Showing posts with label Kardashian. Show all posts
Showing posts with label Kardashian. Show all posts
Thursday, July 11, 2013
Odom gerir allt fyrir bolinn
Slúðurfréttavefurinn TMZ greinir frá því í dag að Lamar Odom hafi reiðst eitthvað út í papparassana sem elta hann á röndum alla daga. Sagan segir að framherjinn samningslausi hafi kastað eigum ljósmyndaranna út um allt og gert sig líklegan til dólgsláta með barefli.
Seinni og væntanlega meira óspennandi hluti þessara viðskipta var festur á filmu eins og þið sjáið hérna fyrir neðan, en það voru ekki deilurnar við papparassana sem vakti forvitni okkar.
Það sem vakti athygli okkar í myndbrotinu var óheyrileg fagmennskan hjá Odom þegar stúlka nokkur vippar sér að honum þegar hann er í miðju atinu og biður um að fá að smella af einni mynd. Ekki málið að græja það, svona rétt á meðan hann rantar á papparassana.
Odom er löngu orðinn hundleiður á að spila körfubolta og hefur ekki nennt að vera í formi í tvö ár, en þetta atvik (myndatakan, ekki reiðiskastið) þykir okkur bera vott um góðvild og algjöra fagmennsku.
Efnisflokkar:
Bolurinn
,
Dólgslæti
,
Frussandi gremja
,
Kardashian
,
Lamar Odom
,
Papparass
Wednesday, December 26, 2012
Metnaður Lamar Odom
Lamar Odom hefur kannski ekki metnað í að vera góður í körfubolta lengur, en hann hefur metnað fyrir því að vera með mynd af Sætabrauðsdrengnum á skónum sínum í jólaleiknum.
Efnisflokkar:
Hljóta að vera skórnir
,
Kardashian
,
Lamar Odom
,
Metnaður
,
Skófatnaður
Monday, April 4, 2011
Subscribe to:
Posts (Atom)


