.
Frá Baylor, West og Chamberlain, til Kareem, Magic og Worthy, til Kobe, Shaq og Jackson. Þetta var ekki flókið - Lakers er búið að vera yfirburðaklúbburinn í NBA síðustu áratugi.
En núna er allt komið í rugl. Samningamál leikmanna og þjálfara eru í hakki og það er eins og sé enginn leiðtogi hjá félaginu sem heldur mönnum á mottunni, stappar niður fæti og segir: "svona gerum við þetta strákar!"
Lakers er bara í ruglinu í dag. Þessi blessuðu meiðsli hjá Kobe Bryant fóru auðvitað gjörsamlega með þetta, en þó leikmenn liðsins hafi kannski ekki fengið fullt tækifæri til að sanna sig á síðustu leiktíð, var aldrei á nokkrum tímapunkti neinn glans yfir leik liðsins.Þetta Lakers-lið með Kobe, Pau, Heimsfrið og fleiri, var búið að vera fyrir þremur árum síðan, ekki í fyrra.
Enn og aftur, meiðslin hjálpuðu ekki, en hérna eru nokkrar ískaldar staðreyndir um Lakers:
Kobe Bryant skilaði rosalega fallegum og hagkvæmum (fyrir hann) tölum á síðustu leiktíð, en hann er (mjög eðlilega) alls ekki sá leikmaður sem hann var fyrir fjórum árum. Það sem meira máli skiptir varðandi Bryant er hinsvegar það að hann er ekki bara orðinn afleitur varnarmaður, heldur er hann HÆTTUR að spila vörn.
Það er kominn tími til að fólk fari að horfast í augu við þá staðreynd. Kobe Bryant var ekki varnarúrvali NBA deildarinnar á síðustu leiktíð í fyrsta skipti síðan Nasistar réðust inn í Pólland, en þar var hann árin fjögur þar á undan á orðstírnum einum saman.
Taktu þetta varnarleysi Kobe Bryant og bættu við það fertugum og höltum Steve Nash og þú ert kominn með eitt lélegasta bakvarðapar síðari tíma í varnarleik. Sorry, það er bara þannig. Horfðu á leikina - horfðu á tölfræðina og stöðutöfluna.
Og ekki voga þér að væna okkur um Hatoradedrykkju.
Við elskum Mömbuna alveg jafn mikið og jafnvel meira hver sem er.
Stundum þarf bara að tala um óþægilega hluti, eins og þegar við hérna á NBA Ísland erum að sníkja framlög og feedback frá ykkur. Þetta þarf að gerast annað slagið.
Framlína Lakers var ekki mikið gæfulegri en bakverðirnir. Pau Gasol var spólandi um á felgunni allan veturinn, Heimsfriður hluta af honum og Dwight Howard átti ekki nema sprett og sprett eftir bakuppskurð og vegna axlarmeiðsla.
Bættu við þetta einu versta úrvali aukaleikara í deildinni (og þeirri staðreynd að þeir voru jú líka meira og minna meiddir allan veturinn) og útkoman er ekki glæsileg. Kannski var það afrek eftir allt saman að liðið drattaðist í úrslitakeppnina.
En svo kemur náðarhöggið auðvitað í vor, þegar Bryant sleit hásin.
Howard hefði sennilega alltaf náð að gera eitthvað helvítis drama úr þessu sumri og látið ganga vel á eftir sér, en ef öll þessi meiðsli hefðu ekki verið að hrjá Lakers, væri staða hans hjá félaginu væntanlega aðeins vænlegri/bjartari.Ó, og þar með vorum við næstum því búin að gleyma einu af aðalatriðunum - þjálfaramálunum.
Körfuboltafélagið Los Angeles Lakers hefur nefnilega hvergi drullað eins hrottalega á sig og í þeirri deildinni.
Mike Brown?
Mike D´Antoni?
Í alvöru?
Þið eruð LAKERS, grátandi upphátt!
Þið eruð ekki Milwaukee Bucks. Þið eruð LAKERS!
Og besti leikmenn í heimi eiga að berjast um að fá að fara til LA Lakers. Ekki til fokkíng Miami, ekki til Clippers, ekki til Cleveland eða Hveravalla!
Til LAKERS!
