Tuesday, March 15, 2011
New Jersey Nets er að spila körfubolta
New Jersey er aðeins að taka við sér og eftir að hafa lagt Boston í nótt hefur liðið unnið fimm leiki í röð í fyrsta sinn í þrjú ár. Ekki annað hægt en eyrnamerkja Deron Williams megnið af þessari velgengni. Ekki verra að hafa leikstjórnanda sem veit hvað hann er að gera.
Á sama tíma er gamla liðið hans Williams í frjálsu falli. Utah var reyndar byrjað að skíta á sig nokkru áður en Williams fór, en þar á bæ þarf að taka hressilega til. Það er ósanngjarnt að dæma Tyrone Corbin sem þjálfara út frá örfáum leikjum þar sem hann er með mikið breytt lið sem stendur þar að auki í meiðslum. En hann er ekki að sýna að hann sé með þetta. Liðið er gjörsamlega andlaust.
Gaman að sjá að Denver er 8-2 síðan það skipti Carmelo Anthony til New York á meðan Knicks er að spila 50% bolta. Það er líka of snemmt að dæma um þetta, en stuðningsmenn Denver eru eflaust yfir sig ánægðir með stöðu mála í dag.
Monday, March 14, 2011
Sunday, March 13, 2011
Förum endilega í sund - í fötunum
Þessi mynd er af Twitternum hans Steve Nash. Hann má eiga það að þessi mynd er alveg þræleðlileg. Hvað er gaurinn að gera prúðbúinn úti í miðri sundlaug? Var það Gortat sem átti hugmyndina? Steve Nash er skemmtilegur náungi. Svo mikið er víst.
20 ár
Fáránlegt til þess að hugsa að í sumar séu 20 ár síðan Chicago Bulls vann fyrsta meistaratitilinn sinn af sex.
Í nótt var smá athöfn í Chicago þar sem nokkrar af helstu hetjunum úr ´91 liðinu voru heiðraðar og horfðu svo á efnilegt lið Chicago slátra Utah.
Umrætt lið vann 4-1 sigur á LA Lakers í úrslitunum á sínum tíma eftir að hafa tapað fyrsta leiknum á heimavelli.
Getur verið að séu að verða tuttugu ár síðan?
Michael Jordan hafði orð á því að Chicago-liðið í dag hefði alla burði til að vinna meistaratitla og þar hefur hann rétt fyrir sér.
Saturday, March 12, 2011
Kobe Bryant æfði sig í körfubolta
Kobe Bryant tók það nærri sér að hafa tapað fyrir liði eins og Miami.Ákvað að æfa sig í körfubolta eftir leikinn.
Það vakti athygli.
Þú manst hvað auglýsingin sagði.
"Ef þú vilt verða góður í körfubolta.... æfðu þig."
Auðvitað hlaut að koma að því að Miami næði að klára leik.
Breytir því ekki að liðið er talsvert undir pari miðað við væntingarnar í haust.
Ætli Heat nái ekki álíka langt og San Antonio í vor.
Thursday, March 10, 2011
Mullin Mars
Hann er að ríghalda sér karlinn, ekki síst miðað við aldur og fyrri störf. Chris Mullin er sönnun þess að það er hægt að bjóða upp á sömu hárgreiðsluna í aldarfjórðung. Eina sem þarf að gera er að skiptast á að raka og safna mullet-inu annað slagið. Þessi dægrin er hann snöggklipptur og rakaður - mullet-laus. Samkvæmt lauslegum útreikningum okkar og trendum í tískunni, gæti farið að koma að því að Mullin fari að bjóða upp á mullet-ið á ný. Það yrði goðsagnarkennt. Við elskum þig, Chris.
Wednesday, March 9, 2011
Subscribe to:
Posts (Atom)

















