Showing posts with label Á flautunni. Show all posts
Showing posts with label Á flautunni. Show all posts
Saturday, March 31, 2018
Öskubuskuævintýri Gerald Green
Efnisflokkar:
Á flautunni
,
Gerald Green
,
Gildi og ákvarðanataka
,
Öskubuskuævintýri
,
Rockets
Saturday, January 23, 2016
Stephen Curry: Því ekki að skjóta frá miðju?
Curry bauð upp á 39/10/12 dúllugang (sjöundu þrennuna á ferlinum) og átta þrista, en það var ekki nóg. Hann ákvað líka að skjóta einu sinni á körfuna frá sínum vallarhelmingi, en féll því miður á tíma við það svo karfan var ekki góð.
Þá er ekki annað en henda í aðra. Við hefðum sagt "reyna" að henda í aðra, en Steph Curry er ekki í "reyna"-bransanum frekar en Liverpool. Hann hittir bara alltaf, enda er það miklu betra þegar á heildina er litið.
Einu sinni þótti það stórmerkilegur hlutur ef leikmaður í NBA deildinni skoraði átta þriggja stiga körfur í einum og sama leiknum, en stórskotahríð Curry í vetur hefur gert það að verkum að nú þykir það álíka merkilegt og táknmálsfréttatími. Þetta var í NÍUNDA skipti í vetur sem Curry skorar átta þrista eða meira í leik, sem er NBA met og auðvitað mjög eðlilegt.
Þú veist væntanlega að tímabilið er jú hálfnað! Drengurinn ætlar í 400 þrista í vetur. Þessi geimvera.Hann setti NBA met með 286 þristum á síðustu leiktíð en er kominn í 204 þrista í aðeins 42 leikjum á þessari leiktíð.
Ef hann heldur áfram á sama skriði út veturinn, verða tuttugu leikir eftir af tímabilinu þegar hann slær metið sitt. Sem er svoooo eðlilegt.
NBA metið yfir flestar þriggja stiga körfur í leik er í eigu Donyell Marshall (Toronto 2005) og Kobe Bryant (Lakers 2003), en þeir skoruðu tólf þrista í einum og sama leiknum (Marshall var með nítján tilraunir, Kobe átján).
Curry á best ellefu þrista í leik (eins og félagi hans Klay Thompson og nokkrir aðrir) sem hann setti niður í aðeins þrettán tilraunum þegar hann skaut New York til andskotans í febrúar árið 2013. Þar setti hann stigametið sitt með 54 stigum.
Það kæmi engum á óvart þó Curry færi að slá þetta met og við tippum á að þegar hann gerir það á annað borð, eigi hann eftir að setja fimmtán þrista en ekki þessa þrettán sem þarf til að slá metið.Það eina sem mælir á móti því að Curry nái þessum áfanga er erfðaefnið í honum, því þó hann sé magnaðasta skytta í sögu NBA deildarinnar, skortir hann samviskuleysi manna eins og Kobe Bryant til að eltast við met.
Það er náttúrulega dálítið sérstakt þegar menn er farið að skorta leysi, en þið ættuð að vera farin að læra það núna að það er ekkert eðlilegt þegar Stephen Curry er annars vegar.
Efnisflokkar:
Á flautunni
,
Brelluskot
,
Metabækurnar
,
Netbrennur
,
Rólegur
,
Sirkusinn er kominn í bæinn
,
Stephen Curry
,
Þristar
Thursday, November 12, 2015
Curry gerði allt vitlaust í Húnaveri
Stephen Curry heldur bara áfram að gera hluti sem enginn getur gert nema hann. Og sumir af þessum hlutum eiga ekki að vera hægt. Drengurinn er svo heitur um þessar mundir. Er á allra vörum. Sá virðist einbeittur og ákveðinn í að fá afhenta styttu í vor. Svona styttu eins og hann fékk síðasta vor.
Hvað um það, hér eru tvær klippur með Stephen Curry að ganga á vatni í auðveldum 100-84 sigri Golden State (9-0) á Memphis (3-6) í nótt. Þett´er svo mikið rugl. Hann hættir ekki.
