Saturday, November 17, 2012

Til hamingju með daginn, STAT


Amare Stoudemire er þrítugur í dag, 16. nóvember. Vonandi jinxar hann ekki félaga sína í Knicks þegar þeir sækja Húnana heim í kvöld. Kannski fá allir kökusneið eftir leik.

Eins og við komum inn á í pistlinum um Knicks fyrr í kvöld, er erfitt að sjá hvaða hlutverk bíður hans þegar hann snýr aftur til leiks eftir meiðsli.

Það sem New York þarf frá honum í dag er fyrst og fremst varnarleikur og fráköst en Stoudemire er líklega miklu hrifnari af þeirri hugmynd að koma sér aftur á kortið með því að skora yfir 20 stig í leik. Óvíst að New York hefði byrjað 6-0 ef svo hefði verið.

Gamla Celtics-hetjan Jojo White á líka afmæli í dag, en hann er öllu eldri, fæddur 1946.