Nei, í stað þess að stjörnur deildarinnar séu að slást til síðasta manns um að fá að klæðast gula búningnum, þarf félagið að leigja sér fána og borða til að breiða á einhverja kofa út um allan bæ til að leggjast á hnén og grenja í Dwight flippin Howard að "fara nú ekki frá sér, snökt, snökt!"
Hvaða helvítis bull er þetta? Hver stýrir þessum klúbbi eiginlega?
Hafa vistmennirnir tekið völdin á hælinu?
Við vitum vel að heimurinn er að fara til andskotans og ungir og nýríkir íþróttamenn hugsa meira um brandið, bleiku buxurnar og fokkíng glerjalausu hipster gleraugun sín en nokkurn tímann hollustu eða til dæmis að mæta eins og menn í vinnuna og leggja sig fram fyrir trilljarðana sem þeir fá borgaða.
Samt. Þetta er fokkíng Lakers!
Gerðu það sem þú vilt, Dwight Howard. Farðu þangað sem þú vilt. Okkur er skítsama og óbragðið sem við minntumst á í upphafi pistilsins er farið að minna á blöndu af haggis og hundaskít (ef við gefum okkur að einhver hafi blandað slíku saman og fengið sér sopa).
Við höfum sagt ykkur það áður og stöndum við það. Dwight Howard verður aldrei NBA meistari sem fyrsti eða annar valkostur í sókn - og því skiptir engu máli hvort hann verður áfram í Englaborginni eða fer til Houston, Dallas eða Dalvíkur.
Eini sénsinn fyrir Howard er að ná að pota sér í sterkt lið með tvær stjörnur sem taka alla pressu af honum í sóknarleiknum, flotta rulluspilara og fyrsta klassa þjálfara. Hann er ekki maður í annað en að vera akkerið í vörninni og hirða fráköst.
Meira ræður hann ekki við. Hann bara fattar það sennilega ekki sjálfur.
Efnisflokkar:
Ákvörðunin
,
Dwight Howard
,
Félagaskiptaglugginn
,
Gildi og ákvarðanataka
,
Hægðaheilar
,
Hatorade
,
Lakers
,
Rauntal
,
Ristill
Saturday, June 22, 2013
Frábæru úrslitaeinvígi er lokið
Einu jafnasta lokaúrslitaeinvígi síðari ára í NBA deildinni er lokið og það er Miami Heat sem er meistari annað árið í röð eftir 95-88 sigur á San Antonio í hreinum úrslitaleik á fimmtudaginn.
Það er búið að vera hreint út sagt dásamlegt að fylgjast með þessari rimmu og það eru forréttindi að horfa á svona góða leikmenn spila körfubolta. Það er alltaf sérstök stemning á hreinum úrslitaleik þar sem allur veturinn er undir og það voru hæfileikar og taugar Miami sem höfðu betur að þessu sinni.
Sumir voru að kvarta yfir því að einvígi Heat og Spurs hafi verið ójafnt - að það hafi verið of miklar sveiflur milli leikja. Kannski var eitthvað til í því framan af, en ekki lengur.Úrslitin í fyrsta leiknum réðust á ævintýralegu skoti í blálokin, sjötti leikurinn var einn besti lokaúrslitaleikur í sögu NBA deildarinnar og sá sjöundi fór langt fram úr væntingum í gæðum og dramatík.
Úrslitakeppnin í NBA 2013 varð ekki eins mögnuð og til stóð vegna meiðslaflóðbylgjunnar sem reið yfir deildina í vetur, en þegar komið var í lokaúrslitin var einfaldlega boðið upp á veislu.
Það getur vel verið að Oklahoma hefði farið aftur í lokaúrslitin ef Russell Westbrook hefði ekki meiðst og það getur vel verið að Chicago Bulls hefði staðið miklu meira í Miami með alla sína menn heila.'
Það er hinsvegar tilgangslaust að velta sér upp úr slíkum pælingum, sérstaklega í ljósi þess að liðin tvö sem kepptu til úrslita eru gríðarlega sterk, hvort á sinn hátt. Það má vel vera að skörð hafi verið höggvin í liðin í fyrstu umferðunum í úrslitakeppninni, en þegar komið var í úrslitin var þetta dýrari týpan út í eitt.

