Sunday, January 12, 2014

Hárið hans Kirilenko bregst aldrei



Taj sökkti Bismack





































Russ



Brandon Jennings missti nokkra körfubolta


Það gerist ekki oft að Brandon Jennings hjá Stimplunum í Detroit ákveði að gefa körfuboltann í stað þess að skjóta honum og hitta alls ekki ofan í körfuna. 

Eitt af þessum skiptum var reyndar í nótt - og þá dýrari týpan - því hann gaf körfuboltann átján sinnum á samherja sem skoraði körfu beint í framhaldinu. Eitthvað af þessu væntanlega verið óvart, eins og þessi glæfralega sending hjá honum hérna fyrir neðan. Hlýtur að hafa verið skot hjá honum.

Luol Deng spilar með öðru körfuboltaliði


Það er alltaf dálítið sérstakt þegar leikmenn sem spilað hafa fyrir sama félagið í áratug, skipta um búning. Þetta er Luol Deng að gera þessa dagana. Hann átti frábæran feril með Chicago Bulls og okkur grunar að stuðningsmenn Bulls séu ekkert allt of glaðir að sjá hann í þessum ógeðslega ljóta Cleveland-búningi. Þett´er spes.




Jú, nýtt hlaðvarp


















Viti menn, átjándi þáttur hlaðvarpsins góða er kominn í loftið. Baldur Beck leitaði á kunnuglegar slóðir og heyrði í Snorra Erni Arnaldssyni aðstoðarþjálfara Stjörnunnar. Saman fara þeir yfir stöðu mála í NBA deildinni og ræða meðal annars Öskubuskuævintýrið í Portland, möguleika Indiana í úrslitakeppninni og misjafnt gengi Úlfanna svo eitthvað sé nefnt.

Smelltu hérna til að fara inn á hlaðvarpssíðuna og nálgast konfektið.

Thursday, January 9, 2014

Nýtt hlaðvarp




















Nýtt hlaðvarp var að detta í loftið hjá okkur. Hér er um að ræða 17. þátt þar sem gesturinn er skotbakvörðurinn knái Kjartan Atli Kjartansson hjá Stjörnunni. Kjartan tilkynnti í gær að hann væri hættur að spila í úrvalsdeildinni og ætlar að einbeita sér að þjálfun í framtíðinni.

Baldur Beck ræddi við Kjartan (í einn og hálfan klukkutíma) um sigrana og töpin, meðspilara og andstæðinga, sterkustu liðin, ólíkar þjálfunaraðferðir, um uppgang körfuboltans í Garðabæ og viðureignir hans og viðhorf í garð Keflvíkinga. Kjartan hefur verið áberandi hjá Stjörnunni í mörg ár og spilaði með liðinu áður en það vann sér sæti í úrvalsdeildinni. Það er því engin tilviljun hve sterkar taugar hann ber til félagsins.

Undir borðanum efst á síðunni sem þú ert að lesa er hnappur sem á stendur "Hlaðvarp." Ef þú styður á hann, ferðu inn á samnefnda síðu og kemst í gotteríið. Ef þér er fyrirmunað að átta þig á því hvernig þú ferð inn á hlaðvarpssíðuna, er ekki annað í stöðunni en að smella hér og vona það besta. Góða skemmtun.


Wednesday, January 8, 2014

Meira af Dennis diplómat


Það er bara til eitt eintak af Dennis Rodman í heiminum. Kannski er það miður. Frákastakóngurinn heldur áfram að gefa vesturveldunum langt PR-nef með því að hanga með félögum sínum í Norður-Kóreu. Gríðarlega trendí.

Í myndbandinu hér að neðan má sjá hann bæði syngja afmælissönginn og komast við. Gaman að sjá að fyrrum Knicks-framherjinn Charles Smith ("Smith, stopped, Smith, stopped again!") var með í för.



Við ætlum ekki að greina þessa hluti á pólitískan hátt, af því stjórnmál eru okkur álíka ofarlega í huga og tilhugalíf sækembunnar á Galapagos-eyjum. Það er til fólk, svo eru til geimverur og svo Dennis Rodman.