Efnisflokkar:
Á flautunni
,
Brelluskot
,
Grizzlies
,
Húnavaka
,
Rólegur
,
Sirkusinn er kominn í bæinn
,
Stephen Curry
,
Tilþrif
,
Vampíruvaktin
,
Warriors
,
Þristar
Saturday, October 31, 2015
Klikkaðasti körfuboltamaður heims
Hér er bara lítið dæmi frá því í nótt sem rökstyður af hverju Russell Westbrook er klikkaðasti körfuboltamaður heims í dag. Klikkaður, eins og í óútreiknanlegur, hvatvís, ör, óhræddur og alveg ógeðslega góður.
Efnisflokkar:
#Russ
,
Á flautunni
,
Andi
,
Brelluskot
,
Gæsahúð
,
Hafðu þetta hugfast um jólin
,
Hrikalegheit
,
Rólegur
,
Russell Westbrook
,
Sirkusinn er kominn í bæinn
,
Stórustrákabuxurnar
,
Tilþrif
Monday, May 11, 2015
Chicago misnotaði dauðafæri á heimavelli
Þeir sem fylgjast vel með á NBA Ísland muna eflaust að við afneituðum liði Chicago í vetur eftir áralöng vonbrigði og vesen sem fylgdu því að ætla þessu liði að gera eitthvað af viti. Enn og aftur féllum við í þá gryfju að spá Chicago góðum árangri í haust, en hann reyndist hóflegur þegar upp var staðið í deildarkeppninni. Við sem vorum svo viss um að þessi mannskapur gæti unnið Austurdeildina.
Það er svo sem ekki stærðfræðilega útilokað ennþá að Chicago komist í þriðju umferð úrslitakeppninnar, en það verður að teljast afar ólíklegt ef tekið er mið af því sem liðið var að bjóða upp á í gærkvöldi. Þegar þú ert ekki með heimavöllinn en nærð að komast í 2-1 í einvígi, þá einfaldlega verður þú að vinna fjórða leikinn. Ef þú klárar hann og kemst í 3-1, getur fátt komið í veg fyrir að þú lokir dæminu.
Það reyndist stærra verkefni en Chicago réði við.
Fjórða leik Bulls og Cavaliers í gærkvöldi verður ekki minnst fyrir framlag sitt til fagurfræðanna, en liðin máttu eiga það að annan leikinn í röð buðu þau upp á dramatík í lokin. Derrick Rose særði tilfinningar Cleveland með flautukörfu á föstudaginn, en í gærkvöldi var komið að LeBron James og Cavaliers að setja niður eina slíka og vinna með óldskúl stigaskori 86-84.
Þó hægt sé að hrósa báðum liðum fyrir góða varnartakta í þessum leik, var frammistaða þeirra á hinum enda vallarsins í besta falli skelfileg. Bæði lið áttu til dæmis kafla í leiknum þar sem þau skoruðu ekki körfu í sjö mínútur og skutu 0-13, en það var Chicago sem átti síðasta orðið í sóknarklúðri.
Lið Bulls var með um tíu stiga forystu þegar það fór inn í fjórða leikhlutann, en þá kom hræðilegur kafli hjá því þar sem það skaut 2 af 15 og skoraði ekki nema sex stig á fyrstu tíu mínútunum í leikhlutanum. Þú vinnur tæplega leiki með slíkum sóknarleik, en Chicago var nú samt inni í leiknum og vel það. Það var hinsvegar flautukarfan hans LeBron James sem kláraði leikinn.
Cleveland fékk nokkuð umdeilt "leikhlé" til að stilla upp fyrir lokaskotið hans James þegar dómararnir tóku sér langt hlé til að skoða einhverjar endursýningar, en þó það séu vissulega réttmætar aðfinnslur, skiptir það ekki nokkru máli í heildarsamhengi hlutanna. Það fór nefnilega þannig að LeBron James gaf skít í það sem David Blatt teiknaði og lofaði einfaldlega að klára leikinn.
Það var ekki sami heppnisstimpill yfir körfunni hans James og var á flautukörfunni hans Rose á föstudaginn, þetta var í alla staði pottþétt skot hjá LeBron, sem lét það ekkert á sig fá þó hann væri búinn að skjóta eins og sæotur á sjóveikitöflum allan leikinn. Hrós á hinn útvalda fyrir að klára þetta, en hann fékk líka ljómandi hjálp frá þeim Tristan Thompson og sérstaklega Timofey Mozgov, sem eru búnir að vera skemmtilega hrikalegir undir körfunni.
Hjá Chicago er einna helst hægt að pikka Derrick Rose út úr þvögunni en við hefðum viljað sjá meira frá Jimmy Butler í sókninni. Mike Dunleavy og Joakim Noah voru afleitir þeim megin vallarins.
