Já, hann Kelly Tripucka er einn af þessum heppnu, sem eru bæði óhemju myndarlegir og góðir í körfubolta. Hann ber það sannarlega ekki með sér að hafa verið fjórði stigahæsti leikmaður NBA deildarinnar árið 1983, með næstum 27 stig að meðaltali í leik. Svona getur útlitið blekkt, en eitt er þó alveg á hreinu: Kelly Tripucka er ekki langt frá því að vera OF flottur á því. Enda er þetta ekki í fyrsta skipti sem við minnumst á það. Fólk hefur rétt á að vita þetta.
Showing posts with label Svægi. Show all posts
Showing posts with label Svægi. Show all posts
Monday, October 5, 2015
Meiri Kelly Tripucka
Já, hann Kelly Tripucka er einn af þessum heppnu, sem eru bæði óhemju myndarlegir og góðir í körfubolta. Hann ber það sannarlega ekki með sér að hafa verið fjórði stigahæsti leikmaður NBA deildarinnar árið 1983, með næstum 27 stig að meðaltali í leik. Svona getur útlitið blekkt, en eitt er þó alveg á hreinu: Kelly Tripucka er ekki langt frá því að vera OF flottur á því. Enda er þetta ekki í fyrsta skipti sem við minnumst á það. Fólk hefur rétt á að vita þetta.
Efnisflokkar:
Fret úr fortíðinni
,
Kelly Tripucka
,
NBA 101
,
Svægi
Sunday, November 9, 2014
Monday, September 22, 2014
Monday, August 11, 2014
Ljómandi sigur hjá landsliðinu
Það kom ansi mörgum á óvart a strákarnir okkar í körfuboltalandsliðinu tækju Stór-Bretana og flengdu 83-70 þá í Laugardalshöllinni í kvöld. Piltarnir okkar virðast hinsvegar hafa vitað það allan tímann að þeir ættu eftir að taka þetta.
Af því við höfum ekki hundsvit á körfubolta, spurðum við okkur reyndara fólk út í breska landsliðið og styrk þess. Allir voru á einu máli um að lið sem tryggir sér sæti á hverju stórmótinu á fætur öðru (án þess að nota NBA-menn í undankeppnum) hljóti bara að kunna körfubolta, jafnvel þó Alan Bannister sé hættur að spila.
Mikið er búið að ala þessa stráka vel upp á körfuboltasviðinu.
"Rosalega er gaman að sjá þessa ungu stráka. Þeir mættu bara og kláruðu leikinn!" sagði fyrrum landsliðsmaður himinlifandi eftir leikinn. Brosti hringinn eins og synir hans hefðu verið að vinna Nettómótið.
Flestir strákanna voru að gera eitthvað skemmtilegt fyrir okkur í kvöld. Hlynur Bæringsson Hlynur Bæringsson-aði til dæmis yfir sig með 14/15 leik, hörkuvörn, baráttu og er sjálfsagt enn að plokka tennurnar á Englendingunum úr olnbogunum á sér. Okkur þykir svo vænt um Hlyn.
Efnisflokkar:
Haukur Pálsson
,
Hlynur Bæringsson
,
Landsliðið
,
Martin Hermannsson
,
Pavel Ermolinski
,
Svægi
,
Tebolli
,
Tilþrif
,
Vel Gert
,
Þetta er ungt og leikur sér
Wednesday, May 28, 2014
Óvísindalegir tölfræðimolar úr úrslitakeppninni
Það er nákvæmlega engin hefð fyrir því að staldra við og skoða tölfræði leikmanna í miðri úrslitakeppni. Ástæðan er auðvitað ólíkar skammtastærðir - það er kannski ekki alveg lógík í því að bera saman menn sem spilað hafa sjö eða sautján leiki í úrslitakeppninni. Við gefum skít í þetta. Okkur langar að skoða aðeins tölfræðina og pæla dálítið í því hvaða menn hafa verið að standa sig vel í úrslitakeppninni og hverjir ekki. Það ætti ekki að særa neinn... hmmm, ha?
