Sunday, December 12, 2010

Já, Sasha, skömmu áður en Þjóðverjarnir koma


Elie Seckbach er fjölmiðlamaður og ólíkindatól hið mesta. Fær að valsa um búningsklefa í NBA með myndavélina sína meira en nokkur annar. Virkar með svipaða greindarvísitölu og brunahani, en hefur húmor og er ekki allur þar sem hann er séður.

Við höfðum mjög gaman af þessu myndbroti hérna fyrir neðan, þar sem kappinn m.a. biður kærustu sinnar í gegn um síma og spyr Sasha Vujacic mjög vandræðalegra spurninga. Við erum í framhaldi af því með skilaboð til Vujacic.

Sasha, viðurkenndu bara að konan þín (Maria "Ég er ekkert með svo hræðilegan smekk á karlmönnum" Sharapova) eigi 500 sinnum fleiri aðdáendur en þú - díses!