David Blatt var reyndar rétt búinn að klúðra öllu dæminu fyrir Cleveland í lokin þegar hann reyndi að biðja um leikhlé sem liðið átti ekki til að hætti Chris Webber. Sem betur fer fyrir hann, þóttust dómararnir ekki sjá hann og Tyronne Lue aðstoðarþjálfari náði að kæfa þessar tilraunir Blatt til að klúðra leiknum.
Þetta atvik verður sannarlega vatn á myllu þeirra sem hafa gagnrýnt Blatt hvað harðast allar götur síðan tilkynnt var um ráðningu hans. Og með þessum gagnrýnendum erum við að meina um það bil alla Bandaríkjamenn sem vita hvað körfubolti er.
Kannski er óviðeigandi að vera með sleggjudóma um annað hvort liðið í svona hnífjafnri seríu sem þessari, en þið þekkið okkur, við gerum það samt.
Auðvitað er það Chicago sem fær sleggjuna í hausinn frá okkur að þessu sinni og meira að segja hörðustu stuðningsmenn liðsins eru sammála okkur með það. Þeir vita alveg að þessi leikur var leikurinn fyrir Chicago.
Þetta var nefnilega ekki aðeins heimaleikur þar sem heimamenn gátu komist í 3-1 og allt nema lokað einvíginu. Þetta var líka leikur þar sem Cleveland var að spila án Kevin Love og var með Kyrie Irving óralangt frá sínum besta - haltrandi um völlinn eins og gamalmenni.
Okkur er skítsama þó Pau Gasol hafi ekki verið með Chicago vegna meiðsla, ef þú ert Bulls, verður þú einfaldlega að klára þennan leik.
Það eina sem getur fengið okkur til að fyrirgefa Bulls þetta tap er ef það fer nú til Cleveland og stelur öðrum leik þar, sem reyndar er ekkert rosalega líklegt eins og staðan er núna. Við þurfum engar þrettán síður til að sjúkdómsgreina þetta Chicago-lið - það er bara að díla við sömu hlutina og gerðu því lífið leitt í allan vetur.
Fréttin í deildarkeppninni var að þveröfugt við síðustu ár hefði Chicago allt í einu hætt að vera topp tvö vörn deildarinnar en þess í stað orðið betra en nokkru sinni áður í sóknarleiknum.
Ætli megi ekki skrifa eitthvað af þessari undarlegu þróun á Pau Gasol, bætta heilsu Derrick Rose og undraverðar framfarir Jimmy Butler í sóknarleiknum. Það útskýrir reyndar ekki að fullu af hverju vörnin hjá Bulls var allt í einu orðin miðlungsgóð en ekki frábær.
Þrátt fyrir þessar meintu framfarir liðsins í sóknarleiknum í vetur, breytir það því ekki að Chicago á einmitt allt of oft svona kafla eins og það átti í gærkvöldi, þar sem það gjörsamlega drullaði í hárið á sér og skoraði ekki tímunum saman.
Þó við séum allt nema búin að dæma Chicago úr leik út af þessu klúðri í gær, eru öll sund þó ekki lokuð enn. Liðin eru jú mjög jöfn og ef úrslitin í leikjunum sem eftir eru halda áfram að ráðast á svona dramatískan hátt, er svo sem aldrei að segja hvað gæti gerst.
Vandamálið er að við erum bara búin að sjá Chicago gera of oft í buxurnar til að hafa trú á því.
Hvað Cleveland varðar er ekki hægt annað en taka ofan fyrir því að vinna þennan mikilvæga leik en það er augljóst að þetta verður bara erfiðara og erfiðara dæmi hjá LeBron og félögum. Breiddin var ekki mikil áður en Kevin Love datt út og er nú nánast engin og svo eru þessi meiðsli hjá Kyrie Irving algjör hryðjuverknaður.
Það er því hætt við því að verkefnahaugurinn sem liggur eftir á borðinu hjá Cleveland í þessu einvígi lendi meira og minna allur á herðum LeBron James. Hann er alveg vanur því og skorast ekki undan ábyrgð, en hann er ekki að yngjast neitt og hefur ekki endalaust úthald.
Þetta einvígi verður hreinræktað grændkor alla leið í markið.
