Wednesday, June 18, 2014
Luke Bonner er Matt Bonner
Fagmaðurinn Matt Bonner var að vinna sinn annan titil með San Antonio Spurs á dögunum.
Bonner varð líka meistari með Spurs á fyrsta árinu sínu með félaginu árið 2007, en hann var áður á mála hjá Toronto Raptors.
Bonner var í liði Toronto daginn sem Kobe Bryant sallaði 81 stigi á Raptors í janúar árið 2006 og ef hann hefði verið óheppinn, hefði það kannski verið atriðið sem hann hefði verið frægastur fyrir á NBA ferlinum.
En þá kom San Antonio til sögunnar. Bonner er 33 ára gamall en hefur aldrei spilað 24 mínútur í leik í NBA. Hlutverk hans hjá liðinu hefur verið mjög misjafnt og hann hefur t.a.m. aldrei skorað minna að meðaltali í leik en hann gerði í vetur (3 stig).Bonner er samt alltaf klár í slaginn þegar kallið kemur og það er þess vegna sem Gregg Popovich kýs að hafa hann í liðinu sínu. Það þurfa allir að vera með menn eins og Bonner í hópnum.
Hann gengur ýmist undir gælunafninu Rauða eldflaugin eða Rauða Mamban, sem er bein vísun í Kobe Bryant (Svörtu mömbuna) og er með betri gælunöfnum í deildinni. Bonner hefur leitt NBA deildina í þriggja stiga nýtingu og hefur meira að segja náð öðru sæti í þriggja stiga keppninni um Stjörnuleikshelgina.
Bonner á lítinn bróðir sem heitir Luke Bonner og er þremur árum yngri. Það er kannski ekki sanngjarnt að kalla hann lítinn, enda er hann langt yfir tvo metra á hæð eins og bróðir hans.
Luke hefur ekki náð eins langt í boltanum og bróðir hans. Hann er búinn að spila í Evrópu sem atvinnumaður en hefur líka reynt fyrir sér hjá Austin Toros, D-deildarliðinu undir San Antonio Spurs.
Þegar Luke var spurður að því hvaða hlutverki hann gegndi í liði Toros, stóð ekki á svarinu.
"Ég er svona Matt Bonner-inn hjá Toros."
Þeir bræður eru duglegir við að láta gott af sér leiða og halda reglulega tónleika og körfuboltauppákomur til að safna fé til góðgerðarmála. Eru meira að segja með heimasíðu í kring um uppátækið sitt, sem kalla mætti Rokksjóðinn. Þú getur séð hana hér.
Efnisflokkar:
Fagmennska
,
Matt Bonner
,
Spurs
,
Vel Gert
Monday, June 16, 2014
Fimmti titillinn í hús hjá San Antonio Spurs
San Antonio er NBA meistari í fimmta skipti í sögu félagisns eftir öruggan 104-87 sigur á Miami Heat í Texas í nótt. Miami náði að klóra fram einn sigur í einvíginu, en San Antonio vann hina fjóra - alla með fimmtán stiga mun eða meira. Liðið setti fullt af metum í leiðinni, meðal annars yfir skotnýtingu í lokaúrslitaeinvígi og heildar stigamun.

Við höfum í sjálfu sér ekkert rosalega mikið að segja um þetta annað en að óska stuðningsmönnum Spurs á Íslandi til hamingju með titilinn.
Aðeins fyrsti titillinn í sögu félagsins (´99) á séns í að vera svipað sætur og þessi fyrir Spurs, en Tim Duncan sagði reyndar að þessi nýjasti væri sá sætasti af þeim öllum og þið vitið auðvitað að Tim Duncan segir aldrei ósatt.
Við sögðum flest það sem við höfðum að segja um Spurs í sexhundruð síðna og fimmtíu læka pistlinum í gær og litlu við það að bæta svo sem. Nú væri ráð að doka aðeins við og leyfa þessum tíðindum að taka sig áður en við pælum í framhaldinu.
Þú þekkir okkur illa ef þú heldur að við ætlum að sleppa því að dásama Spurs aðeins meira og drulla í leiðinni aðeins meira yfir Miami.

Sko, það er allt í lagi að Miami hafi tapað þessu einvígi - liðið var búið að fara í lokaúrslitin fjögur fjandans ár í röð og það er mjög vel gert.
Þó leið Miami í gegn um austrið hafi kannski ekki alltaf verið þyrnum stráð, verðum við að gefa LeBron og félögum það að þeir hafa alltaf veitt fulltrúum vestursins verðuga og öfluga keppni um titilinn.
Þangað til núna.