Ætli sé ekki best að klára það bara frá að dásama Russell Westbrook. Þið vitið hvað við elskum hann Russ. En hafið þið spáð aðeins í tölfræðina sem drengurinn er að bjóða upp á í úrslitakeppninni í vor? Hún er svo rosaleg að hún er líklega sú fallegasta í úrslitakeppninni í dag.
Svona að öllu gríni slepptu, eru þetta ekki bara tölurnar. Hvað eru margir leikmenn búnir að spila betur en Westbrook í úrslitakeppninni?
Fullt af þeim, segja hatursmenn Russ. Það eru mennirnir sem sjá ekki annað en Vonda Russ - gaurinn sem tekur hræðileg skot, fær dæmda á sig ruðninga og kastar boltanum upp í stúku í staðinn fyrir að gefa hann á manninn við hliðina á sér.
Við erum alltaf að rífast við hatursmenn Russ, en margir þeirra fatta ekki ennþá að það er löngu, löngu, löngu orðið bæði þreytt og hallærislegt að dissa Russ. Það myndu allir vilja hafa Russ í sínu liði - mann eins og Russ - gaur sem er alltaf á útopnu, hræðist ekkert og berst til síðasta manns.
Efnisflokkar:
Chris Bosh
,
George Hill
,
Kevin Durant
,
LeBron James
,
Paul George
,
Roy Hibbert
,
Russ gonna Russ
,
Russell Westbrook
,
Svægi
,
Taktu þér tak drengur!
,
Tölfræði
,
Úrslitakeppni 2014
Friday, January 31, 2014
Orð eru óþörf
Efnisflokkar:
Fötin skapa manninn
,
Fræga fólkið
,
Kevin Durant
,
Ruglað saman reitum
,
Svægi
Friday, November 1, 2013
Monday, June 3, 2013
Magnaðasti leikmaður sögunnar á betra skilið:
Hér eigum við auðvitað við goðsagnirnar Wilt Chamberlain og Bill Russell. Þeir voru ólíkir persónuleikar, ólíkir leikmenn og gerðu ólíka hluti á ferlinum í NBA deildinni. Það eina sem tengir þá er sú staðreynd að þeir voru áhrifamestu og bestu körfuboltamenn samtímans og því lágu leiðir þeirra oftar en ekki saman í úrslitakeppninni á vorin.
Við gætum auðvitað skrifað 200 blaðsíðna ritgerð* um hvorn leikmann fyrir sig, en það var ekki ætlunin með þessum pistli. Honum er ekki aðeins ætlað að drepa tíma þinn fram að oddaleik Miami og Indiana í kvöld, heldur einnig að taka upp hanskann fyrir Wilt Chamberlain heitinn.
Þá spyr kannski einhver: Til hvers þarf að taka upp hanskann fyrir magnaðasta fyrirbæri körfuboltasögunnar? Það er af því að Wilt fær ekki nógu mikla ást. Það er sorgleg staðreynd sem við rekum okkur allt of oft á og við viljum gera eitthvað í því.
Hér fyrir neðan ætlum við að sem sagt að segja þér af hverju Wilt fær ekki næga ást og færa rök fyrir því af hverju á að vera mynd af honum uppi á vegg hjá öllum körfuboltaáhugamönnum.
Ofurmannleg frammistaða Wilt Chamberlain á körfuboltavellinum tryggði að hann mun hvorki hverfa úr annálum NBA deildarinnar né af vörum þeirra sem fylgjast með.Wilt á enn fjöldan allan af ótrúlegum tölfræðimetum og þar á meðal þekktasta einstaklingsmetið í öllum körfuboltageiranum - 100 stiga leikinn árið 1962 sem flestir kannast við sem á annað borð fylgjast með íþróttum.
Tvö lið - Boston vinnur
Þó ferill Chamberlain hafi verið eins og lygasaga, er það allt of algengt að umræða um hann fari strax að snúast um Bill Russell, Boston Celtics og þá staðreynd að Wilt átti aldrei roð í þá grænu.
