Friday, December 3, 2010
Meira af húðflúrum
Við eigum eftir að sjá húðflúr sem er meira die hard en þetta. Stuðningsmaður Utah Jazz með húðflúr af Jerry Sloan þjálfara sitjandi á John Deere dráttarvél með John Deere húfuna sína. Og áritun hans undir. Goðsagnarkennt efni.
Sloan er ekki að velta sér upp úr nýjustu tísku. Gengur oft með svona John Deere húfu. Okkur þótti raunar merkilegt að finna ekki eina einustu mynd af honum með húfuna sína grænu. Sloan fer alltaf á býlið sitt og þjösnast á dráttarvélum á sumrin meðan hann ákveður hvort hann eigi að halda áfram að þjálfa Jazz.
Ákveður alltaf að koma aftur eftir að hafa setið á traktórnum í smá stund. Hefur gert það síðan fyrir iðnbyltingu og heldur líklega áfram að þjálfa þangað til hann fer á diskóið. "Það er ekki eins og ég kunni eitthvað annað," segir hann alltaf.