Thursday, May 23, 2013
Sigurkarfa LeBron James í draugsýn
Efnisflokkar:
Á flautunni
,
Draugsýn
,
LeBron James
,
Úrslitakeppni 2013
Wednesday, May 22, 2013
Aldarfjórðungur frá skotsýningu Wilkins og Bird
Í dag er nákvæmlega aldarfjórðungur liðinn frá því Larry Bird hjá Boston og Dominique Wilkins hjá Atlanta háðu sögulegt einvígi í annari umferð úrslitakeppninnar árið 1988. Þetta var sjöundi leikur liðanna og Boston vann hann 118-116 eftir sannkallaða flugeldasýningu.
Þessi skotkeppni þeirra félaga er gjarnan sýnd í myndbandsannálum NBA deildarinnar og ætti að vera kunnugleg flestum sem fylgst hafa með leiknum fallega. Þeir Bird og Wilkins verða seint sakaðir um að hafa spilað kæfandi vörn hvor á annan þennan dag, en sóknarleikurinn var með því besta sem sést hefur.
Bird skoraði 20 af 34 stigum sínum í fjórða leikhlutanum en Wilkins setti 14 af 47 stigum sínum í lokaleikhlutanum. Wilkins fór gjörsamlega hamförum í þessum leik og hitti úr 19 af 23 skotum utan af velli.
Hér fyrir neðan má sjá svipmyndir úr leiknum. Takið eftir því hvað hljóðgervillinn er þaninn í botn í montage-tónlist 9. áratugarins. Engu líkara en einhver hefði stolið sándtrakkinu úr Rocky IV. Frábært efni.
Efnisflokkar:
Celtics
,
Dominique Wilkins
,
Fret úr fortíðinni
,
Hawks
,
Klassík
,
Larry Bird
,
Netbrennur
Diaw tók slátur í nótt
Efnisflokkar:
Andlitsmeðferð
,
Boris Diaw
,
Er nauðsynlegt að skjóta þá
,
Holdafar
,
Quincy Pondexter
,
Slátur
,
Veðrið þarna uppi
Sunday, May 19, 2013
Nokkrir molar um undanúrslitin
Jæja krakkar, þar höfum við það. Nú eru aðeins fjögur lið á lífi í úrslitakeppninni.Þetta er búið að taka fljótt af, aðeins eitt einvígi hefur farið alla leið til þessa - rimma Nets og Bulls.
Það verða San Antonio og Memphis sem slást um Vesturdeildina og Miami og Indiana sem berjast í austrinu. Þetta varð ljóst í nótt þegar Indiana kláraði verkefni sitt gegn Knicks.
New York náði aldrei að spila sinn bolta á móti Pacers. Að hluta til af því það er erfitt að spila deildakeppnibolta í úrslitakeppninni - að hluta til af því Indiana leyfði New York aldrei að spila sinn bolta.
Það er ekkert grín að spila við þetta Indiana lið. Það hefur einstök tök á því að taka þig út úr öllum þínum aðgerðum, svo við tölum eins og Hubie Brown.
Það er nákvæmlega engin tilviljun að þrjú af liðunum fjórum sem komin eru í undanúrslitin eru úrvals varnarlið. Miami, Indiana og Memphis eru þrjú af bestu varnarliðum deildarinnar og San Antonio er reyndar komið eins langt og raun ber vitni af því varnarleikur liðsins er betri en í fyrra og miklu betri en árið þar áður.
Indiana er lið sem vinnur alla sína leiki út á varnarleik og Memphis sömuleiðis meiripartinn af sínum, þó ekki með jafn afgerandi hætti og Indiana.Miami á það líka vissulega til að vinna leiki í varnarleiknum einum saman, en Miami er þar að auki með fullt af góðum skyttum, Dwyane Wade og besta körfuboltamann í heimi.
Það er ástæða fyrir því að Miami er besta lið í heimi. Nú á það bara eftir að sanna það aftur.
Þessi úrslitakeppni er eiginlega búin að vera stórfurðuleg fyrir meistara Miami. Liðið byrjaði á því að sópa liði sem hafði ekkert erindi í úrslitakeppni út í fyrstu umferð og þurfti svo að hvíla í viku áður en það hóf glímuna við Chicago. Þessi hvíld setti dálítið ryð í leikmenn og kostaði tap í fyrsta leik gegn krambúleruðu Chicago liði. Restin var einföld en ekki auðveld.