Alltaf skal Wilt borinn saman við Russell - og þó Wilt hafi alltaf verið með miklu betri tölfræði - vann Boston alltaf.
Boston vann bara alltaf á þessum árum. Þeir sem þekkja söguna vita að Boston hirti alla titla nema einn sem í boði voru í NBA frá árinu 1959 til 1969 og það er allt nema útilokað að við sjáum annan eins áratug aftur í sögunni.
Wilt var einstaklega óheppinn að hafa verið atvinnumaður meðan Rómarveldi NBA deildarinnar var í sínum mesta blóma í Boston undir stjórn Red Auerbach þjálfara og Bill Russell inni á vellinum.
Nú væri kannski freistandi að snúa dæminu við og fara að hrauna yfir Boston, en það gerum við auðvitað ekki. Þetta Boston lið er mesta stórveldi í sögu NBA og á skilið ómengaða virðingu.
Það er samt óþarfi að drulla yfir Wilt Chamberlain þó Boston hafi alltaf unnið. Það getur vel verið að Russell og Celtics hafi oftast haft betur gegn liðunum hans Wilt (Warriors, Sixers, Lakers) en við hvetjum fók til að kynna sér aðeins söguna áður en það fer að taka undir með fólki sem heldur að það sé skylda að tala illa um Wilt Chamberlain af því hann vann "ekki nema" tvo meistaratitla.
Yngri lesendur eru sérstaklega beðnir að gefa eftirfarandi góðan gaum.NBA deildin var allt öðruvísi á sjöunda áratugnum en hún er í dag og segja má að drögin að nútíma körfubolta hafi verið lögð á lokaárunum hans Wilt Chamberlain eftir 1970.
Aðvörun: Fáránleg tölfræði
Wilt kom inn í NBA deildina árið 1959 og gerði allt vitlaust strax á nýliðaárinu sínu.
Hvorki fyrr né síðar hefur maður byrjað með eins miklum látum og Wilt gerði þennan vetur.
Hvað var hann með mikil læti, spyrðu?
Hann varð stigakóngur (37,6 stig), frákastakóngur (27 fráköst), spilaði flestar mínútur (46,4), var valinn í Stjörnulið og var verðmætasti leikmaður Stjörnuleiksins (23 stig, 25 fráköst), nýliði ársins, var í fyrsta úrvalsliði deildarinnar og var valinn verðmætasti leikmaður deildarinnar.
Alls sló hann átta met á fyrsta árinu sínu í deildinni og þó hann hafi löngu verið búinn að prýða forsíður allra helstu blaða og tímarita í Bandaríkjunum á háskólaárum sínum - var hann nú á góðri leið í að verða fyrsta ofurstjarnan sem sportið ól af sér.Árið 1962 afrekaði Chamberlain svo að skora 100 stig í einum og sama leiknum. Það er lang frægasta metið hans (tölfræði hans yfir bólfélaga hefur ekki verið staðfest, en sögð geigvænleg) en þar með var ekki öll sagan sögð.
Wilt var fjórum sinnum kjörinn verðmætasti leikmaður ársins í NBA, hann var sjö sinnum í fyrsta úrvalsliði deildarinnar, spilaði 13 stjörnuleiki, varð stigakóngur sjö ár í röð (met sem Jordan jafnaði 1988-93), ellefu sinnum frákastakóngur og leiddi meira að segja deildina í stoðsendingum (8,6 í leik) árið 1968 þegar hann vildi sanna að hann gæti líka gefið boltann.
Þá leiddi hann deildina einu sinni í skotnýtingu, þegar hann nýtti tæplega 73% skota sinna á lokaárinu sínu með Lakers og setti met sem enginn nema hann sjálfur hefur komið nálægt. Hann á líka næst bestu nýtinguna (68,3%) og á þrjú af bestu fimm tímabilum í sögu deildarinnar á þessu sviði.
