Monday, December 3, 2012
Friday, November 30, 2012
Ersan Ilyasova og Hedo-heilkennið
Ersan Ilyasova hefur verið nokkuð í fréttum í haust og þó það nú væri. Komið hefur í ljós að hann hefur skitið á sig eftir næstum hvern einasta leik Bucks til þessa.
Ilyasova er fæddur á Eskişehir (Eskifirði) í Tyrklandi þann 15. maí 1987. Fyrstu fimm árin sín með Bucks var hann með að meðaltali 1,6 milljónir dollara í árslaun, sem er ansi hreint lítið miðað við það sem gengur og gerist í NBA.
Ekki fór mikið fyrir piltinum fyrstu árin, en á síðustu leiktíð byrjaði hann allt í einu að leggja fram svona leiki (stig/fráköst):
19/15, 17/17, 20/16, 31/12, 32/10, 29/25, 17/16, 7/19.
Sannarlega ekki á hverjum degi sem menn bjóða upp á 29 stig og 25 fráköst í einum leik. Aðeins Ástþór býður upp á svona tölur - eða það héldum við þar til Ilyasova frussaði upp þessari stera-línu gegn Nets á síðustu leiktíð.Og svo er hann brúkleg langskytta líka, svona eins og sykurlaus Ástþór.
Þvílík tilviljun að Ersan okkar skuli hafa verið með lausa samninga mitt í öllum þessum látum!
Og rétt eins og landi hans Hidayet "Hedo" Türkoğlu hérna um árið, virðist Ilyasova nú ætla að gera fátt annað en að drulla í buxurnar eftir að hafa skrifað undir samning sem færir honum 8 milljónir dollara á ári næstu fimm árin.
Það er milljarður króna á ári.
Sjáðu bara hvað tölfræðin hans hefur hrunið.
Vonandi nær Ilyasova að hrista þetta af sér og vonandi er hér ekki um Hedo-heilkennið að ræða. Kannski væri heppilegra að kalla það bara Tyrkjarán.
Það er svívirðilegt hvað er auðvelt að búa til ódýra orðaleiki úr raunum Ilyasova og biðjum við lesendur umsvifalaust afsökunar á því.
Já, krakkar, það væri synd ef Ersan næði sér ekki á strik á ný, verandi sjaldgæfur og solid fjórfari.
Svo er auðvitað alltaf sá hræðilegi möguleiki fyrir hendi að Scott Skiles þjálfari drepi hann hreinlega með ryðfríum kartöflustappara.
Maður sem var tilbúinn að fljúgast á við Shaquille O´Neal lætur það nú ekki eftir sér að mauka einn Tyrkjadjöful sem er að stela kaupinu sínu.
Það er kannski ljótt að segja svona, en þið vitið að okkur gengur aldrei annað en gott til. Þetta er aðeins ætlað sem hvetjandi skrif til handa efnilegum leikmanni sem villst hefur af leið og stefnir í glötun.
* - (Lausleg þýðing) Áttavilltur ungur maður í NBA - ENDAÞARMSINNLEGG ERSANS
Efnisflokkar:
99 vandamál
,
Aftanmóðumas og steinsmugustiklur
,
Bucks
,
Erlent vinnuafl
,
Ersan Ilyasova
,
Kemur
,
Viðvaningsháttur
Ristill: David Stern vs San Antonio
Enn og aftur erum við með óbragð í munninum yfir fyrirætlunum David Stern. Hann hefur nú gefið það út í dramakasti að hann ætli að refsa San Antonio fyrir ákvörðun þjálfarans að hvíla lykilmenn liðsins í útileik þess gegn Miami í nótt.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Popovich þjálfari Spurs gerir þetta. Hann gerði þetta amk í tvígang á síðustu leiktíð og fékk liðið stóran skell í annað skiptið. San Antonio hefur aldrei unnið leik þegar Popovich hefur ákveðið að hvíla þá Duncan, Ginobili og Parker og það breyttist ekki í nótt, þó tapið væri afar naumt gegn meisturunum.
Twitter hefur auðvitað logað út af þessu máli í alla nótt og við verðum að segja að það kemur okkur á óvart hve margir hafa tekið upp hanskann fyrir viðbjóðinn hann David Stern í þessu máli.Það þýðir þó ekki að megi ekki finna að þessari ákvörðun Popovich, alls ekki.