Nú er Miami - með fullri virðingu fyrir Chicago - loksins að lenda í alvöru einvígi í úrslitakeppninni, en ljóst er að meistararnir fara inn í það eftir aðra vikuhvíld og þurfa því að gæta þess að vera betur á tánum en þeir voru gegn Bulls. Það verður ekkert auðvelt að taka á móti Indiana, sem er með sjálfstraustið í botni og kæfandi varnarleik.Margir muna eftir einvígi Miami og Indiana í fyrra, en með smá heppni hefði Indiana þar geta komið Miami í bullandi, bullandi vandræði. Í stað þess að hamra járnið meðan það var heitt og traðka á Miami meðan það var í vandræðum, gáfu reynslulitlir leikmenn Pacers eftir og hleyptu Miami aftur inn í einvígið.
"Hleypt þeim inn í einvígið" er kannski ekki rétta orðalagið. LeBron James og Dwyane Wade settu í Guðagírinn og Miami fann sinn rétta og endanlega takt eftir að Chris Bosh meiddist. Við vitum svo öll hvernig það endaði.
Það er engin ástæða til að ætla að rimma Miami og Indiana fari öðruvísi í ár en í fyrra. Indiana er árinu eldra og sterkara, sérstaklega í vörninni, en Miami er líka miklu betra og það er stórslys ef meistararnir klára þetta ekki nokkuð örugglega. Það er talsverð 4-2 lykt af þessu einvígi, án þess að við ætlum að spá fyrir um það sérstaklega.
Einvígið í vestrinu er líka hrikalega áhugavert. Þar mætast tvo ógnarsterk lið sem þekkjast ansi vel. Síðast þegar San Antonio og Memphis áttust við árið 2011, gerðu Húnarnir sér lítið fyrir og slóu Spurs út í fyrstu umferð þegar San Antonio kom inn í úrslitakeppnina í 1. sæti en Memphis í því áttunda.Þetta voru söguleg úrslit á margan hátt. Memphis var ekki aðeins að vinna fyrsta leikinn og fyrsta einvígið í sögu félagsins - heldur var þetta aðeins í annað skipti í sögu NBA sem lið í áttunda sætinu sló út liðið í fyrsta sætinu í fyrstu umferð.
Margir hafa freistast til að spá Memphis sigri í einvíginu framundan og byggja þá spádóma á áðurnefndu einvígi. Það er skiljanlegt upp að vissu marki, en þó verður að hafa í huga að San Antonio mætir allt öðruvísi til leiks í ár en fyrir tveimur árum.
Nægir að nefna að þeir Antonio McDyess og Richard Jefferson voru í byrjunarliði Spurs í sjötta og síðasta leiknum gegn Memphis fyrir tveimur árum. Aha.
Lið Memphis er með nánast sama lykilmannskap í ár og fyrir tveimur árum en í rauninni má deila um að liðið hafi verið betur mannað á þeim tíma.Rudy Gay missti af úrslitakeppninni þetta árið vegna meiðsla en Griz gat samt teflt fram mönnum eins og O.J. Mayo og Shane Battier af varamannabekknum.
Aukaleikarar Memphis í dag eiga sína spretti, en vekja ekki ótta hjá nokkrum manni.
Það er ógerningur að spá því hvað gerist í þessu einvígi enda ætlum við alveg að leyfa leikmönnum að ákveða hvað gerist í því. Mjög forvitnilegt verður að sjá hvernig Thiago Splitter (sem er að ná heilsu hægt og bítandi eftir meiðsli og gaf Spurs æ meira eftir því sem á leið á Warriors-rimmuna) og Tim Duncan tekst að eiga við tvíhöfða skrímslið Marc Gasol og Zach Randolph.