Kannski er samt svakalegast af öllu að hugsa til þess að Chamberlain var með 50,4 stig og 25,7 fráköst að meðaltali í leik veturinn 1962, sem eru náttúrulega kolgeðveikar tölur.Íþróttamaður á heimsklassa.
Við vitum að við gerumst sek um gróflega ofnotkun á orðinu "íþróttamaður" þegar við erum að lýsa líkamlegu atgervi NBA leikmanna, en það vill svo til að það hefði getað verið mynd af Wilt Chamberlain fyrir aftan orðið íþróttamaður í orðabókinni - slíkur garpur var hann.
Fyrir það fyrsta var Chamberlain ekki bara snöggur og fljótur, heldur var hann nautsterkur. Hann var ekki með mikið kjöt utan á sér á fyrstu árum sínum í deildinni en fór stækkandi eftir því sem leið á ferilinn og til eru ótal sögur af hrikalegum styrk hans.
Wilt stundaði það mikið að kasta einum félaga sínum hjá Harlem Globetrotters** upp í loftið eins og barni og grípa hann og einu sinni tróð hann bolta í körfuna þó maður væri hangandi á boltanum - hann tróð honum bara líka. Þá er til saga af Chamberlain þar sem hann ku hafa troðið svo fast í eitt skiptið að maður sem varð fyrir boltanum á niðurleiðinni hafi fótbrotnað, en það er reyndar ansi mikill Múnkhásen-þefur af þeirri sögu.
Wilt var ekki bara sterkur, heldur líka fljótur og fjölhæfur íþróttakappi. Hann lagði stund á m.a. þrístökk, hástökk, kringlukast og lang- og spretthlaup. Sagan segir að hann hafi klárað 100 metrana á 10,9 sekúndum í menntaskóla, sem er tími í heimsklassa, ekki síst í þá daga þegar enginn hafi náð að hlaupa vegalendina á innan við 10 sekúndum. Sá múr var ekki rofinn fyrr en árið 1968, meira en áratug síðar.
Yfirburðir Chamberlain.
Það má vel vera að Bill Russell geti alltaf bent á meistarahringana sína ellefu ef einhver fer að tala við hann um Wilt Chamberlain, en þó menn sem vinna eigi skilið sitt respekt, er afrekaskrá Russell þar fyrir utan ekki merkileg við hliðina á þeirri sem Wilt státaði af og við töldum upp hérna fyrir ofan.Ekki misskilja, 99% leikmanna sem spilað hafa í NBA hefðu fegnir tekið því að vera með afrekaskrá Russell. Hann var fimm sinnum kjörinn verðmætasti leikmaður deildarinnar (þrátt fyrir að vera aðeins þrisvar í 1. úrvalsliði deildarinnar), var tólf sinnum í Stjörnuliðinu og leiddi deildina fimm sinnum í fráköstum.
En tölfræði Russell bliknar í samanburði við tölurnar hans Chamberlain. Wilt var með 30 stig, 23 fráköst, 4 stoðsendingar og 54% skotnýtingu á ferlinum. Russell skoraði 15 stig, hirti yfir 22 fráköst, gaf fjórar stoðsendingar og hitti úr 44% skota sinna.
Þess má geta að varin skot voru ekki viðurkennd tölfræði á þessum árum og vilja kunnugir meina að þeir félagar hafi verið ansi duglegir við þá iðju, sem er trúlegt. Eins og það er klisjulegt, átti Chamberlain það til að nýta ótrúlega íþróttahæfileika sína til að hamra skot mótherjanna upp í stúku, en Russell var þekktur fyrir að vanda sig við að verja skotin, leggja mikið upp úr því að halda þeim í leik og helst búa til hraðaupphlaup upp úr þeim.
Þá var aðeins nýbyrjað að velja varnarlið ársins undir restina á ferli þeirra Russell og Chamberlain og ætla má að sá fyrrnefndi hefði verið fastamaður þar allan ferilinn.Chamberlain gat reyndar alveg spilað fantavörn ef honum sýndist svo og lagði meiri áherslu á þann hluta leiksins á árunum með Lakers undir stjórn Bill Sharman.