Hrakspár manna eins og Steve Kerr stóðu eins og stafur á bók. Lið sem fer svona djúpt í úrslitakeppninni fjögur ár í röð verður óhjákvæmilega orðið ansi lúið. Og bættu við það þeirri staðreynd að breiddin hjá Miami hefur oft verið það lítil að stjörnurnar - lykilmenn liðsins - hafa oftast þurft að spila óguðlega margar mínútur.
Þeir voru bara bensínlausir í þessu einvígi, leikmenn Miami. Þeir áttu séns þangað til skömmu eftir að flautað var til leiks í þriðja leiknum í einvíginu, en eftir það tók San Antonio þá á lærið, reif niður um þá og kaghýddi á þeim anusinn þar til fossblæddi úr öllu saman.

Við eigum enn eftir að mynda okkur skoðun á þessu. Eins og áður sagði, verða menn alltaf að leyfa rykinu að setjast aðeins eftir lokaleik vetrarins og hugleiða í smá stund áður en þeir byrja að skrifa um framhaldið hjá klúbbunum sem komust í úrslit. Þetta eru stundum ansi ólíkar pælingar eftir því hvort liðið á í hlut, jafnvel þó rimman hafi verið hnífjöfn eins og hún var í fyrra.
Án þess að fara dýpra í þessa hluti í bili, er ljóst að Miami þarf að gera einhverjar smá breytingar hjá sér ef það ætlar að vinna fleiri meistaratitla - sérstaklega ef meintar stórstjörnur eins og Dwyane Wade og Chris Bosh ákveða að eyða júnímánuði í að klóra sér í anusnum frekar en að spila heimsklassa körfubolta eins og í ár.
Við höfum miklu minni áhyggjur af meisturunum í San Antonio. Djöfull er skrítið að skrifa og segja aftur "meistarar San Antonio."Það er bara eitthvað svo eðlilegt og það er engin ástæða til að ætla annað en að þeir verði þarna á sama stað að ári - alveg grínlaust.
Félagið þarf að ganga frá samningi við Tim Duncan og gott ef ekki Boris Diaw í leiðinni (kannski Patty Mills) og þá er það good to go eins og við segjum.
Eins og þið vitið er lið Spurs búið að vera allra liða duglegast við að láta alla ritstórnina á NBA Ísland líta út eins og slefandi fávita hvað eftir annað með því að rísa upp frá dauðum ár eftir ár. Þessi meistaratitill núna er svo algjörlega rúsínan í þeim afturenda. Við erum fífl og höfum ekkert vit á körfubolta, en þið hafið nú öll áttað ykkur á því fyrir mörgum árum síðan.
Já, hugsið ykkur, pungurinn hann Tim Duncan er bara búinn að vinna fimm meistaratitla! Það er eins og ein dolla á hverja háskólagráðu hjá Georg Bjarnfreðarsyni ef þú ert að telja og jafn margir titlar og Kobe Bryant hefur í sínu safni.Duncan og Bryant eru enda sigursælustu stjörnur NBA deildarinnar á öldinni en næstu menn eru menn eins og Shaquille O´Neal (4) og Dwyane Wade með þrjár dollur. Það er talsverður munur.
Þá er körfuboltavertíðinni formlega lokið hvað spilamennsku varðar, en það er náttúrulega alltaf eitthvað að gerast í NBA og nú eru t.d. ekki nema um tíu dagar í nýliðavalið 2014.
Þið skulið ekki láta ykkur detta það í hug að við ætlum að leggja árar í bát hér á ritstjórninni þó boltinn sé hættur að skoppa í bili. Ekki aldeilis.
Við eigum eftir að gera nýafstaðna leiktíð upp í ræðu (hlaðvarpi) og riti og glíma við margvísleg verkefni sem okkur dettur í hug að taka upp. Það er sem sagt enginn að kveðja hér, þó búið sé að lyfta bikar í NBA deildinni.
Svona af því það er orðið mjög langt síðan síðast, langar okkur nú að að vekja aftur athygli á því að þau ykkar sem eruð ánægð með skrifin og hlaðvarpið í vetur, eigið möguleika á að styðja við bakið á ritstjórn NBA Ísland með frjálsum fjárframlögum ef þið eigið kost á því.
Síðast þegar við vældum í ykkur um stuðning, náðum við inn ágætis framlögum sem dugðu fyrir kaffi og klósettpappír. Þetta gerði bláfátæka ritstjórnina alveg óskaplega hamingjusama.Það eina sem þú þarft að gera ef þú vilt láta gott af þér leiða, er að smella á gula hnappinn á hægri spássíu síðunnar sem á stendur "Þitt Framlag."