Kevin Durant verður áfram að sætta sig við silfrið:


Einhverjir gáfumenn eru að hóta því að kjósa Kevin Durant verðmætasta leikmann NBA deildarinnar (MVP) í vetur. Sáum einhvern heiðursmanninn á ESPN skrifa um það í gær. Það er nú eflaust bara til að fá flettingar.

Ekki misskilja okkur, Kevin Durant er í gríðarlegu uppáhaldi hjá okkur og hefur alltaf verið. Hann er merkilegt nokk enn að bæta sig í fjölda tölfræðiþátta (t.d. fráköstum og stoðsendingum) og það er löngu orðið ljóst að pilturinn á fáa ef einhverja sína líka í sögu deildarinnar. Hann er það sérstakt eintak.

Ef þú ætlar hinsvegar að halda því fram að hann sé verðmætari (óþolandi hugtak) leikmaður en LeBron James, skaltu bara fara út og vera þar. 

James er algjörlega í deild út af fyrir sig og við skulum láta ykkur vita þegar það breytist eitthvað. Það verður ekkert á næstunni.

Aumingja Al

Útvarpsmaðurinn Scott Ferrell á CBS (hver í fjandanum sem hann er nú) komst að okkar mati mjög vel að orði í nótt þegar hann var að kryfja frammistöðu Kevin Durant á móti Utah Jazz.

Þar tekur hann dæmi sem við urðum reyndar einnig vitni að til að undirstrika yfirburði James:

"He (Kevin Durant) is with out a doubt, the second best player in the NBA. With that said, the gap between him and LeBron James was apparent tonight. 

When Al Jefferson was torching the Miami Heat last season, LeBron James switched his defensive assignment, and took Big Al out of the game competely. 

In the last 7 minutes of the game (tonight), Durant was no where to be seen guarding Hayward. With Durant's superior length and athleticism, he should relish the opportunity to shut down an opponent, and he was absent defensively. His greatness was on display, but lacked the extra push that King James seems to find when he needs it."

Þetta er engin lygi. Al Jefferson er einn af fáum mönnum sem geta spilað áhrifaríkan sóknarleik niðri á blokkinni. Eins og flestir vita er Miami liðið veikt fyrir í miðjunni og því voru jólin hjá Jefferson í fyrri hálfleik. Hann skoraði til að mynda 10 stig í fyrsta leikhlutanum.

Utah náði 21 stigs forystu á kafla í leiknum og þrátt fyrir að heimamenn hafi glutrað henni nánast alveg niður, náðu þeir að vinna góðan sigur á lúnum meisturunum þrátt fyrir allt.

Já, nei, vinur

LeBron James fór hamförum í sóknarleiknum og skoraði 32 stig (13-19 í skotum) en það var varnarleikurinn hans sem stóð upp úr í þessu tilviki.

Eric Spoelstra þjálfari Miami (eða þá LeBron James sjálfur - hver veit) ákvað í síðari hálfleiknum að Al Jefferson væri búinn að fá að leika sér nóg undir körfunni og fól James það verkefni að dekka hann.

Skemmst er frá því að segja að Jefferson snerti varla boltann í lokaleikhlutanum og eina framlag hans í sóknarleiknum var að setja niður fjögur vítaskot. James "frontaði" hann (límdi sig framan á Jefferson og hindraði sendingar til hans) og gjörsamlega pakkaði honum saman einn síns liðs.

Það eru ekki margir leikmenn í NBA deildinni sem geta skammlaust dekkað allt frá bakvörðum upp í kraftframherja (og jafnvel einstaka miðherja), hvort sem er á blokkinni eða opnum velli. Það er rosalega algengt að stórstjörnurnar í NBA deildinni séu ofmetnar á varnarhelmingi vallarins bara út á nafnið og lifi þá lengi á orðspori sínu í geiranum (sjá: Kobe Bryant).

