Saturday, December 22, 2012
Er Pelíkönunum hugað líf?
New Orleans Hornets getur farið í aðra hvora áttina á allra næstu árum. Orðið efnilegasta liðið í deildinni, eða sigið hægt og rólega í holræsið. Með nafn eins og New Orleans Pelicans, væri síðari kosturinn ekki óhugsandi. Kannski er þessi mynd svona táknræn vígspá félagsins.
Efnisflokkar:
David Attenborough
,
Hornets
,
Pelicans
,
Þunglyndi
Greiðar meinar Hibbert aðgang
Efnisflokkar:
Aðgangur bannaður
,
Derrick Favors
,
Roy Hibbert
,
Tilþrif
Thursday, December 20, 2012
Bill Simmons þarf að vinna um jólin
Það verður ekkert slor prógramm í NBA á jóladag eins og fram hefur komið. Besti leikurinn (Miami-Oklahoma) verður í beinni á Stöð 2 Sport klukkan 22:30. Hér fyrir neðan sérðu þá Michael Wilbon, Bill Simmons og Jalen Rose spjalla um jólaleikina.
Efnisflokkar:
Bill Simmons
,
Dagskrá
,
Jólin
5000 snuddur hjá Paul
Chris Paul náði þeim áfanga í nótt að gefa 5000. stoðsendinguna sína í 510. leiknum sínum á ferlinum. Paul er á svipuðu róli og bestu sendingamenn sögunnar og hér fyrir neðan sérðu skilti sem sýnir okkur þá leikmenn sem voru fljótastir að ná í 5000 stoðsendingar á ferlinum.
Efnisflokkar:
Chris Paul
,
Sögubækur
,
Stoðsendingar
,
Vel Gert
Wednesday, December 19, 2012
Irving setti Kidd í hrærivélina
Efnisflokkar:
And1
,
Boltameðferð
,
Jason Kidd
,
Kyrie Irving
,
Þetta er ungt og leikur sér
Tuesday, December 18, 2012
Monday, December 17, 2012
John Stockton og auglýsingarnar
John Stockton lék ekki í mörgum auglýsingum á ferlinum, enda með sannkallaða fjölmiðla- og myndavélafælni. Það kom okkur því nokkuð á óvart þegar við rákumst á þessa skemmtilega hræðilegu Diet Pepsi auglýsingu með leikstjórnandanum goðsagnakennda.
Og úr því við vorum að opna þessa ormadós, er hér önnur jafnvel skelfilegri auglýsing með Stockton og Hot Rod Hundley í aðalhlutverki. Skondið að America 1st credit union er enn í dag einn stærsti styrktaraðili Utah Jazz. Líklega vegna þess að samstarfið var reist á þessari frábæru auglýsingu.
Efnisflokkar:
Auglýsingar
,
John Stockton
,
Klassík
,
Leikrænir tilburðir
Friday, December 14, 2012
Klámfengin skotkort tveggja snillinga
Skotkort eru ákaflega skemmtilegt fyrirbæri sem dregið geta upp glögga mynd af frammistöðu leikmanna í NBA deildinni.Það er ekki langt síðan farið var að bjóða okkur upp á að skoða skotkort fyrir leikmenn í deildinni, en við erum reyndar ekki alveg búin að ná tökum á því enn.
Þeir passa að hafa þetta flókið svo fólk eins og við (sem er vel undir meðalgreind) geti ekki nýtt sér þessa skemmtilegu framsetningu til fullnustu.
Okkur langar samt að sýna ykkur dálítið skemmtilegt.
Hér til hægri sérðu myndir af nokkrum hefðbundnum skotkortum frá nokkrum ónefndum leikmönnum í NBA.
Hægt er að draga upp skotkort bæði liða og leikmanna, hvort heldur sem er úr einum leik eða jafnvel 82 ef því er að skipta.
Taktu eftir því að kortið fer frá því að vera rautt, þá yfir í gult og að lokum í grænt.
Guli liturinn táknar að hittni leikmannsins okkar á þeim tiltekna reit er í kring um meðaltal í deildinni. Sé reiturinn rauður er hittni leikmannsins á því svæði undir meðaltali í deildinni en sé hann grænn, er leikmaðurinn að hitta yfir meðaltali í deildinni.
Þannig er til dæmis ekki óalgengt að sjá að menn sem eru lélegir við að slútta við körfuna séu rauðleitir í teignum en svo kannski grænir fyrir utan þriggja stiga línu úr sitt hvoru horninu ef það er uppáhalds staðurinn þeirra.
