Thursday, July 5, 2012
Tuesday, July 3, 2012
Monday, July 2, 2012
Sunday, July 1, 2012
Dwight Howard tekur við Danny Ainge verðlaununum
Vonandi verður þessi pistill stuttur, því hann er hrútleiðinlegur og neikvæður. Hættu umsvifalaust að lesa ef þú ert mótfallin(n) slíku drama.
Þetta er út af honum Dwight Howard. Við höfum nokkrum sinnum átt það til að stríða honum á þessu vefsvæði og þegar við skrifum um hann hefur það stundum verið í leiðindatón. Núna erum við aftur á móti gjörsamlega búin að fá nóg af Dwight Howard. Mælirinn er fullur.
Helmingurinn af þessu er fjölmiðlum að kenna. Þeir eru búnir að vera með Dwight Howard efstan í fréttum í að okkur finnst mörg ár. Það er komið nóg af þessu. Hinn helminginn af bullinu á Howard sjálfur, því hann hefur ekki hugmynd um hvað hann ætlar að gera við líf sitt sem atvinnumaður og dregur okkur öll með sér niður í þennan valkvíðadrullupoll.
Við vitum ekki með ykkur, en við höfum fengið svo miklu, miklu meira en nóg af þessu bulli.
Þegar öllu er á botninn hvolft, er Dwight Howard ekki leikmaður til að standa undir öllu þessu óþolandi skrumi. Hann er ofmetnasti leikmaður síðari tíma í NBA.
Howard er fínn varnarmaður og góður frákastari, en ofmetinn á báðum sviðum og það er líka restin af leik hans.
Dwight Howard mun aldrei leiða lið til meistaratitils, ekki nálægt því, af því hann er ekki nálægt því að standa undir neinu slíku.Hann er enginn sóknarmaður, grátlega léleg vítaskytta og hefur sýnt fram á það að undanförnu að hann er ekki eftirsóknarverður liðsfélagi ef á móti blæs.
Við roðnum í hvert skipti sem hann vinnur til verðlauna og þegar hann er kallaður besti miðherji í heimi. Miðherjastaðan er dauð.
Dúkkulísum eins og Howard hefði verið pakkað saman á níunda og tíunda áratugnum þegar voru alvöru stórir menn í deildinni.
Þess vegna höfum við fengið meira en nóg af öllu þessu fári í kring um það hvert Dwight Howard vill fara. Af hverju í fjandanum skiptir Orlando þessu fífli ekki til New Jersey hið snarasta? Félagið getur fengið einhverja mola fyrir hann þar og verður að láta sér það duga. Howard er löngu búinn að eyðileggja möguleikann á því að Magic fái raunvirði fyrir hann út af bullinu í honum. Hann mun heldur ekki hika við að ganga út þegar samningur hans rennur út ef til þess kemur, sem reyndar verður að teljast ólíklegt.
Dwight Howard er sagður trúaður og góður piltur og það má vel vera.Hann er hinsvegar illa gefinn og virðist ekki hafa nokkra einustu hugmynd um takmörk sín eða hafa skilning á því hvernig NBA deildin virkar. Virðist vilja vera bæði "maðurinn" og meistari hjá nýja liðinu sínu, sem er hlægilegt.
Eftir hverju þessi snillingur er að bíða, veit enginn. Allra síst hann sjálfur.
Körfuboltinn verður allur miklu betri þegar þessi ofmetni bjáni sem Howard er, heldur sér loksins saman og byrjar að spila, hvar sem það verður nú.
Við vitum samt öll að þögnin verður ekki löng. Það verður ekki langt þangað til hann byrjar að væla aftur og þá út af óhæfum þjálfara eða slökum meðspilurum.
LeBron James hefur verið blóraböggull og óvinsælasti leikmaður NBA deildarinnar undanfarin ár, eða frá því hann framdi almannatengslamorð með "Ákvörðuninni" og eldflaugaverkfræðiummælum sem komu í kjölfarið.
Nú hefur hann hinsvegar leiðrétt þessi mistök og unnið titil og fer því smátt og smátt að komast aftur í góðu bækurnar hjá pöpulnum.Við þurfum því að fá nýjan blóraböggul, nýja flóttageit sem við getum bölvað fyrir heimsku sína og titlaleysi - og Dwight Howard er fullkominn í hlutverkið.
Reyndar er Carmelo Anthony að veita honum sælskap á toppi þessa lista, en það verður Dwight sem situr í skussasætinu á næstu misserum. Köllum þetta Danny Ainge-verðlaunin í höfuðið á einum hataðasta manni deildarinnar á sínum tíma.