Efnisflokkar:
Á flautunni
,
Á ögurstundu
,
Bulls
,
Cavaliers
,
Dauðinn á skriðbeltunum
,
Derrick Rose
,
Kyrie Irving
,
LeBron James
,
Timofey Mozgov
,
Úrslitakeppni 2015
Sunday, May 10, 2015
Paul Pierce skorar ennþá körfur
Efnisflokkar:
Á flautunni
,
Paul Pierce
,
Stórustrákabuxurnar
,
Úrslitakeppni 2015
,
Wizards
Saturday, May 9, 2015
Punktar frá föstudagskvöldinu
Það er freistandi að gefa bara frat í Houston eftir tvö slæm töp þess á móti vængstífðu Clippers-liði. Sumir eru augljóslega á því að þetta einvígi sé allt nema búið eftir 124-99 sigur Clippers í þriðja leik liðanna í nótt.
Þetta er nú kannski óþarfa bölsýni fyrir hönd Texas-liðsins, en það er ekki hægt að neita því - það lítur ekki vel út. Það væri þægilegt að benda bara á Skeggið og segja að þetta sé allt honum að kenna, en það væri bæði rangt og ósanngjarnt. Vel getur verið að hann þurfi að vera grimmari í sókninni, en þú vinnur ekki leik í úrslitakeppni ef þú færð á þig 99 stig í fyrstu þremur leikhlutunum. Houston er farið að minna pínulítið á liðið sem datt út í fyrstu umferð í fyrra, en við skulum ekki moka yfir þá alveg strax.
Sóknarleikur Chicago og Cleveland í þriðja leik liðanna í kvöld var á köflum nákvæmlega svona:
Það drupu ekki af þessu gæðin, en það mátti alveg hafa gaman af þessum leik. Alltaf gaman í úrslitakeppninni þegar stálin urgast utan í hvort annað með tilheyrandi hávaða og svo fengum við náttúrulega flautukörfu í bónus í nótt.
Kannski er ósanngjarnt að gagnrýna sóknarleik Cleveland of hart í ljósi þess hvað þrengir um þar þegar Kevin Love vantar og Kyrie Irving er á annari löppinni eins og í kvöld.

Allar þessar ísóleringar fyrir LeBron James voru samt óskaplega þreytandi og minntu okkur á hetjubolta níunda og tíunda áratugarins þegar liðin löbbuðu upp með boltann, hentu honum inn í teig og hlupu svo út í fjærhornið til að vera ekki fyrir.
Við vitum ekki alveg með þessa leikaðferð hjá Cleveland og það verður seint sagt að sé meistarabragur á þessum liðum.
Chicago þarf bara að klára næsta leik á heimavelli og þá er einvígið í pokanum. Það verður samt mjög erfitt, því gera má ráð fyrir því að Derrick Rose verði á felgunni eins og hann á það til að vera í öðrum hverjum leik og svo er Pau Gasol leikmaður númer 998715419345883
57082gaggalagú284375389574093óamma81034528-4748782347528 sem dettur í meiðsli í vor. Þar er á ferðinni hið aftanverða og dásamlega læri, sem einnig er að gera Chris Paul lífið leitt um þessar mundir.
Eigum við ekki bara að segja að nú reyni á David Blatt og hæfileika hans sem þjálfara. Ef einhver hlustar þá á hann yfir höfuð.
Mikið óskaplega gat það verið að fyrstu körfurnar sem JR Smith skorar á ferlinum og skiptu actually máli, yrðu strokaðar út augnabliki síðar með glórulausum flautuþrist í bankann og niður. Þetta er eiginlega bara fallegt.Við vitum að þið eruð orðin hundleið á dramanu í kring um heilsufarið á Derrick Rose, en allir í heiminum hljóta að gleðjast með honum að eiga svona gullið augnablik sem þessi sigurkarfa hans var.
Flestir hafa líklega verið búnir að gefa það upp á bátinn að Rose ætti eftir að gera eitthvað svona í leik af þessari stærðargráðu, en bænir piltsins hafa greinilega náð í gegn.
Bæði af því hann nær að hanga svona la-la heill og svo auðvitað af því að þessi múrsteinn sem hann grýtti á körfuna í lokin fór ofan í.
En eins og fyrirmyndarpilturinn sem Rose er, viðurkenndi hann það hiklaust í viðtali eftir leik að hann hefði ekki ætlaði bankann. Það hefði líka ekki þýtt fyrir hann að halda öðru fram.
