Forkólfar NBA deildarinnar hafa um árabil stuðst við regluverk er miðar að því að halda einhvers konar jöfnuði í deildinni, svo minni klúbbarnir eigi möguleika á að ná árangri alveg eins og stórveldin.
Ekki eru allir sammála um ágæti þessa kommúnisma og reglufarganið sem fylgir nýjum kjarasamningum í NBA deildinni er nokkuð umdeilt. Þannig eru reglur um launastrúktúr og launaþak gjörólíkar því sem tíðkast í atvinnudeildum í flestum öðrum boltagreinum, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu.
En þessi pistill rúllaði ekki af stað af því okkur langaði svo mikið að fara að skoða katalóga og regluverk. Ef við hefðum gaman af því, hefðum við gerst lögfræðingar og ef við hefðum gerst lögfræðingar, væri ekki til neitt sem héti NBA Ísland af því þá værum við mjög líklega dauð inni í okkur.
Hugmyndin að þessum pistli fæddist þegar við heyrðum ónefnda fjölmiðlamenn ræða átakanlega dökka nánustu framtíð
Brooklyn Nets í hlaðvarpsþætti á dögunum.
Framtíð Nets er kolsvört, vegna þess að forráðamenn félagsins tóku þátt í stóru og miklu áhættuspili fyrir nokkrum árum og töpuðu mjög illa. Þeir standa nú uppi með mestmegnis gagnslausan mannskap og enga valrétti, en á sama tíma er framtíð félagsins sem átti við þá viðskipti - Boston Celtics - hin bjartasta.
Brooklyn er fast í skrúfstykki af eigin völdum langleiðina til 2020 og því sjá stuðningsmenn framtíðina fyrir sér eins og súludansmær í Norður-Kóreu - það er eitthvað lítið að fara að gerast þar á bæ.
En þessi pistill er heldur ekki um Brooklyn Nets, Guð forði okkur öllum. Hugmyndin sem vaknaði við þessa Brooklyn-pælingu var aftur á móti þessi: Hvað þarf að gerast svo félag í NBA deildinni geti ekki aðeins orðið samkeppnishæft, heldur unnið meistaratitil?
Og því meira sem við hugsuðum um það, því þunglyndari urðum við, því það liggur í augum uppi að það er nánast ekki séns í helvíti að vinna NBA meistaratitilinn. Trúið þið okkur ekki? Gott og vel, við skulum bara skoða gögnin sem liggja fyrir.
(Mynd: Bill Russell, ellefufaldur NBA meistari sem leikmaður og síðar spilandi þjálfari Boston Celtics og Red Auerbach, þjálfari Celtics, sem var sigursælasti þjálfari í sögu NBA deildarinnar með níu meistaratitla þangað til Phil Jackson sló honum við árið 2009).
Það eru undantekningar á öllum reglum auðvitað, en það sem þú þarft til að vinna meistaratitla í NBA deildinni er ekki bara frábærir körfuboltamenn. Þú þarft instant heiðurshallarmeðlimi, goðsagnir, helst bestu leikmenn sögunnar í einhverjum stöðum - og þú þarft fleiri en einn og stundum fleiri en tvo. Og þú þarft að vera með sögulega góðan þjálfara og staff, góða skrifstofu, nóg af metnaði og peningum - og síðast en ekki síst, þarftu að vera ógeðslega heppinn, lesandi góður.
Til að forðast það að þessi pistill verði þriggja vikna lestur og til að halda okkur sem næst nútímakörfuknattleik, skulum við kíkja á síðustu 25 ár eða þar um bil í deildinni og miða okkur við árið þegar Michael Jordan tók við lyklunum að NBA deildinni úr höndum Magic Johnson og Larry Bird - árið 1991.
Chicago Bulls lið 10. áratugarins ættu að vera mörgum sem lesa þetta vel kunnug, en þó allir titlarnir gefi það ef til vill til kynna að þetta lið hafi rokið beint á toppinn og verið þar í áratug, var þetta nú ekki alveg svona auðvelt hjá Jordan og félögum.
Fyrstu þrjú árin sem Bulls fór í úrslitakeppnina með Jordan, féll það út í fyrstu umferð (1985-87), þá annari (´88) og loks í úrslitum Austurdeildarinnar fyrir Detroit árin tvö sem Pistons vann titlana ´89 og ´90.