Til að súmmera. Ákveddu þig Dwigt, naglhaltu kjafti og reyndu að bæta þig sem leikmaður. Reyndu svo að vinna nokkra titla til að standa undir þessu fáránlega skrumi sem í kring um þig er alla daga. Þá skulum við athuga hvort við fyrirgefum þér allar þessar ömurlegu fyrirsagnir og greinar sem mengað hafa sjónlínu okkar síðustu misseri.
Þangað til skaltu steinþegja!
Efnisflokkar:
Ainge Verðlaunin
,
Ákvörðunin
,
Dwight Howard
,
Frussandi gremja
,
Gildi og ákvarðanataka
,
LeBron James
,
Leikmannamál
,
Of vanur fyrir skólann
,
Skrum
Friday, June 29, 2012
Wednesday, June 27, 2012
Tuesday, June 26, 2012
Stjörnulið Cons
Nike var ekki merkilegur skóframleiðandi áður en Michael Jordan gekk til liðs við fyrirtækið. Á níunda áratugnum var skemmtilegt skóstríð í gangi í NBA og eins og þú sérð á þessari eftirminnilegu mynd, varstu sekkur ef þú spilaðir ekki í Converse - sama hvað Michael Jordan sagði. Það vantar tæknilega menn í tvær leikstöður í þessu liði hérna fyrir neðan, en við myndum ekki veðja á móti því.
Efnisflokkar:
Gamli skólinn
,
Klassík
,
NBA 101
,
Skófatnaður
Sunday, June 24, 2012
Nýr kafli hefst hjá skuldlausum LeBron James:
Lauslega reiknað munu skrif um hann minnka um 17,4 milljón orða og því miður gætum við horft fram á nokkrar uppsagnir í blaðamannageiranum ytra vegna þessa.
Nú höfum við fengið smá tíma til að venjast þeirri hugmynd að LeBron James sé kominn með titil. Sama hvort sem fólki líkar vel við hann eða ekki, er sómi af því að pilturinn sé búinn að vinna þetta. Þá meinum við það í "illu er best af lokið" samhenginu. Nú þurfa hatursmenn hans að semja nýja brandara og breyta aðeins til. Það er mjög jákvætt.
Að öllu gamni slepptu, er James vel að titlinum kominn. Hann er búinn að vera langbesti leikmaður heimsins síðustu ár og það var að verða pínulítið kjánalegt hjá honum að safna öllum þessum MVP styttum og eiga ekki meistarahring í stíl. Okkur þótti ákaflega vænt um að sjá fagnaðarlæti LeBron James þegar titillinn var í höfn á fimmtudagskvöldið.
Einlæg og ómenguð ánægjan leyndi sér ekki. Strákurinn var að rifna af hamingju með þetta, enda ekki bara að ná sínu helsta langtímamarkmiði, heldur einnig að losna úr bjarnargildru sem hann hafði setið fastur í í níu ár.
Nú verður ákaflega forvitnilegt að sjá hvað titillinn gerir fyrir hugartetrið hjá James.
Þið vitið að það er ekki nóg að hafa hæfileika til að vinna NBA titla.
Ef menn ætla að vinna þá nokkra, þurfa menn að vera dálítið klikkaðir líka. Æfa harðar, oftar og meira en aðrir, sleppa við meiðsli og gefa 110%
Er LeBron James með drápseðli og hungur í að halda nú áfram að vinna titla, eða fer hann nú að einbeita sér meira að því að rappa og koma fram í auglýsingum? Þetta er stærsta spurningin í framtíð Miami Heat, fyrir utan heilsufarið á Dwyane Wade.
Meistaratitillinn sem LeBron James var að næla sér í, þýðir að hann er orðinn óumdeild súperstjarna númer eitt í NBA deildinni. Hann fer að fá enn fleiri flautur frá dómurum, hlýtur aukna virðingu á öllum sviðum og verður nú miðpunktur öðruvísi umræðu en áður.
Nú geta menn hætt að tala um að James sé leikmaður sem þolir ekki pressuna og að hann vinni aldrei titla. Nú er kannski hægt að fara að tala aðeins um hvað hann er góður og hvar hann kemur til með að standa í sögulegu samhengi þegar fram í sækir.
