Showing posts with label Knicksblæti. Show all posts
Showing posts with label Knicksblæti. Show all posts
Saturday, October 22, 2016
Derrick Rose og leyndarmál þríhyrningsins
Efnisflokkar:
Derrick Rose
,
Knicks
,
Knicksblæti
,
Sjoppan
Tuesday, February 17, 2015
Fjögur mögur ár Amare Stoudemire hjá Knicks
Við höfum ekki verið sökuð um sérstaka Þórðargleði yfir óförum New York Knicks undanfarin ár, sem er undarlegt í ljósi þess að við fáum mjög mikið út úr því að vera með leiðindi út í það ágæta félag á þessu vefsvæði. Þið vitið svo sem að þessi leiðindi rista ekki djúpt og eiga rætur að rekja til skrifstofu félagsins og fjölmiðla í New York fremur en leikmanna liðsins og enn síður stuðningnsmannanna.
Segja má að New York standi á tímamótum í dag. Carmelo Anthony fer líklega í hnéuppskurð og kemur ekki meira við sögu í vetur og í dag kunngerðu Knicks að þeir hefðu leyst framherjann Amare Stoudemire undan samningi. Því má segja að ákveðnu tímaskeiði sé að ljúka hjá Knicks. Tímaskeiði sem við skulum kalla Amare-Melo tilraunina.

Við kölluðum ekki til fjölmiðlafundar þegar Stoudemire gekk í raðir Knicks frá Phoenix sumarið 2010. Umfjöllun okkar um það var þvert á móti frekar fátækleg. New York þurfti að landa stjörnu til að selja miða og úr því það náði ekki í LeBron James (sem aldrei kom til greina hvort sem er), ákvað það að henda hundrað kúlum í manninn sem kallaði sig bæði Svarta Jesú og S.T.A.T. (Standing Tall And Talented).
Það er auðvelt að vera vitur eftir á, en auðvitað hefðum við átt að skjóta þessi viðskipti Knicks alla leið til andskotans og fordæma þau strax frá upphafi, því þau meikuðu ekki sens í eina mínútu.
Það tók okkur rúman mánuð að tjá okkur eitthvað um þetta nýja Knicks-lið og við höfum verið neikvæð og leiðinleg út í þetta lið nánast óslitið síðan.Og það eru ástæður fyrir þessari neikvæðni. Hvað hefur New York afrekað síðan það ákvað að kasta sitt hvorum 100 milljónunum í þá Stoudemire og Anthony? Jú, 151 sigri og 160 töpum samkvæmt New York Daily News (ekki halda að við nennum að telja það saman).
Það sem skyggir enn frekar á þessa undarlegu viðskiptahætti Knicks er að þegar þeir Amare og ´Melo hafa spilað saman með liðinu (Amare er náttúrulega búinn að missa mjög mikið úr vegna meiðsla), er það meira að segja lélegra.
New York er aðeins 74-110 þegar tvímenningarnir eru báðir með og það sem verra er, er það aðeins 2-10 í úrslitakeppninni undir sömu kringumstæðum.
Á meðan annað lið sem ætlaði sér stóra hluti með því að púsla saman stórstjörnum, Miami Heat, fór í lokaúrslitin fjögur ár í röð með hjálp stjarnanna sinna, var New York 36 leikjum undir 50% vinningshlutfalli með þeim Melo og Amare - 44 leikjum ef úrslitakeppnin er meðtalin.
Efnisflokkar:
99 vandamál
,
Amare Stoudemire
,
Carmelo Anthony
,
Hægðaheilar
,
Knicks
,
Knicksblæti
,
Phil Jackson
,
Vanhæfni
Sunday, February 8, 2015
Flótti
Efnisflokkar:
99 vandamál
,
Knicks
,
Knicksblæti
,
Phil Jackson
,
Sjoppan
,
Vanhæfni
,
Þunglyndi
Sunday, January 11, 2015
Knicks upp á háaloft
Það mætti halda að við værum með New York á heilanum, en þetta verður það síðasta sem skrifað verður um Knicks á leiktíðinni nema Madison Square Garden brenni til grunna. Við þurftum bara að koma frá okkur einni athugasemd í viðbót, sem okkur flaug í hug þegar við fylgdumst með "óslitinni sigurgöngu" Detroit Pistons og Philadelphia 76ers.
New York Knicks 2015 er sorglegasta körfuboltalið sem við höfum séð.
