Fórum í Grafarvoginn í gær og kíktum á Fjölnir-Grindavík. Gátum ekki annað en farið í Dalhúsin til að horfa á Geitunginn spila. Sáum hann skora eina rosalega körfu sem ætti með öllu að vera á Youtube núna. Skorum á Fjölnismenn að koma þessu á netið.
Fjölnir var með leikinn í hendi sér í fyrri hálfleik en svo fóru skotin að detta hjá Grindavík í þeim síðari og þá var þetta búið. Grindavíkurliðið var alls ekki sannfærandi 80% af þessum leik. Það verður bara að viðurkennast. Við höfðum ekki séð Ryan Pettinella spila fyrr en í þessum leik. Sóknartilburðir hans minntu okkur óneitanlega á Eðvarð nokkurn 209. (Athugið - Ekki ætlað börnum)