Við erum af gamla skólanum og þó Popovich eigi að heita það líka, hefur það ekki aftrað honum frá því að taka þessa umdeildu ákvörðun um að hvíla fjóra stigahæstu leikmenn sína fyrir leikinn í Miami.
Það sem við eigum við þegar við segjum að við séum af gamla skólanum, er best að útskýra með því að vitna í Jerry Sloan, fyrrum þjálfara Utah Jazz. Sloan benti alltaf á það að leikmenn skulduðu fólkinu það að gefa 100% í alla leiki - alltaf - því fólkið sem borgaði stórfé inn á leikina ætti það skilið.
Þetta er auðvitað alveg rétt hjá þeim gamla og ekki var hann að hvíla sína menn Stockton og Malone með þessum hætti, þó þeir spiluðu báðir fram undir og yfir fertugt hjá honum.
Sloan þekkti það jafnvel betur en Popovich hvernig var að keyra á lykilmönnum sem komnir voru langt fram yfir sitt léttasta skeið, svo hans skoðun telur því þungt í þessu samhengi að okkar mati.NBA leikmenn eru, þegar öllu er á botninn hvolft, milljarðamæringar og eiga því að vera nógu góðir til að spila þessa leiki sem eru á töflunni eins og allir aðrir.
Annað atriði sem er auðvelt að gagnrýna við ákvörðun Pop, er að hann skuli senda leikmennina upp í flugvél og heim til Texas - í stað þess að leyfa þeim bara að sitja á bekknum og hvíla.
Að senda þá heim gerir meira í því að senda deildinni langt nef en bara það að hvíla þá (þó það sé auðvitað miklu meiri hvíld í því að fara bara heim í sófa).
En nú komum við að hinni hliðinni á peningnum - hliðinni sem snýr upp að okkar mati.
Gregg Popovich ræður hvað hann gerir við liðið sitt og það kemur engum rassgat við. Hvorki þér né David Stern
Popovich, Duncan, Parker og Ginobili hafa unnið sér það inn frá því fyrir aldamót að gera það sem þeim fokkíngs sýnist. Þeir hafa unnið sér inn virðingu til þess og höfðu í þessu tilviki unnið sér inn fyrir því að fá smá frí, því liðið hefur byrjað leiktíðina með bravúr og var að koma úr bestu útileikjarispu Í SÖGU NBA áður en kom að Miami leiknum.
Spurs var búið að vinna 29 af síðustu 33 útileikjum sínum og toppar þar m.a. ótrúlegan árangur Chicago-liða Michael Jordan á sínum tíma - annað þeirra náði til að mynda besta árangri allra tíma, 72-10.
Þá hefur þessi lykilmannskapur San Antonio jú unnið fjóra meistaratitla, svo ef einhver þjálfari og einhver mannskapur hefur unnið sér það inn að fá að hvíla einn bévítans leik - er það þetta San Antonio lið.
Ef það er einhver ákveðin tegund leikmanna í NBA sem er líklegri en önnur til að meiðast, er það leikmenn sem eru undir gríðarlegu álagi.Ef einhver tegund leikmanna er líklegri en þessi til að meiðast, eru það gamlir leikmenn undir miklu álagi.
Það er nóg af þessum efnivið í San Antonio og þetta veit Popovich ósköp vel. Hann er að tefla til að vinna meistaratitil, ekki til að reyna að komast í úrslitakeppnina. Hann er að spila heilt tímabil, ekki bara að reyna að vinna næsta leik til að bjarga á sér beikoninu eins og svo margir aðrir þjálfarar í NBA.
Og ekki fara að væla um að stuðningsmenn Miami hafi borgað góðan pening til að sjá stórstjörnur San Antonio. Þið vitið öll að San Antonio er almennt álitið minnst sexí körfuboltalið í deildinni af Jóni Jónssyni úti í bæ og 90% af kasjúal fans eru búnir að fá hundleið á Spurs fyrir tíu árum síðan.
Það er ekki verið að neita þeim um að sjá Kobe eða Durant. Þetta er gamla, leiðinlega San Antonio, svo þessi afsökun er ekki tekin gild. Sorry.