Magnaðir molar.
Okkur lék mikil forvitni á að vita hvernig Wilt vegnaði gegn Russell maður á mann í viðureignum þeirra í gegn um tíðina.
Það er gömul tugga að Russell hafi oftast unnið leikina, gott og vel, en hvernig ætli tölfræðin hans Chamberlain hafi verið á móti varnarjaxlinum Russell?
(Mynd: Wilt og Arnold í hlutverkum sínum í kvikmyndinni Conan the Destroyer árið 1984)
Við rákumst á nokkra skemmtilega mola um viðureignir þeirra sem við ætlum að nota til að slá botninn í þessa hugleiðingu, sem ætlað var að vekja fólk til umhugsunar.
Chamberlain fær of lítið respekt að okkar mati, því hann er ekki aðeins mesti skorari í sögu körfuknattleiksins heldur í alla staði eitt stórkostlegasta fyrirbæri sem stigið hefur á parketið.
Við notum orðið fyrirbæri til að lýsa leikmönnum sem brjóta í bága við algengustu lögmál íþrótta- og eðlisfræðinnar. Og það gerði Wilt Chamberlain svo sannarlega.
Þið takið eftir því að í yfirfyrirsögninni á þessum pistli segjum við að Wilt Chamberlain sé magnaðasti leikmaður í sögu NBA deildarinnar.
Hann var (lang) hæfileikaríkasti körfuboltamaður sinnar kynslóðar og enginn, hvorki fyrr né síðar, hefur ruslað deildinni upp eins og hann gerði á sínum tíma. Það er útilokað að leika afrek Chamberlain eftir í nútíma körfubolta - nema Köngulóarmaðurinn sé á leiðinni í NBA.
Wilt var risi í kúltúr og risi að burðum. Allt sem hann gerði var hrikalegt og Twitter hefði brunnið til kaldra kola ef það apparat hefði verið til þegar Wilt var að setja metin (og hitta sautján konur á einni helgi - pældu í Wilt á Instagram!).
Annað sem hafa verður í huga þegar spólað er svona til baka er að átökin í deildinni voru mikið mun harðari á þessum tíma en þau eru í dag. Þá þótti ekkert tiltökumál að lemja andstæðinginn í gólfið þegar hann keyrði á körfuna og gefa honum svo á kjaftinn ef hann ætlaði að gera eitthvað í því. Þetta hljómar kannski villimannslegt, en svona var þetta stundum í þá daga.
Chamberlain íhugaði meira að segja að leggja skó sína á hilluna snemma á ferlinum, því hann var orðinn svo leiður á þeim gegndarlausu barsmíðum sem hann mátti þola í hverjum einasta leik. Ekki gat tröllið svarað fyrir sig, því þá hefði einhver endað á líkbörunum.
Bleyðuhátturinn sem viðgengst í NBA í dag er genginn yfir allt meðalhóf, þar sem menn fá tæknivillur fyrir það eitt að horfa í áttina að mótherjum sínum. Það væri gaman ef hægt væri að finna meðalhóf milli slagsmálanna á sjöunda og áttunda áratugnum - og bridge-hörkunnar sem tíðkast í NBA í dag.
Að lokum eru hér nokkrar tölur sem Wilt bauð upp á í leikjum gegn Russell:.
- 1959: Strax á nýliðaárinu sínu átti Wilt 44 stiga og 43 frákasta leik gegn Russell.
- 1960: Var hann með þrefalda tvennu í leik gegn Russell. 39 stig, 25 fráköst og 14 varin skot.
- 1961: Setti NBA met með 55 fráköstum í einum leik. Russell hirti 19 en vann leikinn.
- 1961: Var með þrefalda tvennu upp á 44 stig, 35 fráköst og 15 varin skot gegn Russell.
- 1962: Fagnaði árinu ´62 með því að salla 62 stigum á Russell.
- 1965: Tvær þrennur gegn Russell í úrslitakeppninni. Fyrst 33/31/11 og svo 30/26/13.