Annað sem þessi titill gerir er að stroka út mistök James þegar kemur að almannatengslunum. Nú þýðir ekkert að vera að nudda framan í hann gömlum ummælum um að "flytja hæfileika sína til Suðurstrandar" eða "vinna ekki einn, ekki tvo, ekki sjö titla." Þetta dæmi heyrir nú sögunni til og James hefur unnið sér inn fyrir því að mega loka þessum kafla og henda lyklinum.
Já, krakkar. Við ætlum öll að reyna að vera jákvæðari í garð besta körfuboltamanns heims framvegis. Það er líka miklu auðveldara og uppbyggilegra.
Efnisflokkar:
Ákvörðunin
,
LeBron James
,
MVP
,
Sögubækur
,
Svægi
,
Titlar
,
Úrslitakeppni 2012
Leikmenn ársins voru frábærir í lokaúrslitunum
Efnisflokkar:
Kevin Durant
,
LeBron James
,
MVP
,
Tölfræði
,
Úrslitakeppni 2012
Úrslitaeinvígið 2012 fór ekki alveg eins og til stóð:
Þrátt fyrir bænir okkar allra, fór einvígi Miami og Oklahoma ekki nema í fimm leiki. Í þessum fimm leikjum kom bersýnilega í ljós hvort liðið lék betur. Við segjum lék betur, því okkur finnst Oklahoma vera betra lið en Miami. Lið, er þó lykilorðið. Miami lék eins og lið í úrslitunum. Fann loksins ædentitíið sitt, ef svo má segja.
Hver hefði tippað á það fyrir úrslitaeinvígið að menn eins og Shane Battier, Mike Miller og Mario Chalmers ættu eftir að fara á hamförum á kafla og tryggja liði sínu sigra í einstaka leikjum?Og það sem meira er - hver hefði trúað því að LeBron James ætti eftir að spila eins og besti körfuboltamaður heims hverja einustu mínútu í einvíginu?
Oklahoma fékk engan svona lúxus. Bara hunda. Kevin Durant var reyndar frábær í úrslitarimmunni, en hefði mátt reyna meira sjálfur.
Westbrook skiptist á að vera góði og vondi Russ, Ibaka átti aðeins rispur og Harden var gjörsamlega afleitur utan leiks tvö. Þá fékk Oklahoma enga plúsa frá aukaleikurum sínum.
Ógrynni góðra leikmanna í NBA fá ekki tækifæri til að spila oftar en einu sinni um titilinn, því finnst okkur leiðinlegt þegar talað er um að Oklahoma hafi þurft að tapa þessu einvígi núna -- tími liðsins muni koma síðar. Það er bara bull. Tími Oklahoma hefði alveg eins átt að vera núna.
Strákarnir í Oklahoma fóru miklu erfiðari leið en Miami í úrslitin en lentu aldrei í teljandi erfiðleikum í vestrinu. Þess vegna gerðum við ráð fyrir að sjá liðið afgreiða Miami. Þegar í úrslitin var komið, ákvað Oklahoma hinsvegar að fara að spila eftir aldri og reynslu. Kraftmikið, en óttaslegið og hikandi. Eins og við sáum, dugði það skammt gegn Miami.
Deildin er eitt, úrslitakeppnin er annað - og lokaúrslitin svo eitthvað allt annað.
Þú ert vafalítið gjörsamlega ósammála þessu öllu og það er allt í lagi. Eðlilegt. Enda vann Miami.Það er auðvitað ekki hægt annað en taka ofan hattinn fyrir Miami og óska leikmönnum til hamingju með góðan sigur. Þeir gerðu vissulega vel að loka þessu loksins.
Hvað lið Miami varðar, er krafan að sjálfssögðu sú að það nái í minnst tvo svona sigra í viðbót.
Það miðast þá við að Dwyane Wade haldi sér góðum í nokkur ár í viðbót og verði laus við meiðsli, ef við gefum okkur að James og Bosh verði líka frískir áfram.
Framtíðin ætti líka að vera björt hjá Oklahoma, þó svo tapið í úrslitaeinvíginu núna hafi vissulega undirstrikað nokkrar spurningar sem hangið hafa yfir liðinu lengi. Til dæmis hvað á að gera við Russell Westbrook og hvort Scott Brooks er nógu sterkur þjálfari.
Nokkrar spurningar vöknuðu líka í einvíginu. Ein þeirra er hvort James Harden sé leikmaður sem þoli við á stóra sviðinu. Svarið við þeirri spurningu er þvert nei eins og staðan er í dag.