Það er til fordæmi um svona sektir í NBA. Valdafyllibyttan David Stern sektaði Pat Riley og Los Angeles Lakers um 25 þúsund dollara árið 1990 fyrir að hvíla lykilmenn eins og Magic Johnson og James Worthy í lokaleik deildakeppninnar.
Það er einfaldlega rangt að Stern skuli rísa upp á afturlappirnar og taka geðkast allt í einu núna þegar Spurs er búið að gera þetta oft áður. Það er því eiginlega sársaukafullt hve augljóst það er af hverju Stern er að bregðast svona við núna.Stern hefur fengið símtal frá reiðum toppi frá TNT sjónvarpsstöðinni þegar í ljós kom að Spurs ætlaði að hvíla sína bestu menn, því auðvitað snýst NBA deildin ekki um neitt annað en peninga eins og allt annað.
Sjónvarpspeningar eru dýrmætustu og mestu peningarnir í öllu NBA-samhenginu og David Stern er ekki maður sem lætur skamma sig. Hann mun því taka alla sína ógæfu út á San Antonio og setja eitt af sínum fasistafordæmum, sannið til.
Refsingin sem hann mun skella á Spurs er aukaatriði í sjálfu sér, það eru viðbrögð Stern sem fara í taugarnar á okkur. Var virkilega ekki hægt að ræða málin? Var ekki hægt að gefa Spurs aðvörun?
Heimildir herma að Stern hafi ekki svo mikið sem sett sig í samband við San Antonio áður en hann rauk í fjölmiðla og gaf út að hann ætlaði að refsa félaginu. Þetta eru dæmigerð diktatoravinnubrögð hjá þessum hrokafulla, peningagráðuga og valddrukkna fáráði.
Stern var maðurinn sem kom NBA deildinni á koppinn, það verður ekki af honum tekið, en rétt eins og margir menn í valdastöðum, vissi hann ekki hvenær hans tími var kominn. Hann hefði átt að hætta fyrir löngu síðan.
Verst af þessu öllu er svo þessi óþolandi hræsni í yfirlýsingu hans að biðja stuðningsmenn NBA afsökunar á gjörðum San Antonio í kvöld.
Ertu að grínast, gölturinn þinn!?!
*Hvernig væri að byrja á að biðjast afsökunar á Donaghy-skaldalnum?
*Hvernig væri að biðjast afsökunar á verkbanninu í fyrra?
*Hvernig væri að minnka álagið á leikmenn í deildinni?
*Hvernig væri að biðjast afsökunar á því hvernig nokkur lið gera það viljandi og kerfisbundið að tapa leikjum á hverju einasta vori út af gölluðu kerfi í deildinni? #Tanking
*Hvernig væri að biðjast afsökunar á Charlotte Bobcats og Washington Wizards?
Líttu í eigin barm, hrokafulla, elliæra svín.
Það verður dásamlegt þegar þú hættir.
Efnisflokkar:
Álag
,
David Stern
,
Frussandi gremja
,
Gregg Popovich
,
Hræsni
,
Markaðsmál
,
Ristill
,
Spurs
Wednesday, November 28, 2012
Skriðdýrið Joey Crawford hatar sviðsljósið
Efnisflokkar:
Athyglisýki
,
Hægðaheilar
,
Joey Crawford
,
Skriðdýr
,
Veikir einstaklingar
Flensuleikurinn dugði ekki
Auðvitað kom Indiana með einn flottan sigur til að fylgja eftir ristlinum sem við skrifuðum um liðið hérna á dögunum. Auðvitað fór Indiana til Los Angeles og lagði jójólið Lakers 79-77.
George Hill var óhemju svalur í lokin og skoraði tvær síðustu körfur Indiana, sitt hvoru megin við stóran þrist frá Kobe Bryant sem lyfti honum í 40 stigin þrátt fyrir flensu.
Það er tíska að spila vel með flensu, rétt eins og að binda mönnum helskó til að ganga á til Valhallar.
Kobr Bryant hefur nú skorað 40 stig eða meira 114 sinnum á ferlinum. Hitti 12 af 28 skotum í nótt, hirti 10 fráköst og tapaði 10 boltum.