Eins verður áhugavert að sjá hvernig Memphis bregst við Tony Parker, sem er upphafið og endirinn á öllum sóknaraðgerðum San Antonio. Ætla mætti að Tony Allen fengi það hlutverk að gæta Tony Parker og gaman verður að sjá hvernig Spurs teflir við það ef af verður.Við höfum farið rosalega flatt á því að ofmeta getu San Antonio Spurs síðustu ár og olli það okkur slíkri gremju að við skrifuðum minningargrein um liðið sem meistarakandídat fyrir nokkuð löngu síðan - að minnsta kosti fyrir síðasta tímabil.
Þið getið því ímyndað ykkur hvað okkur létti þegar San Antonio missti niður 2-0 forystu sína gegn Oklahoma í úrslitum Vesturdeildar á síðustu leiktíð og gjörsamlega drullaði á sig.
Í ár ættu möguleikar Spurs að vera enn betri og okkur dettur ekki í hug að dæma liðið úr leik gegn Memphis, þó það hafi sýnt ákveðin veikleikamerki í einvíginu við Golden State - sérstaklega þreytu- og ellimerki. Þeir sem plönuðu leikina í úrslitakeppninni voru ekki góðir við Spurs og höfðu á kafla stutt milli leikja og ekki hefur liðið marga daga til að sleikja sárin fyrir Memphis-einvígið.
Memphis getur alveg unnið þetta einvígi. Það gerist með því að halda Tony Parker í skefjum, lemja og útfrákasta Spurs og spila þokkalegan sóknarleik.Við trúum Memphis alveg til að hanga í Parker og lemja Spurs, en við setjum spurningamerki við sóknarleikinn hjá Grizzlies. Hann er stundum bara ekki nógu góður og það eru ágætis líkur á því að ef San Antonio nær að spila sæmilega góða vörn, muni (stundum) (arfa) slakur sóknarleikur Memphis verða liðinu að falli í einhverjum leikjum.
Aðeins eitt er víst. Það er rosaleg körfuboltaveisla fram undan. Hún hefst í dag (Hvítasunnudag) með fyrsta leik Spurs og Grizzlies og henni lýkur ekki fyrr en upp úr miðjum júní.
Allir þessir leikir verða sýndir beint á Stöð 2 Sport og því ætti enginn að þurfa að missa af neinu.
Góða skemmtun.
Efnisflokkar:
Grizzlies
,
Heat
,
Pacers
,
Spurs
,
Úrslitakeppni 2013
Skotkort Melo í úrslitakeppninni (12 leikir)
Efnisflokkar:
Carmelo Anthony
,
Knicks
,
Skotkort
,
Úrslitakeppni 2013
Saturday, May 18, 2013
Blóðugur bardagi í Indiana í kvöld
Á miðnætti í kvöld berjast Indiana og New York um síðasta lausa sætið í undanúrslitum úrslitakeppni NBA deildarinnar. New York hélt lífi með sigri í Madison Square Garden í síðasta leik en róðurinn verður þyngri í Hlöðunni í Indiana í nótt þar sem heimamenn hafa ekki tapað leik í úrslitakeppninni.
Flestir reikna með því að það verði Indiana sem fer áfram úr þessu einvígi, því liðið komst í 3-1 og fær því annað tækifærið í röð til að klára einvígið í kvöld - nú á heimavelli. Því er ekki að neita að Pacers hefur verið sterkara liðið í rimmunni, en meiðsli gætu þó átt eftir að setja strik í reikninginn hjá liðinu.
Leikstjórnandi Indiana, George Hill, var besti maður liðsins í leik fjögur en hann fékk höfuðhögg í leiknum og gat því ekki verið með í fimmta leiknum í New York. Indiana saknaði hans mikið í þeim leik og óvíst er hvort hann fær grænt ljós á að vera með í kvöld. Breiddin hjá Pacers er einfaldlega ekki nógu mikil til að liðið megi við því að missa byrjunarliðsmann í meiðsli.
Útlitið er dökkt hjá New York sem stendur, en takist liðinu hinsvegar að vinna í Indiana í nótt, á það oddaleikinn á heimavelli sínum og þá getur allt gerst. Til að svo megi verða, verður New York hinsvegar að ná að spila sinn leik og fá eðlilegt framlag frá helstu vopnum sínum í sóknarleiknum. Það hefur ekki tekist almennilega hjá Knicks í einvíginu og eiga öflugir varnarmenn Indiana sinn þátt í því.