Ef við ættum að setja peninga á það núna, myndum við veðja á að það yrðu þessi tvö lið sem mættust í lokaúrslitum á næsta ári. Það er skemmtileg tilhugsun. Rimmur þeirra eru bráðskemmtilegar og svo spila bestu leikmenn liðanna auðvitað sömu stöðu (LeBron James og Kevin Durant).
Deildin okkar ætti því að vera í fjandi góðum málum á næstu árum.
Efnisflokkar:
Heat
,
Sólstrandargæjarnir
,
Thunder
,
Titlar
,
Uppgjör
,
Úrslitakeppni 2012
Það sem miðlarnir sögðu
Efnisflokkar:
Ákvörðunin
,
LeBron James
,
Skóli lífsins
,
Sögubækur
,
Titlar
,
Úrslitakeppni 2012
,
Vel Gert
Saturday, June 23, 2012
Scott Brooks er heiðurspiltur
Það má vel vera að Scott Brooks hafi látið í minni pokann í þjálfaraeinvíginu í úrslitunum. Það má vel vera að samningur hans verði ekki framlengdur hjá Thunder.
Það má líka vel vera að hann hafi vitað af myndavélinni þegar hann hélt þessa ræðu. Hún er samt skemmtileg og það er klassi yfir Brooks. Hann má eiga það.
Efnisflokkar:
Scott Brooks
,
Úrslitakeppni 2012
,
Þjálfaramál
Friday, June 22, 2012
Fyrstu viðbrögð hatursmanna LeBron James
Efnisflokkar:
Ákvörðunin
,
Hatorade
,
LeBron James
,
Titlar
,
Úrslitakeppni 2012
Nike er ekkert að drolla við þetta
Efnisflokkar:
Auglýsingar
,
LeBron James
,
Satt er hratt
,
Titlar
,
Úrslitakeppni 2012
Thursday, June 21, 2012
LeBron James: Pistill frá Friðriki Inga Rúnarssyni
Hér fyrir ofan maðurinn sem allur heimurinn er að fylgjast með þessa dagana. Hann er umdeildasti íþróttamaður augnabliksins.
Þeir eru ansi margir sem vonast til þess að honum mistakist að vinna NBA titilinn. Ég er ekki í þeim hópi. Ég get unnt honum þess að vinna titil og er löngu búinn að gleyma þessari "Ákvörðun" enda svo sem óþarfi að vera að velta henni mikið meira fyrir sér. Mér fannst sú uppákoma klaufaleg eins og mörgum öðrum. Ég er þess fullviss að honum finnst það líka í dag. Hann færi öðruvísi að ef hann fengi að gera þetta aftur.
Allir eða flestir sem komast í heimsathygli ( sumir þurfa ekki heimsathygli til ) stíga einhver feilspor á lífsleiðinni og það á m.a. við um leikmenn eins og Michael Jordan, Larry Bird, Magic Johnson og Kobe Bryant sem LeBron er ávallt borinn saman við. Það eru bara allir búnir að gleyma þeim feilsporum. Látið ykkur ekki detta í hug að þessir ágætu menn hafi ekki gert einhver axarsköft á sínum ferli og jafnvel verri en að tilkynna það í beinni útsendingu með hvaða liði skal leikið næstu árin. LeBron James er mannlegur rétt eins og þeir.
LeBron James er hæfileikaríkasti körfuboltamaður heims í dag og jafnframt er hann með hæfileikaríkari íþróttamönnum almennt. Hann kemur vel fyrir og hefur gert síðan hann kom kornungur í deild þeirra bestu þar sem setið er um menn og beðið er eftir því að þeir misstígi sig. Það er ekki hægt að segja annað en að hann hafi staðist þetta og rúmlega það.

LeBron var aðeins 18 ára á 19. ári þegar hann kom inn í deildina ef einhverjir voru búnir að gleyma því.
Í sínum fyrsta leik skoraði hann 29 stig, gaf 9 stoðsendingar, tók 6 fráköst og var með 4 stolna bolta. Á tímabilinu var meðaltalið hans 21 stig í leik, 6 stoðsendingar í leik og 5.5 fráköst í leik. Ekki amalegt hjá 18-19 ára snáða sem nota bene var í slöku liði.
Hann kom Cleveland í lokaúrslitin árið 2007 og ég sagði þá að mér fyndist það mikið afrek þar sem hann var ekki með marga nógu leikmenn með sér, í það minnsta ljósárum frá getu og kunnátta þeirra leikmanna sem voru með Michael Jordan þegar hann vann fyrst - og sína titla eftir það.
