Sunday, January 8, 2012

Chuck í SNL





Vince er ekki alveg dauður


Freisting heilags Antons


Lengdin á Kevin Durant minnir okkur alltaf á myndræna túlkun Salvador Dali á Freistingu heilags Antons. Dali hefði eflaust haft gaman af því að mála Durant, en hann var reyndar ekki nema eins árs þegar spænski listamaðurinn lést.

Faðir tími


Saturday, January 7, 2012

Fjölskyldubragur


Þroskaðir NBA áhugamenn vona eflaust vel eftir honum Mychal Thompson sem var í frábæru liði LA Lakers á níunda áratugnum.

Thompson kom til Lakers árið 1987 í skiptum fyrir m.a. Pétur Guðmundsson og átti eftir að nýtast liðinu vel, þó ekki færi mikið fyrir honum.

Hann vinnur nú meðal annars við það að lýsa leikjum LA Lakers.

Thompson var valinn númer eitt í nýliðavalinu árið 1978 og var á sínum tíma einn fjögurra leikmanna hjá Lakers sem teknir höfðu verið númer eitt. Hinir voru Magic Johnson, James Worthy og Kareem Abdul Jabbar.

Tíminn er fljótur að líða og nú eru tveir af þremur sonum Thompson farnir að spila í NBA deildinni. Klay leikur með Golden State Warriors og Mychel er við það að tryggja sér sæti í hópnum hjá Cleveland, þar sem hann leikur undir stjórn fyrrum félaga föður síns hjá Lakers - Byron Scott.

Jamal Mashburn er jötuninn ógurlegi


Jamal Mashburn var aldrei nein rengla, en það er engu líkara en hann hafi sjálfur málað á sig vöðvana þegar verið var að hanna körfuboltaspjöldin hans. Við minnumst þess ekki að hafa séð Mashburn sýna tilburði sem gætu orðið kveikjan að þessu Hulk-listaverki hér fyrir neðan.



Kínverski Blake Griffin


NBA Ísland er næstum því í Orlando


Hann Kristinn Geir er í Amway Center núna að gera sig kláran í Orlando-Chicago klukkan eitt.
Þetta er kallað að representa. Vel gert, Kiddi. Vel gert.


Friday, January 6, 2012

Tvífarar dagsins


Það er svipur með þeim Patrick Ewing og apa François de Loys, þú getur ekki neitað því. 
Þetta er ekki rasismi, bara lélegur húmor. Gerðu það, taktu þessu þannig.


Sumar myndir eru bara svo skemmtilegar






Barkley í beinni


Charles Barkley er ekki vanur að sitja á skoðunum sínum, ekki síst þegar hann heldur að hann sé ekki í loftinu. Hér viðrar hann skoðanir sínar á megrunarkúrum og Atlanta Hawks meðan TNT sjónvarpsstöðin gerði auglýsingahlé. Þeir sem voru að horfa á NBA League Pass fengu því þennan óvænta bónus í beinni.

Thursday, January 5, 2012

Hvíti maðurinn gerir sig gildandi


Nýliðinn Chandler Parsons hjá Houston Rockets er bjartsýnn og fjörugur strákur. Með því að hagræða sannleikanum örlítið má segja að hann geri sér lítið fyrir og troði hér yfir sjálfan Blake Griffin. Lét ekki þar við sitja, heldur lét stjörnutroðarann vita af því og hló svo að öllu saman. Það er oft gaman í lífinu.

Moli um Melo


Fyrstu stig Kenneth Faried í NBA...


... voru af dýrari gerðinni. Fernandez leggur þetta afar huggulega upp allt saman.

Þú veist að liðið þitt er rusl þegar...


Tuesday, January 3, 2012

Þegar Jerry hitti Ofurmennið


Annar gaurinn í þessari auglýsingu lamdi hinn þegar tökum var lokið.
Sá sem reykti tvo pakka á dag, vann. Og gettu nú.

Flott byrjun hjá pilti


Sunday, January 1, 2012