Það verður barist til síðasta manns í Indiana í nótt, þetta er úrslitaleikur fyrir bæði lið. New York er úr leik ef það tapar - Indiana hefur alls ekki efni á að missa þetta í oddaleik í New York.
Fylgist með á Sportinu á miðnætti.
Efnisflokkar:
Dagskrá
Friday, May 17, 2013
Þetta verða bara allir að sjá
Dave Lombardo, trommari Slayer, sýnir hérna hvernig á að gera þetta þegar hann trommar lög sem samin voru með nærri aldarfjórðungs millibili. Við fáum bara ekki nóg af þessu.
Efnisflokkar:
Fagmennska
,
Metall
,
Tónlistarhornið
Wednesday, May 15, 2013
30 for 30: Besti NERF-troðari allra tíma
Efnisflokkar:
Fret úr fortíðinni
,
Skrítlur
,
Veðrið þarna uppi
Einhver klisjufyrirsögn um bræður
Við höfum ekki hugmynd um af hverju, en við föndruðum saman skotkortin þeirra bræðra Pau og Marc Gasol úr deildakeppninni í vetur. Við hötum nú ekki skotkortin, eins og einhver ykkar hafa tekið eftir.
Munið að rautt táknar undir meðaltali í deildinni, gult þýðir að nýtingin sé á pari við það sem gengur og gerist í deildinni og græni liturinn táknar að viðkomandi sé með betri en meðalnýtingu í deildinni.
Pau Gasol átti við meiðsli að stríða í allan vetur, er það breytir því ekki að litli bróðir er líklega búinn að taka fram úr honum sem leikmaður. Smelltu á myndina til að stækka hana.
Efnisflokkar:
Marc Gasol
,
Pau Gasol
,
Skotkort
,
Tölfræði
Steldu stílnum: Jason Statham og Gunni Einars
Breska hasarhetjan Jason Statham fer ekkert leynt með það að hann er að stela stílnum frá fyrrum körfuboltahetjunni Gunnari Einarssyni úr Keflavík. Ekki laust við að Statham nái fyrirmyndinni bara nokkuð vel, enda leikarari að atvinnu. Það er þá á hreinu hver leikur Gunnar ef frækin sigurganga Keflvíkinga verður kvikmynduð í framtíðinni.
Efnisflokkar:
Doppelgangers
Bling-blingið hans Jacksons
Phil Jackson brást ekki þegar hann var beðinn um að setja mynd af meistarahringjunum sínum með New York inn á Twitter í gærkvöldi. Auðvitað henti hann inn mynd af öllu bling-blinginu. Þetta er ekki slæmur haugur. Tveir hringar hjá Knicks sem leikmaður, sex með Chicago og fimm með Lakers sem þjálfari. Ekki nálægt því nóg af fingrum fyrir alla þessa hringa.
Efnisflokkar:
Bling-bling
,
Phil Jackson
,
Sigurvegarar
,
Verðlaun og viðurkenningar
Látið boðin berast
New York Knicks lagði mikið upp úr langskotunum í vetur. Byrjaði sjóðandi heitt og var líka í miklu stuði á síðustu vikunum í deildakeppninni. Knicks tók rétt tæplega 29 þriggja stiga skot að meðaltali í vetur, sem er með því mesta sem sést hefur í sögu NBA. Þá hitti liðið þokkalega - eða tæp 38%.
Indiana veit að New York vill skjóta mikið fyrir utan og í fyrstu fjórum leikjunum í einvíginu, gekk Pacers nokkuð vel að hrekja Knicks af þriggja stiga línunni. Svo vel að New York tók "aðeins" 20 þrista í hverjum leik og þá var hittnin ekki nema 33%.
New York er nú komið í bullandi vandræði í einvíginu, er á leið á heimavöllinn sinn í leik sex þar sem það gæti endað í sumarfríi ef það vinnur ekki. Knicks getur huggað sig við að Indiana getur hvenær sem er hitt á ömurlegan leik í sókninni þar sem ekkert gengur, svo liðið á enn möguleika þó hann sé ekki stór.