Verst að Lakers hafi tapað leiknum. Þú vinnur ekki þegar þú tapar 19 boltum og klikkar á tuttugu vítum. Tuttugu! Þar af var Dwight Howard 3 af 12. Þetta á ekki að vera hægt.Það er ekkert að marka þetta Lakers-lið fyrr en Nash kemur aftur og liðið nær að spila sig saman.
Það er reyndar langt í það, en stóra spurningin er líka hvort meiðslastandið á þessum fuglum kemur yfir höfuð til með að leyfa þeim að stilla saman strengi.
Ef þú heldur að Dwight Howard hafi verið dómínerandi í leiknum með 17 stig og 8 fráköst, bíddu þá þar til þú heyrir hvað Roy Hibbert gerði. Stjörnuleikmaðurinn sá skilaði 8 stigum og 5 fráköstum á hvorki meira né minna en 18 mínútum áður en hann fékk sjöttu villuna.
Þvílíkir kálfar, gungur og lyddur.
Lakers verður því eitthvað áfram með lakari árangur en Charlotte Bobcats.
Efnisflokkar:
Dwight Howard
,
George Hill
,
Kobe Bryant
,
Lakers
,
Pacers
,
Roy Hibbert
Nú er nóg komið, sögðu Körfuboltaguðirnir...
...þegar Minnesota hafði tapað fimm leikjum í röð. Hvað getur það verið annað þegar Ástþór ísar leikinn með svona skoti. Hann hefur fengið einhverja hjálp við þetta síðasta skot sitt, þó hann hafi átt megnið af 23 stigunum og 24 fráköstunum sínum sjálfur.
Efnisflokkar:
Ástþór
,
Guðleg afskipti
,
Kevin Love
,
Timberwolves
,
Úlfavaktin
Tuesday, November 27, 2012
Eigum við að hafa áhyggjur af Clippers?
Nei, ekki stórar.
Þetta er niðurstaða vísindalegrar skyndikönnunar sem við gerðum í nótt eftir að Clippers drullaði enn og aftur á sig á heimavelli gegn liði sem það ætti að nota sem dyramottu.
Smelltu á myndina hér til hliðar til að sjá skeddjúlið hjá Clippers það sem af er.
Leikur Clippers og Hornets í nótt var sannarlega fjörugur og meira að segja sögulegur í leiðinni.
Caron Butler sló félagsmet Randy Foye (8) frá í fyrra með því að setja níu þrista fyrir Clippers. Það kom þó ekki í veg fyrir að New Orleans færi með nokkuð sannfærandi sigur af hólmi 105-98 í Staples Center.
Fjögur stig (1-9 í skotum) Blake Griffin hjálpuðu Clippers liðinu frekar lítið.
Þetta var fjórða tap Clippers í röð og því eru margir farnir í panikk, því það eru ekki margir dagar síðan menn voru að tala um Clippers sem alvöru áskoranda í slagnum um Vesturdeildina.
Þolinmæði og yfirvegun hefur aldrei verið sterkasta hlið þeirra sem fylgjast með NBA. Gildir þá einu hvort um er að ræða blaðamenn eða almenna aðdáendur.Við skulum samt kíkja á töfluna hjá Clippers og kryfja þetta betur. Clippers átti, fyrir það fyrsta, að byrja leiktíðina 10-0.
Aðeins aulaleg heimatöp fyrir Golden State og Cleveland komu í veg fyrir þessa fullkomnu byrjun. Ekkert annað en vanmat og leti í gangi. Þess vegna byrjaði liðið 8-2 í stað 10-0.
Þessi fjögur töp sem hafa komið í kjölfarið eru svo ofur-skiljanleg.
Þrír fyrstu leikirnir voru á útivelli. Fyrst tapar liðið fyrir Oklahoma City í framlengdum naglbít og er því næst svo óheppið að hitta á einn af þremur leikjum Nets í vetur þar sem liðið nær að spila vörn.
Strax kvödið eftir kemur svo tap fyrir Atlanta Hawks, en slík töp er auðvelt að skrifa á þreytu.
