Joel Przybilla, miðherji Portland Trailblazers, er kallaður
"The Vanilla Gorilla" og er þar á ferðinni eitt besta gælunafnið í NBA deildinni. Charles Barkley notaði það síðast í útsendingu í nótt.
Einnig er til kvikmynd með sama nafni. Hún fjallar um samband lítillar stúlku og albínóagórillu sem heitir Gógó. Þær tala saman á táknmáli. Við lofum að láta ykkur vita um leið og við sjáum fram á að það skipti einhverju máli í þessari bloggfærslu. Ef til vill áður en Þjóðverjarnir koma.