Showing posts with label Erlent vinnuafl. Show all posts
Showing posts with label Erlent vinnuafl. Show all posts
Sunday, April 23, 2017
Giannis Skotbómakounmpo
Efnisflokkar:
David Attenborough
,
Eðlilegt
,
Erlent vinnuafl
,
Furður veraldar
,
Fyrirbæri
,
Giannis Antetokounmpo
,
Gríska Undrið
,
Líkamsþróttur er eftirsóttur
,
Limaburður
,
Sjoppan
,
Vinnuvélar
Friday, November 20, 2015
Kræsingar í KEF
Fjandi öflugur sigur hjá Keflvíkingum á KR í gærkvöldi 89-81. Stöð 2 Sport hitti enn og aftur á frábæran leik til að sýna beint, en það var svo sem nóbreiner að sýna þennan þar sem þetta var toppslagur.
Keflavíkurliðið byrjar þetta 7-0 og er með sprækt og skemmtilegt lið. Það fékk 24/15/6/3 frá Earl Brown yngri og sjóðandi heita fimm þrista frá Reggie Dupree frænda þínum, sem er að skjóta 68% (17 af 25) fyrir utan á leiktíðinni. Risavaxnir ko-hónis þristar Ágústs Orrasonar skemmdu ekki fyrir heimamönnum í restina.
KR skaut og frákastaði betur en heimamenn í þessum leik, en Keflavíkurliðið vann leikinn betur, sem telur aðeins meira. Þetta var ekki dagur meistaranna, sem gátu ekki keypt körfu fyrir utan.
Það eina sem gekk upp í sóknarleik KR voru áætlanaferðir Michael Crayon inn í teiginn, en með fullri virðingu fyrir þeim ágæta leikmanni, var varnarleikur Keflvíkinga gegn honum í besta falli kómískur á köflum. Crayon þakkaði gott boð og hrærði í 29/15 og 4 stolna.
Brynjar Þór, Björn og Tóti Túrbó náðu sér ekki á strik í langskotunum eins og áður sagði. Við hittum mann eftir leikinn sem fullyrti að Brynjar hefði verið að spila meiddur í gærkvöldi. Við erum ekki svona næm á þetta, allra síst í gegn um myndavélalinsuna.
Ægir okkar Steinarsson náði sér aldrei á strik í skotunum fremur en aðrir KR-ingar, en þar fyrir utan drullaði hann tölfræðiskýrsluna vel út með 12 fráköstum, 5 stoðsendingum og aðeins einum töpuðum bolta.
Ægir er að bjóða upp á 11/7/7 meðaltal í vetur, en þarf að skjóta betur fyrir utan til að opna betur fyrir sig. Það köttar þetta ekki að vera innan við 30% í þristum.
Við ætlum ekki þvaðra meira um þennan leik annað en það að stemningin í Sláturhúsinu var algjörlega frábær og þið hefðuð geta logið í einhvern að þetta hefði verið leikur í úrslitakeppninni, svo magnað var andrúmsloftið í Keflavík.
Enn og aftur fær Stöð 2 Sport að sýna gullmola af leik í beinni útsendingu og þó við höfum verið á vellinum og misst af veislunni í sjónvarpinu, gerum við fastlega ráð fyrir að það hafi komið einstaklega vel út.
Það gerir þetta svo enn skemmtilegra að vera með strákana úr Körfuboltakvöldi með í prógramminu fyrir og eftir. Rándýrt að vera með Tom og Svala á litnum og Kjartan Atla, Fannar og Jón Halldór að analísera.
Þetta er standandi veisla.
Það er svo dásamlegt að körfuboltinn okkar sé að verða kominn með umfjöllunina og umgjörðina sem hann hefur átt skilið í svo mörg ár. Þetta eru algjörir nammitímar, stanslaus jól fyrir okkur körfuboltasjúklingana - við gerum ekki annað en opna pakka heilu fimmtudagana og föstudagana.
Hey, hvernig líst þér á að kíkja á sex eða sjöþúsund myndir til gamans?
Það var ekkert.