Sjötti og sjöundi leikurinn í úrslitaeinvíginu voru stórkostleg skemmtun.
Það segir kannski sína sögu um hvað sjötti leikurinn var magnaður að ritstjórn NBA Ísland hefur ekki skrifað staf síðan hann var flautaður af.
Fólk þurfti að stilla klukkur upp á nýtt og lausir munir duttu úr hillum og niður á gólf.
Það er svo gaman að verða vitni að svona sögulegum leikjum eins og flugeldasýningunni á þriðjudaginn var.Spilamennskan var í hæsta gæðaflokki og við fengum bæði hávaða dramatík og fullt af litlum atvikum og smásögum til að ræða og rífast um í allt sumar.
Hugsið ykkur bara hvað Miami var rosalega stutt frá því að missa titilinn í hendur San Antonio í sjötta leiknum. Eitt víti eða eitt frákast og leikurinn hefði verið búinn - Spurs meistari.
Bæði leikmenn og áhorfendur voru orðnir 97% öruggir með að þetta væri búið mál, en með blöndu af grimmd, áræðni og heppni tókst Miami að koma þessu í framlengingu og vinna.
Margir höfðu það á tilfinningunni allan oddaleikinn að Miami væri alltaf 15-20 stigum yfir, en San Antonio var samt aldrei langt undan. Það er dálítið dæmigert fyrir þetta Spurs-lið. Það lallar bara áfram eins og dieselvél. Svo rútínerað og agað.Spennan í báðum þessum leikjum var næstum óbærileg og við örkuðum um gólf og nöguðum neglur upp í miðja putta þó við værum hlutlaus.. Það hefur ekki verið auðvelt að vera stuðningsmaður annars hvors liðsins í þessari rimmu. Sannarlega ekki fyrir viðkvæma eða hjartveika.
Við vorum í nokkuð sérstakri stöðu í þessu einvígi af því við vildum helst að bæði myndu vinna sigur.
Það voru áhugaverðar smásögur í gangi beggja vegna borðsins í rimmunni og ljóst að niðurstaðan í oddaleiknum ætti eftir að ráða nokkru um það hvernig þátttakendur í leiknum verða dæmdir í sögulegu samhengi á næstu árum og áratugum.
Ef þú pælir í því, er það auðvitað rosalegur fasismi að hampa bara öðru liðinu í þessu einvígi en gleyma hinu. Auðvitað var ömurlegt fyrir San Antonio og stuðningsmenn liðsins að tapa þessu, en það er samt óþarfi að taka þetta lið og henda því í ruslið.

Kannski eru það bara við, en við verðum alltaf vör við meiri og meiri öfgar hjá fólki þegar það er að fylgjast með úrslitakeppninni í NBA og ekki síst lokaúrslitunum. Menn eru annað hvort hetjur eða djöflar og á það sérstaklega við um aumingja LeBron James.
Það var ekki nóg að James færi hamförum undir lok beggja leikja sem um ræðir og skilaði í þeim tölum í kring um 35/11/8. Undir lok sjötta leiksins tapaði hann boltanum klaufalega í sókninni og átti skot sem geigaði illa.
Staðan var hreint út sagt orðin ansi slæm hjá Miami undir lok venjulegs leiktíma. Stuðningsmennirnir strunsuðu út úr húsinu og Fúlir á móti (Haters) fóru að brýna klærnar.
Nú átti að rífa LeBron James á hol af því hann sagði félögum sínum ekki að drulla sér frá og kláraði hverja einstu sókn með körfu eins og Michael Jordan hefði alveg örugglega gert. Þetta var komið hjá Spurs, en á einhvern óskiljanlegan hátt rann þetta einu reyndasta liði deildarinnar úr greipum.Við sögðum ykkur að líkurnar á því að Spurs næði að rífa sig upp og klára leik sjö væru álíka góðar og að koma Lemmy í Motorhead á AA fund. Það kom því miður í ljós.
Það var ekki til að gleðja okkur hvað Manu Ginobili kom hressilega niður á jörðina hjá Spurs eftir fimmta leikinn - NBA Ísland leikinn eins og hann var kallaður.