Þaðan er þér vippað í samband við paypal-þjónustuna og þar getur þú valið að styrkja NBA Ísland um upphæð sem hentar þér.
Ef einhver ykkar hafa hug á að koma til móts við okkur en ráðið ekki við paypal-batteríið, getið prófað að hafa samband við okkur á nbaisland@gmail.com og finna farsæla lausn á málinu.
Okkur þætti afar vænt um ef einhver ykkar væru aflögufær og langaði að bakka okkur upp. Svo er það nú auðvitað þannig að það er opið fyrir það ef einhver fyrirtæki þarna úti hafa hug á að fara í auglýsingasamvinnu við okkur. Þá er bara að senda póst á nbaisland@gmail.com.
Að lokum er svo rétt að þakka þeim ykkar sem hafa verið svo hugguleg að senda okkur fallega tölvupósta. Það þarf ekki að taka það fram að við á ritstjórninni verðum ekki bara hamingjusöm við að sjá peninga, við höfum líka óstjórnlega gaman af því þegar fólk segir fallega hluti um okkur.
Því skulið þið ekki hika við að hafa samband ef ykkur liggur eitthvað á hjarta, hvað sem það nú er.
Leikurinn er fallegur og lífið eftir því.
Ristjórn NBA Ísland
Efnisflokkar:
Goðsagnir
,
Lokaúrslit
,
Metabækurnar
,
Sigurgöngur
,
Sigurvegarar
,
Sögubækur
,
Spurs
,
Tim Duncan
,
Titlar
,
Úrslitakeppni 2014
,
Velgengni
Duncan þokast upp dollulistann
Efnisflokkar:
Goðsagnir
,
Sigurvegarar
,
Tim Duncan
,
Úrslitakeppni 2014
,
Verðlaun og viðurkenningar
Ok, bara eitt albúm í viðbót...
Efnisflokkar:
Heat
,
Lokaúrslit
,
Myndir
,
Spurs
,
Titlar
,
Úrslitakeppni 2014
Fleiri myndir frá úrslitaeinvíginu
Efnisflokkar:
Heat
,
Lokaúrslit
,
Myndir
,
Spurs
,
Úrslitakeppni 2014
Manu stökk út úr tímavélinni - Bosh á youtube
Efnisflokkar:
Andlitsmeðferð
,
Chris Bosh
,
Lokaúrslit
,
Manu Ginobili
,
Spurs
,
Úrslitakeppni 2014
San Antonio meistari 2014 - Myndasafn
Efnisflokkar:
Lokaúrslit
,
Myndir
,
Spurs
,
Titlar
,
Úrslitakeppni 2014
Dirk-lol
Efnisflokkar:
Dirk Nowitzki
,
Lokaúrslit
,
MAFS
,
Sjoppan
,
Stolið efni
,
Úrslitakeppni 2014
Sunday, June 15, 2014
Ætlar Miami í sumarfrí í nótt?
Með fullri virðingu fyrir frábæru liði San Antonio, erum við að verða vitni að því að spár manna eins og Steve Kerr eru að verða að veruleika. Meistarar Miami eru einfaldlega bensínlausir.
Efnisflokkar:
Á ögurstundu
,
Dwyane Wade
,
Heat
,
LeBron James
,
Lokaúrslit
,
Neyðarkarlar
,
Spurs
,
Úrslitakeppni 2014
NBA Ísland reynir að útskýra velgengni Spurs
San Antonio er hársbreidd frá því að lengja afrekaskrá sína enn frekar. Það er ekki of djúpt í árina tekið þó við segjum að nánast allt við þessa leiktíð hjá félaginu er með hreinum ólíkindum.
Ef Spurs tekst að vinna fimmta titilinn í sögu félagsins á næstu dögum, skrifast nýr kafli í velgengniannála félags sem er búið að gleyma því hvernig tilfinning það er að komast ekki í úrslitakeppni - kann varla að tapa.
Það eina sem okkur dettur í hug til að bera saman við þetta velmegunartímabil hjá Spurs er sigurganga Sir Alex Ferguson hjá Manchester United og svo mulningsvél Boston Celtics á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar.
Efnisflokkar:
Gregg Popovich
,
Lokaúrslit
,
Manu Ginobili
,
Metabækurnar
,
Sigurgöngur
,
Sögubækur
,
Spurs
,
Svartidauði
,
Tim Duncan
,
Titlar
,
Tony Parker
,
Úrslitakeppni 2014
,
Velgengni
Saturday, June 14, 2014
Thursday, June 12, 2014
Og þá kom Barkley
Charles Barkley er einn af þeim frábæru leikmönnum sem teknir voru í nýliðavalinu fræga í NBA árið 1984. Hans er því auðvitað getið í heimildamyndinni sem gerð var um þetta sögulega nýliðaval og frumsýnd var á dögunum. Barkley var sannarlega ekki lengi að koma sér á kortið ef svo má segja.