Það er aftur á móti ekkert skrum að setja LeBron James í varnarúrval deildarinnar og hann kemur eflaust til með að fá slatta af atkvæðum sem varnarmaður ársins og verður þá vel að því kominn.

Þetta er Kevin Durant ekki farinn að gera enn sem komið er og það er að okkar mati ein helsta ástæðan fyrir því að James ber höfuð og herðar yfir aðra leikmenn í deildinni í dag (eins og síðustu ár). Eins og hefð gerir ráð fyrir (90%) verður það besti leikmaðurinn í sigursælasta liði vetrarins sem kjörinn verður mikilvægasti leikmaðurinn.

Tveggja manna mót

Útlit er fyrir að Miami, Indiana, Oklahoma og San Antonio berjist um besta vinningshlutfallið í vetur og því er mjög líklegt að MVP-inn komi úr röðum þessara liða.

Stjörnur San Antonio og Indiana eru ekki nógu afgerandi í sínum liðum þó frábærar séu. Þeir Tim Duncan, Tony Parker og Paul George hafa spilað eins og englar í vetur (auk manna eins og Steph Curry, LaMarcus Aldridge, Damian Lillard, Chris Paul og fleiri snillinga - sem allir fá hér sárabótaratkvæði).

Nei, það koma bara tveir menn til greina ef þetta á að vera alvöru - og í okkar bókum er svo hægt að stíga eitt skref til viðbótar og segja að það komi bara einn maður til greina í fullri alvöru. Nú má vel vera að einhver ykkar séuð með allt annan bókmenntasmekk en við, en þið verðið þá bara að eiga það við ykkur. 

Það breytir því ekkert að LeBron James er langbesti körfuboltamaður í heimi.

Já, vertu bara úti!

Josh Smith hefur ekki hugmynd um hvar Davíð keypti ölið - það var a.m.k. ekki í New York


Talsverðar vonir eru nú bundnar við Detroit Pistons. Þar á að vera efniviður til að gera eitthvað í framtíðinni og félagið ítrekaði metnað sinn með því að fá þá Brandon Jennings og Josh Smith til að spila með ungu mönnunum Andre Drummond og Greg Monroe.

Eins og þið vitið kannski, höfum við óhemju gaman af því þegar Josh Smith lætur reyna á stökkskotin sín utan af velli - ekki síst langskotin. Það er sýning. Smith er í raun og veru magnaður körfuboltamaður, en ákvarðanataka hans minnir á emúa á smjörsýru.

Hérna sjáum við Smith reyna að loka New York Knicks í nótt. Það á að rukka tvöfalt verð fyrir svona hágæðaskemmtun.

Lítið ástarbréf, merkt X, til Nick Collison







































Það hefur sennilega ekki farið framhjá ykkur hvað við erum hrifin af svari NBA deildarinnar við Darra Hilmarssyni - honum Nick Collison hjá Oklahoma City. Hann hefur verið hjá félaginu síðan það var í Seattle forðum líkt og Kevin Durant.

Collison treður ekki út tölfræðiskýrslur og ekki er hann að safna glansmyndum eða youtube-klippum.

Hann er bara reynslubolti, rulluspilari, varnarmaður, frákastari og hindranasetningamaður.

Veit hvar hann á að vera hverju sinni og skilar undantekningarlítið góðu verki.

Við höfum ekki tölu á leikjunum sem við höfum séð þar sem sóknarfráköst eða stolnir boltar frá Collison hafa ráðið miklu í úrslitum leikja, sem venjulega falla Oklahoma í hag.


Allir þjálfarar í heiminum vilja hafa mann eins og Collison í hópnum hjá sér. Það ber oft ekki mikið á honum, en hann er óhemju mikilvægur hlekkur í liðinu.

En hann er ekki bara mikilvægur á huglægan hátt. Tölfræðimolarnir segja okkur líka hvað hann gerir góða hluti.

Oklahoma skorar 113 stig í hverjum 100 sóknum þegar hann er inni á vellinum, en aðeins 104 þegar hann er utan vallar.