Ginobili tapaði sex boltum að meðaltali í síðustu tveimur leikjunum og datt aftur í pakkann sem fékk okkur til að skrifa hann út af sakramentinu um daginn. Þetta er ömurlegt en satt og það verður áhugavert að sjá hvað Manu ætlar að gera í framhaldinu.Við vorum að vona að San Antonio myndi taka þennan titil af því við óskuðum þess að Timmy, Tony og Manu næðu í einn í viðbót.
Við höfum áður sagt ykkur hvað við erum hrifin af því hvernig San Antonio gerir hlutina og finnst því liðið verðskulda eina dollu enn. Jafnvel þó það sé stórskrítið að það sé komið í lokaúrslit aftur sex árum eftir síðasta túr þangað.
Við vildum líka að Miami yrði meistari og þá fyrst og fremst af því við vildum að LeBron James næði sér í annan titil. Það þýðir því miður að Shane Battier og Chris Bosh fái líka meistaratitil, en það er alltaf einhver fórnkostnaður í þessu.
Eins og flestir vita munaði nývöxnu veiðihári að San Antonio næði að klára einvígið í sjötta leiknum og þið getið líklega gert ykkur í hugarlund hvert umræðan hefði flætt eins og aurskriða ef niðurstaðan hefði verið sú.LeBron James hefði verið tekinn af lífi í allri umfjöllun um úrslitin alveg óháð því hvernig hann spilaði.
Miami vann hinsvegar leikinn og fyrir vikið er James dubbaður upp sem hetja vikunnar, bara af því einhver kjúklingurinn hjá Spurs klikkaði á einu saklausu víti eða af því að Chris Bosh náði að grísa á sóknarfrákast og koma því út á Ray Allen í þristinn.
Það er svo stutt á milli Óskars og Ófeigs í þessu. Allt of stutt. Auðvitað er betra að vinna tvo titla og eitt silfur á þremur árum en að tapa tveimur af þremur lokaúrslitarimmum.
Miami er betra lið en San Antonio og sannaði það með því að vinna einvígið, en það verður seint sagt að það hafi verið með sannfærandi hætti. Það er reyndar voðalega þægilegt að sitja heima í stofu og gagnrýna lið fyrir að slátra ekki San Antonio.
Það er ekki oft sem Gregg Popovich er gagnrýndur, en það bar nokkuð á óánægju með nokkrar af ákvörðunum hans undir lok síðustu leikjanna í Miami.
Eins og t.d. af hverju hann var að taka Tony Parker (Ginobili - tapaður bolti) og Tim Duncan (Bosh - sóknarfrákast) út af á ögurstundu og freista þess jafnvel að brjóta þegar lið hans var þremur stigum yfir í lokin.
Við vorum að vonast til þess að ein sería í þessari úrslitakeppni yrði ekki menguð af alvarlegum meiðslum en varð ekki að ósk okkar með það frekar en í öllum hinum. Hnémeiðsli Dwyane Wade gerðu honum erfitt fyrir framan af í einvíginu en það skilur enginn hvað er að honum, allra síst hann sjálfur.
Verra var með aumingja Tony Parker, en hann var í ruglinu eftir að hann meiddist á læri í fimmta leiknum. Mikilvægasti leikmaðurinn í sóknarleik San Antonio var því hálfur maður og hitti úr 9 af 35 skotum sínum í leikjum sex og sjö. Það hlýtur að vera ömurlegt að kyngja því. Parker og félagar ætluðu að vinna einn í viðbót fyrir Duncan og voru svooo nálægt því, en nú er síðasti sénsinn farinn.
Rétt eins og þegar Miami lokaði Oklahoma í fyrra, átti einn af aukaleikurum Miami stórleik sem hjálpaði mikið til við að landa titlinum.
Á síðustu leiktíð var það Mike Miller sem sallaði sjö þristum á Thunder úr átta tilraunum, en í oddaleiknum á fimmtudaginn var komið að Shane Battier.
Framherjinn floppandi hafði mátt þola að detta úr náðinni hjá þjálfara sínum í einvíginu, en hélt haus og var tilbúinn þegar kallið kom. Hann setti sex þrista úr átta tilraunum og skoraði 18 stig í sjöunda leiknum.Eftir að hafa byrjað skítkaldur utan af velli í úrslitunum, setti Battier 9 af síðustu 12 þristum sínum ofan í.