Það var Philadelphia sem landaði Barkley með fimmta valrétti í fyrstu umferð, en öfugt við sum af liðunum sem áttu fyrstu valréttina, var Philadelphia með sterkt lið fyrir. Það vann meira að segja titilinn leiktíðina 1982-83. Það voru því engir skussar sem spiluðu með Sixers í þá daga, þarna voru menn eins og Julius Erving, Moses Malone, Andrew Toney og Maurice Cheeks.
Efnisflokkar:
Charles Barkley
,
Fráköst
,
Fyrirbæri
,
Goðsagnir
,
Hrikalegheit
,
NBA 101
,
Nýliðar
,
Nýliðavalið
,
Sixers
Mátt alveg reyna að fokka eitthvað í þessu
Efnisflokkar:
Fokkar ekkert í þessu
,
Hörkutól
,
Reimarnar út
,
Spurs
,
Þett´ er búið!
Wednesday, June 11, 2014
San Antonio valtaði yfir meistarana
Þetta var meira ruglið! Já, það er ekki hægt að kalla þetta annað en rugl, stuðið sem San Antonio datt í í nótt þegar það rótburstaði Miami 111-92 á heimavelli meistaranna og náði þar með 2-1 forystu í lokaúrslitaeinvígi NBA deildarinnar. Ef einhver var að spá blæstri í þessum leik, hefði hann væntanlega sett peninginn á heimamenn. Það fór hinsvegar enginn heim með bol eftir þetta kaos.
Leikmenn San Antonio mættu grjótharðir og tilbúnir í þennan leik - ekki Miami. Hver í fjandanum ætli sé svo tilbúinn í að fá yfir sig svona skothríð eins og Spurs var að bjóða upp á í nótt? Haldið þið að það sé bara fullkomlega eðlilegt að slá met með því að skjóta 76% og klikka alls á átta skotum í einum hálfleik? Ekki við heldur.
Þetta var fyrsta tap Miami á heimavelli í úrslitakeppninni og það var ekkert meðalmennskutap, heldur karlmannlegt og íturvaxið skít-tap, þökk sé Spurs-vélinni, Svarta-Dauða.Við bjuggumst við ýmsu í þessu einvígi, öllum fjandanum, satt best að segja. En ekki svona sveiflum. Það er með ólíkindum hvernig þessi lið eru búin að skiptast á því að berja tennurnar úr hvort öðru með skiptilykli og fylla upp í sárin með ákavíti, aromati og ufsalýsi.
Það þýðir ekkert að spila svona vörn ef vinna á titil. Þetta vita allir lykilmenn Miami. Sóknarleikur Spurs verður heldur ekki svona fullkominn aftur, það eru lottólíkur á því. Við höfum faktískt ekki mikið um þennan leik að segja, hann var svo mikið rugl. Það sem er magnaðast við þennan stórsigur Spurs er hvað aukaleikararnir stóðu sig frábærlega.

Ekki gleyma því að Miami gerir bara það sem það þarf að gera. Þess vegna var það dálítið dæmigert fyrir meistarana að drulla á sig í þessum leik, þegar þeir voru nýbúnir að stela heimavallarréttinum.
Á fimmtudagskvöldið kemur svo í ljós hvort Miami lagar þetta eða tapar tveimur leikjum í röð í úrslitakeppni í fyrsta sinn síðan í byrjun júní árið 2012, þegar það tapaði þremur í röð gegn Boston.
Hann Kawhi Leonard var að sjálfssögðu maður leiksins með 29 stigin sín, varnarleikinn og fáránlega skotnýtinguna.
Leonard er aðeins þriðji 22 ára guttinn sem skorar svo mikið í leik í lokaúrslitum síðan þriggja stiga línan var tekin upp í NBA fyrir 35 árum síðan. Margir eru á því að framherjinn ungi eigi eftir að verða stórstjarna í NBA, en við eigum eftir að sjá það. Hann er rosalega góður til síns brúks, en ekkert meira en það. Svona dálítið eins og Andre Iguodala og Shawn Marion.
Nú vinnur Miami fjórða leikinn og þá verður eftirleikurinn óhemju spennandi. Við getum hreinlega ekki beðið.
