Showing posts with label Hafðu þetta hugfast um jólin. Show all posts
Showing posts with label Hafðu þetta hugfast um jólin. Show all posts
Saturday, December 24, 2016
Saturday, November 19, 2016
Russell Westbrook er þriggja treyju leikmaður
Flest liðin í NBA eru svo heppin að vera með einn eða fleiri leikmenn, jafnvel stjörnuleikmenn, sem fá sérstaklega borgað fyrir að leysa svona þrautir. Russell Westbrook er einn þessara manna, en eins og þið vitið jafnvel og við, er hann ekki að flækja hlutina með endalausum spurningum og vangaveltum eins og við gerðum hér fyrir ofan.
Hjá Russ, er bara einn gír. Það er bara go!
Þannig að: Ef þú lendir í aðstæðunum sem við lýstum að ofan - og þú ert svo heppinn* að það er ekki nema einn svisslenskur miðherji upp á tvöhundruðogsjö sentimetra sem ver fleiri skot en allir nema fimm leikmenn í NBA deildinni - nú, þá náttúrulega keyrirðu bara á körfuna, hefur þig til flugs, og HAMRAR í grillið á áðurnefndum miðherja. Með VINSTRI hendi. Og klárar leikinn. Af hverju að vera að flækja það eitthvað?
Sumir leikmenn eru svo góðir að þeir selja þér treyjuna sína þó þú sért orðinn allt of feitur og eigir að vera löngu vaxinn upp úr því að klæðast NBA treyjum (samanber enska hugtakið dásamlega: full kit wanker).
Russ seldi okkur heimavallar- og útivallartreyju Oklahoma númer núll - og er að spila svo yfirnáttúrulega vel núna að hann er við það að selja okkur þessa ógeðslegu óranslituðu líka! Þið vitið, þessa sem ekki einu sinni hann nær að gera töff.
Sumir leikmenn eru bara svona svalir. Reyndar ekkert sumir. Þeir eru mjög fáir.
Russ er einn þeirra. Hann er með þrjátíu stig og þrennu í leik. Hann er þriggja treyju maður.
----------------------------------------------------------------------------------------------------
* - Þú tekur eftir því að við ávörpum þig í karlkyni. Það er af því að í okkar huga ert þú lesandi. Og lesandi er karlkynsorð, rétt eins og lekandi, á meðan verðandi er nafnorð í karlkyni, kvenkyni og meira að segja lýsingarorð líka!
Við gerum okkur grein fyrir því að við erum ekki komin langt út úr torfkofunum t.d. í jafnréttismálum og að margt af því sem við skrifum má eflaust túlka sem glórulausan ras- og sexisma. En við erum að reyna að bæta okkur. Fylla upp í götin með vitneskju og lærdómi, umburðalyndi, ást og kærleika.
Kúkur.
Lol!
Efnisflokkar:
#Russ
,
Á ögurstundu
,
Andlitsmeðferð
,
Geimverur
,
Hafðu þetta hugfast um jólin
,
Hamarinn
,
Hrikalegheit
,
Kaffið er aðeins fyrir þá sem loka
,
Neyðarkarlar
,
Rólegur
,
Russell Westbrook
,
Thunder
,
Veggspjald
Friday, December 25, 2015
Körfuboltaveisla í kvöld
Efnisflokkar:
Dagskrá
,
Hafðu þetta hugfast um jólin
,
Jólaleikirnir
,
Jólin
Wednesday, December 23, 2015
Körfuboltajól á Sportinu
Efnisflokkar:
Dagskrá
,
Hafðu þetta hugfast um jólin
,
Jólaleikirnir
,
Jólin
Saturday, October 31, 2015
Klikkaðasti körfuboltamaður heims
Hér er bara lítið dæmi frá því í nótt sem rökstyður af hverju Russell Westbrook er klikkaðasti körfuboltamaður heims í dag. Klikkaður, eins og í óútreiknanlegur, hvatvís, ör, óhræddur og alveg ógeðslega góður.
Efnisflokkar:
#Russ
,
Á flautunni
,
Andi
,
Brelluskot
,
Gæsahúð
,
Hafðu þetta hugfast um jólin
,
Hrikalegheit
,
Rólegur
,
Russell Westbrook
,
Sirkusinn er kominn í bæinn
,
Stórustrákabuxurnar
,
Tilþrif
Monday, January 26, 2015
Klay Thompson er ekki lítill lengur
Það er rosalega auðvelt að halda því fram núna að við höfum ætlað að skrifa sérstakan pistil um Klay Thompson sama kvöld og við skrifuðum síðasta pistil um Golden State Warriors, aðfararnótt föstudagsins.
Thompson var búinn að spila svo ljómandi vel fyrir Warriors í vetur og búinn að bæta sig svo mikið að okkur þótti kominn tími til að minnast sérstaklega á það. Velta því fyrir okkur hvað hann ætti stóran þátt í glettilegri velgengni Warriors og leiða hugann að því í leiðinni hvaða erindi hann ætti til dæmis í Stjörnuleikinn í næsta mánuði.
Nei, það varð ekkert úr þessum pistli, sem hefði getað orðið fyrsti pistillinn í sögu þessa vefsvæðis sem léti ritstjórnina líta gáfulega út. Það gat ekki verið svo gott.
