Thursday, December 9, 2010
San Antonio spilar körfubolta undir radarnum
Sjáðu bara San Antonio Spurs. Liðið byrjar 18-3 og er það besta byrjun í sögu félagsins.
Saga félagsins er nú dálítið merkileg af því hún inniheldur fjóra meistaratitla á síðasta rúma áratug og það segir okkur að það að byrja 18-3 eigi að vera ansi merkilegt.
Samt er enginn að dansa stríðsdans. Sannarlega gerir það enginn hjá Spurs, en það sem er merkilegra er að meira að segja skrumi drifnir fjölmiðlarnir nenna ekki að reyna að vekja athygli á sigurgöngu Spurs.
Þeir hafa gert þetta allt áður, Spurs.
Það er nú reyndar ekki hægt annað en taka ofan fyrir Pop þjálfara, sem er að breyta algjörlega um áherslur í sóknarleiknum til að ná að maxa liðið sem hann er með í höndunum. Gömlu, þreyttu og leiðinlegu Spurs eru farnir að keyra upp hraðann og skora 120 stig. Það er af sem áður var.
Ef eitthvað annað lið í deildinni hefði byrjað 18-3, sama hvort það hefði verið Lakers, Miami eða Minnesota, væru fjölmiðlar að fara hamförum núna. En menn kæra sig kollótta um San Antonio. Það gerum við raunar líka. Ekki gleyma því að við afskrifuðum Spurs í fyrravetur.
Gaman samt að sjá hvernig enginn þorir enn að veðja á móti Spurs og það er enn hellingur af fólki sem segir að Spurs sé eina liðið sem geti veitt Lakers einhverja raunhæfa mótspyrnu í vestrinu.
Segðu hvað sem þú vilt um Spurs. Það getur vel verið að þú sért orðinn hundleiður á þeim, en við eigum eftir að sakna þessa frábæra liðs þegar tími þess verður liðinn. Óvíst að við sjáum annað svipað í bráð. Eða nokkru sinni.