Efnisflokkar:
Blástur
,
Drullan upp á herðar
,
Heat
,
Kawhi Leonard
,
Lokaúrslit
,
Netbrennur
,
Spurs
,
Úrslitakeppni 2014
Tuesday, June 10, 2014
Fisher í Eplið
Efnisflokkar:
Blökkumaður fær borgað
,
Derek Fisher
,
Frumraunir/frumsýningar
,
Gaukshreiðrið
,
It´s faaantastic
,
Knicks
,
MAFS
,
Mennt er máttur
,
Skórnir á hilluna
,
Þetta verður vont á morgun
,
Þjálfaramál
Jafnt hjá San Antonio og Miami
San Antonio er tæknilega með betra lið en Miami, en Flórídaliðið er með LeBron James í sínum röðum. Heimamenn í San Antonio virkuðu betri í öðrum leiknum þangað til James hugsaði með sér að nú væri líklega best að jafna bara einvígið og fara heim með stöðuna 1-1.
San Antonio var búið að vinna átta heimaleiki í röð í úrslitakeppninni og engan þeirra með minna en 15 stiga mun, sem var NBA met.
James skoraði 35 stig, þar af 33 á síðustu 36 mínútunum, þegar Miami lagði San Antonio 98-96 á sunnudaginn og jafnaði metin í einvíginu. LeBron hitti úr 14 af 22 skotum sínum í leiknum, sem er um 64% nýting. Shaquille O´Neal er eini maðurinn í sögu NBA sem hefur skorað svona mörg stig með 64%+ skotnýtingu, en við depluðum ekki auga yfir þessu.Þetta var ósköp venjulegur leikur hjá James. O.k. kannski aðeins betri en venjulegur, en samt eitthvað svo áreynslulaus. Svona er James búinn að stilla stöngina hátt. Hann á hvern stórleikinn á fætur öðrum, en við tökum varla eftir því.
Eins og svo oft áður byrjar hann á því að leggja á borð fyrir félaga sína og hefur frekar hægt um sig þegar kemur að því að skjóta á körfuna. Hann skoraði aðeins tvö stig í fyrsta leikhluta, þar sem hann skaut 1-4 og gott ef þetta var ekki lægsta samanlagða stigaskor þeirra James og Wade í 1. leikhluta síðan sá fyrrnefndi gekk í raðir Miami.
Frá og með öðrum leikhluta - og sérstaklega í þeim þriðja - hitti James úr 11 af næstu 13 skotum sínum, aðallega af því hann réðist á körfuna við hvert einasta tækifæri sem gafst. Þið eruð öll búin að átta ykkur á því hvað gerist þegar James er í árásarham í kring um körfuna og eins og til að bæta gráu ofan á svart fyrir Spurs, var hann sjóðandi heitur fyrir utan líka eftir því sem leið á leikinn.
Þú getur voðalega lítið gert að því, af því það er illa séð að nota handsprengjur og/eða Volvo Laplander á körfuboltavöllum. Þetta eru í fljótu bragði einu verkfærin sem okkur dettur í hug að gætu stjakað LeBron James út af sporinu þegar hann er í þessum ham.Og á hinum enda vallarins sá James oft um að gæta Tony Parker, sem er verkefni sem fáir ráða við. Þessi skák Miami-manna gekk vel upp og hæðin og lengdin á James truflaði Parker mikið. Það mætti halda að LeBron James væri góður í körfubolta.
San Antonio líður best varnarlega þegar það getur haft bæði Tim Duncan og Tiago Splitter inná í einu, en minniboltatilburðir Miami og ógn fyrir utan gera það að verkum að það er ekki alltaf hægt.
Rétt eins og í fyrra, hefur þessi barátta mikið að segja um niðurstöðuna í einvíginu. Það vakti athygli okkar hvað veðbankar virkuðu ákveðnir í því að San Antonio ætti eftir að vinna þetta einvígi áður en það hófst.
- Skipti heimavöllurinn þá svona miklu máli?
- Var San Antonio búið að spila svona vel?
- Eða var Miami svona lélegt?
Ekki gott að segja.
En það sem við vitum, er að Miami er búið að spila 46 leiki í röð í úrslitakeppni án þess að tapa tveimur leikjum í röð. Það segir sína sögu um styrk og velgengni Miami. Líka skondið að þetta er í þriðja skiptið í röð sem Miami tapar opnunarleiknum í lokaúrslitunum.
Þessi rimma verður rosaleg.
Efnisflokkar:
Heat
,
LeBron James
,
Lokaúrslit
,
Spurs
,
Stórustrákabuxurnar
,
Úrslitakeppni 2014
Subscribe to:
Posts (Atom)