Það er mikil og stór klisja í NBA að enginn leikur sé jafn "hættulegur" og fyrsti leikurinn á heimavelli eftir nokkurra leikja keppnisferðalag.Þessi klisja sannaðist heldur betur í nótt þegar Clippers tók á móti New Orleans Hornets, sem var án sinna tveggja bestu manna og búið að tapa sjö leikjum í röð.
Clippers átti aldrei möguleika í leiknum, þó baráttan hafi verið til staðar, amk í síðari hálfleik. Það er bara erfitt að vinna lið sem skjóta 15 af 25 (60%) úr þristum.
Stuðningsmenn Clippers þurfa ekki að örvænta. Við kíktum á töfluna hjá liðinu út árið og getum með sanni sagt að hún er ekki ýkja ógnvekjandi. Liðið á ekki einn leik við mjög sterkt lið fram að áramótum. Boston, Denver, Dallas - þetta eru bestu liðin sem Clippers á við að eiga út árið - restin er drasl.
Lamar Odom hefur kannski algjörlega misst áhuga og ástríðu fyrir körfubolta, en Clippers á eftir að fara skælbrosandi inn í nýja árið í bullandi samkeppni um toppsætið í Vesturdeildinni.
Það yrði þó enn betra fyrir Clippers ef töpin yrðu fleiri en sigrarnir á næstu vikum, því þá myndi stjórnin kannski sjá að sér og reka þjálfarann. Del Negro er engan veginn nógu góður þjálfari til að stýra jafn góðum mannskap og Clippers hefur innan sinna raða.
Ræður ekkert við verkefnið.
Efnisflokkar:
Caron Butler
,
Clippers
,
Óðagot og áhyggjur
,
Taphrinur
,
Vinny Del Negro
,
Þjálfaramál
Taktu þátt í skemmtilegum leik með Drew Gooden
Þetta er mjög eðlileg mynd, enda varð hún til að beiðni hins snar-eðlilega Drew Gooden hjá Milwaukee Bucks. Gooden hefur verið mjög upptekinn við að stela kaupinu sínu í vetur, en datt í hug að setja á skemmtilegan leik fyrir stuðningsmenn Bucks fyrir leik liðsins gegn Bucks í nótt. Þú getur lesið um það hér.
Gooden þessi lék áður með Chicago Bulls, en það er ósköp eðlilegt því hann á ekki eftir að prófa að spila nema með 2-3 liðum í deildinni. Mjög sérstakt eintak, hann Gooden. Líklega hæfileikaríkasti og besti lélegi leikmaður deildarinnar.
Efnisflokkar:
Drew Gooden
,
Kjarneðlisfræðingar
,
Taktu þátt í skemmtilegum leik
Z-Bo og fráköstin
Zach Randolph, eða Z-Bo eins og hann er gjarnan kallaður, átti ljómandi fínan leik þegar lið hans Memphis marði undirmannað lið Cleveland 84-78 í nótt.
Randoph skoraði 19 stig í leiknum og hitti úr 8 af 11 skotum sínum, en hann hirti aðeins 8 fráköst á þeim 36 mínútum sem hann spilaði. Flestir leikmenn í deildinni yrðu sáttir við að hirða 8 fráköst í leik, en ekki Z-Bo.
Þessi átta fráköst voru auðveldlega það langminnsta sem hann hefur tekið í leik í vetur og var þetta í fyrsta skipti sem hann nær ekki tveggja stafa tölu. Fyrir leikinn í nótt, hafði hann ekki tekið undir 11 fráköst í hverjum einasta leik í vetur, sem er ansi magnað.
Randolph er með 13,4 fráköst að meðaltali í leik þegar þetta er skrifað og er í öðru sæti deildarinnar í þeim tölfræðiflokki, en hann tapaði reyndar illa í frákastabaráttunni fyrir manninum sem leiðir deildina í leiknum í nótt.
Brasilíumaðurinn Anderson Varejao hjá Cleveland reif nefnilega niður 22 fráköst og er því enn öruggur í efsta sætinu á frákastalistanum með rúmlega 14 að meðaltali í leik. Nokkuð óvæntur árangur hjá Varejao.
