Monday, April 4, 2011

Þetta er alveg eðlilegt


Oddaleikur á fimmtudaginn


Þú manst líklega eftir hinum kaldrifjaða og morðóða Anton Chigurh sem leikinn var af Javier Bardem í kvikmyndinni No Country for Old Men. Rosalegt illmenni. Samviskulaus, myndi einhver segja.

Hann er eins og hvít páskakanína við hliðina á Magga Gunn þegar kemur að samviskuleysi (í skotum).

Já við fáum oddaleik í einvígi KR og Keflavíkur. Þvílík himnasending sem það er. Þetta er búin að vera stórkostleg sería og hætt við að verði mjög heitt í kolunum í DHL höllinni á fimmtudaginn.

Allt of langt í leikinn samt. Leikmenn missa taktinn. Og hvað á að segja um Stjörnustráka? Á bara að senda þá til Múrmansk í dítox á meðan verið er að klára undanúrslitin?

Engir NBA leikir í kvöld út af þessu #Whatever


Delonte fær þrjú stig fyrir að gefa körfubolta


Saturday, April 2, 2011

Sælar stelpur, Eddy Curry hérna


Bolir vikunnar


Nú er hægt að spila körfubolta sofandi


Hér fyrir neðan sérðu myndbandsstúf sem sannar tvennt.

A: Að það eru of margir leikir í deildakeppninni í NBA (þó við séum ekki að kvarta).
B: Að það er tímabært að leggja Minnesota Timberwolves niður og gera bílastæði úr heimavellinum.

Like a Bosh





































John Stockton er hræddur við hana og þú líka




Brilli drillar og jafnar (via Leikbrot)


Andray Blatche hjá Wizards náði metfjölda lausra körfubolta í námunda við körfu andstæðinga sinna


Hann Andray Blatche bilaðist eitthvað í kvöld. Jafnaði eigið stigamet með 36 stigum og átti einnig sitt besta kvöld í fráköstum með því að rífa niður 19.

Það í sjálfu sér er fínt, en það ótrúlega er að sextán þeirra voru í sókninni.

Sextán!

Það er félagsmet og líklega óvæntasta tölfræðiframlag vetrarins. Og þá er þrennan hans Chuck Hayes um daginn tekin með.

Sjáum að Kevin Love er þarna með Blatche á myndinni. 30/30 leikurinn hans var auðvitað rugl, en honum var trúandi til þess.

Blatche?

Ekki svo mikið.

La Noche del 10




Marcus Walker í 40 year old virgin (via @flickmylife)





Gefum Dennis orðið


Tían á leið upp í rjáfur í Detroit



















Talandi um 1. apríl. Hversu vel er það við hæfi að Detroit Pistons hengi treyju þessa snillings upp í rjáfur einmitt á þessum degi. Lifi Dennis Rodman. Það var kominn tími til að hengja tíuna þarna upp.

Friday, April 1, 2011

Aprílgabb á körfuboltavelli


Rétt eins og til að halda upp á daginn var þriðji leikur KR og Keflavíkur í undanúrslitunum í kvöld ekkert annað en lygilegur.

Það eru forréttindi að fá að horfa á svona leiki. Stemmarinn í DHL höllinni var eins góður og hann verður. Húsið var nánast troðfullt og hávaðinn meiri en við höfum nokkru sinni upplifað í þessu húsi.

Þetta var algjör hágæðaskemmtun frá a til ö. Sveiflur og drama og framlenging. Allt eins og það á að vera í úrslitakeppninni. KR og Kef hata nú ekki dramað eins og þið vitið.

Við verðum að hrósa Keflavík fyrir frammistöðuna í kvöld. Einhver lið hefðu bugast og lagst grátandi í gólfið, en Keflvíkingar sýndu stolt og geta nú gert seríu úr þessu með því að verja heimavöll sinn í næsta leik.

Allir sem hafa áhuga á körfubolta á Íslandi annað hvort mættu í höllina eða horfðu á leikinn á Sportinu. Þið sáuð þetta.

Það er svo rosalega gaman að horfa á svona leiki. Úrslitakeppnin er allt of stutt. Það eru leikir eins og þessi sem fá menn til að nenna að svitna í þessu allan ársins hring. Frábært að fá að minnsta kosti einn leik í viðbót í þessari seríu.

Þessi bleiknefji er 1. apríl


Mullin Mars Finale