En svona fyrir utan þess háttar egóisma, hefði það verið óþarfa blek að skrifa um Klay á fimmtudagskvöldið í ljósi þess hvað drengurinn gerði á föstudagskvöldið. Ef þú býrð ekki í helli í Afganistan, hefur það ekki farið fram hjá þér að Thompson rústaði NBA metinu yfir flest stig skoruð í einum leikhluta þegar hann sallaði þrjátíuogsjö stigum á aumingja Sacramento á rúmum níu mínútum í þriðja leikhluta.
Þetta eru orðnar gamlar fréttir núna, en það væri óeðlilegt ef við fjölluðum ekki aðeins nánar um þetta mál á NBA Ísland. Það er ekki eins og við fáum að sjá eitthvað svona vikulega í NBA deildinni.Hugsið ykkur bara hversu margir stórkostlegir skorarar hafa spilað í NBA deildinni í gegn um tíðina og spáið svo í það hvað þeir voru flestir langt frá því að gera eitthvað líkt því sem Klay Thompson gerði á dögunum.
Ekki Kobe Bryant, ekki Michael Jordan og ekki einu sinni Wilt Chamberlain! Og hann skoraði jú einu sinni hundrað stig í einum og sama leiknum!
Enginn þessara ofurskorara hafði nefnilega það sem Klay Thompson hefur, þetta svakalega þriggja stiga skot. Haldið þið að það sé bara eðlilegt að maður sé að skjóta 13 af 13 í leikhluta - þar af 9 af 9 í þriggja stiga skotum?
Nei, það er sko ekkert eðlilegt við það og það er hreinlega ekkert víst að við fáum að sjá annan svona leikhluta á næstu þrjátíu árum í NBA deildinni. Þetta á ekki að vera hægt!
Öll höfum við séð menn hitna duglega við hin ýmsu tækifæri í gegn um tíðina. Við sáum Michael Jordan hrista höfuðið á móti Portland, við sáum Kobe skora 81 stig , Té-Mák skora 13 stig á 33 sekúndum og það er ekki langt síðan við sáum Carmelo Anthony skora 33 stig í einum leikhluta þegar hann var hjá Denver og jafna þannig 30 ára gamalt met Ísmannsins George Gervin.
Efnisflokkar:
Hafðu þetta hugfast um jólin
,
James Harden
,
Klay Thompson
,
Netbrennur
,
Ógnarstyrkur
,
Skyttur
,
Stephen Curry
,
Stjörnuleikir
,
Úrvalsleikmenn
,
Warriors
Tuesday, December 16, 2014
John Wall tekinn
Efnisflokkar:
Auglýsingar
,
Hafðu þetta hugfast um jólin
,
John Wall
,
Jólaleikirnir
,
Jólin
,
Kvikmyndahornið
Monday, August 4, 2014
Wednesday, December 25, 2013
Gleðilega hátíð
NBA Ísland óskar lesendum gleðilegra jóla. Takk fyrir stuðninginn og lesturinn. Þið eruð áberandi glæsilegur og vel gefinn hópur - það hefur aldrei verið neitt leyndarmál. Minnum á tvíhöfðann á Sportinu á jóladagskvöld. Góða skemmtun.
Efnisflokkar:
Dagskrá
,
Hafðu þetta hugfast um jólin
,
Hágæðaskemmtun
,
Jólin
Saturday, November 30, 2013
Ó Russ
Þið vitið vel að við elskum Russell Westbrook. Okkur leiddist því ekki lífið í nótt þegar Russ bauð upp á þessa frábæru sigurkörfu í æsilegum leik Oklahoma og Golden State.
Golden State hefur nú tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum eftir fína byrjun, en stuðningsmenn Warriors hafa líklega ekki stórar áhyggjur af því, enda skrifast töpin að mestu leyti á meiðsli lykilmanna. Það eru alltaf meiðsli hjá Golden State, en það að missa Stephen Curry og Andre Iguodala (leikstjórnendur liðsins) var bara of mikið.
Nú er Curry kominn til baka og hirti meira að segja 11 fráköst í nótt. Styttist líka í Iguodala sem er meiddur á læri. Við skulum vona að Golden State verði búið að taka meiðslakvótann út í úrslitakeppninni í vor. Við nennum ekki að díla við neitt "hvað ef" varðandi þetta lið í úrslitakeppninni. Það er kominn tími til að sjá hvað þetta lið getur þegar allir eru heilir(ish).
Efnisflokkar:
Á flautunni
,
Hafðu þetta hugfast um jólin
,
Russell Westbrook
,
Stephen Curry
,
Thunder
,
Tilþrif
,
Warriors
,
Þristar
Saturday, November 16, 2013
Spila í náttfötum um jólin
Alltaf að græða meira. Það er mottóið í NBA og Bandaríkjunum öllum. Ef þú ert með eitthvað sem hægt er að markaðssetja og selja, þýðir ekkert að sitja á rassinum láta sig dreyma.
NBA deildin ætlar þessu samkvæmt að halda áfram að bjóða upp á sérstaka jólabúninga fyrir liðin sem spila meðan hátíðin stendur sem hæst í næsta mánuði. Ætti að vera hægt að selja þetta - þó þetta sé hest-ljótt og ermasítt. Hérna fyrir neðan sjáið þið myndir af treyjunum alræmdu.
Ertu að meta þetta, þó þetta líkist kannski frekar náttfötum en keppnistreyjum?

Efnisflokkar:
Derrick Rose
,
Hafðu þetta hugfast um jólin
,
Iman Shumpert
,
Jólin
,
Tíska
,
Treyjur og búningar
Wednesday, October 9, 2013
Subscribe to:
Posts (Atom)





















