Showing posts with label Heilsa. Show all posts
Showing posts with label Heilsa. Show all posts
Saturday, April 14, 2012
Áætlun Stjörnumanna að ganga upp
Holdafar íþróttafréttamanna hefur oft verið vinsælt umræðuefni þegar fólk er að spjalla - t.d. á Twitter.
Á síðasta ári skrifuðum við smá pung til gamans þegar Stjörnumenn röðuðu upp þrekhjólum fyrir aftan bekkinn hjá sér.
Í framhaldinu settum við fram kenningu um að þetta væri ætlað til að koma fitubollunum í íþróttafréttunum í betra form í stað þess að bjóða þeim upp á bakkelsi, gos og gotterí.
Einmitt þess vegna urðum við bara að segja frá merkilegum hlut sem við urðum vitni að undir lok annars leiks Stjörnunnar og Grindavíkur.
Karfan með Prins Pólóinu var nánast full og leikurinn að verða búinn. Kaffið var drukkið en svo virðist sem sportpennarnir hafi nær allir neitað sér um súkkulaði á íþróttaviðburði. Það verður að teljast til tíðinda. Batnandi mönnum er best að lifa.
Saturday, January 28, 2012
Lifði langafi af leik með Orlando?
Þetta er baráttujaxlinn Jarrett Jack hjá New Orleans Hornets.Leysir það verkefni að vera arftaki Chris Paul í borginni þjáðu. Stendur sig nokkuð vel með 17 stig, 7 stoðsendingar og 4 fráköst.
Hefur verið varamaður lengst af á ferlinum og fer það betur en að vera í byrjunarliði.
Á myndinni er hann að knúsa langafa sinn Edward Thomas sem er ekki nema 102 ára gamall.
Ef gamli maðurinn lifði af að horfa á heilan leik með Orlando Magic í kvöld, má telja víst að hjartað í honum þoli að verða 130 ára.
Og með því að skrifa þessi síðustu orð, erum við að gæta þess að textinn flútti svona nokkurn veginn við myndina.
Annars er þetta svo ljótt.
Efnisflokkar:
Faðir Tími
,
Heilsa
,
Hornets
,
Sönn seigla
Monday, November 7, 2011
Stjörnumenn eru brautryðjendur
Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hefur nú stigið mikilvægt skref í átt að bættri umgjörð í íslensku íþróttalífi. Í stað þess að vera með kósí sæti, kók og sælgæti í blaðamannastúkunni, hefur deildin komið upp röð af þrekhjólum fyrir íþróttafréttamenn sem mæta í Ásgarðinn.
Það var líklega kominn tími til að einhver gerði eitthvað í þessu. Sportskríbentar þjóðarinnar eru fljótir að benda á það ef íþróttamennirnir eru ekki í ásættanlegu formi og því er ekki nema við hæfi að þeir reyni að skafa af sér mörinn sjálfir. Við hérna á NBA Ísland erum engin undantekning á þessu. Frábært framtak hjá Stjörnumönnum.
Efnisflokkar:
Aðstaða Blaðamanna
,
Heilsa
,
Stjarnan
Subscribe to:
Posts (Atom)