- 1967: Nær fernu gegn Russell í úrslitakeppninni - 24 stig, 32 frák, 13 stoð og 12 varin.
- 1968: Var með þrefalda tvennu (stig, frák, stoð) í þremur af fjórum leikjum gegn Russell.
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
* - Auðvitað varð þetta þá að 200 blaðsíðna ritgerð - bjóstu við öðru?
** - Wilt spilaði með Harlem Globetrotters fyrsta árið sitt sem atvinnumaður og gerðist þá svo frægur að spila m.a. í Rússlandi. Hann sagði alltaf að honum hefði liðið vel með Globetrotters, þar sem aðalatriðið var að skemmta fólki og hann var ekki laminn af varnarmönnum í hverri sókn.
Pé Ess. - Ekki missa vatnið þó við köllum Wilt magnaðasta leikmann sögunnar.
Það þýðir ekki endilega að hann sé besti leikmaður sögunnar, frekar að enginn leikmaður hafi notið annara eins yfirburða og hann gerði á sínum tíma.
Við erum ekki svo vitlaus að ætla að fara að bera saman körfuboltamenn frá gjörólíkum tímabilum og jafnvel menn í ólíkum leikstöðum (t.d. Jordan vs Wilt). Kannski skrifum við pistil um þetta einhvern daginn, en Wilt er klárlega og auðveldlega einn af tíu bestu körfuboltamönnum allra tíma í okkar bókum.
Ef allt væri eðlilegt, myndi merki NBA deildarinnar vera hannað eftir útlínum Wilt Chamberlain en ekki liðsfélaga hans Jerry West - með fullri virðingu fyrir Jerry.
Efnisflokkar:
Bill Russell
,
Celtics
,
Fret úr fortíðinni
,
Fyrirbæri
,
Gamla myndin
,
Goðsagnir
,
Klassík
,
Kvikmyndahornið
,
NBA 101
,
Sigurvegarar
,
Svægi
,
Tölfræði
,
Wilt Chamberlain
Monday, March 4, 2013
Johnny Rondo
Þeir segja að foreldrar Rajon Rondo hafi verið búnir að ákveða að pilturinn fengi nafnið Johnny eða Roderick áður en þeir ákváðu að lokum að skíra hann Rajon Rondo.
Eins og Roderick er nú virðulegt nafn, hefði það sprengt alla skala ef leikstjórnandi Boston Celtics héti Johnny Rondo.
Eftir lauslega útreikninga fengum við það út að það væri fjórða svalasta Johnny nafnið þarna úti og það er nú ekkert smáræði, því Johnny-arnir eru margir.
Mjög margir.
Í okkar bókum væru aðeins Johnny Cash, Johnny Utah og Johnny, fyrrum bassaleikari Mínus, svalari en Johnny Rondo.
Viðbót:
Svo gleymdum við auðvitað Johnny Ringo eins og sauðnautin sem við erum. Ringo er ekki nema einn af tíu svölustu vonduköllum kvikmyndasögunnar!Við höfðum á tilfinningunni að við værum að gleyma einhverjum. Segjum að Rondo og Ringo séu jafnir í fjórða sætinu - það er sanngjarnt.
"Og sjá: Bleikur hestur, og sá er á honum sat, hann hét Dauði, og Hel var í för með honum."
- Opinberun Jóhannesar
Efnisflokkar:
Rajon Rondo
,
Svægi
Monday, February 25, 2013
Sunday, February 10, 2013
Durant leynilögreglumaður
Skóauglýsingar eru almennt ekki efni sem höfðar til okkar, en hér er á ferðinni undantekning.
Stundum eru hlutir bara of töff til að hægt sé að horfa fram hjá þeim.
Smelltu á myndina til að sjá hana almennilega.
Efnisflokkar:
Auglýsingar
,
Hljóta að vera skórnir
,
Kevin Durant
,
Skófatnaður
,
Svægi
Wednesday, October 17, 2012
Ekvadoooooor!!!