Þá fær liðið aðeins á sig 96 stig per 100 sóknir þegar hann er inná en 99 stig þegar hann situr á bekknum. Nokkuð afgerandi tölfræði.

Hérna fyrir neðan eru nokkur af verkefnunum sem fallið hafa í hendur Nick Collison á undanförnum árum. Þvílíkur munaður að vera með svona fagmenn í liðinu sínu. Nick Collison kann körfubolta og á skilið að fá Thule.

Nick Collison er okkar maður.




Tuesday, January 7, 2014

Tilþrif frá Clippers


Kannski ert þú þessi týpa sem nennir ekki að horfa á heilan leik. Mátt kannski ekki vera að því (eins asnalegt og það hljómar nú). Kíktu þá á þessa þriggja mínútna samantekt frá leik LA Clippers og Orlando Magic í gærkvöldi. Létt tilþrif og svona. Hver þarf Chris Paul til að setja á svið góða sýningu?

LOL



Banvæn blanda


Hvað er athugavert við þessa mynd?



























Jú, það sjá allir að það eru ekki nema tveir boltar á henni - allt of fáir til að þessi mannskapur geti spilað saman körfubolta. Eins og þið vitið þurftu þessir herramenn að spila með einn bolta og því gekk dæmið ekki upp hjá þeim.

Hugsið ykkur. Fólk hélt í raun og veru að þetta ætti eftir að virka!

Það er ekki í lagi.

DeMarcus Cousins brosti (staðfest)


Hverjum hefði dottið í hug að DeMarcus "Ég hata lífið" Cousins hjá Sacramento Kings hefði húmor? Ekki okkur. Máli okkar til stuðnings höfðum við ekki séð þennan unga milljónamæring brosa einu sinni. Kevin Johnson borgarstjóra og öðrum þátttakendum í myndbandinu hér fyrir neðan virðist þó hafa tekist að fá Cousins til að brosa, hlæja og gera að gamni sínu. Sannarlega ótrúlegt.


Þeir sem fylgst hafa með Cousins frá byrjun vita að það eina sem heldur aftur af honum eru viðhorf hans og hugarfar. Ef það væri í lagi, ætti drengurinn fast sæti í Stjörnuliði og ekki er ólíklegt að Sacramento myndi vinna aðeins fleiri leiki.

Hugarfarið er kannski ekki allt - auðvitað á drengurinn eitt og annað eftir ólært - en allir íþróttamenn geta farið fjandi langt á góðu hugarfari, það hefur sýnt sig. Og Cousins er mannleg andstæða góðs hugarfars. Bókstaflega. Við skulum vona að þetta eldist af honum og hann þroskist. Hann er bjánalega hæfileikaríkur, synd að það fari allt til spillis.

Monday, January 6, 2014

Nýtt hlaðvarp (16. þáttur)


Þessir tveir ungu herramenn eru á meðal þeirra sem rætt er um í 16. þætti hlaðvarpsins á NBA Ísland. Gestur í hljóðstofu að þessu sinni er Jón Björn Ólafsson, ristjóri karfan.is og fer hann yfir stöðu mála í Domino´s deild karla í körfubolta nú þegar styttist í að boltinn fari aftur af stað eftir jólafrí. Smelltu hér til að fara á hlaðvarpssíðuna góðu og heyra þetta.

Oakland-Sirkusinn í höfuðborginni


Það er alveg ógeðslega skemmtilegt að horfa á Golden State Warriors spila körfubolta. Ekki bara af því bakvarðaparið þeirra er eitt það skotvissasta í sögunni, heldur af því stóru mennirnir í liðinu eru líka afburðasendingamenn.

Hvað sem því líður, er óvíst að þeir Steph Curry og Andrew Bogut hafi ætlað að framkvæma þetta sirkusatriði sem þeir buðu upp á í Washington í nótt, en við fengum gæsahúð þegar við sáum það - ekki síst af því á þessum kafla var Golden State gjörsamlega að valta yfir Washington og klára leikinn. Þetta eru skemmtikraftar og snillingar.