Árið 1991 var hinsvegar komið að Chicago og liðið átti eftir að vinna sex titla á árunum 1991-98.
Myndin hér til hægri er af fyrsta meistaraliði í sögu Chicago frá árinu 1991. Þetta lið lagði Magic Johnson og félaga í Lakers 4-1 í lokaúrslitum eftir að hafa lent undir 1-0 á heimavelli í einvíginu.
Þessi Chicago-lið, sérstaklega liðið sem vann seinni þrennuna af titlunum (´96-´98), er almennt álitið eitt besta lið allra tíma í NBA deildinni.
Bæði liðin áttu það sameiginlegt að vera þjálfuð af sigursælasta þjálfara allra tíma Phil Jackson og þá gegndi Scottie Pippen hlutverki Robins við hlið Leðurblökumannsins Michael Jordan, sem reyndar var oftar kallaður Ofurmennið (ekki var vitað til þess að Súpermann hefði verið með samkynhneigðan unglingspilt sem side-kick eins og Leðurblöku-pervertinn).
Síðari útgáfan af meistaraliði Chicago var með ljómandi góða aukaleikara og rulluspilara, sem sumir hverjir eru virtari í annálum deildarinnar en svo að þeir séu kallaðir rulluspilarar þar.
Dennis Rodman var t.d. rankaður tíundi besti kraftframherji sögunnar af ESPN á dögunum, en auk hans voru þarna menn eins og Tony Kukoc og Steve Kerr, sem í dag þjálfar Golden State Warriors.
Chicago hafði sem sagt á að skipa besta leikmanni heims á sínum tíma og líklega besta leikmanni allra tíma í
Michael Jordan, einum besta þjálfara allra tíma í Phil Jackson, öðrum leikmanni sem var einn af
50 bestu leikmönnum allra tíma sem kjörnir voru í tilefni hálfrar aldar afmæli NBA deildarinnar árið 1996 (Scottie Pippen).
Það var líka með tíunda besta kraftframherja sögunnar að mati ESPN (Rodman), einn besta evrópska leikmanni sögunnar í NBA deildinni (Kukoc) og góðum slatta af ljómandi góðum rulluspilurum sem keyptu plan þjálfarans.
Eins og titlarnir sex bera með sér, var þetta Chicago-lið ekkert slor og auk allra þessara hæfileikamanna, hafði það líka heppnina með sér, sem er alltaf mikilvægur þáttur í öllu meistarasamhengi eins og við erum alltaf að segja ykkur.
Þannig átti þetta Chicago-lið sér engan ákveðinn sögufrægan mótherja sem það þurfti að berjast við ár eftir ár eins og Celtics og Lakers lið þeirra Bird og Magic höfðu gert áratuginn á undan og ekki má gleyma meiðslunum.
Chicago slapp við öll stór meiðsli á þessum árum sem gerði því kleift að vinna titla. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvort Chicago hefði unnið t.d. Phoenix ´93 eða Utah bæði árin 1997 og 98 ef Michael Jordan hefði slitið krossbönd í annari umferð úrslitakeppninnar.

Liðið sem sópaði til sín titlunum tveimur sem í boði voru á milli-Jordans-árunum 1994 og 1995 (þegar Jordan tók þá yfirmáta fáránlegu ákvörðun að gerast atvinnumaður í boccia) var
Houston Rockets.
Fyrirliði og stórstjarna þessara Houston-liða var
Hakeem Olajuwon, einn besti miðherji í sögu NBA deildarinnar (5. besta miðherja sögunnar að mati ESPN í könnun sem birt var á dögunum).
Annað árið fékk hann til liðs við sig gamla liðsfélaga sinn úr háskóla
Clyde Drexler (5 besta skotbakverði sögunnar skv. sömu ESPN könnunar) og í kring um þá var langur listi frábærra rulluspilara.
Á meðal þeirra má nefna Kenny Smith (sjónvarpsmaður á TNT í dag), Robert Horry (sjöfaldur NBA meistari - meira um hann síðar), Vernon Maxwell, Otis Thorpe, Sam Cassell og fleiri góðir.
Þetta lið var svo þjálfað af mjög góðum þjálfara í Rudy Tomjanovich, sem einhverra hluta vegna er ekki kominn inn í Heiðurshöllina, en pólitíkin á bak við inngöngu í það batterí er ekki einföld.