Efnisflokkar:
Hamarinn
,
Knattspyrna
,
Líkamsþróttur er eftirsóttur
,
Og nú að allt öðru
,
Svægi
Monday, September 3, 2012
Wednesday, July 25, 2012
Ein góð af Wilt
Við giskum á að þessi mynd sé frá leiktíðinni 1968-69 af því Elgin Baylor er á henni líka.
Wilt var einn af frumherjunum í hipsterabransanum auðvitað. Frábær mynd.
Efnisflokkar:
Bólfarir
,
Hipsterapakk
,
Klassík
,
Svægi
,
Wagga-wagga-wagga
,
Wilt Chamberlain
Tuesday, July 17, 2012
Connie Hawkins er sjötugur í dag
Connie Hawkins var mjög sérstakur leikmaður og einn af fyrstu skemmtikröftum deildarinnar.
Hann var frumherji sem slíkur og í dag er hann hvorki meira né minna en sjötugur.
Hawkins spilaði bæði stöðu miðherja og framherja og var þekktur fyrir að vera mjög kúnstugur með boltann, sem ekki var algengt þegar svo stórir menn voru annars vegar.
Hann hefur alla tíð verið mikil goðsögn og til eru óhemju margar sögur um hæfileika hans og galdrabrögð, en það voru auðvitað ekki allir með myndavél í grillinu 24/7 í þá daga eins og nú.
Ferill Hawkins varð aldrei eins glæstur og vonir hans stóðu til um eftir að hann flæktist í veðmálahneyksli, þó aldrei tækist að sanna eitt eða neitt á hann.
Hann hlaut þó uppreisn æru árið 1992, þegar hann hlaut inngöngu í Heiðurshöllina.
Að sjálfssögðu er til bók um þetta allt saman og við skorum á ykkur að taka Connie Hawkins fyrir næst þegar þið takið NBA 101 og kynnið ykkur sögu leiksins.

Efnisflokkar:
Afmæli
,
Connie Hawkins
,
Heiðurshöllin
,
Klassík
,
NBA 101
,
Svægi
,
Wagga-wagga-wagga
Tuesday, June 26, 2012
Sunday, June 24, 2012
Nýr kafli hefst hjá skuldlausum LeBron James:
Lauslega reiknað munu skrif um hann minnka um 17,4 milljón orða og því miður gætum við horft fram á nokkrar uppsagnir í blaðamannageiranum ytra vegna þessa.
Nú höfum við fengið smá tíma til að venjast þeirri hugmynd að LeBron James sé kominn með titil. Sama hvort sem fólki líkar vel við hann eða ekki, er sómi af því að pilturinn sé búinn að vinna þetta. Þá meinum við það í "illu er best af lokið" samhenginu. Nú þurfa hatursmenn hans að semja nýja brandara og breyta aðeins til. Það er mjög jákvætt.
Að öllu gamni slepptu, er James vel að titlinum kominn. Hann er búinn að vera langbesti leikmaður heimsins síðustu ár og það var að verða pínulítið kjánalegt hjá honum að safna öllum þessum MVP styttum og eiga ekki meistarahring í stíl. Okkur þótti ákaflega vænt um að sjá fagnaðarlæti LeBron James þegar titillinn var í höfn á fimmtudagskvöldið.
Einlæg og ómenguð ánægjan leyndi sér ekki. Strákurinn var að rifna af hamingju með þetta, enda ekki bara að ná sínu helsta langtímamarkmiði, heldur einnig að losna úr bjarnargildru sem hann hafði setið fastur í í níu ár.
Nú verður ákaflega forvitnilegt að sjá hvað titillinn gerir fyrir hugartetrið hjá James.
Þið vitið að það er ekki nóg að hafa hæfileika til að vinna NBA titla.
Ef menn ætla að vinna þá nokkra, þurfa menn að vera dálítið klikkaðir líka. Æfa harðar, oftar og meira en aðrir, sleppa við meiðsli og gefa 110%
Er LeBron James með drápseðli og hungur í að halda nú áfram að vinna titla, eða fer hann nú að einbeita sér meira að því að rappa og koma fram í auglýsingum? Þetta er stærsta spurningin í framtíð Miami Heat, fyrir utan heilsufarið á Dwyane Wade.
