Thursday, October 7, 2010

Nítjánhundruð níutíu og fjögur


New York Knicks hefur ekki unnið Atlantshafsriðilinn síðan árið 1994 og vinnur hann trúlega ekki næsta vor.

Amare Stoudemire á tæplega eftir að breyta því, þó hann eigi vonandi eftir að gleðja sárþjáða stuðningsmenn félagsins með tilþrifum sínum í vetur.

Árið 1994 voru menn eins og Patrick Ewing, Charles Oakley, John Starks og Doc Rivers í liði Knicks sem náði alla leið í úrslitin þar sem það tapaði fyrir Houston í frægum oddaleik.

Þetta ár var Amare Stoudemire tólf ára, nýbúinn að missa föður sinn úr hjartaáfalli og sá á eftir móður sinni í fangelsi hvað eftir annað.

Hann lýsti því yfir í viðtali síðar að Guð og Tupac Shakur hefðu haldið honum gangandi á þessum erfiðu tímum.