Á efri myndinni eru nokkur skotkort af algjöru handahófi sem við límdum saman til að gefa ykkur smá hugmynd um hvernig skotkort "mannlegra" leikmanna geta litið út.
Kíktu svo á þetta:

Hér fyrir ofan sérðu svo nokkuð sem er ekki hægt að kalla annað en listaverk hjá tveimur af hagkvæmustu skorurum deildarinnar á síðustu leiktíð, þeim Kevin Durant hjá Oklahoma og Steve Nash á lokaárinu sínu með Phoenix Suns (smelltu til að stækka).
Hér eru á ferðinni heildarskottölur 2011-12. Taktu eftir því að þeir eru báðir við eða yfir meðaltali í deildinni á nánast öllum reitunum!
Þetta er með algjörum ólíkindum!
Það er ástæða fyrir því að svona kallar eru með gott kaup!
Þetta er rugl!
Efnisflokkar:
Allt er vænt sem vel er grænt
,
Fánýtur fróðleikur
,
Kevin Durant
,
Skotkort
,
Steve Nash
,
Tölfræði
Jordan hataði ekki Vampíruvaktina
Efnisflokkar:
Draumaliðið
,
Hreyfimyndir
,
Klassík
,
Magic Johnson
,
Michael Jordan
,
Vampíruvaktin
Thursday, December 13, 2012
Allir gáfu þeir öðru fólki körfubolta
Jóhannes Snævarr var fljótastur að svara rétt í getraun dagsins, sem var hundlétt að þessu sinni. Piltarnir á myndinni sem við sýndum ykkur áttu það augljóslega sameiginlegt að vera leikstjórnendur, auk þess að hafa leitt NBA deildina í stoðsendingum nákvæmlega einu sinni hver.
Mark Jackson naut góðs af því að spila með Denver líkt og Andre Miller á sínum tíma en þar á bæ hafa hraði og skotgleði oftast verið í forgrunni. Þegar Golden State þjálfarinn Jackson leiddi deildina í stoðsendingum árið 1997 var hann fyrstu 50 leikina hjá Denver (12,3) en lauk árinu hjá Indiana (9,8) og endaði með 11,4 snuddur í leik - heilli stoðsendingu fleiri en næsti maður (John Stockton 10,5).
* "Tiny" Archibald, sem síðar átti eftir að gera garðinn frægan með Boston Celtics (meistari 1981), varð bæði stiga- og stoðsendingakóngur þegar hann lék með Kings árið 1973.
Það er algeng pub-quiz spurning hver sé eini maðurinn í sögu NBA sem leitt hafi deildina í stigum og stoðsendingum á sama tímabili, en tæknilega var Archibald annar maðurinn í sögunni til að gera það.
Þannig var að Oscar Robertson var með hæsta meðaltal allra í deildinni í báðum þessum tölfræðiþáttum árið 1968, en þá var farið eftir heildartölum en ekki meðaltali þegar þessi verðlaun voru veitt.
Það var sjálfur Wilt Chamberlain sem fékk því stoðsendingatitilinn þetta ár þó hann væri "aðeins" með 8,6 stoðsendingar að meðaltali í leik gegn 9,7 hjá Robertson. Ansi sögulegur titill hjá miðherjanum Chamberlain, sem er eina fimman í sögunni sem hefur landað þessari nafnbót sem oftast er eign leikstjórnendanna.
Efnisflokkar:
Getraunir
,
Stoðsendingar
,
Verðlaun og viðurkenningar
Önnur hel***is getraun
Það liggur í augum uppi að þessir huggulegu menn eru allir þeldökkir og hafa spilað í NBA deildinni.
Tvö atriði í viðbót eiga þeir sameiginleg. Getur þú sagt okkur hver þau eru?
Efnisflokkar:
Getraunir
Tuesday, December 11, 2012
Getraunin góða
Undirtektirnar sem við fengum vegna síðustu getraunar voru vægast sagt hræðilegar.
Þó náði einn snjall piltur að koma með helminginn af svarinu. Við vorum að leita eftir amk tveimur hlutum sem tengdu þá Jeff Malone, Tyrone Corbin og Kevin Willis.
Það vildi svo skemmtilega til að þessir gömlu refir léku allir eitthvað með Miami Heat leiktíðina 1995-96 og voru þess vegna liðsfélagar Kurt Thomas sem enn er að spila í deildinni.
Thomas leikur með ellismellunum í New York Knicks í dag, en hann var á nýliðaárinu sínu með Miami árið 1995.