Efnisflokkar:
Ægir Þór Steinarsson
,
Besta sætið
,
Brynjar Björnsson
,
Erlent vinnuafl
,
Hágæðaskemmtun
,
Heimabrugg
,
Jólin
,
Keflavík
,
Körfuboltakvöld
,
KR
,
Múrsteinahleðsla
,
Myndir
,
Sjónvarp
Tuesday, December 16, 2014
Monday, October 7, 2013
Friday, November 30, 2012
Ersan Ilyasova og Hedo-heilkennið
Ersan Ilyasova hefur verið nokkuð í fréttum í haust og þó það nú væri. Komið hefur í ljós að hann hefur skitið á sig eftir næstum hvern einasta leik Bucks til þessa.
Ilyasova er fæddur á Eskişehir (Eskifirði) í Tyrklandi þann 15. maí 1987. Fyrstu fimm árin sín með Bucks var hann með að meðaltali 1,6 milljónir dollara í árslaun, sem er ansi hreint lítið miðað við það sem gengur og gerist í NBA.
Ekki fór mikið fyrir piltinum fyrstu árin, en á síðustu leiktíð byrjaði hann allt í einu að leggja fram svona leiki (stig/fráköst):
19/15, 17/17, 20/16, 31/12, 32/10, 29/25, 17/16, 7/19.
Sannarlega ekki á hverjum degi sem menn bjóða upp á 29 stig og 25 fráköst í einum leik. Aðeins Ástþór býður upp á svona tölur - eða það héldum við þar til Ilyasova frussaði upp þessari stera-línu gegn Nets á síðustu leiktíð.Og svo er hann brúkleg langskytta líka, svona eins og sykurlaus Ástþór.
Þvílík tilviljun að Ersan okkar skuli hafa verið með lausa samninga mitt í öllum þessum látum!
Og rétt eins og landi hans Hidayet "Hedo" Türkoğlu hérna um árið, virðist Ilyasova nú ætla að gera fátt annað en að drulla í buxurnar eftir að hafa skrifað undir samning sem færir honum 8 milljónir dollara á ári næstu fimm árin.
Það er milljarður króna á ári.
Sjáðu bara hvað tölfræðin hans hefur hrunið.
Vonandi nær Ilyasova að hrista þetta af sér og vonandi er hér ekki um Hedo-heilkennið að ræða. Kannski væri heppilegra að kalla það bara Tyrkjarán.
Það er svívirðilegt hvað er auðvelt að búa til ódýra orðaleiki úr raunum Ilyasova og biðjum við lesendur umsvifalaust afsökunar á því.
Já, krakkar, það væri synd ef Ersan næði sér ekki á strik á ný, verandi sjaldgæfur og solid fjórfari.
Svo er auðvitað alltaf sá hræðilegi möguleiki fyrir hendi að Scott Skiles þjálfari drepi hann hreinlega með ryðfríum kartöflustappara.
Maður sem var tilbúinn að fljúgast á við Shaquille O´Neal lætur það nú ekki eftir sér að mauka einn Tyrkjadjöful sem er að stela kaupinu sínu.
Það er kannski ljótt að segja svona, en þið vitið að okkur gengur aldrei annað en gott til. Þetta er aðeins ætlað sem hvetjandi skrif til handa efnilegum leikmanni sem villst hefur af leið og stefnir í glötun.
* - (Lausleg þýðing) Áttavilltur ungur maður í NBA - ENDAÞARMSINNLEGG ERSANS
Efnisflokkar:
99 vandamál
,
Aftanmóðumas og steinsmugustiklur
,
Bucks
,
Erlent vinnuafl
,
Ersan Ilyasova
,
Kemur
,
Viðvaningsháttur
Thursday, October 11, 2012
Wednesday, September 19, 2012
Þetta er að byrja krakkar
Enn einu sinni er körfuboltavertíðin farin af stað hérna heima á klakanum. Um leið og við heyrum boltann skoppa og ískrið í skónum, hefst fuglasöngur í hjörtum okkar því þá er stutt í jólin.
Við skelltum okkur á leik Stjörnunnar og Njarðvíkur í Ásgarði í vikunni. Þetta var leikur í Reykjanesmótinu og voru það heimamenn sem höfðu betur þó þeim gengi illa að hrista af sér baráttuglaða guttana úr Njarðvík.Það er ekki tímabært að ræða strategíu eða spilamennsku í þessum leik, en það sem er ofar á baugi er að skoða leikmannamálin.