Chicago ætlar þó ekki að takast að slá LeBron James út úr úrslitakeppni...
Efnisflokkar:
Á flautunni
,
Derrick Rose
,
James Harden
,
JR Smith
,
LeBron James
,
Svartmálmur
,
Úrslitakeppni 2015
Rose á flautunni
Efnisflokkar:
Á flautunni
,
Á ögurstundu
,
Bulls
,
Derrick Rose
,
Of vanur fyrir skólann
,
Úrslitakeppni 2015
Saturday, January 3, 2015
Köld Mamba
Efnisflokkar:
Á flautunni
,
Á ögurstundu
,
Kobe Bryant
,
Lakers
,
Múrsteinahleðsla
,
Tölfræði
Thursday, July 3, 2014
LOL vikunnar
Efnisflokkar:
Á flautunni
,
Burt með þetta sull
,
Damian Lillard
,
Knattspyrna
,
Sjoppan
,
Stolið efni
Wednesday, May 14, 2014
Saturday, May 3, 2014
Goðsögn er fædd
Efnisflokkar:
Á flautunni
,
Á ögurstundu
,
Blazers
,
Damian Lillard
,
Goðsagnir
,
Úrslitakeppni 2014
Sunday, April 27, 2014
Skin og skúrir hjá Vince
Nokkuð magnaður samanburður á tveimur af stærstu skotum Vince Carter á ferlinum, hið fyrra með Toronto fyrir löööngu síðan og svo sigurkarfan gegn Spurs í kvöld. Það eru ekki alltaf jólin í þessu, það veit Vince manna best.
Efnisflokkar:
Á flautunni
,
Vince Carter
Enn og aftur bjóða Spurs og Mavs upp á klassík
Já, Dallas er komið í 2-1 á móti San Antonio. Það er ekki eina einvígið sem er búið að gjörsamlega eyðileggja allt fyrir veðjandi mönnum, en staðan í því er tvímælalaust einna óvæntust.
Við vonum að enginn hafi misst af þriðja leik Mavs og Spurs í kvöld. Ef þú varst á leiðinni á Norðurpólinn og misstir af honum, réðust úrslit hans á flautukörfu frá nákvæmlega engum öðrum en Vince Carter. Hann er síðasti maðurinn sem við hefðum tippað á að myndi skora sigurkörfu fyrir Dallas í þessu einvígi. Þá teljum við Samuel Dalembert og Mark Cuban með.
Það er formlega staðreynd að San Antonio er bara í bullandi vandræðum með sóknarleik Dallas og á hingað til engin svör við honum.
Þetta beitta sóknarlið sem San Antonio er, hefur ekki náð að refsa Dallas fyrir annmarka sína á hinum enda vallarins og ætti heldur ekki að þurfa þess. Spurs á bæði að vera miklu, miklu betra varnarlið og heilt yfir miklu betra lið en Dallas.
En körfuboltaguðunum gæti ekki verið meira sama.
Við höfum áður séð San Antonio lenda í svona vandræðum og þið vitið hvað gerist þegar San Antonio lendir í vandræðum í úrslitakeppninni. Það fer í sumarfrí. Eins og það gerði á móti Memphis um árið.
Þetta Dallas-lið er ekki eins gott og það Memphis-lið, en við skulum nú ekki vera að dæma Spursmenn úr leik þó þeir séu í vandræðum. Ef þeir vinna næsta leik, er staðan 2-2 og tveir af næstu þremur leikjum í San Antonio.
Gallinn er bara að lærisveinum Rick Carlisle er skítsama.
Efnisflokkar:
Á flautunni
,
Hágæðaskemmtun
,
Mavericks
,
Spurs
,
Úrslitakeppni 2014
,
Vince Carter
Thursday, March 27, 2014
Rusl vinnur drasl, á flautunni
Þú kemur ekki að tómum kofanum hjá Detroit Pistons þegar kemur að því að tapa körfuboltaleikjum. Í myndbrotinu hérna fyrir neðan sérðu liðið tapa skemmtilega fyrir Clevelans á flautunni. Það er Dion Waiters sem lokar þessu fyrir Cleveland-draslið, meðan Detroit-hræið horfir bjargarlaust á. Alveg rúmlega fimmtíu áhorfendur þarna í Detroit eins og venjulega. Æði bara.
