Showing posts with label Jeff Green. Show all posts
Showing posts with label Jeff Green. Show all posts

Thursday, January 10, 2013

Andlitsmeðferð á uppskurðarafmælinu


Í nótt sem leið var ár síðan framherjinn Jeff Green hjá Boston Celtics þurfti að fara í hjartauppskurð og tvísýnt var um framhaldið hjá honum. Hann hefur kannski ekki staðið undir væntingum hjá Celtics í vetur en hann hefur boðið okkur upp á nokkur ansi eftirminnileg tilþrif.

Hann hélt upp á uppskurðarafmælið á skemmtilegan hátt í nótt þegar hann gjörsamlega hamraði boltanum í grillið á fyrrum Celtics-manninum Jermaine O´Neal. Mjög skemmtileg tilþrif hjá piltinum.


Thursday, November 15, 2012

Tilþrif Jeff Green í máli og myndum


Celtics-maðurinn Jeff Green hefur valdið nokkrum vonbrigðum það sem af er með liðinu en hann bætti aðeins fyrir það með þessari huggulegu troðslu yfir fyrrum Celtics-manninn Stóra-Al Jefferson í nótt.

Látum liggja milli hluta að Jefferson gæti ekki hoppað yfir blautt þriðjudagseintak af Þjóðviljanum, þetta er ansi huggulega gert og eins og þið sjáið á myndunum hérna fyrir neðan, reyndist troðslan ýmsum listamönnum innblástur í nótt.