Friday, December 10, 2010

Kleinuhringurinn er kominn aftur (að mati Jason Kidd)!


Jason Kidd er aftur farinn að bjóða upp á kleinuhring. Skartaði honum í leiknum gegn Nets í nótt. (á myndinni er hann í búningi Nets).

Það er ansi langt síðan menn voru almennt að bjóða upp á kleinuhringi. Reyndar svo langt, að ef þú hefðir eignast barn á meðan þú varst með kleinuhringinn þinn á sínum tíma, gæti það bráðum farið sjálft í ríkið.

Ekki það að þú eigir að fara í ríkið fyrir barnið þitt - þú auðvitað reddar því bara landa.

Það var enginn búinn að láta okkur vita að kleinuhringurinn væri kominn aftur. Ekki eins og Barney Stinson hafi bloggað um það eða eitthvað.  Við tökum þessum tíðindum því með varfærni.

Það þurfti samt ekki meira en einn lítinn kleinuhring í grillinu á Jason Kidd til að koma okkur í nostalgíukast. Manstu þegar það var töff að vera með kleinuhring - og þú hafðir skeggvöxt til að gera það. Og hlustaðir að sjálfssögðu á House of Pain á meðan þú safnaðir.