Efnisflokkar:
Á flautunni
,
Aðsókn
,
Austurdeildin
,
Cavaliers
,
Dion Waiters
,
Drullan upp á herðar
,
Pistons
Thursday, February 13, 2014
LeBron James er alveg sama
LeBron James skoraði fyrstu flautukörfuna sína á ferlinum gegn Golden State Warriors í Oakland fyrir nokkrum árum, þá sem leikmaður Cleveland. Hann endurtók þetta í nótt þegar hann sallaði 36/13/9 leik og sigurkörfu í andlitið á Steph Curry og félögum í Warriors. Þetta var sjöunda flautukarfan hans LeBron James á ferlinum.
Það er engu líkara en James sé aftur að minna á sig í MVP-umræðunni, sem hefur eingöngu snúist um Kevin Durant síðustu vikur. Þetta er svo fallegur leikur. Bújakasja!
Efnisflokkar:
Á flautunni
,
Á ögurstundu
,
LeBron James
Wednesday, January 8, 2014
Josh Smith hefur ekki hugmynd um hvar Davíð keypti ölið - það var a.m.k. ekki í New York
Talsverðar vonir eru nú bundnar við Detroit Pistons. Þar á að vera efniviður til að gera eitthvað í framtíðinni og félagið ítrekaði metnað sinn með því að fá þá Brandon Jennings og Josh Smith til að spila með ungu mönnunum Andre Drummond og Greg Monroe.
Eins og þið vitið kannski, höfum við óhemju gaman af því þegar Josh Smith lætur reyna á stökkskotin sín utan af velli - ekki síst langskotin. Það er sýning. Smith er í raun og veru magnaður körfuboltamaður, en ákvarðanataka hans minnir á emúa á smjörsýru.
Hérna sjáum við Smith reyna að loka New York Knicks í nótt. Það á að rukka tvöfalt verð fyrir svona hágæðaskemmtun.
Efnisflokkar:
Á flautunni
,
Á ögurstundu
,
Gildi og ákvarðanataka
,
Josh Smith
,
Múrsteinahleðsla
,
Neðan úr bæ
,
Pistons
Friday, December 20, 2013
Wednesday, December 18, 2013
Damian Lillard er sama hvað þér finnst
Hvað er svalara en að tryggja liðinu sínu sigur á útivelli með flautukörfu?
Nú auðvitað að tryggja liðinu sínu annan útisigurinn í röð með flautukörfu!
Damian Lillard er ekki umtalaðasti leikstjórnandinn í þessu dæmalausa miðjubakvarðagóðæri sem nú er í NBA deildinni. Hann er aldrei nefndur til sögunnar þegar talað er um bestu leikstjórnendur deildarinnar.
Menn ættu kannski að byrja að endurskoða það.
Lillard var besti nýliði NBA deildarinnar á síðustu leiktíð og er enn betri í ár.
Skotnýtingin hans mætti vera betri og hann á enn nokkuð í land í varnarleiknum (eins og 95% annars árs manna), en þar fyrir utan erum við að tala um algjöran töffara eins og Oakland-leikstjórnenda er siður.
Pilturinn skorar 20 stig að meðaltali í leik og gefur um sex stoðsendingar. Hann er orðin 40% þriggja stiga skytta og er ein besta vítaskytta deildarinnar (92%), sem er ekki lítið mikilvægt.
Það flottasta við ferilskrá drengsins er þó án efa árangur liðsins sem hann stýrir.
Portland er með besta árangur allra liða í NBA deildinni í dag og það er ekki síst að þakka þessum skemmtilega bakverði, sem fróðlegt verður að fylgjast með í framtíðinni.
Efnisflokkar:
Á flautunni
,
Blazers
,
Damian Lillard
,
Sigurgöngur
Tuesday, December 3, 2013
Gamalt fólk getur líka spilað körfubolta
Tim Duncan varð í nótt elsti leikmaður í sögu NBA deildarinnar til að bjóða upp á 20/20 leik þegar hann skoraði 23 stig og hirti 21 frákast í sigri San Antonio Spurs á Atlanta Hawks. Duncan, sem á stutt eftir í 38 ára afmælið, setti svo punktinn yfir allt saman með því að snudda niður sigurkörfunni í leiknum. Þessi maður.
Efnisflokkar:
Á flautunni
,
Á ögurstundu
,
Goðsagnir
,
Sigurvegarar
,
Spurs
,
Tim Duncan
Subscribe to:
Posts (Atom)































