Wednesday, December 15, 2010

Jerseylicious


Í gær urðu félagaskipti í NBA deildinni. Ekkert sem vert er að tala um, þannig, en þó er ljóst að Sasha Vujacic hjá LA Lakers mun vera á leið til liðs við New Jersey Nets.

Út frá körfuboltalegu sjónarmiði er það ekki svo merkilegt, en utan vallar hafa verið stórmerkilegir hlutir í gangi hjá Nets undanfarið. Það er engu líkara en meirihlutaeigandinn Prokhorov hafi ákveðið að lappa upp á lúkkið á félaginu úr því honum tókst ekki að styrkja liðið með stórstjörnum í sumar sem leið.

Það er því ekki eintómt þunglyndi að fylgjast með Nets þessa dagana. Þú sérð ekki svona huggulegt föruneyti kvenna með leikmönnum Stoke City eða Wigan.