Það má einnig benda á þá staðreynd að LeBron hafi sett á sig aukna og óþarfa pressu með færslu sinni til Miami, hann hefði getað sleppt því. Hann gerði það ekki. Hefur hann staðist þessa pressu?
Miami hefur spilað bæði árin til úrslita og er hársbreidd frá því að vinna titilinn á öðru árinu hans LeBron með liðinu. Mér finnst það ágætt og vísbending um að hann sé að höndla álagið og pressuna ágætlega. Hvað finnst þér?
Samherjar LeBron James elska að spila við hlið hans. Er hægt að fá betri meðmæli? Fyrir þá sem þekkja það að taka þátt í hópíþróttum vita allt um hversu sá þáttur er mikilvægur. Sá einhver sendingu Iniesta á Jesus sjálfan hjá Spánverjum á dögunum? Skothelt dæmi þar sem fagmenn kunna að deila með öðrum.
LeBron getur skorað þegar hann vill en hann kýs samt að virða samherja sína og veit sem er að þannig og aðeins þannig byggir hann upp lið sem getur unnið leiki reglulega og svo hugsanlega meistaratitla. Það sem Lebron er ekki fullnuma í frekar en Jordan var á sínum tíma í úrslitakeppnum NBA , er að læra hvenær hann þarf að taka af skarið og hvenær hann treystir samherjum sínum svo flæðið sé rétt og árangursríkt. Þetta er allt að koma.

Stundum held ég að sumir hafi viljað að LeBron væri jafngóður sem nýliði í NBA og Jordan var þegar hann var að vinna titlana sína. Hversu eðlilegt er það?
Pressan og áreitið eru alltaf að aukast. Það gera allir fjölmiðlarnir og samskiptamiðlarnir. Tilætlunarsemi, frekja og óþolinmæði í bland eykst með hverju árinu.
Furðuleg veröldin sem við lifum í.
Leikmenn eru dæmdir af verkum og verðlaunum. Leikmenn sem eru í hópíþróttum geta unnið ýmis einstaklingsverðlaun og vissulega gleður það, en í takmarkaðan tíma þó, allavega hjá flestum.
Takmarkið er að vinna NBA meistaratitilinn og við þekkjum það þegar frábærir leikmenn færa sig á milli liða seinni hluta ferils síns og jafnvel taka á sig launaskerðingu til þess eins að eiga möguleika á því að vinna titilinn.
Þar koma kappar eins og Charles Barkley, Karl Malone og Gary Payton strax upp í hugann en þeir eiga það allir sameiginlegt að hafa verið á meðal bestu leikmanna deildarinnar sem færðu sig á milli liða til þess að freistast til að vinna titilinn.
Ekki fannst fólki það neitt athugavert, heldur þvert á móti, þeim var jafnvel hampað fyrir að skipta um lið. Það sama á ekki við um Lebron.Þó Lebron hafi ekki verið á hátindi síns ferils eða á niðurleið, hvort sem horft er út frá aldri eða getu þá ákvað hann að skipta um lið. Ég skal fúslega viðurkenna að mig langaði til að sjá hann vinna titilinn með Cleveland Cavaliers, hefði fundist það tignarlegra og sem hæfði honum betur vegna þess hversu góður hann er, ég setti hann í flokk með MJ og þar sem MJ fór ekkert (Washington ekki tekið með) þá átti LBJ ekki heldur að fara neitt.
Hann ákvað annað þrátt fyrir þessa eigingirni mína. Ég hef ákveðið að virða það og mun una honum að vinna titilinn sem virðist vera í sjónmáli nú. Ég hef reyndar þá trú að fleiri titlar fylgi í kjölfarið þegar hann losar sig við górilluna grimmu sem hangir á honum.
Ég sé LeBron James fyrir mé eftir cirka 10 ár, þar sem hann situr með einstaklingsverðlaunin í fanginu og fingur hans skreyttir hringjum sem við þekkjum. Fullkominn ferill eða því sem næst að baki. Í farmtíðinni verður talað um James sem einn af bestu leikmönnum sögunnar og sem undur sem kom við á lífsleiðinni í NBA deildina til skemmta okkur sem elskum körfubolta eða íþróttir almennt. Hafi hann þakkir fyrir það.
Leikur #5 verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 01:00
Góða skemmtun.
Friðrik Ingi Rúnarsson
Efnisflokkar:
Aðsent efni
,
Gestapennar
,
LeBron James
Subscribe to:
Posts (Atom)