Stjarnan hefur endurheimt sjálfan Kjartan Atla Kjartansson í skotbakvarðarstöðunni og er það afar jákvætt. Ká Joð er óhemju jákvæður maður sem sómi er að fá aftur í úrvalsdeildina eftir að hann tók Riley-inn með FSu.
Sem dæmi um jákvæðni Kjartans má nefna að hann hefur ákveðið að leyfa Marvin Valdimarssyni að halda treyjunúmerinu sínu (4) og spilar því í búningi númer sjö í vetur.
Það er alltaf bræðrabragur á Stjörnumönnum og veturinn ´12-´13 verður engin undantekning.Ekki er vitað hvernig verður með tvíburana í miðjunni, en það er gaman að geta þess að hinn efnilegi fyrrum FSu-maður Lil Marv er genginn til liðs við bróður sinn Marvin Valdimarsson í Stjörnunni.
Lil Marv heitir réttu nafni Sæmundur Valdimarsson, en mun að öllum líkindum ganga undir nafninu Lil Marv hér á síðunni þangað til hann treður yfir einhvern í leik.
Það ætti ekki að vera ósanngjörn uppástunga, þó bróðir hans sé enn feiminn við að troða nema í upphitunum. Þú sérð Marvin klappa yngri bróður sínum á kollinn á myndinni hér til hliðar.Erlendur leikmaður Stjörnunnar er í okkar huga dálítið spurningamerki, en hann mun einmitt ganga undir nafninu Erlendur þangað til hann sannar sig.
Verður trúlega ekki eini maðurinn sem fær það gælunafn á haustmánuðum.
Eitt af því skemmtilegasta við haustleikina er að sjá hvernig ungu mennirnir hafa varið sumrinu.
Hafa þeir verið duglegir að æfa? Munu þeir bæta sig og taka við stærra hlutverki í vetur?
Okkur skilst að Dagur Kár Jónsson hafi gert meira en að tana sig og skerpa hárgreiðsluna í sumar og það verður óhemju áhugavert að fylgjast með pilti í vetur.
Þar er á ferðinni einn af áhugaverðustu ungu leikmönnum deildarinnar. Hann fær væntanlega stærri rullu hjá Teiti í vetur.
Hvað Njarðvíkurliðið varðar verður ekki auðvelt fyrir það að toppa síðasta vetur þegar það fór fram úr væntingum flestra. Þar á bæ eru líka margir vel þjálfaðir ungir og efnilegir piltar sem gaman verður að skoða í vetur.
Efnisflokkar:
Dagur Kár Jónsson
,
Erlent vinnuafl
,
Heimabrugg
,
Kjartan Atli Kjartansson
,
Lil Marv
,
Marvin Valdimarsson
,
Stjarnan
Wednesday, November 30, 2011
David Tairu er ekki að spila körfubolta á Íslandi
Synd að KR-ingar hafi þurft að láta David Tairu fara.
Eins og talsmenn KR sögðu var pilturinn búinn að leggja sig allan fram og það leyndi sér ekkert á vellinum.
Meðaltölin hans í deildinni upp á 21,4 stig, 6,4 fráköst og 18 í framlag voru svo sem ekkert til að skammast sín fyrir.
KR hefði kannski allt eins geta losað sig við Ed Horton yngri, sem missti af nokkrum leikjum í byrjun leiktíðar vegna meiðsla og var skelfilegur í síðasta leik KR gegn Grindavík, þar sem hann komst ekki á blað í stigaskorun.
Öll vitum við þó að haustleikirnir segja ekki alla söguna og það er ekki langt síðan KR var með Kanabakvörð sem virkaði ósköp mannlegur framan af, en fór svo hamförum um vorið og tryggði liðinu Íslandsmeistaratitilinn.
Það er ekki tekið út með sældinni þetta Kanalottó. Nú er KR að leita sér að stórum manni og það er vel. Liðið getur vel notað stóran mann, svo mikið er víst. Brotthvarf Tairu opnar líka vonandi dyrnar fyrir meiri spilatíma fyrir Martin Hermannson og Björn Kristjánsson. Ekkert annað en sómi af því að sjá þessa efnilegu pilta vaxa og takast á við stærri hlutverk.
Efnisflokkar:
Erlent vinnuafl
,
Heimabrugg
,
KR
Subscribe to:
Posts (Atom)