Það hefur líka vakið athygli okkar hvað Roy Hibbert hefur spilað vel fyrir Indiana í þessu einvígi og stóru mennirnir hjá Pacers hafa gjörsamlega tekið Tyson Chandler og félaga í nefið. Bættu svo við það þeirri staðreynd að ´Melo hefur verið í strangri gæslu og hitt illa , JR Smith er að reyna að eiga lélegustu seríu allra tíma og New York er komið í talsverð vandræði.
Efnisflokkar:
Carmelo Anthony
,
JR Smith
,
Knicks
,
Múrsteinahleðsla
,
Pacers
,
Roy Hibbert
,
Úrslitakeppni 2013
Hlaðvarpið: 11. þáttur - Teitur Örlygsson
Í nýjasta þætti Hlaðvarps NBA Ísland slær Baldur á þráðinn til Teits Örlygssonar
þjálfara Stjörnunnar og ræddi við hann um úrslitakeppnina í NBA sem nú stendur
sem hæst. Smelltu hér til að fara á hlaðvarpssíðuna og sækja þetta nammi.
Efnisflokkar:
Hlaðvarpið
,
Teitur Örlygsson
Tuesday, May 14, 2013
Allir þristarnir hans Steph Curry í vetur
Maður einn, sem virðist hafa gríðarlega mikið að gera, hefur klippt saman myndbrot sem sýnir allar 272 þriggja stiga körfurnar sem Steph Curry setti í deildakeppninni í vetur, en það var NBA met eins og flestum sem þetta lesa ætti að vera kunnugt. Er nokkuð annað að gera en að hella sér upp á kaffi og horfa á ósköpin, þó ekki væri nema til að hita upp fyrir leiki kvöldsins.
Efnisflokkar:
Metabækurnar
,
Netbrennur
,
Stephen Curry
,
Warriors
,
Þristar
Monday, May 13, 2013
Sunday, May 12, 2013
Friday, May 10, 2013
Hendum þá kortinu hans Curry inn líka
Efnisflokkar:
Netbrennur
,
Skotkort
,
Skyttur
,
Stephen Curry
,
Tölfræði
,
Úrslitakeppni 2013
,
Þristar
Fáum þá kortið hans Ká Djé líka
Kevin Durant er búinn að fara hamförum í úrslitakeppninni síðan félagi hans Russell Westbrook datt úr leik vegna meiðsla í öðrum leiknum við Houston í fyrstu umferðinni. Pilturinn er búinn að spila um það bil eins vel og hægt er - minnir dálítið á LeBron James hjá Cleveland þegar Cavs gat ekki neitt.
Durant gerir allt. Hann spilar stöðu leikframherja, stýrir spilinu og er aðalskorari Oklahoma með 33 stig að meðaltali í leik - heilum fjórum stigum meira en næsti maður. Þar að auki er hann að hirða yfir níu fráköst (7. í úrslitakeppninni) og gefa yfir sex stoðsendingar (9. í úrslitakeppninni).
Klisjan segir að OKC fari eins langt og Kevin Durant ber það, en þessi klisja er bara heilagur sannleikur í þessu tilviki. Serge Ibaka er ekki að standa sig, Kendrick Perkins er einn lélegasti leikmaður deildarinnar og leikstjórnendurnir eru annað hvort blautir á bak við eyrun eða á leið á Hrafnistu.
Kevin Martin verður að spila eins og höfðingi til að Oklahoma eigi séns á að vinna leiki og í síðustu fjórum leikjum hefur verið 100% fylgni milli frammistöðu hans og gengi liðsins. Martin gat ekkert í síðasta leik (tap), var mjög flottur í tveimur þar á undan (sigrar) og hörmulegur í leiknum þar á undan (tap).
Martin er klókur og ökónómískur skotmaður í deildakeppninni, en það er of auðvelt að berja hann út af laginu í úrslitakeppninni og fá hann til að hætta að hitta. Við sögðum ykkur þetta í haust og þetta er að koma á daginn núna, þó við höfum auðvitað ekki reiknað með því að hann fengi jafn stórt hlutverk og hann gegnir í fjarveru Westbrook.
Efnisflokkar:
Kevin Durant
,
Skotkort
,
Tölfræði
,
Úrslitakeppni 2013
Subscribe to:
Posts (Atom)