Philadelphia er með tvo eða þrjá NBA leikmenn í sínum röðum, en það hefur nú unnið fleiri leiki en New York. Philadelphia er að tánka, meðan New York ætlaði upphaflega að reyna að gera eitthvað í deildakeppninni. Og það þýðir ekkert að fela sig á bak við meiðsli.
Við vitum alveg að New York er líklega ekki lélegasta lið allra tíma, en það er klárlega það sorglegasta. Einhver lið hljóta að teljast lélegri en 2015 útgáfan af Knicks, en þau eru ekki mörg. Við erum að tala um það að New York er orðið svo lélegt að við erum farin að hata allt við félagið! Réttast væri að loka þessari vonlausu sjoppu.
Yfir og út á Knicks-skrif í bili.
"... Og haldiði svo kjafti!"
Efnisflokkar:
99 vandamál
,
Knicks
,
Knicksblæti
,
Metabækurnar
,
Taphrinur
,
Vanhæfni
Friday, May 10, 2013
Skotkortið hans Melo í úrslitakeppninni
Carmelo Anthony hefur verið nokkuð kaldur í úrslitakeppninni til þessa. Til gamans sýnum við ykkur hér skotkortið hans svo þið getið skoðað nákvæmlega hvernig hann er að skjóta utan af velli.
Græni flöturinn þýðir að hann sé að skjóta yfir því meðaltali sem gengur og gerist í deildinni, gult er á pari en rauði liturinn segir að viðkomandi leikmaður sé að skjóta undir meðaltali deildarinnar. Á kortinu hans Melo má segja að tveir hlutir æpi á okkur.
Fyrst er það að hann er ekki að skjóta nema 25% í þristum á vængjunum þar sem hann er að taka megnið af langskotum sínum og í öðru lagi er hann ekki að skjóta nema 40% undir körfunni, sem er hræðileg nýting. Þetta skrifast á menn eins og Kevin Garnett og Roy Hibbert, en sá síðarnefndi er gjörsamlega búinn að loka teignum hjá Indiana í rimmunni við New York.
Efnisflokkar:
Carmelo Anthony
,
Hatorade
,
Knicksblæti
,
Múrsteinahleðsla
,
Skotgleði
,
Skotkort
,
Stilltu þig gæðingur
,
Tölfræði
,
Úrslitakeppni 2013
Saturday, December 8, 2012
New York er enn að vinna körfuboltaleiki:
Það er sannarlega með ólíkindum, en nú þegar tæpur fjórðungur er búinn af leiktíðinni í NBA, er New York enn í efsta sæti Austurdeldarinnar - einum og hálfum leik á undan meistaraliði Miami Heat.
Geðveikustu einstaklingar hefðu aldrei spáð þessu. Breytingarnar sem urðu á liði New York milli tímabila þóttu fremur fyndnar en líklegar til árangurs. New York hafði ekki úr miklu að moða á leikmannamarkaðnum í sumar enda eru lykilmenn liðsins ansi dýrir í rekstri. Félagið ákvað þó að næla sér í nokkra leikmenn sem flestir voru komnir nokkur ár fram yfir síðasta söludag.
Spólum aðeins áfram og í dag sigur liðið í efsta sæti Austurdeildar eins og áður sagði, með 14 sigra og aðeins fjögur töp. Við skrifuðum nokkur orð um New York liðið fyrir nokkrum vikum en urðum hreinlega að endurtaka það úr því að Öskubuskuævintýrið lifir enn.
Það er ósköp eðlilegt að óvæntir hlutir gerist í NBA deildinni og við fáum oft óvæntar sigurgöngur úr ólíklegum áttum. Fáir sáu þessa hjá Knicks þó fyrir.Kíkjum á nokkrar tölur.
Vissirðu að New York er 32-10 síðan Mike Woodson tók við liðinu í mars?
Vissirðu að liðið er 19-1 á heimavelli í tíð Woodson? Nítján - eitt!
Liðið hefur aðeins tapað fyrir Miami (á síðustu leiktíð) í Garðinum síðan Woodson tók við, en það hlæja allir að því í dag, því nú virðist New York skyndilega vera komið með tak á meisturunum. Já, það heitir að vera með tak á andstæðingnum þegar Knicks hefur unnið báða leiki liðanna í vetur með tuttugu stiga mun!