Það var aldrei spurning að LeBron James yrði valinn verðmætasti leikmaður lokaúrslitanna ef Miami tækist að vinna, en við leyfum okkur að fullyrða að liðið hefði aldrei klárað þetta ef það hefði ekki fengið svona fína hluti frá aukaleikurunum
Mike Miller, Ray Allen og Shane Battier. Þessir kappar voru með 52% þriggja stiga nýtingu í finals.
Mikið hefur verið ritað um Chris Bosh og hans frammistöðu í einvíginu. Hann spilaði sína rullu en skoraði reyndar ekki eitt einasta stig í oddaleiknum. Sem betur fer fyrir hann kom það ekki að sök.
Bosh náði að minnsta kosti að bæta sig aðeins í fráköstunum. Eftir að hafa aðeins tvisvar hirt 9 fráköst eða meira í fyrstu þremur umferðunum í úrslitakeppninni, var hann með 9 að meðaltali í lokaúrslitunum.Nauðsynlegur faktór og mikilvæg fráköst sem hann hirti - ekki síst lykilfrákastið í sjötta leiknum.
Magnað að LeBron James skuli loka þessu einvígi með því að skjóta Spurs í kaf.
Hann bauð upp á fimm þrista og helling af skotum af millifærinu út um allan völl. Dæmi um hvað hann hefur bætt sig mikið. Á myndinni hérna fyrir ofan sérðu vinstra megin skotkortið hans úr leikjum 1-6 og hægra megin skotin hans í sjöunda leiknum.
San Antonio leyfði honum að taka þessi skot, því það er alltaf skárra að fá þau í andlitið en sniðskot í teignum. Það yrði einfaldlega ósanngjarnt ef James næði fullkomnum tökum á þessu stökkskoti sínu. Þá fyrst yrði hann óstöðvandi.Nú erum við búin að tuða samhengislaust í góðan tíma um þetta úrslitaeinvígi og vonandi hefur einhver gaman af því.
Við erum samt ekki alveg búin því við eigum eftir að skoða framtíðina hjá þessum liðum, sem og öðrum sem gerðu góða hluti í úrslitakeppninni í vor. Hvort sem það verður í pistlaformi eða hlaðvarpi kemur í ljós
Að lokum óskum við stuðningsmönnum Miami til hamingju með titilinn og þökkum ykkur fyrir lesturinn og hlustunina í vetur, þó rétt sé að taka fram að NBA Ísland heldur áfram á fullu í sumar þó boltinn sé hættur að rúlla í bili.
Við minnum ykkur svo aftur á nýja fídusinn sem er ofarlega til hægri hér á síðunni þar sem þið getið lagt okkur lið með dónasjónum í gegn um Paypal (guli takkinn sem á stendur "Þitt framlag").

Það væri frábært ef þú hefðir tök á að hjálpa okkur að halda flæðinu og bæta andann á ritstjórninni. Við þökkum þeim sem þegar hafa lagt sitt að mörkum auðmjúklega fyrir okkur og vonum að fleiri sjái sér fært að taka þátt í þessu.
Efnisflokkar:
Gregg Popovich
,
Hatorade
,
Heat
,
LeBron James
,
Lokaúrslit
,
Sigurgöngur
,
Spurs
,
Titlar
,
Úrslitakeppni 2013
Friday, May 10, 2013
Skotkortið hans Melo í úrslitakeppninni
Carmelo Anthony hefur verið nokkuð kaldur í úrslitakeppninni til þessa. Til gamans sýnum við ykkur hér skotkortið hans svo þið getið skoðað nákvæmlega hvernig hann er að skjóta utan af velli.
Græni flöturinn þýðir að hann sé að skjóta yfir því meðaltali sem gengur og gerist í deildinni, gult er á pari en rauði liturinn segir að viðkomandi leikmaður sé að skjóta undir meðaltali deildarinnar. Á kortinu hans Melo má segja að tveir hlutir æpi á okkur.
Fyrst er það að hann er ekki að skjóta nema 25% í þristum á vængjunum þar sem hann er að taka megnið af langskotum sínum og í öðru lagi er hann ekki að skjóta nema 40% undir körfunni, sem er hræðileg nýting. Þetta skrifast á menn eins og Kevin Garnett og Roy Hibbert, en sá síðarnefndi er gjörsamlega búinn að loka teignum hjá Indiana í rimmunni við New York.