Efnisflokkar:
Elli Kelling
,
Faðir Tími
,
Getraunir
Af hverju er Golden State að vinna körfuboltaleiki?
Merkilegir hlutir eru að gerast í körfuboltanum í Oakland þessa dagana. Þó er kannski rangt að segja að þessir hlutir séu að gerast í Oakland. Þeir eru að gerast víða um Bandaríkin og koma sannarlega á óvart.
Golden State Warriors er nefnilega allt í einu farið að vinna körfuboltaleiki og það ekki síst á útivöllum. Liðið vann sinn fjórða útisigur í röð á erfiðu sjö leikja keppnisferðalagi í nótt þegar það skellti Charlotte "Við erum ekkert svo að fara að enda leiktíðina 7-75" Bobcats, 104-96.
Golden State hefur því tryggt sér yfir 50% vinningshlutfall á 7+ leikja keppnisferðalagi í fyrsta skipti síðan leiktíðina 1970-71.Þessi fjögurra leikja sigurganga Warriors er sú lengsta á tímabilinu og aðeins San Antonio (11-2) hefur byrjað betur á útivelli en Golden State (8-4).
Þessir átta sigrar í fyrstu tólf útileikjum Warriors er besta útivallabyrjun liðsins síðan leiktíðina 1993-94.
Sigur Warriors (14-7) á Bobcats tryggði að lokum bestu byrjun liðsins í deildakeppninni síðan leiktíðina 1991-92. Já, það eru um það bil tuttugu ár síðan körfuboltaþenkjandi Oakland-búar hafa verið svona glaðir að hausti.
Í tilefni af þessari litlu rispu Warriors ákváðum við að kíkja aðeins í bækurnar og komumst að raun um að þessi fjögurra leikja sigurganga liðsins - og sjö sigrar í síðustu átta leikjum - er besti árangur liðsins síðan haustið 2007 þegar það vann fimm leiki í röð og átta af níu.
Það er þó aldrei langt í grínið þegar þessi ágæti klúbbur á í hlut, því liðið hóf leiktíðina haustið 2007 á því að tapa fyrstu sex leikjunum áður en það náði ofangreindri rispu. Þetta félag er með ólíkindum.Það var auðvitað Stephen Curry sem fór fyrir Warriors í sigrinum á Kisunum í nótt þegar hann skilaði mjög svo Curry-legri 27/7/7 línu.
Merkilegt hvað þessi rúmlega 30 kílóa piltur nær alltaf að skila af fráköstum, en hann er með fjögur að meðaltali í leik auk sex stoðsendinga og tæplega 18 stiga á ferlinum og er að hóta því að skila 20 stigum í leik í fyrsta skiptið á ferlinum í ár.
Eins og nánast alltaf þegar lið stíga upp úr flórnum og fara að vinna leiki, eru það varnarleikur og fráköst sem eru að skapa velgengni Golden State, en liðið er nú samt að fá tölfræðigúrúa til að klóra sér ansi fast í hausnum í vetur. Þeir botna ekkert í því af hverju liðinu gengur svona vel.
Ykkur er óhætt að bæta okkur á þann lista - Golden State hefur ekkert með það að gera að vinna 14 af 21 leik. Ekki undir neinum kringumstæðum. Eins og alltaf, alltaf, alltaf, hanga lágmark ein alvarleg meiðsli eins og draugur á liði Golden State. Það er í meira lagi sorglegt að lesa línurnar "og þetta er þeim að takast án Andrew Bogut" í hverri einustu umfjöllun um liðið.
Bogut myndi styrkja liðið mikið ef hans nyti við, en við óttumst að það sama sé í gangi hjá Bogut og Andrew Bynum og ráðleggjum stuðningsmönnum Warriors að halda nú ekki niðri í sér andanum meðan þeir bíða eftir að Balkanskaga-Ástralinn skemmtilegi nái sér af einhverjum af þeim 1300 meiðslum sem hrjá hann.
Nú höfum við ekki horft mikið á Golden State spila í vetur, raunar ekki nema örfáar mínútur, en það þýðir ekki að við getum ekki myndað okkur skoðanir á ástæðunum að baki nýfundinni velgengni liðsins. Skárra væri það nú. Þú veist að við hötum nú ekki að freta einhverjum órökstuddum skoðunum út í loftið.
Við höfum minna en enga trú á Mark Jackson sem þjálfara, svo við ætlum ekki að þakka honum viðsnúninginn. Jackson er ekki annað en þeldökkur Vinny del Negro í okkar bókum. Afsakið orðbragðið.Nei, við ætlum freka að henda Ewing-kenningu á Monta Ellis.