Vissulega hefur New York mátt muna fífil sinn fegurri undanfarin ár, það dylst engum. Sérstaklega stuðningsmönnunum - fólkinu sem okkur verður alltaf hugsað til þegar við tölum um New York.
Það eru alltaf þessar villtu vonir í Madison Square Garden, en það er langt síðan partíið náði fram á morgun hjá Spike Lee og félögum.Knicks hefur ekki unnið meira en 50 leiki í deildakeppninni síðan árið 1997, eða rétt áður en Michael Jordan hætti að leika með Chicago Bulls.
Og já, New York hefur ekki unnið nema þrjá leiki í úrslitakeppninni síðan árið 2001.
Það er hræðilegur árangur - um það er engum blöðum að fletta. Þetta hefur verið hræðilegur áratugur.
En nú virðist skyndilega vöknuð von í New York - og það alvöru von - ekki bara einhver blaðra. Það á að vísu ekki að vera fræðilegur möguleiki að liðið haldi þeim dampi sem það hefur verið á á fyrsta fjórðungnum.
Það er svo sem engin ástæða til að ætla að liðið fari eitthvað að drulla alvarlega á sig úr því sem komið er ef það sleppur við meiðsli. Það á nú einu sinni þá Amare Stoudemir og Iman Shumpert inni, hvernig sem Mike Woodson fer að því að sauma þá inn í þetta á ný.
New York spilar vörn, passar boltann og deilir honum vel innan liðsins. Svo skjóta þessir brjálæðingar þriggja stiga skotum þangað til þeim blæðir úr fingurgómunum. Þetta hljómar allt voðalega einfalt og meira að segja vandræðapésarnir kaupa þetta og koma að notum.Ja, hérna. Lítið annað hægt að segja.
Það er kannski að koma upp úr kafinu að Mike Woodson sé eftir allt þokkalegur þjálfari - þó ekki sé hann brúnaþungur.
Hvað varð um allan þennan óþolandi Iso-Joe sóknarleik sem hann var gagnrýndur svo mikið fyrir þegar hann stýrði Atlanta Hawks?
Hvað hefur orðið um bölvunina sem legið hefur á New York-liðinu og hindrað framgöngu þess ár eftir ár?
Höfum við kannski vanmetið leiðtogahæfileika pensjónistanna svona rosalega?
Við höfum bara alls ekki nógu mikið vit á körfubolta til að geta svarað öllum þessum spurningum, en þess í stað lyftum við bara skál fyrir Knicks í annað sinn á leiktíðinni.
Drekkið á meðan þetta er heitt.
Svo skoðum við hvort New York ætlar enn að vinna Austurdeildina þegar Stjörnuleikurinn verður haldinn.
Efnisflokkar:
Knicks
,
Knicksblæti
,
Öskubuskuævintýri
,
Velgengni
Monday, November 12, 2012
Marc Stein heldur að Knicks sé besta lið allra tíma
Á hverjum mánudegi síðastliðin fjöldamörg ár hefur það verið fastur punktur hjá okkur að lesa Vinsældalista vikunnar í umsjón Marc Stein hjá ESPN.
Þetta er auðvitað skrifað í léttum dúr og er bara til að hafa gaman af því, en oftast eru ágætis rök á bak við það hvernig hann raðar liðunum upp. Yfirleitt þurfa lið að "færa rök" fyrir miklum hástökkum á listanum, sérstaklega þegar kemur að toppsætunum.
Orðið hefur stór breyting á þessu.

Eftir að hafa vermt þriðja sæti listans í síðustu viku, er lið New York Knicks nú í öðru sæti listans. Þetta er mesti þvættingur sem þessi ágæti maður hefur skrifað á annars ágætum ferli sínum hjá ESPN.
Við vitum alveg að þetta er til gamans gert, en þetta er of mikið bull til að við getum horft framhjá því.
Við erum því hætt að lesa Marc Stein.
Heldur þú að Phoenix eða Portland hefði farið í þriðja sæti vinsældalistans ef annað þeirra hefði byrjað 4-0?
Einmitt.
Ekkert fer eins mikið í taugarnar á okkur og New York-blæti NBA-miðla.
Ekkert.
Þetta rant gæti komið einhverjum í fýlu.
Bú - fokkíng - hú
Efnisflokkar:
Dreptu okkur ekki
,
ESPN
,
Frussandi gremja
,
Kjarneðlisfræðingar
,
Knicksblæti
,
Marc Stein
Subscribe to:
Posts (Atom)