Efnisflokkar:
Carmelo Anthony
,
Hatorade
,
Knicksblæti
,
Múrsteinahleðsla
,
Skotgleði
,
Skotkort
,
Stilltu þig gæðingur
,
Tölfræði
,
Úrslitakeppni 2013
Thursday, May 9, 2013
Sunday, January 20, 2013
Ristill: Um afleita frákastavinnu Bosh og Bargnani
Á töflunni hér fyrir neðan sérðu hvað leikmenn Miami eru slappir í fráköstunum. LeBron James gerir nokkuð vel að venju, en strangt til tekið má segja að allir hinir leikmennirnir þurfi að skoða sín mál.
Það eru auðvitað stóru mennirnir sem eiga að frákasta og því miður fyrir Miami er það Chris nokkur Bosh sem gegnir stöðu miðherja hjá liðinu. Það á eftir að koma í ljós, en við óttumst að Chris Bosh eigi eftir að verða valinn í Stjörnulið Austurdeildarinnar í ár.
Það er eitthvað að ef svo verður. Bosh er búinn að vera hræðilegur undanfarið.Bosh er sannarlega enginn miðherji og þó hann hafi lengst af á ferlinum verið skráður kraftframherji, er hann líkari skotbakverði á vellinum en kraftframherja.
Hlutverk stórra manna í körfubolta er að spila vörn, verja skot og hirða fráköst. Bosh hefur hinsvegar lítinn áhuga á þessu og sérgrein hans er stökkskot utan af velli, því hann hefur ofnæmi fyrir snertingu.
Þetta fer allt saman rosalega í taugarnar á okkur eins og þið eruð eflaust farin að átta ykkur á.
Bosh átti nokkra skínandi leiki í úrslitakeppninni á síðasta ári og hann á jú sínar sterku hliðar sem leikmaður, en hann mun aldrei vinna fyrir þeim fáránlegu launum sem hann er að fá hjá Miami. Og það fer líka í taugarnar á okkur.
Menn sem vinna engan veginn fyrir kaupinu sínu og stórir menn sem þola ekki snertingu og hirða ekki fráköst, eru atriði á topp 10 lista okkar yfir mest óþolandi hlutina í NBA deildinni.
Lítum aðeins á tölurnar hans Chris Bosh:
Hann er að spila fæstar mínútur á ferlinum og því kemur ekki á óvart að hann sé að hirða færri fráköst en nokkru sinni. Hann er að rífa niður heil sjö fráköst á 33 mínútum, sem er grátlega lélegt. Það er nú ekki eins og hann sé að spila með einhvern Pekovic eða Love við hliðina á sér.
Chris Bosh hirti fjórum sinnum 10 fráköst eða meira í einum leik í nóvember og fjórum sinnum í desember, en hann hefur enn ekki náð tveggja stafa tölunni í janúar.Hann hefur náð í heilar níu tvennur í allan vetur og hefur ekki náð 10 fráköstum síðan í fyrra.
Við sögðum ykkur frá upplifun okkar þegar við horfðum á Bosh spila gegn Warriors á dögunum. Þar hitti hann 5 af 14 skotum, skoraði 11 stig, hirti 6 fráköst og tapaði 3 boltum.
Það er erfitt að lýsa því með orðum hvað hann var lélegur. Hvað eftir annað var hann að láta kasta sér til og lét bakverði rífa af sér fráköst. Það er sorglegt að horfa á manninn spila.
Það eina sem Chris Bosh getur huggað sig við þessa dagana - og reyndar alltaf - er að þótt ótrúlegt megi virðast, er hann EKKI lélegasti frákastarinn í NBA deildinni! (hér væri upplagt að spila mjög hátt á gamalt kirkjuorgel til að undirstrika þessi gríðarlega óvæntu tíðindi - svona til að auka hughrifin).
Án þess að leggja fram vísindaleg rök fyrir því - fullyrðum við að Andrea Bargnani er lélegasti frákastarinn, ekki bara í NBA deildinni, heldur mögulega í öllum heiminum. Hann lætur Bosh líta út eins og Dennis Rodman í samanburði. Að hugsa sér að þessir menn hafi spilað saman á árum áður. Hvernig náði Toronto fráköstum?
