Friday, December 17, 2010
Love-Lee-Darling
Þeir fáu sem nenntu að hafa fyrir því að svara þessari asnalegu jólagetraun sem við settum upp í gær, svöruðu flestir rétt.
Það hefur kannski staðið í yngri kynslóðinni hver sá gráhærði var á myndinni. Það er reyndar fínt. Að sjá mynd af þessum manni boðar ekkert annað en bölvuð vandræði og þú græðir ekkert á því að þekkja hann. Við lofum að fara ekki meira út í pólitík.
Það besta sem kom út úr þessari fáránlegu myndgátu var að upp frá henni fengum við í fyrsta skipti tölvupóst frá áberandi drukknum lesanda. Það gladdi okkur óstjórnlega og vonandi er þetta ekki síðasti pósturinn þeirrar tegundar sem kemur í innhólfið.
Fólk er alltaf að hafa samband annað slagið og lýsa yfir ánægju sinni með NBA Ísland og það gleður okkur mikið. Við eigum okkur ekkert líf eins og vefurinn ber með sér og því þykir okkur mjög vænt um að fá pósta með svona góðum anda.
Haldið endilega áfram að senda skemmtilega pósta og nota like takkann. Það er ógeðslega gaman og hjálpar til við að breiða út fagnaðarerindið.
Takk fyrir okkur, krakkar. Þið eruð frábær.