Meistaratitillinn sem LeBron James var að næla sér í, þýðir að hann er orðinn óumdeild súperstjarna númer eitt í NBA deildinni. Hann fer að fá enn fleiri flautur frá dómurum, hlýtur aukna virðingu á öllum sviðum og verður nú miðpunktur öðruvísi umræðu en áður.
Nú geta menn hætt að tala um að James sé leikmaður sem þolir ekki pressuna og að hann vinni aldrei titla. Nú er kannski hægt að fara að tala aðeins um hvað hann er góður og hvar hann kemur til með að standa í sögulegu samhengi þegar fram í sækir.
Annað sem þessi titill gerir er að stroka út mistök James þegar kemur að almannatengslunum. Nú þýðir ekkert að vera að nudda framan í hann gömlum ummælum um að "flytja hæfileika sína til Suðurstrandar" eða "vinna ekki einn, ekki tvo, ekki sjö titla." Þetta dæmi heyrir nú sögunni til og James hefur unnið sér inn fyrir því að mega loka þessum kafla og henda lyklinum.
Já, krakkar. Við ætlum öll að reyna að vera jákvæðari í garð besta körfuboltamanns heims framvegis. Það er líka miklu auðveldara og uppbyggilegra.
Efnisflokkar:
Ákvörðunin
,
LeBron James
,
MVP
,
Sögubækur
,
Svægi
,
Titlar
,
Úrslitakeppni 2012
Wednesday, May 30, 2012
DeShawn Stevenson kynnir: Hraðbankasvægi
Efnisflokkar:
DeShawn Stevenson
,
Eðlilegt
,
Hipsterapakk
,
Stilltu þig gæðingur
,
Svægi
Saturday, May 26, 2012
Hvað er líkt með Spurs og Mobb Deep?
Dálítið skondið að þessi skemmtilegi klassíker sé nú að rúlla undir spilamennsku San Antonio Spurs í nýlegri stiklu á NBA TV og víðar. Áttum okkur ekki á tengingunni milli Spurs og Mobb Deep, en þetta lag er mjög sterkt.
Hér er svo myndband við upprunalega lagið, Shook Ones Part 2
Efnisflokkar:
Spurs
,
Svægi
,
Tónlistarhornið
Thursday, May 17, 2012
Rauði dregillinn: OKC-Lakers #2
Kevin Durant bauð upp á þennan hrylling. Enn í þessu hipster-rugli með gleraugun og ekki einu sinni maður með svægi eins og hann nær að bæta upp fyrir þá staðreynd að jakkafötin og bolurinn eru bara viðbjóður.
Vinur og liðsfélagi Durant - Serge Ibaka - er mjög öruggur með kynhneigð sína og bauð upp á man-bag eða karlaskjóðu. Nú erum við sem áður segir úr sveit og höfum ekki mikið tískuvit, en karlmenn eiga ekki að bera man-bag. Það er bara fáránlegt, ekki síst af manni sem ver sjö skot í leik eins og að drekka vatn.
Að lokum verðum við að taka Kobe Bryant með í þessari upptalningu. Hann var afleitur á lokakafla leiksins, en þó svægið hafi verið í lágmarki hjá honum inni á vellinum, var það manna mest utan hans. Hér sjáum við Kobe Bjóða upp á klassískan og einfaldan, en algjörlega skotheldan stíl. Gamli Reservoir Dogs gallinn klikkar aldrei og Mamban er hæfilega eitruð til að gefa honum trúverðugleika. Svona á að gera þetta krakkar. Tíu.
Efnisflokkar:
Fötin skapa manninn
,
Kevin Durant
,
Rauði dregillinn
,
Russell Westbrook
,
Serge Ibaka
,
Svægi
,
Tíska
Subscribe to:
Posts (Atom)





