Bargnani er einmitt á svipuðu flugi og Chris Bosh var varðar aumingjaskap í vetur. Hann hefur alltaf verið ömurlegur frákastari en er nú að hóta því að setja ný met í að frussu-drulla á sig á frákastasviðinu.
Bargnani er skráður miðherji eins og Bosh en spilar raunar stöðu kraftframherja. Það er ekki andskoti mikill kraftur í umræddum framherja, því hann heldur auðvitað að hann sé skotbakvörður alveg eins og Bosh.
Þessi 213 sm hái Ítali er að hirða hvorki meira né minna en 4,3 fráköst að meðaltali í leik á 33 mínútum. Þetta er ekki langt frá því að vera heimsmet - það bara getur ekki annað verið.
Bargs er búinn að vera dálítið meiddur í vetur og er bara búinn að spila 21 leik, en þú hugsar örugglega með þér;
"ókei, hann er kannski slappur frákastari, en hann hlýtur að vera búinn að ná sér í EINA tvennu í vetur... er það ekki?"
Nei.
Hann hefur einu sinni tekið níu fráköst.
Tvisvar átta.
Þetta á ekki að vera hægt.
Það eru ellefu bakverðir í NBA deildinni sem hirða fleiri fráköst en Andrea Bargnani.
Hann er í sjöunda sæti í fráköstum í sínu liði! Sjöundi! Bakverðirnir taka fleiri fráköst en hann.
Hvað á að gera við svona aumingja? Án gríns!
Fyrirgefið okkur þessi ógurlegu leiðindi, en við bara getum ekki þagað yfir svona.
REYNIÐ AÐ PAPPÍRA YKKUR, AULAR!
Efnisflokkar:
Andrea Bargnani
,
Ásakanaleikurinn
,
Chris Bosh
,
Drullan upp á herðar
,
Fráköst
,
Hatorade
,
Miðherjar
,
Ristill
,
Tuð
Tuesday, November 13, 2012
Ótímabært og tilgangslaust stöðutékk
En á þessum tímum athyglibrests og óþolinmæði er þó ekki hægt annað en að kíkja aðeins á það hvað hefur verið að gerast í deildinni í þessum fyrstu 2-3 vikum. Aldrei hægt að velta sér of mikið upp úr körfubolta - aldrei of seint að móðga einhvern með því að tala með ristlinum um liðið hans.
Svona til að jafna aðeins um vitleysinginn hann Marc Stein, er gaman að geta þess að Vesturdeildin er um það bil 600 sinnum áhugaverðari en Austurdeildin það sem af er í vetur og það mun ekki breytast til vors.
Byrjun New York Knicks er eini alvöru fréttapunkturinn í Austurdeildinn til þessa. Það er með ólíkindum hvað heil stétt manna (íþróttafréttamenn) getur misst sig yfir fjórum körfuboltaleikjum, en það hefur hún gert eftir 4-0 byrjun Knicks.
Þetta eru vissulega fínir sigrar hjá Knicks, m.a. á meisturunum, en við skulum nú samt klára tímabilið áður en við færum New York meistaratitilinn.
Við höfum lofað því að sinni að vera ekkert að velta okkur upp úr stöðu mála hjá Sixers eða Andrew Bynum. Stuðningsmenn Sixers eru viðkvæmir fyrir slíku. Athugið að við óskum liðinu (Evan Turner og mullet-inu hans Spencer Hawes) alls hins besta.
Á hinum endanum á töflunni kemur það kannski einhverjum á óvart að Orlando skuli vera búið að vinna tvö körfuboltaleiki, en það kemur færri á óvart að Washington og Detroit skuli þegar þetta er skrifað vera samanlagt búin að vinna jafnmarga NBA leiki og Súlan frá Stöðvarfirði.
Charlotte er búið að vinna TVO leiki og er hársbreidd frá sæti í úrslitakepninni eins og staðan er í dag. Austurdeildin í hnotskurn.
Hættum þessu rausi og drífum okkur í Vesturdeildina. Þar er miklu skemmtilegra að vera. Vandræðagangurinn á Lakers verið stærsta fréttamálið í Vesturdeildinni og heldur áfram að vera það. Aldrei þessu vant skrum í kring um Lakers, ha?