Sá skotóði og skemmtilegi bakvörður fór eins og flestir vita til Milwaukee í skiptum fyrir Andrew Bogut (og fleira) og svo virðist vera að það hafi haft þessi fínu áhrif á Warriors, jafnvel þó Bogut spili ekki neitt.
Tölfræðingar hafa alla tíð haft uppi efasemdir um hagkvæmni þess að vera með lágvaxinn og óhemju skotglaðan mann í skotbakvarðarstöðunni og aumingja Milwaukee er að heita má komið með tvo slíka, því seint verður Brandon Jennings ruglað saman við John Stockton þegar kemur að leikstjórn og listinni að gefa boltann.
Milwaukee getur unnið hvaða lið sem er hvenær sem er eins og Boston og Brooklyn fengu að vita á dögunum, en oftar en ekki skjóta þeir Ellis og Jennings liðið sitt út úr leikjum en inn í þá þó þeir séu mjög erfiðir viðureignar fyrir hvaða bakverði sem er.
Auðvitað er það bilun að kenna Monta einum um þennan viðsnúning hjá Golden State, því liðið er jú líka með unga og efnilega leikmenn eins og Klay Thompson og Harrison Barnes í bland við fína rulluspilara eins og Jarrett Jack og Carl Landry.
Við ætlum samt að kenna aumingja Ellis um þetta allt saman, eins og kvikindin sem við erum.
Við könnumst við nokkra stuðningsmenn Golden State Warriors á Íslandi.
Þetta eru oftar en ekki menn á besta aldri sem festust í neti Oakland liðsins þegar það hafði Run-TMC gengið í sínum röðum í kring um 1990.
Það hefur ekki verið neitt grín að halda með þessu liði síðan og ef þetta það verður á einhvern hátt samkvæmt sjálfu sér, verða þeir Steph Curry og David Lee væntanlega báðir komnir í gifs áður en við vitum af. Ekki síst eftir að hafa fengið svona gott jinx frá ritstjórn NBA Ísland.Við vonum nú samt að Golden State pappíri sig og nái sér einu sinni á strik, fjandakornið. Það er nú kominn tími á það og stuðningsmennirnir eiga það skilið, enda með þeim hollari og betri í gervallri NBA deildinni.
Við erum fjarri því búin að fyrirgefa Warriors að tapa nær öllum leikjum sínum viljandi á síðustu leiktíð til að missa ekki valréttinn sinn frá sér, en okkur gruar að Körfuboltaguðirnir sjái til þess að jafnt verði í spilunum þegar yfir lýkur.
Það er venjulega þannig, nema einna helst þegar San Antonio á í hlut.
P.s. - Á neðstu myndinni í færslunni má sjá Stephen Curry sem barn í kjöltu föður síns Dell Curry sem var heimsklassa skotmaður á sínum tíma. Við hlið Curry-feðga situr Mitch Richmond úr Run-TMC genginu og sá gráhærði á bakvið er Don Nelson, sem þjálfaði Warriors-liðið með þá Mullin, Richmond og Hardaway.
Efnisflokkar:
Furður veraldar
,
Sigurgöngur
,
Stephen Curry
,
Warriors
Saturday, December 8, 2012
New York er enn að vinna körfuboltaleiki:
Það er sannarlega með ólíkindum, en nú þegar tæpur fjórðungur er búinn af leiktíðinni í NBA, er New York enn í efsta sæti Austurdeldarinnar - einum og hálfum leik á undan meistaraliði Miami Heat.
Geðveikustu einstaklingar hefðu aldrei spáð þessu. Breytingarnar sem urðu á liði New York milli tímabila þóttu fremur fyndnar en líklegar til árangurs. New York hafði ekki úr miklu að moða á leikmannamarkaðnum í sumar enda eru lykilmenn liðsins ansi dýrir í rekstri. Félagið ákvað þó að næla sér í nokkra leikmenn sem flestir voru komnir nokkur ár fram yfir síðasta söludag.
Spólum aðeins áfram og í dag sigur liðið í efsta sæti Austurdeildar eins og áður sagði, með 14 sigra og aðeins fjögur töp. Við skrifuðum nokkur orð um New York liðið fyrir nokkrum vikum en urðum hreinlega að endurtaka það úr því að Öskubuskuævintýrið lifir enn.
Það er ósköp eðlilegt að óvæntir hlutir gerist í NBA deildinni og við fáum oft óvæntar sigurgöngur úr ólíklegum áttum. Fáir sáu þessa hjá Knicks þó fyrir.Kíkjum á nokkrar tölur.