Efnisflokkar:
Anderson Varejao
,
Fráköst
,
Zach Randolph
Getraun dagsins
Þessir heiðursmenn eru allir löngu hættir að spila í NBA deildinni og einn þeirra er meira að segja orðinn aðalþjálfari í deildinni. Þessir þrír virðast í fljótu bragði ekki eiga margt sameiginlegt annað en að hafa gert góða hluti í NBA á níunda áratugnum, en þó eru tvö atriði sem tengja þessa menn nokkuð skemmtilega saman. Getur þú nefnt þessi atriði?
Efnisflokkar:
Getraunir
,
Spurt og svarað
Monday, November 26, 2012
Barnes yfir Stóra-Pek
Þessi hrikalega troðsla átti sér stað í leiknum sem við minntumst á í síðustu færslu. Hér er Harrison Barnes að stanga úr endajöxlunum á Stóra-Pek. Líklega öflugasta andlitsmeðferð ársins til þessa.
Efnisflokkar:
Andlitsmeðferð
,
Harrison Barnes
,
Nikola Pekovic
,
Veðrið þarna uppi
,
Warriors
NBA Ísland í Oracle Arena
Dyggur lesandi NBA Ísland, Gunnar Stefánsson, skellti sér á leik Golden State Warriors og Minnesota Timberwolves um helgina. Hann gætti þess auðvitað að vera vel til fara eins og þið sjáið á myndinni. Gunnar er með þessu kominn í Heiðurshöll NBA Ísland - þó það nú væri.
Efnisflokkar:
Bolurinn
,
Heiðurshöll NBA Ísland
,
Warriors
Friday, November 23, 2012
Innlit hjá einskisnýtu Indiana
Paul George hefur skorað fleiri þriggja stiga körfur í einum leik með Indiana en Reggie Miller gerði nokkru sinni. Það er dálítið skondið, þar sem George er aðeins á sínu þriðja í deildinni og er miklu þekktari fyrir að vera troðari en langskytta.
George setti níu þrista þegar Indiana marði meiðslum hrjáð lið New Orleans á heimavelli í framlengdum leik á dögunum. Þristarnir hans George komu allir í síðari hálfleik og framlengingu.Reggie Miller, ein frægasta þriggja stiga skytta sögunnar, átti tvo átta þrista leiki á ferlinum.
Árið 1993 átti hann 8 af 16 leik og árið 1997 setti hann aftur 8 þrista, en að þessu sinni úr 10 tilraunum. Sá leikur var einmitt gegn Hornets, sem þá var í Charlotte.
Þessi sigur á Hornets kvöldið fyrir Þakkagjörð var ekki nóg til að koma Indiana í 50% vinningshlutfall og í okkar bókum hefur ekkert lið í deildinni valdið öðrum eins vonbrigðum og Indiana það sem af er nema kannski Lakers - og þó ekki.
Danny Granger er enginn LeBron James þó hann haldi það stundum. En það mætti halda að hann væri Indiana-liðinu jafn mikilvægur og James er Miami, því liðið er bókstaflega búið að vera með drulluna í hárinu síðan hann meiddist.Indiana átti að vera liðið til að fylgjast með í Austurdeildinni - Úlfarnir í austrinu ef þannig má að orði komast. Í staðinn er liðið í bullinu og eitt versta sóknarlið deildarinnar. Kannski sá Larry þetta fyrir og nennti þessu ekki. Kannski voru það þessir aumingjar sem urðu þess valdandi að Goðsögnin Larry kaus að snúa baki við leiknum.
Það væri hrikalegt að hafa á samviskunni þegar horft er til þess að ekki einu sinni Ron Artest og Stephen Jackson fengu hann til að hætta með því að ráðast á áhorfendur og berja þá.
Nei, það var ekki nóg til að fá hann til að hætta, en Larry missti hinsvegar trú á mannkyninu þegar hann sá hvað þetta svokallaða efnilega lið hans gat ekkert nema drullað á parketið.
Þvílík depurð - þvílík sóun.
Efnisflokkar:
Metabækurnar
,
Pacers
,
Paul George
,
Reggie Miller
,
Þristar
Wednesday, November 21, 2012
The Expendables með augum NBA Ísland
Efnisflokkar:
Allir að halda sér
,
Elli Kelling
,
Faðir Tími
,
Knicks
,
Kvikmyndahornið
,
Sjoppan
Subscribe to:
Posts (Atom)





