Þið hafði fengið að fylgjast með því í þremur hlemmum sem við höfum skrifað um þjálfaramál félagsins.
San Antonio byrjar vel og heldur uppteknum hætti frá því í deildakeppninni á síðustu leiktíð. Leikmenn San Antonio vita hvar best er að standa og hvar og hvenær best er að hlaupa á vellinum til að eiga betri möguleika á að setja boltann ofan í körfuna oftar en hitt liðið. Þetta mun ekki breytast neitt í vetur.
Taktu eftir því að Spurs hefur bara tapað einum leik.Memphis byrjar sömuleiðis vel og er þegar komið með það á afrekastrá sína að drulla yfir meistara Miami. Memphis er reyndar eina liðið í deildinni sem hefur ótvírætt tak á Miami. Þar vegur stór framlína liðsins nokkuð þungt.
Taktu eftir því að Griz hefur bara tapað einum leik.
Þetta eina tap Spurs og Grizzlies kemur gegn LA Clippers. Það er afar vel mannað lið sem þó hefur skemmt fyrir sér með því að gleyma að mæta í heimaleiki gegn Golden State og Cleveland og er því 5-2 í stað 7-0.Fórnarlömb Clippers eru m.a. Lakers, Grizzlies og Spurs. Segir sitt.
Meiðslin hjá Minnesota eru að verða svo mikil að forráðamenn félagsins eru farnir að hringja í Anthony Peeler og biðja hann um að mæta á æfingu.
Það breytir því ekki að liðið er 5-2 þegar þetta er skrifað, sem er líklega eftirtektarverðasti árangur deildarinnar hér í byrjun. Rússarnir eru að smella dásamlega inn í þetta og Rick Adelman á skilið að fá Óskarstilnefningu fyrir leikstjórn nú þegar.Anthony "Brúnar" Davis hjá New Orleans og Damian Lillard hjá Portland eru að stimpla sig vel inn í NBA deildina og virðast ekki aðeins ætla að keppast um titilinn Nýliði ársins, heldur sýna okkur að þeir séu alvöru leikmenn.
Anthony Davis á eftir að verða einn besti stóri maðurinn í NBA næstu árin ef hann heldur heilsu. Það er hægt að fullyrða af því það eru nánast hættir að koma fram stórir menn í Bandaríkjunum.
Það er gaman hvað þeir Eric Gordon hjá New Orleans og Andrew Bogut hjá Golden State halda okkur skemmtilega við efnið alltaf. Halda okkur í óvissunni eins og skilnaðarbarni sem bíður eftir jólagjöfinni frá pabba. Þeir eru ekkert að fara að spila á næstunni og virðast bara búnir á því.Mál Gordon er alvarlegra. Stefnir ekki í neitt annað en að honum verði sturtað niður í Amnesty-klósettið sem Brandon Roy synti upp úr sælla minninga.
Golden State getur ekki, hefur aldrei getað og mun aldrei geta keypt "breik" sem félag í NBA deildinni. Það kemur því nákvæmlega ekkert á óvart hver meiðslastuðullinn er hjá félaginu í ár.
Fólk var actually að tala um að Golden State yrði hörkulið í ár eins og svo sorglega oft áður, en þetta fólk hefur greinilega ekki opnað sögubók.
Warriors heldur bara uppteknum hætti og tapar leikjum í vetur, en passar að tapa ekki of mörgum svo það þurfi ekki að láta frá sér valréttinn sinni í nýliðavalinu næsta sumar.
Metnaðurinn hjá nýjum eigendum félagsins virðist vera sá sami og var hjá forverum þeirra. Að tapa körfuboltaleikjum og greiða meiddum körfuboltaleikmönnum laun fyrir að spila ekki körfuboltaleiki. Æðislegt alveg. Aumingja stuðningsmenn Warriors, sem eiga þetta svo ekki skilið.
Jæja, til að gera langa sögu stutta, er Vesturdeildin pökkuð í vetur eins og alltaf. Verður hrikalega gaman að fylgjast með henni í vetur.
Hey, þá veistu það.
Efnisflokkar:
Aftanmóðumas og steinsmugustiklur
,
Hatorade
,
Vörutalning
Subscribe to:
Posts (Atom)





