Vissirðu að New York er 32-10 síðan Mike Woodson tók við liðinu í mars?
Vissirðu að liðið er 19-1 á heimavelli í tíð Woodson? Nítján - eitt!
Liðið hefur aðeins tapað fyrir Miami (á síðustu leiktíð) í Garðinum síðan Woodson tók við, en það hlæja allir að því í dag, því nú virðist New York skyndilega vera komið með tak á meisturunum. Já, það heitir að vera með tak á andstæðingnum þegar Knicks hefur unnið báða leiki liðanna í vetur með tuttugu stiga mun!
Vissulega hefur New York mátt muna fífil sinn fegurri undanfarin ár, það dylst engum. Sérstaklega stuðningsmönnunum - fólkinu sem okkur verður alltaf hugsað til þegar við tölum um New York.
Það eru alltaf þessar villtu vonir í Madison Square Garden, en það er langt síðan partíið náði fram á morgun hjá Spike Lee og félögum.Knicks hefur ekki unnið meira en 50 leiki í deildakeppninni síðan árið 1997, eða rétt áður en Michael Jordan hætti að leika með Chicago Bulls.
Og já, New York hefur ekki unnið nema þrjá leiki í úrslitakeppninni síðan árið 2001.
Það er hræðilegur árangur - um það er engum blöðum að fletta. Þetta hefur verið hræðilegur áratugur.
En nú virðist skyndilega vöknuð von í New York - og það alvöru von - ekki bara einhver blaðra. Það á að vísu ekki að vera fræðilegur möguleiki að liðið haldi þeim dampi sem það hefur verið á á fyrsta fjórðungnum.
Það er svo sem engin ástæða til að ætla að liðið fari eitthvað að drulla alvarlega á sig úr því sem komið er ef það sleppur við meiðsli. Það á nú einu sinni þá Amare Stoudemir og Iman Shumpert inni, hvernig sem Mike Woodson fer að því að sauma þá inn í þetta á ný.
New York spilar vörn, passar boltann og deilir honum vel innan liðsins. Svo skjóta þessir brjálæðingar þriggja stiga skotum þangað til þeim blæðir úr fingurgómunum. Þetta hljómar allt voðalega einfalt og meira að segja vandræðapésarnir kaupa þetta og koma að notum.Ja, hérna. Lítið annað hægt að segja.
Það er kannski að koma upp úr kafinu að Mike Woodson sé eftir allt þokkalegur þjálfari - þó ekki sé hann brúnaþungur.
Hvað varð um allan þennan óþolandi Iso-Joe sóknarleik sem hann var gagnrýndur svo mikið fyrir þegar hann stýrði Atlanta Hawks?
Hvað hefur orðið um bölvunina sem legið hefur á New York-liðinu og hindrað framgöngu þess ár eftir ár?
Höfum við kannski vanmetið leiðtogahæfileika pensjónistanna svona rosalega?
Við höfum bara alls ekki nógu mikið vit á körfubolta til að geta svarað öllum þessum spurningum, en þess í stað lyftum við bara skál fyrir Knicks í annað sinn á leiktíðinni.
Drekkið á meðan þetta er heitt.
Svo skoðum við hvort New York ætlar enn að vinna Austurdeildina þegar Stjörnuleikurinn verður haldinn.
Efnisflokkar:
Knicks
,
Knicksblæti
,
Öskubuskuævintýri
,
Velgengni
Í alvöru, Rip?
Efnisflokkar:
Dreptu okkur ekki
,
Eðlilegt
,
Friður sé með yður
,
Justin Bieber
,
Pedo
,
Raunir hvíta mannsins
,
Rip Hamilton
,
Rólegur
,
Sælar stelpur
,
Stilltu þig gæðingur
,
Var ekki til stærri húfa?
Amare er ekki með júllur
Efnisflokkar:
Amare Stoudemire
,
Líkamsþróttur er eftirsóttur
,
Meiðsli
,
Miðar á byssusýninguna
,
Sælar stelpur
,
Sjoppan
Spænska vandamálið
Efnisflokkar:
Ásakanaleikurinn
,
Dramatík
,
Kobe Bryant
,
Lakers
,
Leikmannamál
,
Óðagot og áhyggjur
,
Pau Gasol
,
Stórustrákabuxurnar
,
Svarta Mamban
,
Undir rútunni
Subscribe to:
Posts (Atom)
















