Tuesday, January 11, 2011

Blótsyrðakrukkan og Björninn (via TBJ)


Má bjóða þér að þiggja þessa Rose


Cloverfield


Blake Griffin er annað hvort að fara að skjóta heimildamynd um grágæsir eða taka upp troðslurnar sínar frá frumlegu sjónarhorni. Útkoman gæti orðið eitthvað í líkingu við kvikmyndina Cloverfield.

Gáfuleg fyrirsögn þar sem komið inn á þá staðreynd að það skiptir ansi miklu máli hvort LeBron James spilar með liðinu þínu eða ekki


Miami er 21-1 í síðustu 43 dögum. Þar af búið að vinna tólf í röð á útivelli.

Cleveland er 1-20 á þessum sama tíma. Tíu töp í röð, einn sigur og svo önnur tíu töp í röð. Cleveland hefur unnið einn leik síðan 27. nóvember. Þetta er bara fáránlegt. Ekkert eftir annað en að sækja kindabyssuna á Cleveland. Ætli Dan "Comic Sans" Gilbert sé enn að spá í að vinna titil á undan LeBron?

Monday, January 10, 2011

Ungliðar San Antonio eru stórleikarar


Er þetta ástæðan fyrir því að allir eru alltaf að bíða eftir Bynum?


Niðurstöður liggja fyrir


Þetta á ekki að vera hægt - en Joel Anthony gat það


Troðinn


Klisjukennd fyrirsögn um bölvun á Cleveland og virði LeBron James


Taflan segir okkur að Cleveland sé lélegasta liðið í NBA deildinni í dag. Hvort sem það er satt eða ekki, hefur þessi leiktíð hjá Cavs verið hryllingur. Og hún var að versna rétt í þessu.

Anderson Varejao þarf í uppskurð vegna ökklameiðsla og gæti misst af því sem eftir er af leiktíðinni. Það er ekki hægt að ljúga upp á þennan klúbb.

Varejao er langfrákastahæstur í liðinu, mikill orkubolti og solid leikmaður. Hans verður mikið saknað fram á vorið.

Það er ekki talað mikið um það, en hvað segir staða Cleveland okkur um LeBron James?

Hann var auðvitað ekki eini maðurinn sem fór frá Cleveland í sumar, en það er útlit fyrir 30-40 leikja niðursveiflu hjá Cavs frá í fyrra. Svörtustu spárnar í sumar sögðu þetta.

Það er fyrst og fremst brotthvarf LeBron James sem skapar þetta hrun hjá liðinu. Við vissum að LeBron væri góður, en kannski er að koma á daginn að fyrrum liðsfélagar hans kunni ekki körfubolta.

Það er ekki hægt að þakka einum manni það að Cleveland hafi unnið í kring um 60 leiki á síðustu árum James. Það vinnur enginn einn maður 60 leiki, sama hversu góður hann er. Því verðum við að áætla að liðsfélagar hans hafi verið ágætir spilarar. Eða hvað?

Ef þú segir að liðsfélagar James séu drasl, ertu um leið að viðurkenna hvað LeBron er góður.
En ef þú segir að þeir séu góðir, lítur þú út eins og fáviti af því liðið er jú í neðsta sæti deildarinnar.

Á að kenna Byron Scott um þessi ósköp? Eða bara þeirri alsherjar bölvun sem virðist hafa sest að í Cleveland og hefur engin áform uppi um að fara eitthvað annað? Misstu leikmennirnir sem eftir stóðu áhugann á að spila körfubolta yfir höfuð þegar James fór?

Þú verður að velja.

Sunday, January 9, 2011

Þetta hefur ekkert að gera með körfubolta


Uppáhalds flækingurinn okkar allra hann Ted Williams er búinn með fyrsta giggið sitt sem gullbarki. Vel við hæfi að hann sé að auglýsa mac´n cheese. Krakkinn í auglýsingunni var líka útigangsmaður.

Clyde dagsins


Dílbreikerinn í Melo-skiptunum þennan daginn


Kjóstu Stoudemire í Al-Stjörnuleikinn, eða þessi lumbrar á þér


Rondo stefnir ekki á að verða stigakóngur


Ertu alveg viss?


Earl Djöflamergur Boykins


Leikkonan spengilega Gabourey Sidibe kann vel að meta analinn á Luc Mbah a Moute er tvímælalaust með áhugaverðari fyrirsögnum


Pulling them off?


Rajon Rondo er töffari. Þú veist það og við vitum það. Það hefur aldrei verið leyndarmál hér.

























Það þýðir þó ekki að hann sé að púlla þetta dress. Það gerir enginn nema Don Johnson - og það fyrir aldarfjórðungi síðan. Ef við leyfum okkur að vitna í Mark Jackson - Rondo, þú ert betri en þetta!

Sjonni getur enn spilað körfubolta


Er þetta Shaun the Sheep (ísl. Sauðurinn Sjonni)? Er þetta Shaun of the Dead (ísl. Sjonni í sex fetunum)? Nei, þetta er Shaun Livingston.



Þetta er ekki troðsla sem breytir veraldarsögunni en það vermir alltaf hjörtu okkar að sjá að þessi maður skuli enn geta gengið - hvað þá spilað í sterkustu körfuboltadeild heims. Gaurinn sleit öll liðbönd sem hægt er að slíta í hnénu á sér og átti aldrei að geta spilað aftur.

Livingston var á sínum tíma gríðarlegt efni, en stóð aldrei undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar. Meiðsli höfðu þar leiðinlega mikið að segja. En eitthvað segir okkur að Livingston sé sama, eftir það sem á undan er gengið.