Sunday, July 19, 2015

Hlaðvarp NBA Ísland: 45. þáttur




Í nýjasta þætti hlaðvarpsins slær Baldur Beck á þráðinn til landsliðsmannsins Hlyns Bæringssonar sem um þessar mundir er í sumarleyfi á Íslandi til að safna kröftum fyrir átökin á EM í haust. Miðherjinn sterki i ræðir meðal annars feril sinn sem atvinnumanns, dvölina í Svíþjóð, nýja samninginn hans og svo auðvitað verkefnið stóra sem er fram undan hjá landsliðinu..

Þú getur hlustað á þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan eða farið inn á hlaðvarpssíðuna og sótt hann. Viljir þú tjá þig um efni þáttarins, hlaðvarpið, NBA Ísland eða ef þú lendir í tæknivandræðum, geturðu haft samband við okkur á nbaisland@gmail.com

Monday, July 6, 2015

Hlaðvarp NBA Ísland: 44. þáttur


Hlaðvarp NBA Ísland heldur áfram að fylgjast með gangi mála á leikmannamarkaðnum í NBA, sem hefur aldrei verið fjörugri en það sem af er þessum mánuði (sem dæmi má nefna að tvær fréttir af leikmannamarkaðnum duttu inn á meðan verið var að taka þetta hlaðvarp upp). Þeir Baldur Beck og Gunnar Björn Helgason kíkja yfir stöðu mála á mörkuðunum í NBA, en enda svo umræðurnar úti í mýri eins og venjulega.

Þið getið hlustað á góðgætið í spilaranum hérna fyrir neðan eða inni á Hlaðvarpssíðunni og þátturinn ætti að vera í boði hvort sem er með niðurhali eða beinni hlustun. Ef þið lendið í vandræðum með þetta, er ykkur bent á að hafa samband við tæknideild í síma nbaisland@gmail.com.

Saturday, July 4, 2015

Hlaðvarp NBA Ísland: 43. þáttur


Leikmannamarkaðurinn í NBA hefur staðið í björtu báli fyrstu þrjá dagana í júlí og í 43. þætti Hlaðvarps NBA Ísland reyna þeir Baldur Beck og Kjartan Atli Kjartansson að átta sig á því helsta sem er búið að gerast.